Morgunblaðið - 15.11.2001, Side 8
8 C FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF I
SBERG Ltd. hefur einbeitt sér að
sölu á ferskum fiski á Humber-
side-svæðinu í tæplega 16 ár. Fyr-
ir um einu og hálfu ári tóku for-
svarsmenn fyrirtækisins ásamt
öðrum hluthöfum Fishgate
ákvörðun um að byggja nýjan fisk-
markað í Hull. Framkvæmdir hóf-
ust í janúar sem leið og stóðst öll
tímaáætlun en heildarkostnaður-
inn við 4.000 fermetra bygginguna nemur um
fimm milljónum punda, um 765 milljónum
króna.
„Fullkomnasti fiskmarkaður í Evrópu“
Magnús Guðmundsson segir að með breyttum
aðstæðum á nýjum fiskmarkaði opnist margir
möguleikar. Mörg stór fyrirtæki, sem flytji inn
fisk til Hull frá öðrum löndum, eigi í erfiðleik-
um varðandi flokkun og pökkun í eigin húsum
og taki trúlega nýrri aðstöðu fagnandi. „Því
reikna ég með að þjónustuþátturinn komi til
með að aukast,“ segir hann.
Færeyingurinn Jens Christian Olsen er for-
stjóri Fishgate og segir hann að byrjunin sé
samkvæmt áætlun. Aðalatriðið í fyrstu atrennu
hafi verið að styrkja tengslin við núverandi við-
skiptavini og síðan að snúa sér að því að stækka
hópinn. Arthur Cook, stjórnarformaður, tekur
í sama streng en hann sagði við opnunina að
fyrsta kafla væri lokið og langur vegur væri
framundan. Í því sambandi bendir Magnús á að
grunnurinn sé kominn en eftir eigi að byggja
ofan á hann. Næstu skref verða þau að byggja
upp og styrkja flæði upplýsinga milli kaupenda
og seljenda. Nú vinni menn að því að kynna ein-
stök vörumerki sem séu byggð á bátsnöfnum
eða nöfnum sendenda.
Magnús segir að fyrir fjórum árum hafi
menn staðið frammi fyrir þremur möguleikum.
Í fyrsta lagi að gera ekki neitt og standa í stað.
Í öðru lagi að endurnýja gamla markaðinn og í
þriðja lagi að byggja fullkominn markað. Nið-
urstaðan hafi orðið sú að ef haldið yrði áfram á
sömu braut yrði sjálfhætt innan fárra ára, fyrst
og fremst vegna þess að ímynd fiskmarkaða í
Bretlandi væri það slæm. Sú ímynd hefði ekki
breyst mikið ef fjárfest hefði verið í gamla
markaðnum og því hefði verið ákveðið að leita
nýrra leiða. „Árangurinn er fullkomnasti fisk-
markaður í Evrópu,“ segir Magnús.
Áður en ráðist var í framkvæmdir var málið
m.a. kynnt sjávarútvegsráðherra Breta með
það fyrir augum að fá álit hans og stuðning.
Magnús segir að í fyrstu hafi hann talið að ekki
væri þörf fyrir tvo markaði á svæðinu og hefði
vísað til þess að fyrir nokkrum árum hefði verið
byggður nýr markaður í Grimsby sem hefði
kostað um 13 til 14 milljónir punda. Eftir að
hafa farið yfir framlögð gögn hefði hann hins
vegar beitt sér fyrir því að ríkisstjórnin styrkti
verkefnið sem næmi 20% kostnaðar og látið
þau orð falla að þetta væri það eina sem hann
hefði séð sem gæti komið iðngreininni á hærra
plan. „Auk þess styrkti borgin okkur, menn
trúðu og treystu á viðskiptaáætlunina og í kjöl-
farið héldum við af stað,“ segir Magnús.
Svart og hvítt
Það er mikill munur á byggingunni þar sem
fiskmarkaðurinn í Hull var þar til í október sem
leið og Fishgate fiskmarkaðnum sem opnaður
var formlega sl. föstudag eftir að hafa verið
notaður til reynslu í tæplega mánuð. Í gamla
markaðnum gengu menn út og inn og yfir allt,
þess vegna reykjandi, en í þeim nýja fer enginn
inn nema í þar til gerðum hvítum hlífðarfatn-
aði, hvítum stígvélum, hvítum buxum, hvítum
sloppi og með hvítan hatt. Hreinlætið er fyrir
öllu á reyklausu svæðinu auk þess sem enginn
fer inn nema hann eigi erindi og kaupendur
geta ekki valsað eftirlitslausir um sýningar-
svæðið að vild heldur hafa klukkutíma fyrir
uppboð til að skoða og ákveða í hvaða stæður
þeir ætla að bjóða. Í þessu sambandi má nefna
að mjög öflugt öryggiskerfi er í byggingunni og
eru t.d. 19 eftirlitsmyndavélar.
Á gamla markaðnum, sem er nú vöru-
geymsla fyrir timbur, fór hitastigið eftir hit-
anum úti og gat farið upp í 20 til 30 stig, en á
nýja staðnum, sem er
skammt frá, er full-
komið kælikerfi sem
tryggir að hitinn í
geymslurýminu fer
aldrei yfir 2 gráður á
selsíus og ekki yfir 12
gráður þar sem
vinnsla fer fram.
Allar kröfur uppfylltar
Magnús Guðmunds-
son segir að með
þessu fyrirkomulagi
sé komið til móts við
kröfur í Bretlandi sem
og kröfur Evrópusam-
bandsins í þeim til-
gangi að komast inn á
stórmarkaðina. „Fé-
lag matvörumarkaða í Bretlandi hefur ekki við-
urkennt fiskmarkaði landsins og því hafa birgj-
ar, sem hafa keypt fyrir þá, beint viðskiptunum
annað. Með Fishgate vonumst við til að fá um-
rædda viðurkenningu og ná til þessara stóru
aðila, því þeir vilja gjarnan kaupa eins ferskan
fisk og þeir geta og í eins góðu og tryggu um-
hverfi og Fishgate er. Nú geta þeir treyst ferl-
inu varðandi meðhöndlunina vitandi það að þeir
geta haft aðgang að og rakið réttar upplýs-
ingar. Þetta gerist ekki á einni nóttu en við er-
um sannfærðir um yfirburði okkar og ætlum
okkur að halda þeim.“
Magnús Guðmundsson segir að ímyndin
gagnvart stórmörkuðunum sé mjög mikilvæg.
Til þessa hafi þeir krafist þess að birgjar hafi
keypt fyrir þá fiskinn annars staðar en á fisk-
mörkuðunum, þar sem þeir hafi ekki uppfyllt
viðhlítandi kröfur, en fyrirkomulagið í Fis-
hgate væri þess eðlis að gera mætti því skóna
að markaðurinn fengi viðurkenningu. „Við höf-
um byggt þennan markað og sniðið hann að
þörfum stórmarkaðanna og vonumst til þess að
hann opni dyr að nýjum möguleikum.“
Fullkominn búnaður, gæði, hreinlæti
og öryggi að rekja upplýsingar
Uppboðssalurinn er með 66 sætum og er upp-
boðið algerlega rafrænt. Talið var að það yrði
ákveðið vandamál þar sem uppboð í fyrra kerfi
tóku ekki langan tíma en annað kom á daginn,
að sögn Magnúsar, sem segir að kaupendur
hafi verið snöggir að tileinka sér tæknina. „Við
sáum strax í fyrstu viku að þetta kerfi er til-
tölulega fljótvirkara en gamla kerfið,“ segir
hann og bætir við að eftir að búið sé að bjóða
upp þorsk og ýsu séu aðrar tegundir boðnar
upp.
Sölukerfið er belgískt og segir Magnús það
vera mjög öflugt með það að leiðarljósi að selja
rafrænt. Hann segir að
kaupendur geti vænt-
anlega tengst kerfinu í
gegnum símalínur í
næsta mánuði og
keypt frá Fishgate frá
sínum vinnustað.
Að sögn Magnúsar
flytja Bretar inn um
36.000 tonn af fersk-
fiski árlega og þar af
um 20.000 til 25.000 til
Humberside. Hann
segir að stefnt sé að
því að selja ekki undir
11.000 til 12.000 tonn-
um af þorski og ýsu í
Fishgate á næsta ári
og 3.000 til 5.000 tonn
af öðrum fiski. Mark-
aðurinn fær fiskinn fyrst og fremst frá Íslandi
en einnig frá Færeyjum, Noregi, Írlandi, Skot-
landi og austurströnd Englands. Um 170 tonn
voru boðin upp fyrstu vikuna í Fishgate, álíka
mikið þá næstu og 240 tonn í vikunni áður en
markaðurinn var formlega opnaður. Magnús
segir að ástæða þess að fiskur berist víða að sé
mikil kaupgeta á Humberside-svæðinu.
„Hérna er mikil vinnslugeta og hér er hjartað í
fiskviðskiptum í Bretlandi.“
Gæði skipta öllu hjá Fishgate. Áhersla er
lögð á öryggi við að rekja feril vörunnar og
kaupandinn er þannig upplýstur um hver
veiddi, hvar og hvenær. Flokkunar- og vigt-
unarbúnaðurinn er frá Marel og er um mjög
fullkominn búnað að ræða. Ýsa og þorskur eru
t.d. flokkuð í átta stærðir. Í flokkuninni eru
þrjár línur; ein fullkomin handflokkunarlína og
tvær sjálfvirkar flokkunarlínur, önnur einföld
og hin tvöföld. „Stærðarkröfurnar eru misjafn-
ar eftir kaupendum en með aukinni flokkun
getum við betur sinnt breiðari hópi kaupenda,“
segir Magnús.
Þegar búið er að taka fiskinn úr kerunum
eru þau þvegin vandlega áður en þeim er skilað
en eftir flokkun og ísun er fiskurinn settur í
kassa sem markaðurinn á og kaupendur verða
að skila innan tveggja sólarhringa til að komast
hjá sektum. Fyrir notkun fara þessir kassar í
gegnum kassaþvottavél sem Magnús segir að
sé sú fullkomnasta í heimi, en hún er hönnuð af
fyrirtækinu Hays Logistics sem Magnús segir
að sé sérhæft í öllum umbúðum fyrir breskar
stórmatvöruverslanir og sé með um 44.000
manns í vinnu. Vélin þvær 15 kassa á mínútu og
eru þeir dauðhreinsaðir, en vélin kostaði um
100 milljónir króna. „Við erum hérna með
rannsóknarstofu þar sem taka má sýni af öllu
hráefni hjá okkur,“ segir Magnús og áréttar að
hreinlætið hafi mjög mikið að segja og sú sýni-
lega áhersla sé þegar farin að skila árangri. „Á
þessum stutta tíma sem markaðurinn hefur
verið opinn hefur hann þegar öðlast sess í nám-
skeiðahaldi hjá Safeway-matvöruverslunar-
keðjunni en hverju námskeiði starfsfólks lýkur
hjá okkur.“
Þegar kerin koma í hús fer fram nákvæm
vigtun og er fiskurinn vigtaður sérstaklega og
svo ísinn. Allar merkingar á kössunum eru
tölvuskráðar og fylgja þær fiskinum alla leið.
„Eftir löndun ákveðum við hvaða upplýsingar
við ætlum að hafa á límmiðunum á kössunum
og þar er mikill sveigjanleiki,“ segir Magnús.
Í byggingunni er 20 tonna ísvél sem fram-
leiðir ís eftir pöntun. Að lokinni pökkun eru sett
2 til 3 kg af flöguís í hvern kassa, sem inniheld-
ur 40 kg af fiski og bendir Magnús á að ekki sé
um um það bil vigtun að ræða heldur nákvæma
vigtun fisksins. „Þegar á heildina er litið erum
við að taka upp gersamlega ný og bætt vinnu-
brögð í iðngreininni.“
Magnús Guðmundsson segir að reynt hafi
verið að heimsækja sem flesta fiskmarkaði í
Evrópu til að skoða hvað aðrir væri að gera
með það að markmiði að gera enn betur. „Meg-
inmarkmiðið hefur verið að vera faglegastir,
flottastir og ná yfirburðum,“ segir hann.
Að sögn Magnúsar er markaðssvæðið mjög
stórt. Hann segir að mesta neyslan á íslenskum
fiski sé í Mið- og Suður-Englandi og kaupendur
séu vel meðvitaðir um gæði íslenska fisksins.
Neytendur þekki fiskinn, bæði holdafar og lit
og kaupendur viti að hverju þeir ganga. „Þetta
eru mörg markaðssvæði með mismunandi þarf-
ir varðandi stærðir og tegundir en þau eiga það
sameiginlegt að byggjast á íslenskum fiski.“
Björt framtíð
Hjá Fishgate starfa um 25 manns. Fiskurinn er
flokkaður og honum pakkað á kvöldin og nótt-
unni, kaupendur mæta um klukkan fimm á
morgnana og uppboð hefjast kl. hálf sjö fimm
daga vikunnar. Magnús segir að ótal mistök
hafi átt sér stað fyrstu vikurnar en menn hafi
lært af þeim og framtíðin sé björt. Hann segist
sjá fyrir sér aukna sölu á óséðum fiski.
„Við sjáum okkur sem ákveðinn miðdepil í
framleiðslu og dreifingu hérna í hjarta við-
skiptanna,“ segir hann. „Við gerum okkur fulla
Hjartað slær í Hull
Nýi fiskmarkaðurinn Fishgate í Hull í Englandi sá fullkomnasti í Evrópu og uppfyllir kröfur breskra stórmarkaða
Morgunblaðið/Steinþór
Fiskmarkaðurinn Fishgate í
Hull í Englandi var formlega
opnaður sl. föstudag. Stein-
þór Guðbjartsson var við-
staddur, skoðaði bygginguna
og ræddi við Magnús Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóra sölufyrirtækisins Is-
berg Limited í Hull, sem á
helmingshlut í markaðnum á
móti 11 öðrum hluthöfum, en
þar af eru þrír um einn hlut.
...............................
„ Þ a ð e r u á k v e ð n a r h ö m l -
u r á þ e s s u m v i ð s k i p t u m
u m þ e s s a r m u n d i r o g é g
h e l d a ð þ a ð s é e k k i o k k u r
Í s l e n d i n g u m t i l f r a m -
d r á t t a r a ð ú t b ú a e i n -
h v e r j a r r e g l u r s e m s t u ð l a
a ð þ v í a ð r ý r a g æ ð i í s -
l e n s k a f i s k s i n s . “
...............................