Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 C 13
NÚR VERINU 0 Í HópTALi, fyrirtækjaþjónustu TALs,greiða fyrirtæki ekkert fyrir GSM símtöl
milli starfsmanna, hvort sem starfs-
mennirnir eru fimm eða fimmhundruð.
Nú er rétti tíminn fyrir þitt fyrirtæki að
skipta yfir til fyrirtækjaþjónustu TALs.
Hafðu samband strax, síminn er 599 0000
eða hoptal@tal.is.
frítt sín á milli!
...því starfsfólkið talarkr./mín.
slátrunar þangað til hann er kominn í
kælingu. Ég hef þannig ekki trú á því
að kaupendur velji villtan þorsk
framyfir þann villta og verði tilbúnir
til að greiða fyrir hann hærra verð.
Eldisþorskurinn verður seldur á háu
verði á ferskfiskmarkaðnum, rétt
eins og sá villti. Eflaust verður eld-
isþorskur aðgreindur frá þeim villta
á einhverjum markaðssvæðum en
það þarf þó alls ekki að vera.“
Ole-Erik segir að það hafi tekið
Norðmenn 30 ár að byggja upp lax-
eldisiðnaðinn og að það taki að
minnsta kosti jafnlangan tíma að
byggja upp jafnöflugan þorskeldis-
iðnað. „En við höfum þegar náð mik-
ilvægum áfanga í þorskeldinu og það
þarf enginn að efast um að þorskeldið
sé komið til að vera. Það getur hins-
vegar enginn sagt til um það ennþá
hve hröð þróunin verður hér eftir.
Það eru gríðarlegir fjármunir í húfi
og miklar vísindarannsóknir að baki
þessum iðnaði, ásamt miklum fjölda
af hæfileikaríku fólki. Þess vegna
hljótum við að ná árangri,“ segir Ole-
Erik Lerøy.
alltaf hægt að bjóða ferskan hágæða-
fisk á markaðnum. Ég sé ekki fyrir
mér að eldisþorskur verði notaður í
saltfiskverkun eða í frystar afurðir á
næstu 15 til 20 árum. Eldisþorskur
mun einkum fara inn á ferskfisk-
markaði og stækka þann markað,
byggja hann upp og gera mun sterk-
ari en hann er í dag. Eldisþorskur
verður þannig góð viðbót við framboð
á ferskum þorski.“
Gæði eldisþorsks jafnvel meiri
Ole-Erik segir að ekki sé merkjan-
legur munur á bragði og gæðum eld-
isþorsks og að jafnvel sé hægt að ná
betri gæðum á eldisþorski. Kaupend-
ur muni því ekki gera upp á milli eld-
isþorsksins og villta þorsksins. „Við
búum yfir 30 ára reynslu í laxeldi og
við höfum einnig unnið með villtan
lax. Ég er sannfærður um að eldislax-
inn okkar er mun betri en sá villti,
það höfum við sannreynt á fjölmörg-
um neytendum. Það er mjög vandað
til allrar meðferðar á eldislaxinum í
öllu ferlinu. Það líða ekki ekki nema
25 mínútur frá því að laxinn fer til
ÞORSKELDI hefur alla burði til
að vaxa gríðarlega hratt á næstu ár-
um og þegar hafa verið stigin stór
skref í átt að stórfelldu eldi. Þetta
segir Ole-Erik Lerøy, forstjóri
norska sjávarútvegsrisans Lerøy
Seafood Group ASA.
Norðmenn standa mjög framar-
lega í seiðaframleiðslu og hafa unnið
þar mikið þróunarstarf en lítil seiða-
framleiðsla hefur fram til þessa stað-
ið umfangsmiklu þorskeldi fyrir þrif-
um. Ole-Erik segir seiðaframleiðsl-
una geta numið milljónum seiða
innan fárra ára og tekist hafi að ná
kostnaði verulega niður með því að
byggja á þeirri reynslu sem Norð-
menn búi þegar yfir í fiskeldi. Fram-
leiðsla Norðmanna gæti þess vegna
farið að skipta verulegu máli áður en
langt um líður.
Ole-Erik segir að villtum þorski
stafi engin ógn af eldisþorski á mörk-
uðum, að minnsta kosti ekki næstu
áratugina. „Ég tel að eldisþorskurinn
muni aðeins styðja við bakið á villta
fiskinum. Framboð á villtum þorski
er tiltölulega óstöðugt en það verður
Hljótum að ná árangri
Forstjóri Lerøy Seafood Group segir allt stefna í stórfellt þorskeldi
Í JANÚAR 2000 keypti fjölveiði-
skipið Hardhaus frá Austervoll í Nor-
egi fyrst norskra skipa þantroll
Hampiðjunnar til kolmunnaveiða.
Reynslan af því og góður árangur ís-
lenzkra skipa með þantroll hefur svo
leitt til þess að 6 slík troll til viðbótar
hafa verið pöntuð af norskum útgerð-
um og verða þau afhent í desember.
Verðmæti þeirra og annars búnaðar
sem fylgir er um 65 milljónir króna.
40 þantroll seld á tveimur árum
Haraldur Árnason, deildarstjóri
markaðs- og söludeildar veiðarfæra-
lausna hjá Hampiðjunni, segir að út-
gerð Hardhaus hafi verið mjög ánægð
með trollið. „Það hefur staðist allar
þær væntingar sem til þess voru
gerðar. Góður afli íslensku skipanna á
kolmunnaveiðum á þessu og síðasta
ári hefur einnig vakið mikla athygli í
Noregi og víðar og eru nú 6 troll til
viðbótar í pöntun sem verða tilbúin til
afhendingar í desember 2001. Sam-
tals munu því verða 7 skip með þant-
roll Hampiðjunnar í Noregi, og verð-
ur spennandi að sjá hvernig þau
standa sig á næstu kolmunnavertíð
sem hefst í byrjun árs 2002. Ætla má
að verðmæti þeirra 6 þantrolla og
annars búnaðar fyrir skipin, sem af-
henda á í lok ársins, nemi um 65 millj-
ónum króna,“ segir Haraldur.
Hvernig hefur annars gengið að
selja þessi troll?
„Það má með sanni segja að þan-
troll Hampiðjunnar hafi slegið í gegn,
en frá því að fyrsta trollið var selt og
sett um borð í Þorstein EA í sept-
ember 1999 hafa verið seld 40 troll
víðs vegar um heim.
Þantrollin hafa sannað gildi sitt svo
um munar á síðustu tveimur árum.
Markaðshlutdeild Hampiðjunnar í
trollum til uppsjávarveiða á Íslandi
var 11% 1999 en er í dag 70%, sem
verður að teljast viðunandi árangur á
aðeins tveimur árum. Mikil og hörð
samkeppni er í þessari tegund veið-
arfæra og framleiðendur nokkuð
margir.
Þróun þantækninnar heldur áfram
og sjálfsagt verður einhver þróun á
næstu misserum í hönnun kaðlanna
sem notaðir eru í stórmöskvana, sem
mun auka veiðni trollanna umtalsvert
frá því sem nú er. Hampiðjan er í far-
arbroddi í heiminum í dag í hönnun
slíkra trolla og mun halda þróuninni
áfram á komandi árum,“ segir Har-
aldur Árnason.
Norska skipið Hardhaus hefur notað þantroll frá Hampiðjunni með góðum árangri.
Sjö þantroll seld til Noregs
Hampiðjan hefur selt 40 þantroll til veiða á uppsjávarfiski á 2 árum
ATVINNA
Skipstjórnarmaður
Vanur skipstjórnarmaður óskar eftir plássi.
Mikil reynsla af flottog-, botntog- og rækju-
veiðum. Góð ensku- og dönskukunnátta.
Upplýsingar í síma 849 4262.
Útgerðarfyrirtækið Reyktal AS
óskar eftir vaktformanni á rækju-
frystitogarann Merike EK-9706.
Vaktformaður þarf að hafa
reynslu af vinnslustjórn á rækju-
frystitogara og helst að vera van-
ur netamaður.
Viðkomandi þarf að vera reglu-
samur. Enskukunnátta æskileg.
Umsóknir sendist með tölvupósti til
sigf@binet.is eða á fax nr. 588 7635.
Nánari upplýsingar veitir Sigurð-
ur B. Friðriksson í síma 897 7989.
RAÐAUGLÝSINGAR
KVÓTI
Önnumst sölu á öllum
stærðum og tegundum
fiskiskipa
Einnig sölu og leigu á aflaheimildum.
Skipasalan Bátar og búnaður ehf.,
Barónsstíg 5, 101 Reykjavík,
sími 562 2554, fax 552 6726,
www.bob.is — netf. skip@bob.is .