Morgunblaðið - 14.11.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.11.2001, Qupperneq 4
NORÐMENN hafa látið taka hátt í 200 fósturvísa úr íslenskum ám sem ætlaðir eru til kynbóta á gamla norska fjárstofninum. Tveir breskir vísindamenn tóku á dög- unum fósturvísa úr kollóttum ám af Strandakyni en það hefur verið notað til kynbóta hér á landi. Þetta er í fyrsta sinn sem fósturvísar hafa verið teknir úr íslensku fé. Gæði íslenska lambakjötsins meiri en þess norska Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir hjá Búnaðarsambandi Íslands, seg- ir ástæðuna fyrir því að Norðmenn falast eftir fósturvísum héðan vera þá að þeir séu með fleiri sauð- fjárkyn. „Á fyrri hluta síðustu ald- ar fóru þeir síðan að safna saman þessum gamla norræna fjárstofni sínum og þeir líta svo á að hann sé að uppruna til nákvæmlega sami stofn og íslenski fjárstofninn. Árið 1971 komu Norðmenn hingað og tóku fyrsta sæði úr íslenskum hrútum og ég kom raunar að því að sæða með því sæði til kynbóta þegar ég var í framhaldsnámi í Noregi.“ Þorsteinn segir að þróunin hjá Norðmönnum hafi verið sú að þeir hafi lagt meiri áherslu á að rækta ull af þessu fé en auka kjötgæðin. Þeir séu raunar komnir langt aft- ur úr okkur Íslendingum í kjöt- gæðum og vöðvafyllingu en ullin sé þó kannski heldur betri. Það megi segja að Norðmenn séu að reyna að ná í þær ræktunarfram- farir sem Íslendingar hafi náð fram á undanförnum þrjátíu til fjörutíu árum. „Við höfum verið að stytta leggina á lömbunum og ver- ið virkari í að ómskoða fé og velja fé sem gefur þykkan vöðva og mikið læri auk þess sem við höfum náð að rækta upp mjög frjósamt fé. Og á undanförnum árum höfum við verið að reyna að minnka fitu- hlutfallið í skrokkunum og það hefur raunar tekist ótrúlega vel. Norðmennirnir leituðu til okkar af þessum sökum og komu síðan hingað og skoðuðu féð og fengu ráðleggingar hjá okkur.“ Fósturvísar úr íslensk- um ám til Noregs Bresku sérfræðingarnir taka fósturvísa úr íslensku fé en það hefur ekki verið gert áður hér á landi. FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRYNHILDUR Ólafsdótt- ir upplýsingafulltrúi Rauða kross Íslands, sem stödd er í Pakistan, segir að á milli 100 og 150 þúsund afgansk- ir flóttamenn séu komnir yf- ir landamæri Afganistans og Pakistans en óljóst sé hvaða áhrif fall Kabúl muni hafa á flóttamannastraum- inn. Óttast sé að stórir hóp- ar flóttamanna muni koma að landamærum ríkjanna nálægt borginni Quetta í suðvesturhluta Pakistans, í ljósi þess að hermenn talibanastjórnarinnar haldi nú til í suðurhluta Afganistans. Brynhildur heldur til Quetta í dag, miðvikudag, og býst við að koma að landamær- unum á morgun. Hún segir að einn starfsmaður Rauða krossins hafi komist til Kabúl í gærmorgun og nú sé verið að kanna aðstæður þar til að undirbúa komu fleiri starfsmanna. „Sjónum er nú beint að því að reyna að koma sjúkragögnum til sjúkra- húsa í Kabúl,“ sagði Bryn- hildur í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöld. Hún segir að um 3.500 manns búi við afar slæmar aðstæður við landamærin innan Afganist- ans, þar sem ekki hefur tekist að koma neinni aðstoð til þeirra, en landamærin hafa verið lokuð um nokkurt skeið. Þá séu ótaldir þeir, sem flýja afganskar borgir og halda til fjalla innanlands. Þá munu um 10 þúsund manns vera innan afgönsku landamæranna við Íran, en þar hafa starfsmenn Rauða krossins hins veg- ar fengið leyfi til að starfa, ólíkt því sem gerist á landamærum Afganist- ans og Pakistans. Aðspurð að því hvaða vitnisburður um ástand mála inni í Afganistan beris þaðan, segir Brynhildur að af- ganskir starfsmenn Rauða krossins í Kabúl segi börnin vera að niðurlot- um komin. „Fólk hefur lifað við styrjaldarástand vegna borgara- styrjaldar í landinu í 20 ár og nú seg- ir það: „Við héldum að við værum orðin vön þessu.“ En fleiri en einn starfsmaður segja nú að börnin séu hætt að tjá sig vegna óttans við stríð- ið og sprengingarnar. Ástandið veld- ur því að börnin eru að lokast inni í sér.“ Brynhildur mun næsta mánuðinn dvelja í Pakistan vegna starfa fyrir Rauða krossinn. Hún segir aðbúnað starfsmanna góðan og strangar ör- yggisreglur viðhafðar. Brynhildur Ólafsdóttir um stríðsástandið í Afganistan Börnin að niðurlotum komin vegna ótta Brynhildur Ólafsdóttir „ÉG held að Matthías Johannes- sen hafi að ýmsu leyti verið van- metinn sem skáld. Þetta ljóðasafn er tilraun til að bæta úr því. Ég hef þá trú að þeir sem lesa þetta ljóðaúrval muni komast að því hvað Íslend- ingar eiga mik- inn fjársjóð í ljóðunum hans Matthíasar,“ segir Silja Að- alsteinsdóttir sem valið hefur ljóð í bók sem ber nafnið Ljóðaúrval Matthíasar Jo- hannessen.Vaka-Helgafell gefur bókina út. Þar er að finna úrval úr öllum útgefnum ljóðabókum hans frá Borgin hló sem út kom 1958 til Ættjarðarljóða á atómöld sem kom út 1999. Silja ritar ýtarlegan formála um feril skáldsins þar sem hún segir meðal annars: „Matthías Jo- hannessen hefur alltaf lifað og hrærst í sínum samtíma og ort eins og sá samtími blés honum í brjóst. Þó ekki vélrænt þannig að hann hafi fylgt tískusveiflum, þvert á móti er hann frumlegt skáld og óvenju fjölbreytt í efnis- vali og formi, eins og ljóðaúrvalið ber með sér. Hann hefur fundið til í stormum sinnar tíðar en reynt að bera samferðamönnum þann boðskap að ekki dugi að láta undan svartsýni og þunglyndi; sag- an og bók- menntirnar segi okkur að það sé alltaf von, hversu vonlaust og svart sem virðist fram- undan. Ástin er það afl sem hann trúir mest á manneskjunni til gæfu og hins lífsnauðsynlega un- aðar, og sjaldgæf eru þau skáld í íslenskri bókmenntasögu – og þótt víðar væri leitað – sem hafa ort fegurri og næmari ljóð um samskipti kynjanna.“ Bókinni fylgir diskur með lestri skáldsins á eigin ljóðum. Bókin er 430 blaðsíður, Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu og Prentsmiðjan Oddi sá um prent- vinnslu. Fjársjóður í ljóðum Matthíasar Matthías Johannessen Silja Aðalsteinsdóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI Land- verndar, Tryggvi Felixson, segist hafa blendnar tilfinningar gagnvart þýðingu íslenska ákvæðisins í Kyoto- bókuninni við loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna sem afgreiddur var í Marokkó um síðustu helgi. Ákvæðið hafi bæði kosti og galla. Kostirnir séu þeir að Ísland geti staðfest Kyoto-bókunina og gallarn- ir helstir að hætta sé á að stóriðju- framkvæmdir hér á landi verði meiri en góðu hófi gegni. Íslenska ákvæðið, í stuttu máli sagt, heimilar smáríkjum að ráðast í stóriðjuverkefni þrátt fyrir aukinn útblástur gróðurhúsalofttegunda. Skilyrðið er að verkefnin byggist á nýtingu endurnýjanlegrar orku og leiði til samdráttar í losun á heims- vísu. „Landvernd hefur ekki tekið formlega afstöðu til málsins en ég hef ákveðnar áhyggjur. Ákvæðið er í raun ígildi framleiðslustyrkja fyrir stóriðju á Íslandi, eða meðgjöf. Að öðrum kosti hefðum við þurft að leita leiða til að fá heimild til losunar á þeim gróðurhúsalofttegundum sem starfsemin skilar frá sér, líklega með ærnum tilkostnaði. Með ákvæðinu er verið að skapa forsendur fyrir meiri vexti stóriðju á Íslandi en ella og því fylgja óhjákvæmilegar orkufram- kvæmdir. Þá er hætta á að sótt verði í landsvæði með hátt náttúruvernd- argildi, en ýmis teikn eru á lofti um það nú þegar hér á landi. Ákvæðið kallar á að við þurfum að hlúa vel að sjónarmiðum náttúruverndar og vera vel á verði til mótvægis við þessar breyttu forsendur fyrir rekstur stóriðju hér á landi,“ segir Tryggvi. Hann segir vissulega mikilvægt fyrir Ísland sem samfélag að eiga að- ild að lausn viðfangsefnisins, þ.e. að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda í heiminum. Framlag Íslands til lausnar vandans sé afar takmark- að á þessu stigi en mjór sé mikils vís- ir. „Merkasta niðurstaða fundarins í Marokkó er að loftslagssáttmálinn lifir áfram þrátt fyrir brotthvarf Bandaríkjanna. Á næstu fimmtíu ár- um þarf að draga úr losun gróður- húsalofttegunda um 50–60% á heimsvísu ef koma á í veg fyrir hættulegar breytingar á loftslagi og vonandi skapar þetta samkomulag forsendur fyrir því,“ segir Tryggvi ennfremur. Framkvæmdastjóri Landverndar um Kyoto-bókunina Íslenska ákvæðið með kosti og galla FRAMKVÆMDASTJÓRN Sólheima í Grímsnesi hefur sagt framkvæmdastjóra Sól- heima upp störfum. Fram- kvæmdastjórinn, Björn Her- mannsson, tók formlega við starfinu 15. ágúst sl. og hafði því aðeins gegnt því í þrjá mánuði. Framkvæmdastjórnin ákvað í fyrradag að reyna að komast að samkomulagi við Björn um að hann léti af störfum vegna samstarfserfið- leika. Þegar ljóst var að ekki var grundvöllur fyrir sam- komulagi um starfslok var honum afhent uppsagnarbréf. Um 80 manns búa á Sól- heimum og er um helmingur þeirra fatlaður. Fram- kvæmda- stjóra sagt upp Sólheimar ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram tillögu þess efnis að borg- arstjórn Reykjavíkur endurskoði deiliskipulag suðausturhluta Grjóta- þorps með tilliti til einstæðra forn- minja á horni Aðalstrætis og Tún- götu en þar sé talið að sé að finna landnámsbæ Reykjavíkur. Sam- kvæmt skipulagsáformum hefur verið ætlunin að á þessu svæði og í næsta nágrenni risu hótelbygging og bílastæðageymslur en Ólafur tel- ur að nauðsynlegt sé að tryggja varðveislu fornminjanna og að ekki verði þrengt að þeim. Í greinargerð með tillögunni seg- ir að borgaryfirvöld hafi þegar fall- ið frá glórulausum framkvæmdum vegna bílastæðahúsa en ekki hafi enn verið horfið frá hugmyndum um hótelbyggingu á vegum Þyrp- ingar. Ekki sé hægt að fallast á að þrengt sé að fornminjum vegna þessa og því beri að laga bygging- aráform að þörfum landnámsbæj- arins en ekki öfugt. Ekki verði þrengt að fornminjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.