Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 11

Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 11
Í BÆKLINGI frá starfshópi um einelti, skipuðum af samráðs- nefnd grunnskóla, er einelti skil- greint á þennan veg: „Einelti felur í sér að nemandi er tekinn fyrir af einum eða fleiri nemendum með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi um- mælum og sögusögnum, and- legri kúgun, hótunum af ýmsu tagi sem kemur þolanda illa, lík- amlegri misbeitingu eða fé- lagslegri höfnun eða markvissri einangrun eða útskúfun.“ Strákar leggja frekar en stelpur aðra í einelti og einnig eru fleiri strákar en stelpur lagð- ir í einelti. Þó verður að taka með í reikninginn að einelti af hálfu stúlkna fylgir oftast ekki líkam- legt ofbeldi og því er erfiðara að koma auga á það. Hins vegar sýna rannsóknir að einelti af hálfu stúlkna er oft óbeint og út- pældara. Það getur falið í sér baktal og/eða útskúfun. Þetta á líka við um drengi, en meðal þeirra er eineltið oft sýnilegra. Hvað er einelti? FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 11 UM 60% þeirra, sem leggja aðra í einelti í grunnskóla, eru komnir á sakaskrá 24 ára og um 40% fyrir fleiri en þrjá glæpi. Þetta er m.a. nið- urstaða langtímarannsóknar sem Svíinn Dan Olweus stóð fyrir í grunnskólum í Stokkhólmi í Svíþjóð. Samanburðarhópur sýndi að aðeins 10% þeirra, sem ekki eru gerendur eineltis, lenda á sakaskrá fyrir 24 ára aldur. Ef tölur um fjölda þeirra, sem verða fyrir einelti eða leggja aðra í einelti í grunnskólum í Svíþjóð, eru yfirfærðar á íslenska skóla, má gera ráð fyrir að um 5.000 börn séu þar lögð í einelti á hverju ári. Rannsókn- ir sýna einnig að einelti hefur aukist til muna frá því snemma á níunda áratugnum og til dagsins í dag. Olweus var staddur hér á landi í síðustu viku og hélt fyrirlestur á málþingi sem menntamálaráðuneyt- ið stóð fyrir. Yfirskrift málþingsins var „Aðgerðir gegn einelti í grunn- skólum“ og er það hluti af vinnu starfshóps sem skipaður var af sam- ráðsnefnd grunnskóla. Á þinginu voru kynntar tillögur starfshópsins sem eru í anda kenninga Olweus. Gerendur og þolendur „Það er erfitt að benda á þá sem eru líklegir til að verða fyrir einelti, ákveðin persónu- eða útlitseinkenni eru stundum fyrir hendi en eru þó alls engin regla,“ segir Olweus um niðurstöður rannsóknarinnar. „Hins vegar er hægara að sjá einkenni þeirra sem eru gerendur. Þeir eru ofbeldisfullir, bæði gegn fullorðnum og börnum, veigra sér síður við en aðrir að beita ofbeldi og líta það já- kvæðari augum en aðrir. Þeir eru hvatvísir og hafa sterka tilhneigingu til að drottna yfir öðrum. Þeir hafa litla meðaumkun með öðrum og eru oft líkamlega sterkari en bekkjar- félagarnir. Goðsögnin um að þeir séu sjálfir óöruggir og hafi veika sjálfs- mynd eins og oft hefur verið haldið fram er hins vegar ekki studd með rannsóknum.“ Rannsóknir Olweus sýna ennfremur að einelti er hluti af andfélagslegu munstri viðkomandi sem einkennist af ofbeldi. Gerendur eineltis eiga erfitt með að fylgja reglum, hvort sem það eru skólaregl- ur eða óskrifaðar siðareglur sam- félagsins. Kerfi um aðgerðir gegn einelti Meðfram rannsóknum Olweus á einelti, sem var margþætt yfir þrjá- tíu ára tímabil, þróaði hann kerfi eða átaksverkefni gegn einelti í grunn- skólum. Um 2.500 nemendur í Berg- en í Noregi tóku þátt í að þróa kerfið í upphafi og sýndu niðurstöður að átakið dró úr einelti um 50% meðal nemenda auk þess sem skemmdar- verk og önnur hegðunar- og sam- skiptavandamál höfðu sýnilega minnkað. Norska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að innleiða kerfi Olweus í öllum grunnskólum landsins. Kerfið er að sögn Olweus í stöðugri þróun, en var fyrst reynt með góðum árangri um miðjan níunda áratug- inn. „Það er mikilvægt að gripið sé inn í strax í upphafi svo að þolendur ein- eltis fái að njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að sleppa við ofbeldi og niðurlægjandi meðferð skóla- félaga sinna. Það er mín skoðun að það sé réttur allra nemenda að líða vel í skólanum og finna fyrir öryggi.“ Hingað til hefur ýmsum aðferðum verið beitt í skólum um allan heim í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir og stöðva einelti. Olweus segir að margar þeirra byggist á því að „herða“ fórnarlömbin, þolendurna, svo þau geti staðið upp í hárinu á of- beldismönnum sínum. „Þetta er röng aðferð. Það á ekki að láta börnin sjálf leysa vandamálið, þetta er ekki létt- vægt vandamál sem þau geta leyst sín á milli. Einelti er gróft ofbeldi og það verður að taka á því sem slíku.“ Sjaldan hefur hins vegar verið mældur árangur aðgerða gegn ein- elti en slíkar rannsóknir liggja fyrir á kerfi Olweus. Þær sýna svo ekki verður um villst að kerfið ber árang- ur, enda hafa mörg lönd, þar á meðal Bandaríkin, ákveðið að innleiða kerf- ið. Stór hluti kerfisins byggist á því að fræða kennara og kenna þeim að takast á við einelti í skólunum. Olw- eus segir að það sé langt í frá að kennarar á Norðurlöndum með hefð- bundna kennaramenntun hafi þekk- ingu til að takast á við jafnalvarlegt vandamál og einelti er. „Kerfið byggist á því að kennarar eða sér- stakir leiðbeinendur eru sérstaklega menntaðir til verksins. Þeir fara síð- an inn í skólana og bera út boðskap- inn. Þetta er því svona pýramída- kerfi sem fylgt er vel eftir.“ Rannsóknir á árangri kerfisins sýna glögglega að hægt er að draga úr einelti með skipulögðum hætti. Mikil áhersla er lögð á að kerfið sé byggt á rannsóknum og að árangur hafi verið mældur. Góðar hugmyndir eru alltaf að fæðast en sjaldan er vit- að hver árangur þeirra í raun er, segir Olweus. Sérstök nefnd sér- fræðinga var fengin til að meta árangur ólíkra verkefna á þessu sviði. Niðurstaðan var sú að aðeins eitt verkefni eða kerfi sýndi veru- legan árangur. Það var kerfi Olweus. Mikil þekking á einelti „Í gegnum rannsóknir síðustu þrjá áratugi höfum við aflað mikillar þekkingar um einelti,“ segir Olweus. „Við vitum að þeir sem eru lagðir í einelti finna fyrir kvíða, þunglyndi og hafa neikvæða sjálfsmynd af þeim völdum. Þetta eru langtímaáhrif, einstaklingar sem voru lagðir í ein- elti í grunnskóla glíma enn við lítið sjálfstraust og eru líklegri til að vera þunglyndir sem ungt fólk. Að verða fyrir einelti er grafalvarleg lífs- reynsla.“ Strax árið 1981 hvatti Olweus til þess að sett yrðu lög gegn einelti, en málið fékk ekki pólitískan stuðning í Svíþjóð. Svo er þó í dag, skólareglur kveða nú á um að einelti sé ekki leyft og að hver og einn nemandi og starfsmaður skólans eigi að reyna að koma í veg fyrir einelti gegn sam- nemendum sínum. „Mér finnst að foreldrar eigi að hafa skýlausan rétt til að fara fram á rannsókn gruni þá að barnið þeirra sé lagt í einelti. Oft er sagt við foreldra að þeir ofverndi börn sín, en skilaboð mín til þeirra eru þau að þeir eigi ekki að gefast upp, skólinn beri ákveðna ábyrgð og það á ekki að útiloka foreldrana heldur virkja þá til þátttöku.“ Olweus segir kerfið ekki einhvers konar brunabjöllu sem sett er af stað þegar vandinn kemur upp. Heldur byggist það á því að vandamálið sé þekkt í skólanum og að kerfisbundið sé unnið að því að leysa það. „Með kerfinu er ætlunin að breyta allri skólamenningunni svo að skólinn verði öruggari og betri staður. Ein- elti er ekki ágreiningur á milli ein- stakra nemenda. Einelti er ofbeldi, misnotkun og taka ber skilyrðislaust á því samkvæmt því.“ „Við vitum að þeir sem eru lagðir í einelti finna fyrir kvíða, þunglyndi og hafa neikvæða sjálfsímynd af þeim völdum. Þetta eru langtímaáhrif, einstaklingar sem voru lagðir í einelti í grunnskóla glíma enn við lítið sjálfstraust sem ungt fólk,“ segir Dan Olweus. „Að verða fyrir einelti er grafal- varleg lífsreynsla“ Margir þeirra sem verða fyrir einelti í grunnskóla glíma við ýmis vandamál eftir að skóla sleppir en um 15% allra grunn- skólanema verða fyrir einelti eða taka þátt í því á ári hverju. Sænski prófessorinn Dan Olweus segir einelti vera gróft of- beldi og taka beri á því sem slíku. Morgunblaðið/Kristinn Sænski prófessorinn Dan Olweus hefur rannsakað einelti í grunnskólum í þrjá áratugi MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ stóð fyrir mál- þingi um einelti á dögunum þar sem hug- myndir Dan Olweus voru m.a. kynntar fyrir ýmsum völdum aðilum sem að skólastarfi grunnskóla koma. Þingið er haldið að tillögu starfshóps sem skipaður var af samsráðsnefnd grunnskóla seint á síðasta ári. Í samráðsnefnd eiga sæti fulltrúar menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Ís- lands. „Það er tiltölulega nýfarið að ræða opinskátt um einelti á Íslandi,“ segir Sesselja Snævarr deildarsérfræðingur í grunnskóladeild menntamálaráðuneytis. „En einelti kemur öll- um við, jafnt foreldrum, nemendum sem starfs- mönnum skólanna.“ Haustið 1998 efndi umboðsmaður barna til ráðstefnu um einelti og hana sóttu bæði börn og fullorðnir. Menntamálaráðuneytið lét í kjöl- far hennar gera tvær rannsóknir á umfangi og eðli eineltis og úrræðum gegn því. „Í rannsókn- unum kom í ljós að einelti er töluvert meira hér á landi en margan grunaði,“ segir Sesselja. „Í seinni rannsókninni voru úrræði skóla við lausn á eineltisvandamálum könnuð. Í ljós kom að skólar eru í vaxandi mæli að vinna að einelt- isáætlunum. Einnig varpaði rannsóknin ljósi á afstöðu skóla til eineltis og í ljós kom að viðhorf kennara benti til óöryggis og að þeim finnist þeir vanbúnir að takast á við vandamálið.“ Rannsóknunum var fylgt eftir af hálfu menntamálaráðuneytisins með því að vísa mál- inu til samráðsnefndar grunnskóla til áfram- haldandi umfjöllunar. Í kjölfarið skipaði nefnd- in starfshóp og hlutverk hans var að koma með tillögur að samræmdri aðgerðaáætlun, hvernig bregðast skuli við ef og þegar einelti kemur upp. Þá fjallaði starfshópurinn einnig um for- varnir gegn einelti. Ein af tillögum starfshópsins var að efna til málþings um aðgerðir og fræðslu og var Dan Olweus aðalfyrirlesari málþingsins. Auk þess voru flutt erindi um rannsóknir RUM, skýrslu starfshópsins og eineltisáætlun í Seljaskóla. Nú er verið að vinna úr niðurstöðum þingsins og mun starfshópurinn gera í framhaldinu drög að tillögum um framkvæmda- og kostnaðar- áætlun byggða á hugmyndum Olweus. „Menntamálaráðuneytið ítrekar mikilvægi samstarfs sem þetta um málefni grunnskól- ans,“ segir Sesselja. Einelti kemur öllum við KERFI Dan Olweus er í nokkrum þrep- um, þar sem ákveðnar aðferðir eru látn- ar yfir allan skólann ganga, bekkinn og síðan einstaklingana. Í upphafi er gerð rannsókn á umfangi eineltis í skólanum með spurningalistum. Olweus segir mikilvægt að skilja þar strax við allar fyrirfram ákveðnar hug- myndir um einelti, margar þeirra séu goðsagnir sem eigi ekki við nein rök að styðjast. T.d. að meira sé um einelti í stórum skólum, en engar rannsóknir styðja þessa fullyrðingu með óyggjandi hætti. Nokkur lykilatriði er nauðsynlegt að hafa í huga þegar kerfið er innleitt. Mik- ilvægt er að hafa starfsdag sem er helg- aður einelti í samvinnu foreldra, kennara og nemenda. Gott eftirlitskerfi er nauð- synlegt. Í norskum skólum eru sérstakir starfsmenn sem vakta skólasvæðið og eru tilbúnir að grípa inn í ef eitthvað kemur upp á í frímínútum. Lykilatriði er einnig að hafa virka umræðuhópa þar sem árangur verkefnisins er metinn og farið er yfir aðgerðir sem í gangi eru. Inni í hverjum bekk skulu settar ein- faldar en skiljanlegar reglur um einelti og bekkjarráð skal reglulega hittast og ræða um einelti og ástandið og andann í bekknum. Kerfið byggist auk þess á ein- staklingsviðtölum og foreldraviðtölum þeirra barna sem verða fyrir eða leggja aðra í einelti. Mikilvægt er að gripið sé til aðgerða í samráði við foreldrana sam- stundis og eineltis verður vart. Viðmið þessi eru sett með það að leið- arljósi að efla andann í skólanum en und- irstaða þess er að í hverjum bekk sé góð- ur andi og að hverjum og einum nem- enda líði vel í skólanum. Boðskapur alls kerfisins er sá að einelti sé aldrei umbor- ið og að nemendum sé það ljóst frá upp- hafi. Kerfi Dan Olweus gegn einelti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.