Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 15
SUÐURNES
SAMEINING sex sveitarfélaga í
eystri hluta Rangárvallasýslu stend-
ur nú fyrir dyrum. Kosið verður laug-
ardaginn 17. nóvember nk. um sam-
einingu Austur- og Vestur-Landeyja-
hreppa, Austur- og Vestur-Eyja-
fjallahreppa, Fljótshlíðar og Hvol-
hrepps.
Samstarfsnefnd um sameiningar-
mál hélt sameiginlegan kynningar-
fund fyrir íbúa allra hreppanna í
Gunnarshólma sl. fimmtudagskvöld.
Milli 50 og 60 manns mætti á fundinn.
Elvar Eyvindsson fór yfir sameining-
artillögu sveitarstjórnanna en Ágúst
Ingi Ólafsson fjallaði um fjármál og
fjárhagsstöðu hreppanna. Miðað við
núverandi fjárhagsstöðu þessara
sveitarfélaga kom fram að framlög úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga munu
hækka um 14 milljónir verði samein-
að. Skuldastaða sveitarsjóðanna er
mjög mismunandi og skuldar Hvol-
hreppur langmest miðað við höfða-
tölu en á móti kemur að eignir Hvol-
hrepps eru langt umfram aðra
hreppa.
Nokkrar umræður urðu á fundin-
um og sýndist sitt hverjum um kosti
og galla þess að sameina. Höfðu sum-
ir áhyggjur af því að verið væri að
færa þéttbýlinu mikla fjármuni á silf-
urfati og að dreifbýlishrepparnir yrðu
eins konar nýlendur hjá þéttbýlinu.
Einnig var rætt um ýmis óuppgerð
mál hjá sumum hreppanna.
Nokkrir fundarmenn töldu nauð-
synlegt að sameina hreppana því
þannig væri framtíðarbúseta í hrepp-
unum best tryggð, þjónusta samein-
aðs sveitarfélags við íbúana yrði betri
og atvinnuuppbygging auðveldari.
Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri
Hvolhrepps, útskýrði fyrir fundar-
mönnum að gengið væri til samein-
ingar með það að leiðarljósi að allir
myndu leggja það til sem þeir ættu,
bæði skuldir og eignir.
Í kynningarbæklingi um samein-
ingarkosningar kemur fram að vilji er
til að nýta 91. grein sveitarstjórnar-
laga verði sameining ekki samþykkt í
öllum hreppunum. Þar kemur fram
að heimilt er að sameina þau sveit-
arfélög sem samþykkja ef tillagan
hlýtur meirihluta greiddra atkvæða í
2⁄3 hluta sveitarfélaganna og í þeim
búa a.m.k. 2⁄3 íbúa á svæðinu.
Kosið um sameiningu í
Austur-Rangárvallasýslu
Hella
Ljósmynd/Pálína Björk Jónsdóttir
Þeir eru ekkert að hugleiða sameininguna, þessir kátu krakkar.
TILRAUNAAKSTUR á nýrri dráttarvél fór fram í Að-
aldal og Reykjahverfi í síðustu viku, en venja er að
dráttarvélar séu kynntar í sveitahreppunum.
Að þessu sinni var haft nokkuð annað form á kynn-
ingunni og var farið heim á bæina þar sem hverjum
bónda var sýnd vélin sérstaklega í stað þess að safna
mönnum saman á einn stað. Þetta var fyrirtækið Þór
hf. sem var með sýningu á nýrri 105 hestafla John
Deer-vél og voru bændur ánægðir með að fá að
reynsluaka vélinni heima við og fá einnig meiri tíma til
þess að ræða við sölumennina um ýmsar tækninýj-
ungar. Á undanförnum árum hafa dráttarvélar hækkað
mikið í verði, en um leið orðið fullkomnari hvað varðar
tæknibúnað og nú vilja bændur almennt aflmeiri vélar
en áður var.
Nýtt kynningarform á dráttarvélum
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Jónas Lúðvíksson og Hrafn Hrafnsson frá Þór hf.
NORRÆNA bókasafnsvikan Í
ljósaskiptunum er haldin í fimmta
sinn, nú undir kjörorðunum Orð
og tónar í norðri. Bókasafn
Reykjanesbæjar hefur tekið þátt í
verkefninu frá upphafi.
Yfir fjörutíu bókasöfn og skólar
taka þátt í norrænu bókasafnsvik-
unni að þessu sinni. Á Suð-
urnesjum eru það eingöngu Bóka-
söfn Reykjanesbæjar og
Grindavíkur sem eru með að þessu
sinni.
Menningarfulltrúi Reykjanes-
bæjar og Suðurnesjadeild Nor-
ræna félagsins stóðu að opn-
unarhátíðinni í Reykjanesbæ.
Hátíðin var haldin við kertaljós í
húsnæði safnsins. Tók opnunarhá-
tíðin mið af þema vikunnar sem er
eins og áður segir Orð og tónar í
norðri.
Norræn ljóðlist, norræn vísna-
hefð og norræn tónlist eru settar í
öndvegi um öll Norðurlöndin á
bókasafnsvikunni. Valdir voru
þrír söngtextar sem sungnir voru
að morgni mánudagsins í leik-
skólum og skólum sem taka þátt í
bókasafnsvikunni og klukkan 18 í
bókasöfnun á öllum Norðurlönd-
unum. Sögvarnir eru Piparköku-
söngurinn eða Hjá bakaranum eft-
ir Thorbjörn Egner, Út hjá Haga
eftir Carl Bellman og Ham-
ingjudagar Svantes eftir Benny
Andersen. Við athöfnina í Bóka-
safni Reykjanesbæjar aðstoðuðu
börn úr leikskólanum Holti og úr
10. bekk Myllubakkaskóla við
flutninginn, Þór Stefánsson flutti
ljóð og Guðmundur Hermannsson
söng við undirleik Vignis Berg-
mann. Um 70 manns tóku þátt í at-
höfninni sem tókst vel, að sögn
Svanhildar Eiríksdóttur, deild-
arstjóra barna- og unglingastarfs í
Bókasafni Reykjanesbæjar.
Í tilefni norrænu bókasafnsvik-
unnar er vakin sérstök athygli á
ljóðabókum og nýjum plötum í
Bókasafni Reykjanesbæjar. Á
morgun kemur norræna vísna-
hljómsveitin Nordenom og leikur
fyrir gesti í Flugcafé sem er í
Kjarna, við hlið bókasafnsins.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Börn úr leikskólanum Holti fluttu piparkökusönginn á Bókasafni
Reykjanesbæjar við upphaf norrænnar bókasafnsviku sem þar er.
Norræn ljóðlist,
vísnahefð og
tónlist í öndvegi
Reykjanesbær