Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 37 Listaverkaalmanak Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir árið 2002 er komið út. Almanakið prýða 13 grafíkmyndir eft- ir Karólínu Lár- usdóttur. Almanakið er einnig happdrætti þar sem einu sinni í mánuði er dregið um grafíkmyndir eftir þekkta íslenska graf- íklistamenn. Almanakið kostar kr. 1.300 og rennur allur ágóði af sölunni til starfs samtakanna. Almanak Þroska- hjálpar komið út FFA, fræðsla fyrir fatlaða og að- standendur, heldur fræðsludag fyrir aðstandendur fatlaðra barna laugar- daginn 17. nóvember kl. 10 – 14 í Gerðubergi. Yfirskrift fræðsludags- ins er: Samskipti foreldra og starfs- fólks. Erindi flytja: Gyða Haraldsdóttir, Jónína Konráðsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir,Arthur Morthens frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Ingibjörg Óskarsdóttir, María Ját- varðsdóttir, Sigríður Daníelsdóttir og Hrefna Haraldsdóttir. Þátttöku- gjald er kr. 1.200 kr. og er matur og kaffi innifalið. Skráning þátttöku er hjá Þroskahjálp afgreidsla@t- hroskahjalp.is fyrir 15. nóvember. FFA er samstarfsverkefni Lands- samtakanna Þroskahjálpar, Sjálfs- björg landssambandsins, Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélags vangefinna í Reykja- vík. Fræðsludagur fyrir að- standendur fatlaðra barna 828 bíða eftir skurðaðgerðum Vegna fréttar sem Morgunblaðið birti í síðustu viku um biðlista skal áréttað að samtals 828 manns voru á biðlistum eftir því að komast að hjá almennum skurðdeildum á heil- brigðisstofnunum víða um land í maí sl. Af fréttinni mátti hins vegar skilja að samtals 828 manns væru á biðlist- um almennt eftir þjónustu hjá heil- brigðiskerfinu óháð því um hvers konar þjónustu væri að ræða. Þarna var hins vegar um að ræða bið eftir þjónustu á almennum skurðdeildum eins og áður segir. Til samanburðar voru alls 746 á biðlistum eftir þjón- ustu hjá almennum skurðdeildum heilbrigðisstofnana í maí árið 2000. LEIÐRÉTT LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur gef- ur almenningi kost á fræðslu um heilbrigði og sjúkdóma í vetur. Fjallað verður um ógnir anorexiu (lystarstols) og sjálfsmynd ungra kvenna fimmtudagskvöld 15. nóvem- ber kl. 20 í Húsnæði læknasamtak- anna (á 4. hæð), Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Dagbjörg B. Sigurðar- dóttir barna- og unglingageðlæknir heldur erindi og svarar fyrirspurn- um. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu. Fræðslufundur um lystarstol FUNDUR verður haldinn hjá Ind- landsvinafélaginu í Miðstöð nýbúa í Skeljanesi fimmtudaginn 15. nóvem- ber kl. 20. Aðalhátíð hindúa, hátíð ljóssins (Diwali-hátíð), er haldin hátíðleg á Indlandi um þessar mundir og munu félagar koma saman í tilefni þess með viðeigandi dagskrá. Sameigin- legt borðhald verður með indversk- um réttum, segir í fréttatilkynningu. Diwali-hátíð hjá Indlands- vinafélaginu Fundur hjá Ung VG UNG vinstri-græn boða til fundar um utanríkismál og atburði undan- farinna mánaða í alþjóðamálum fimmtudaginn 15. nóvember í hús- næði Iðnnemasambandsins á Hverf- isgötu 105, 3. hæð. Framsögumenn verða Sverrir Jakobsson og Huginn Freyr Þorsteinsson. Myndasýning hjá FÍ MYNDASÝNING verður í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 í húsi Ferða- félags Íslands, Mörkinni 6. Guðmundur Hallvarðsson sýnir myndir og segir sögur frá ferðum sýnum um Hornstrandir og Snæ- fjallaströnd. Aðgangseyrir er kr. 500. á innimálningu Íslensk gæðamálning miðað við 10 lítra dós í ljósum lit, gljástig 10. TILBOÐ H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Skeifunni 4, Reykjavík s: 568 7878 Snorrabraut 56, Reykjavík s: 561 6132 Stórhöfða 44, Reykjavík s: 567 4400 Austursíðu 2, Akureyri s: 464 9012 Hafnargötu 90, Keflavík s: 421 4790 Dalvegi 4, Kópavogi s: 540 9100 Bæjarlind 6, Kópavogi s: 544 4411 Harpa Sjöfn málningarverslanir 470 kr. 20-40% afsláttur af allri innimálningu Verð á lítra frá Fagleg ráðgjöf og þjónusta fyrir einstaklinga. EIGNIR ÓSKAST Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 350-450 fm einbýlishús á Seltj. Góðar greiðslur í boði (staðgreiðsla). All- ar nánari uppl. veitir Sverrir. EINBÝLI Nesbali Glæsilegt 160 fm einbýlishús ásamt 42 fm tvöföldum bílskúr. Húsið er allt í mjög góðu ástandi og hefur nýlega verið standsett. Húsið skiptist í forstofu, snyrtingu, hol, þrjú herbergi (fjögur skv. teikn.), baðherbergi m. saunaklefa, stof- ur og eldhús. Allar innréttingar eru teiknaðar af Öglu Mörtu. Mjög vandaðar innréttingarog gólfefni. V. 27,5 m. 9784 RAÐHÚS OG PARHÚS Raðhús í Fossvogi Gott 200 fm endaraðhús fyrir ofan götu ásamt 20 fm bílskúr. 4-5 svefnherbergi, góðar stofur og fallegt útsýni. V. 22,5 m. 1944 4RA-6 HERB. Nýbýlavegur - samþ. íbúðir Um 112 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð. Húsnæðið er samþykkt sem 4ra herb. íbúð en skiptist í dag í forstofu/hol, stofu, eldhús og stórt vinnuherb. Sérver- önd er til suðurs en þar er einnig sér- inng. í rýmið. Stórar svalir eru til norðurs en þaðan er glæsilegt útsýni. V. 9,9 m. 1902 Blikahólar - glæsilegt útsýni 4ra herbergja um 100 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. Vestursvalir. 3 svefnherbergi og góð stofa. Hús í góðu standi. Mögu- leiki á skiptum á íbúð í Bökkunum. V. 10,9 m. 1952 Fífusel - endaíbúð Vorum að fá í sölu fallega og bjarta u.þ.b. 95 fm endaíbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli. Parket. Sérþvottahús í íbúð. Góðar suðaustursvalir. Mjög góð og vel umgengin íbúð á fínu verði. V.10,9 m. 1951 2JA OG 3JA HERB. Grettisgata Rúmgóð og vel skipulögð 90 fm 3ja her- bergja íbúð á 1. hæð auk sérgeymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, snyrtingu, baðherbergi og tvær samliggj- andi stofur. Búið er að endurnýja þak og rafmagn er nýtt. Laus fljótlega. 1954 Barðastaðir - glæsileg 3ja herb. mjög rúmgóð 100 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í fallegri og vel staðsettri blokk. Íbúðin er með sérinng. af svölum og skiptist í tvö rúmgóð herb., stóra stofu, rúmgott eldhús, baðherb. og sér- þvottah. Glæsilegt útsýni er til vesturs. V. 12,7 m. 1923 Nýbýlavegur - m. bílskúr Góð 3ja herbergja 74 fm íbúð á 1. hæð með sérinng. ásamt aukaherbergi, sér- þvottahúsi og geymslu í kjallara. Bílskúr er innb., um 20 fm. Íbúðin er laus fljót- lega. V. 11,9 m. 1689 Blikahöfði Mjög falleg og vel skipulögð 77 fm 2ja herbergja íbúð með frábæru útsýni í ný- legri blokk með sérinngangi auk 28 fm bílskúrs í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu og herbergi. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Góðar gönguleiðir í næsta ná- grenni og stutt í ósnortna náttúruna. Íbúðin getur selst með eða án bílskúrs. V. 11,3 m. 1903 Reykás - 70 fm - laus Erum með í sölu fallega og bjarta u.þ.b. 70 fm íbúð á jarðhæð í fallegu fjölbýlis- húsi. Sérþv.hús í íbúð. Parket á gólfum. Frábært útsýni er til fjalla og yfir Rauða- vatn. Íbúðin er laus. V. 9,5 m. 1950 Frakkastígur - risíbúð 2ja herb. lítil og björt samþykkt risíb. Áhv. 3,3 m. Ákv. sala. Hagstætt verð. V. 5,7 m. 1945 MIÐVIKUDAGINN 24. október kl. 14:25 varð umferðaróhapp á skipti- stöð Hagvagna við Fjarðargötu í Hafnarfirði. Óhappið varð með þeim hætti að kona, sem var á leið út úr strætisvagni, datt og handleggs- brotnaði. Ágreiningur er um hvort vagninn var kyrrstæður eða á ferð þegar óhappið varð. Vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðin um að hafa sam- band við lögregluna í Hafnarfirði í síma 525 3300. Lýst eftir vitnum VAKA, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, heldur fund um nám í arkitekt- úr á Íslandi í dag, miðvikudaginn 14. nóvember, í húsnæði verkfræðideild- ar, VRII, Hjarðarhaga 2-6, stofu 158, klukkan 12.20. Á fundinum taka til máls Magnús D. Baldursson, Halldór Gíslason og Guja Dögg Hauksdóttir. Fundar- stjóri Orri Gunnarsson. Fundur um nám í arkitektúr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.