Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 20

Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Dalvegi 28  200 Kópavogi  Sími 564 4714  Fax 564 4713 BANDARÍSKIR öryggismálafull- trúar komust að þeirri niðurstöðu fyrir mánuði, að komið hefðu upp til- vik þar sem „skort hefði á öryggi“ þeirrar gerðar af hreyflum sem knúðu farþegaþotuna, sem fórst þrem mínútum eftir flugtak í New York í fyrradag, og gerðu ráðstaf- anir er miðuðu að hertu eftirliti. All- ir 260 um borð fórust, og nokkrir á jörðu niðri létust er þotan kom niður í Queens-hverfi í New York. Rannsókn slyssins er stjórnað af Bandaríska samgönguöryggisráðinu (NTSB), og sagði framkvæmdastjóri þess, Marion Blakey, að fyrstu vís- bendingar bentu til að stórfelld bilun í vélinni hefði valdið slysinu. Yfir- völd hafa þó enn ekki útilokað að um hermdarverk hafi verið að ræða. Þotan var af gerðinni Airbus A-300-600R og var í eigu bandaríska flugfélagsins American Airlines. Hún var að fara til Dóminíska lýð- veldisins er hún fórst, þrem mínút- um eftir flugtak frá Kennedy-flug- velli. 251 farþegi var um borð og níu manna áhöfn. Margir farþeganna voru dóminískir innflytjendur í Bandaríkjunum. Sjónarvottar báru að hreyfill hefði dottið af vélinni áður en hún hrapaði, og sagði Blakey að þessi vitnisburð- ur, ásamt þeirri staðreynd að slysið varð svo skömmu eftir flugtak, sem meðal þess sem bendi til að um slys hafi verið að ræða. Þá hefur hljóðriti vélarinnar, seg- ulbandsupptaka úr stjórnklefa hennar, fundist, og við rannsókn á honum heyrðist ekkert nema raddir flugstjórans og flugmannsins. Flug- ritinn, sem skráir tæknilegar upp- lýsingar um flugið, var ekki fundinn í gær, en rannsóknarfulltrúar kváð- ust sannfærðir um að hann myndi finnast. Blakey sagði að NTSB stjórnaði rannsókninni þar eð talið væri að um slys hefði verið að ræða. Ef grunur vaknaði um að um glæp hafi verið að ræða myndi alríkislög- reglan, FBI, taka við stjórn rann- sóknarinnar. Þotan var knúin tveim hreyflum af gerðinni General Electric CF6- 80C2, og sagði fulltrúi flugfélagsins að annar þeirra hefði verið skoðaður nýlega, en hinn hefði átt að fara í skoðun innan skamms. Síðan í fyrra- vor hefur athygli beinst að þessari gerð hreyfla, en þá var tilkynnt um bilanir sem orðið höfðu í hreyflum þessarar gerðar, er urðu til þess að málmbrot spýttust frá hreyflunum. Í júní sl. fór bandaríska loftferðaeft- irlitið, FAA, þess á leit við flugfélög að athuga hreyfla af þessari gerð og leita að sprungum í tilteknum hvirf- ilskífum í hreyflunum. Eftir ítarlega rannsókn birti FAA tilkynningu 5. október sl., þar sem sagði að „þörf væri á athugunum“ á hreyflum þessarar gerðar, vegna þess að komið hefðu upp tilvik þar sem skort hefði á öryggi. Gaf eft- irlitið tveggja mánaða opinberan kærufrest, til 4. desember nk., áður en fyrirskipað yrði umfangsmeira og tíðara eftirlit. CF6-80C2-hreyflarnir eru notaðir á yfir þúsund flugvélar víðs vegar í heiminum, þ. á m. á flugvél Banda- ríkjaforseta, Air Force One. Banda- ríska fyrirtækið General Electric, móðurfyrirtæki hreyfilframleiðand- ans, sagði að farið hefði verið að öll- um opinberum viðgerðartilmælum, og teldi hreyflana vera „fullkomlega áreiðanlega“. Smíðaðir hafa verið 2.954 hreyflar þessarar gerðar. Þeir komu fyrst á markað 1984, og eru meðal þeirra hreyfla sem eru hvað mest notaðir á breiðþotur. General Electric-hreyflar þeirrar tegundar sem hreyflar Airbus-þot- unnar voru gerð af hafa átt þátt í nokkrum alvarlegum slysum. 112 fórust þegar DC-10 þota hrapaði við Sioux City 1989, eftir að bilun varð í eldri gerð hreyflanna sem voru á Airbus-þotunni. Orsök slyssins var talin vera sprunga í hreyfilblaði sem leiddi til þess að brak eyðilagði vökvakerfið í hreyflinum. Haft var eftir heimildarmönnum, sem taka þátt í rannsókn slyssins, að svo virðist sem báðir hreyflar vél- arinnar og hliðarstýri hennar hafi brotnað af vélinni áður en hún kom niður. Þessir hlutar hennar fundust í töluverðri fjarlægð frá þeim stað þar sem búkur og vængir lentu. Dæmi eru um að einn hreyfill hafi brotnað af vélum á flugi, en einsdæmi væri ef báðir hreyflar tveggja hreyfla vélar hefðu brotnað af, og gæti bent til að um skemmdarverk hafi verið að ræða, eða alvarlegan brest í viðhaldi, segja heimildamenn. Rannsóknarfulltrúar lögðu áherslu á að þær vísbendingar sem komið hefðu fram væru óstaðfestar, þar eð öll rannsókn væri á frumstigi. En þeir sögðu að ekki hefði komið fram neitt er benti til að hreyfill hefði sprungið á flugi. Ekki væri ljóst hvort báðir hreyflar hefðu brotnað af á sömu stundu, eða hvort annar hefði brotnað af og leitt til þess að hinn hafi farið líka. Ekkert í samræðum flugmanna vélarinnar og flugumferðarstjóra benti til að neitt óeðlilegt væri á seyði. Fjöldi sjónarvotta greindi frá því að hreyfill hefði dottið logandi af vél- inni áður en hún hrapaði. Meðal sjónarvottanna var flugmaður far- þegaþotu á jörðu niðri, sem sagði að kviknað hefði í öðrum hreyfli Air- bus-þotunnar í flugtaki, og hefði hreyfillinn síðan brotnað af. Annar hreyfla hennar lenti í garði við íbúðarhús, hinn hafnaði á bens- ínstöð og munaði litlu að hann lenti á bensíndælum. Á hreyflinum var gat, sem kann að hafa komið þegar hreyfillinn kom niður, eða vera af völdum hreyfilspaða eða annars vél- arhlutar sem hafi spýst út í gegnum hreyfilhlífina. Annað sem rannsókn- arfulltrúum þykir undarlegt er að hliðarstýri vélarinnar fannst í heilu lagi í sjónum í Jamaica-flóa. Óstaðfestar fregnir bárust um að flugmenn vélarinnar hafi reynt að tæma eldsneytistanka hennar skömmu áður en hún hrapaði, en rannsóknarfulltrúar sögðu að það gæti ekki staðist. Haft var eftir flug- mönnum að það tæki yfir 15 mínútur að tæma tankana, og hefði verið óhugsandi þegar vélin hafi verið stjórnlaus. Flugmálasérfræðingar telja að slysinu á mánudaginn svipi til að minnsta kosti tveggja annarra slysa, þar sem hreyflar losnuðu frá vélum skömmu eftir flugtak. Mannskæð- asta flugslys í Bandaríkjunum, fyrir hryðjuverkin 11. september, varð í maí 1979. Þá datt hreyfill af DC-10 breiðþotu American Airlines sem var í flugtaki frá O’Hare-flugvelli í Chicago, með þeim afleiðingum að vélin fórst. Hægri hreyfillinn á þeirri þotu, og stöpullinn sem festir hann við væng- inn, brotnuðu af og olli það skemmd- um á vængnum og vökvakerfi með þeim afleiðingum að vélin spannst til jarðar. Með vélinni fórst 271 og tveir sem voru á jörðu niðri. Rannsókn leiddi í ljós að viðhaldsaðferðum flugfélagsins var áfátt og höfðu þær leitt til slyssins. Boeing 747 flutningavél ísraelska flugfélagsins El Al fórst í Amster- dam 1992 vegna þess að einn af fjór- um hreyflum hennar losnaði og rakst á annan hreyfil andartaki eftir flugtak. Þotan kom niður í íbúðar- hverfi og fórust að minnsta kosti 47 á jörðu niðri, auk fjögurra manna áhafnar vélarinnar. Í báðum tilvikum kenndu rann- sóknarfulltrúar um galla í festipinn- um, sem eru á stærð við gos- drykkjarflösku, er halda stöplinum við vænginn. En sérfræðingar ítreka að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess konar galla í Airbus-þotunni sem fórst á mánudaginn var. End- urbættir festipinnar hafi verið settir í flugvélar hvarvetna um miðjan síð- asta áratug. Þotan sem fórst í fyrradag var smíðuð í Evrópu og var afhent Am- erican Airlines ný í júlí 1988, að sögn fulltrúa flugfélagsins. Hún fór síðast í stórskoðun í desember 1999, en síð- asta viðhaldsskoðun fór fram daginn áður en slysið varð. Næsta stórskoð- un átti að fara fram í júlí á næsta ári. Rannsóknarfulltrúar ítrekuðu að rannsókn slyssins væri of skammt á veg komin til þess að hægt væri að segja til um hvað hefði valdið því. „Svona atburðir eru alltaf ólíkir hver öðrum,“ sagði James Hall, fyrrver- andi yfirmaður NTSB. „Hé er um að ræða margslungna flugvél og flókin kerfi. Þegar bilun verður er oft mjög erfitt að átta sig á því hvað fór úr- skeiðis.“ Rannsóknin beinist að hreyfl- um þotunnar Bandarískir rannsóknarfulltrúar ítreka að rannsókn flugslyssins í New York í fyrradag sé á frumstigi, en allt bendi til að a.m.k. annar hreyfla vélarinnar hafi brotnað af henni á flugi. Flugmálasérfræð- ingar segja að slysinu svipi til tveggja annarra slysa þar sem hreyfill brotnaði af flugvélum skömmu eftir flugtak. Washington, New York. AP, AFP, Washington Post. Reuters Lögreglumenn rannsaka annan hreyfla Airbus-þotunnar, en hann lenti í garði við íbúðarhús. Húsið skemmdist af eldi og rúður í því brotnuðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.