Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ RAFTÆKJAVERSLUN Íslands hefur keypt húsgagnaverslunina Míru og mun taka við rekstrinum í núverandi húsnæði í Bæjarlind í Kópavogi um áramótin. Kolbrún Anna Jónsdóttir og Þor- kell Stefánsson eiga meirihluta í Raf- tækjaverslun Íslands og þau munu gera nokkrar áherslubreytingar á rekstrinum en taka skýrt fram, ásamt Margréti Kjartansdóttur, eiganda Míru til sex ára, að Míra sé ekki að hætta. Þorkell og Kolbrún hugsa sér að láta hanna húsgögn hér innanlands en framleiða þau erlendis, t.d. á Ind- landi. „Við erum einnig spennt fyrir þeim möguleika að flytja húsgögn af þessu tagi út á Kanada- og Banda- ríkjamarkað,“ segir Þorkell. Stuttur aðdragandi að sölunni Margrét Kjartansdóttir, eigandi Míru til sex ára, segist munu nýta tímann til áramóta til að selja sem mest af lager Míru og þær nýju vörur sem eru á leiðinni. „Ákvörðunin um söluna var tekin mjög hratt og eig- inlega fyrir tilviljun. Áður var ég búin að auglýsa að Míra myndi minnka við sig og flytja, því að ég hafði hugsað mér það upphaflega þar sem þetta húsnæði hér í Bæjarlind er of stórt. Fólk var orðið órólegt og margir spurðu hvort Míra væri að hætta. Svo er ekki!“ Margrét bendir á að Míra sé mjög vinsæl meðal ungs fólks. „Á þessum sex árum eru húsgögn frá Míru kom- in inn á 13 þúsund heimili og ég er mjög stolt af því. Viðskiptavinirnir koma aftur og aftur. Þó að ég sé að draga mig út úr þessu verður haldið áfram á fullri ferð.“ Aðspurð segir Margrét að hún hafi ekki ákveðið hvað hún tekur sér fyrir hendur eftir áramót. Raftæki og húsgögn fara vel saman Kolbrún Anna segir að Raftækja- verslun Íslands stefni á að bjóða allt til heimilisins í verslunum sínum í Skútuvogi og Bæjarlind þegar þar að kemur. Breytingar verða gerðar á versluninni í Bæjarlind þannig að í mars 2002 verður þar verslun með raftæki, húsgögn og fleiri vörur sem Þorkell og Kolbrún Anna vilja ekki upplýsa að svo stöddu. Ljóst er að um nokkuð breyttar áherslur í úrvali er að ræða frá því sem nú er og Kolbrún segir að húsgagnaúrvalið verði svipað en meira. Núverandi lagerhúsnæði Míru verður notað sem verslunarrými fyrir húsgögn og rýmið þar sem húsgögnin eru nú verður tekið undir þrjár sér- deildir, þar af eina raftækjadeild. Hinar tvær deildirnar tengjast heim- ilinu á einhvern hátt. Míru í Bæjar- lind verður ekki lokað í millitíðinni og eftir sem áður verður hægt að nálgast Míruhúsgögnin vinsælu. Kolbrún Anna og Þorkell telja rekstur raftækjaverslunar og hús- gagnaverslunar fara vel saman. Þor- kell segir að ef sérverslun á Íslandi eigi að ná að vaxa og dafna verði að eiga sér stað sameiningar til að ná þeim markaðsstyrk sem til þarf. „Við náum þarna samlegðaráhrifum sem gera það að verkum að markaðssetn- ing okkar verður auðveldari. Við nýt- um það sem við erum með til staðar og það er tiltölulega auðvelt fyrir okk- ur að taka inn nýja rekstrareiningu.“ Tvöföldun á veltu Gólfflötur verslana Raftækjaversl- unarinnar tvöfaldast við kaupin á Míru og sama máli gegnir um veltuna. Þorkell og Kolbrún Anna eru bjart- sýn á reksturinn þrátt fyrir almenn samdráttareinkenni í efnahagslífinu. „Rekstur Míru hefur alltaf skilað mjög miklum hagnaði og Margrét hefur staðið í þessu öllu ein. Við erum að taka við fyrirtæki í blómarekstri og erum mjög ánægð með það,“ segir Þorkell. „Míra hefur blómstrað og blómstrar núna og mun halda áfram að blómstra.“ Morgunblaðið/Ásdís Margrét Kjartansdóttir, Þorkell Stefánsson og Kolbrún Anna Jónsdóttir í verslun Míru við Bæjarlind. „Míra mun halda áfram að blómstra.“ Húsgagnaútflutn- ingur í athugun Raftækjaverslun Íslands kaupir Míru GENGI íslensku krónunnar náði sögulegu lágmarki í gær. Gengisvísi- tala krónunnar fór þá í 147,37 stig en það er hæsta gildi, og jafnframt lægsta gengi, sem skráð hefur verið. Veikingin nam 0,42% yfir daginn. Gengisvísitala krónunnar fór þó enn hærra innan gærdagsins, eða upp í 147,70 stig, og hefur aldrei ver- ið hærri. Bandaríkjadollar styrktist tals- vert og fór gengi hans í 107 krónur. Krónan veikist enn KRISTINN Björnsson, for-stjóri Skeljungs hf., segirfyrirtækið hafa lækkaðraunálagningu á bensíni undanfarin þrjú ár um tæp 6% og að verð Skeljungs á skipaolíu sé í flest- um tilvikum sambæri- legt við það sem gerist í nágrannalöndunum, að teknu tilliti til staðsetn- ingar landsins. Hörð gagnrýni hefur undan- farið komið fram á verðmyndun olíu og bensíns hjá íslensku ol- íufélögunum eftir þró- un síðustu mánaða. Formaður Landssam- bands íslenskra út- gerðarmanna lýsti því yfir í ræðu sinni á aðal- fundi LÍÚ að þörf sé á opinberri rannsókn á starfsháttum félaganna og Samtök iðnaðarins hafa í bréfi til iðnaðarráðherra óskað eftir að ráðherra beiti sér fyrir því að athugun Samkeppnisstofnunar á verklagi olíufélaganna verði hraðað eins og kostur er. Þá hefur Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda sent Sam- keppnisstofnun útreikninga þar sem því er haldið fram að olíufélögin hafi að undanförnu aukið álagningu sína umfram það sem eðlilegt geti talist. Kristinn vísar þessum fullyrðingum á bug og segir útreikninga FÍB ekki standast nánari skoðun. Að sögn Kristins er það alvarlegt mál þegar hagsmunasamtök eins og FÍB taka að sér að byggja upp vænt- ingar um lækkun bensínsverðs, líkt og gerðist um síðustu mánaðamót. Þá taldi FÍB grundvöll fyrir 5 krónu lækkun bensínlítrans en Skeljungur lækkaði verðið um 4 krónur. Kristinn segir FÍB eng- an veginn geta risið undir sínum útreikning- um og það komi greini- lega fram í túlkun þeirra á því sem kallað er álagning olíufélag- anna, en þar sé litið á ýmiss konar kostnað sem raunálagningu. „Ég fullyrði að hér sé einfaldlega um vísvit- andi rangan málflutning að ræða. Þeir eru vísvit- andi að reyna að blekkja, vegna þess að inni í þessari álagningu er flutnings- kostnaður á vörunni til landsins, hafnargjöld, flutningsjöfunarsjóður, rannsóknar- og móttökukostnaður og síðan dreifingar- og sölukostnaður. Þetta er allt inni í þessari svokölluðu álagningu og þetta er það sem FÍB kallar stundum hlut olíufélaganna, en þetta er auðvitað fyrst og fremst út- lagður kostnaður. Síðan er ákveðinn hluti af verðinu nettó álagning.“ Kristinn segir starfsmenn Skelj- ungs hafa farið yfir útreikninga FÍB og þá hafi komið í ljós að samtökin voru að taka út þriggja ára tímabil og komist að þeirri niðurstöðu að álagn- ing hafi hækkað. Hann segir starfs- menn Skeljungs síðan hafa reiknað út breytingu á álagningu félagsins á 95 oktana bensíni á þriggja ára tímabili og í ljós hafi komið að raunálagningin hafði lækkað um 5,8% frá 1. janúar 1999 til 1. nóvember 2001, en ekki hækkað eins og FÍB hefði haldið fram. „Við þekkjum okkar eigin tölur og ég vek líka athygli á því að á þessu tímabili hefur varan einnig hækkað mjög mikið. Olían er orðin miklu dýr- ari og við ráðum ekkert við það. Ég verð að segja eins og er um þessar ályktanir FÍB að við bara skiljum þær ekki. Við höfum meira að segja lagt töluverða vinnu í að reyna að brjóta þær til mergjar en þær eru bara byggðar á einhverjum forsend- um sem eru samblanda af einhverri óskhyggju og því að verið er að hlaupa framhjá og yfir staðreyndir. Það liggur þannig fyrir.“ Hvar liggja þá mistökin í útreikn- ingum FÍB? „Ég hef ekki hugmynd um það. Og það er kannski eins og að bíta höfuðið af skömminni að FÍB setur upp álagninguna með mynd á heimasíðu þeirra með virðisaukaskatti, þannig að það er ekki nóg með að fraktin sé hluti af álagningu olíufélaganna, heldur líka virðisaukinn. Þetta þykir okkur ekki góð latína og þótt við höf- um lagt okkur fram um að skilja þetta, þá höfum við ekki haft áhuga á að reyna of mikið því þetta er aug- ljóslega ekki rétt.“ Þá segir Kristinn að ekki sé tekið tillit til stóraukinnar markaðshlut- deildar sjálfsafgreiðslustöðva, þar sem verið sé að veita afslátt af bens- ínverði á bilinu 4 til 5 krónur á lítra. Einnig sé hægt að fá afslátt á lang- flestum bensínstöðvum með því að dæla sjálfur á bílinn og þar sé um að ræða 2 til 4 króna afslátt á hvern lítra. „Það er ekkert tillit tekið til þess í þessum útreikningum FÍB og það er Álagning á bensín lækkað um 5,8% á þremur árum Kristinn Björnsson Olíufélögin íslensku hafa mátt sæta veru- legri gagnrýni undanfarið og hafa samtök eins og LÍÚ og Samtök iðnaðarins m.a. krafist opinberrar rannsóknar á verðlagn- ingu félaganna. Eiríkur P. Jörundsson ræddi við forstjóra Skeljungs um þessar kröfur og verðlagningu félagsins á olíu. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir gagnrýni á olíufélögin af hálfu FÍB ekki eiga við rök að styðjast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.