Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 43
Í KVÖLD kl. 20.30 mun Lúðrasveit
Reykjavíkur halda stórtónleika í
Langholtskirkju. Tema tónleikanna
eru yngri meðlimir sveitarinnar en
tónleikana mætti kalla aðra afmæl-
istónleika sveitarinnar vegna 80 ára
afmælis hennar. Þeir „fyrstu“ fóru
fram síðastliðið vor í Neskirkju.
Ungviðið sem fram stígur og leika
mun einleik eru þau Heiða Dögg
Jónsdóttir, Bára Sigurjónsdóttir,
Örvar Erling Árnason, Jóhann Ing-
ólfsson og Daníel Friðjónsson. Einn-
ig mun Kjartan Valdemarsson leika
á píanó með söngparinu Tenu Les-
ley Palmer og Bergþóri Pálssyni.
Af efni því sem tekið verður fyrir
má nefna tónlist úr myndinni Ang-
ela’s Ashes eftir John Williams,
„Pennywhistle Jig“ eftir Henry
Mancini, „The Girl from Ipanema“
eftir Antonio Jobim og „Strike up
the Band“ eftir Gershwin.
Stjórnandi sveitarinnar er Lárus
H. Grímsson og að hans sögn hefur
sjaldan verið jafnmikill kraftur í
þessari 60 manna sveit.
Morgunblaðið/Ásdís
Bergþór og Tena á æfingu með
Lúðrasveit Reykjavíkur.
Ungdæmið
í fyrirrúmi
Aðrir tónleikar
Lúðrasveitar Reykjavíkur
Sýnd kl. 8.
ÓHT. RÚV
HJ MBL
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 10. B. i. 12.
SV MBL
betra en nýtt
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 8 og 10.20.Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6 og 10.
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
„Stórskemmtileg kómedía“
H.Á.A. Kvikmyndir.com
Úr
smiðju
snillingsins
Luc Besson kemur
ein svalasta mynd ársins.
Zicmu, Tango, Rocket, Spider,
Weasel, Baseball & Sitting Bull eru
YAMAKAZI. Þeir klifra upp blokkir
og hoppa milli húsþaka eins og ekkert
sé... lögreglunni til mikils ama.
Ótrúleg áhættuatriði og
flott tónlist í bland við
háspennu-atburðarrás!
www.lordoftherings.net
Sýnd kl. 6 og 8.
„Stórskemmtileg kómedía“
H.Á.A. Kvikmyndir.com
MYNDIN SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM
STÓRKOSTLEG BARDAGA OG ÁHÆTTUATRIÐI
JUSTIN CHAMBERS TIM ROTH MENA SUVARI
Sýnd kl. 5.40 og 10.15. Ath ótextuð
Opnunarmynd
Myndin hefur hlotið lof áhorfenda og
gagnrýnenda víða um heim.
Myndin hlaut hið virta Gullna Ljón á
kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum nú í ár.
Sýnd kl. 8 og 10.15. Ath textuð
Besta leikkona í
aukahlutverki
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 8.
Varúð!!
Klikkuð kærasta!
Sýnd kl. 10.
ÞAÐ MARGBORGAR sig að hugsa
vel um tennurnar, bursta þær
reglulega og borða hollan og góðan
mat. Annars er kumpánunum Kar-
íusi og Baktusi að mæta og þá er
voðinn vís. Að þessu komust krakk-
arnir sem voru á frumsýningu
Þjóðleikhússins á leikþættinum um
skemmdarvargana Karíus og Bakt-
us eftir Thorbjörn Egner. Verkið
hefur aldei áður verið sett upp í ís-
lensku leikhúsi en margir muna
eftir uppfærslu Sjónvarpsins sem
sló rækilega í gegn á sínum tíma
og lifir enn í minningu margra.
Það eru þau Stefán Jónsson og
Brynhildur Guðjónsdóttir sem
bregða sér í hlutverk bræðranna
sísvöngu að þessu sinni en leikstjóri
sýningarinnar er María Reyndal.
Það var margt góðra gesta á
frumsýningunni og sum andlit
kunnuglegri en önnur. Margir ráku
upp stór augu er þeir sáu bregða
fyrir velska leikaranum Rhys If-
ans, sem flestir ættu að þekkja
sem meðleigjanda Hughs Grants í
Notting Hill. Hann var kominn til
þess að fylgjast með skólabróður
sínum og vini Stefáni Jónssyni en
saman stunduðu þeir nám við
Guildhall School of Music and
Drama.
Sýningar fara fram á Smíða-
verkstæðinu komandi helgar en
skólakrakkar eiga samt von á góðri
heimsókn á næstunni því til
stendur að fara með sýninguna á
flakk og heimsækja skóla á land-
inu.
Karíus og Baktus eru sjúkir í sætindi og komust í
feitt að frumsýningu lokinni.
Karíus og Baktus ásamt húsbónda sínum, honum Jens hinum nýja, Hlyni Árna Sigurjóns-
syni, og Jens gamla, Skúla Helgasyni, þeim er lék í sjónvarpsuppfærslunni.
„Við viljum
franskt brauð!“
Þjóðleikhúsið setur í fyrsta sinn upp Karíus og Baktus
Morgunblaðið/Golli
Karíus fær koss frá kunnuglegum kauða, leikaranum velska Rhys Ifan,
en hann var staddur á sýningunni til að sjá vin sinn og gamla skóla-
félaga, Stefán Jónsson, á sviði.