Morgunblaðið - 14.11.2001, Qupperneq 19
AP
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 19
5 690691 200008 Lífsreynslusaga • Heilsa • Ferðamál • Matur • Krossgátur
Sá kynþokkafy
llsti
sýnir hina hliði
na
45. tbl. 63. árg.
13. nóvember, 2001.
VERÐ 599 kr. M/VSK.
Kökublað
Sannkallaðar
jólakonur
Þórunn Lárusdóttir
og áramótabomban
40gómsætar uppskriftir
fyrir jólabakst
urinn
Jólakalkúninn
á marga vegu
Eðal-
kaffi-
drykkir
ÁTTA erlendir hjálparstarfsmenn,
sem eru í haldi talibanastjórnarinnar
í Afganistan, voru fluttir í fyrrinótt
frá Kabúl til Kandahar í suðurhluta
landsins er hermenn talibana flúðu
höfuðborgina undan sveitum Norð-
urbandalagsins. Fólkið var handtek-
ið snemma í ágúst og hófust réttar-
höld yfir þeim í september en hlé var
síðan á þeim gert þegar Bandaríkja-
menn hófu hernaðaraðgerðir í Afg-
anistan 7. október sl.
Fólkið kemur frá Bandaríkjunum,
Ástralíu og Þýskalandi og var við
störf í Afganistan fyrir alþjóðlegu
hjálparsamtökin Shelter Now. Talib-
anar hafa sakað fólkið um að stunda
kristniboð í Afganistan, nokkuð sem
þeir líta afar hörðum augum. Áttu
þau yfir höfði sér dauðadóm ef þau
yrðu fundin sek um glæpinn.
Bandaríkjamaðurinn John Merc-
er, faðir eins af föngunum, Heather
Mercer, sagði við CNN í gær að
hann væri að mörgu leyti feginn því
að þau hefðu verið flutt, því uppnám-
ið væri sennilega slíkt í höfuðborg-
inni Kabúl þessa stundina að þeim
væri minni hætta búin í Kandahar,
sem er helsta vígi talibana.
Hann sagði fulltrúa talibana-
stjórnarinnar í borginni Islamabad í
Pakistan hafa greint sér frá þessum
tíðindum og jafnframt að áttmenn-
ingarnir væru heilir á húfi.
Erlendir
hjálparstarfsmenn
í haldi talibana
Flutt frá
Kabúl
til Kand-
ahar
SÁDI-Arabinn Osama bin
Laden, sem grunaður er um
hryðjuverkin í Bandaríkjun-
um 11. sept. sl., er líklega í
felum nærri helsta vígi talib-
anastjórnarinnar í Afganist-
an, borginni Kandahar, að
sögn Jacks Straws, utanrík-
isráðherra Bretlands. Straw
sagði hins vegar að mjög
þrengdi nú að bin Laden.
Straw sagði allar líkur á
því að bin Laden og aðrir
leiðtogar al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna væru ein-
hvers staðar í Suður-Afgan-
istan.
Sagði hann að áfram yrði
allt kapp lagt á að hafa
hendur í hári bin Ladens
sem hefur verið í Afganist-
an í boði talibanastjórnar-
innar.
Getgátur um flótta
Mohammads Omars
Fyrr í gær voru uppi get-
gátur um að Mohammad
Omar, andlegur leiðtogi tal-
ibana, hefði sjálfur flúið
Afganistan og að hann væri
kominn til Pakistans.
Um miðjan dag flutti Om-
ar hins vegar útvarpsávarp
þar sem hann hvatti her-
sveitir talibana til dáða. Var
fullyrt að hann væri enn í
Kandahar.
Bin Laden lík-
lega í Kandahar
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Úr ávarpi Osama bin Ladens sem sjónvarpsstöðin Al-Jazeera í Katar sýndi nýlega.