Morgunblaðið - 15.11.2001, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 C 15
NVIÐSKIPTI David Wheldon
X Y Z E T A
me› fyrirlestur á Íslandi
David Wheldon hefur ví›tæka reynslu
af augl‡singamálum. Hann hefur
st‡rt augl‡singastofu (Lowe Howard
Spink) og birtingastofu (CIA UK), en
einnig seti› hinum megin bor›sins,
sem fyrsti yfirma›ur augl‡singamála
hjá Coca Cola. Hann er stjórnar-
forma›ur og einn stofnenda Tempus-
samsteypunnar sem fer ótro›nar
sló›ir í samflættingu birtinga (Media)
og hugmynda (Creative). CIA er eitt
stærsta birtingafyrirtæki í heimi me›
yfir 6,5 milljar›a dollara veltu á ári.
Fyrirtæki› er stærsti hluti Tempus-
samsteypunnar.
• Fyrirlesturinn ver›ur haldinn á Hótel Loftlei›um
16. nóvember kl. 8.30 - 10.30.
• fiátttökugjald 3.900 kr. og morgunver›ur
innifalinn.
• Skráning og nánari uppl‡singar er á www.xyz.is
og í síma 520 1900.
Bylting óskast!
Augl‡sendur og augl‡singastofur flurfa
a› taka augl‡singami›la alvarlega
Birtingar eru n‡tt form sköpunarkraftsins.
Samt vir›ast fáir skilja hlutverk mi›lanna
í mótun sambandsins vi› vi›skiptavini og
hvernig völdin eru a› færast frá sendendum
skilabo›a til vi›takenda fleirra. Hva› gerist
flegar hugmynda- og birtingafólk vinnur
saman? Fari› ver›ur yfir dæmi um vel
heppna›a samvinnu af flessu tagi.
Fyrirlesturinn
er
áhugaver›ur
fyrir
augl‡sendu r
o g marka›s- og augl‡singafólk
ÍSLENSKA hugbúnaðarfyrir-
tækið Sideline-Sports hefur þróað
hugbúnaðinn Sideline organizer fyr-
ir þjálfara í hópíþróttum. Brynjar
Karl Sigurðsson hjá fyrirtækinu
segir að sala á forritinu hafi gengið
framar vonum hér á landi frá því að
hún hófst fyrir tveimur og hálfum
mánuði. Hann segir að þjálfarar í
knattspyrnu, handknattleik og
körfuknattleik hafi sýnt forritinu
mikinn áhuga.
Sideline organizer er hugbúnaður
sem ætlaður er þjálfurum til skipu-
lagningar á þjálfun sinni, hvort sem
það er við daglegar æfingar eða
skipulagningu til lengri tíma. Í for-
ritinu er að finna gagnasafn sem
geymir upplýsingar sem búið er að
skrá í það, æfingasafn og tímaseðla
yfir þau atriði sem þjálfari vill sinna
á hverri æfingu og það sem máli
skiptir fyrir utan æfingatíma. Þá býr
kerfið yfir teikniforriti. Brynjar
Karl segir að öll atriði kerfisins vinni
vel saman; á sama tíma sé hægt að
skipuleggja þjálfunina yfir heilt
tímabil og búa til æfingaseðla frá
degi til dags. Kerfið nýtist því þjálf-
ara bæði til lengri og skemmri tíma.
Stafrænar upptökuskrár
„Hægt er að skoða marga hluti í
þessu kerfi, eins og til dæmis hve
margir hvíldardagarnir eru nýttir,
hve margir leikir eru spilaðir yfir
tímabilið auk ítarlegri tölfræðigrein-
ingar á vinnu þjálfarans. Þá er hægt
að skoða hversu mikið af æfingatíma
er varið í varnaræfingar svo dæmi
séu tekin. Í nýjustu útgáfunni er síð-
an hægt að setja inn stafrænar upp-
tökuskrár til að geta horft á upp-
tökur af leikjum, æfingum og
kerfum. Sveigjanleikinn er mikill og
notendur geta miðlað upplýsingum
sín á milli.“
Aðspurður sagðist Brynjar Karl
ekki vita til þess að sambærileg for-
rit erlendis hefðu yfir sömu kostum
að ráða eins og Sideline organizer
enda væri kerfið mjög opið og
sveigjanlegt og myndi eins konar
beinagrind utan um starf þjálfarans,
sem hann geti síðan tekið og aðlagað
sínum þörfum og vinnuháttum.
Eins árs forritun
Brynjar Karl, sem er yfirþjálfari
yngri flokka í körfuknattleik á Akra-
nesi, segir að hugmyndin að baki
forritinu megi rekja til sín, en hann
kveðst í nokkur ár hafa velt því fyrir
sér að búa til forrit sem þetta. „Ég
réð til mín nokkra forritara og á
rúmlega ári hefur þeim tekist að búa
til kerfi sem ég segi að sé framar
vonum, enda hafa þjálfarar hér á
landi sýnt því mkinn áhuga. Sala á
kerfinu til hand- og körfuboltaþjálf-
ara hefur gengið vel og áhugi knatt-
spyrnuþjálfara er verulegur, en við
erum einmitt að hefja kynningu á því
meðal þeirra um þessar mundir. Það
eru margir þjálfarar sem hafa komið
að máli við mig og sagt að þeir hafi
lengi beðið eftir tæki sem þessu fyrir
þjálfun.“
Aðspurður segir Brynjar Karl að
kostnaður við þróun á kerfinu sé
verulegur. „Við gerum ekki ráð fyrir
að hagnast af sölu á kerfinu hér á
landi, enda var það aldrei ætlunin.
Þess vegna horfum við út fyrir land-
steinana,“ segir Brynjar Karl. „Við
erum að kynna þessa afurð fyrir
fólki erlendis, meðal annars í Dan-
mörku, Þýskalandi og Bretlandi.
Það tekur eflaust tíma og kostar
mikla vinnu, en við erum bjartsýnir
á árangur.“
Forrit fyrir íþróttaþjálfara
Með forritinu er hægt að setja inn stafrænar upptökuskrár
til að geta horft á upptökur af leikjum, æfingum og leikkerfum
Morgunblaðið/Þorkell
Brynjar Karl segir að margir þjálfarar hér á landi hafi sýnt forritinu áhuga.
TENGLAR
.....................................................
www.sideline-sports.com
GEYMSLA.IS og Íslenska
Pökkunarfélagið ehf. hafa flutt
starfsemi sína frá Bæjarflöt 6
112 Reykjavík aðBakkabraut 2
Kópavogi sem er 2.200 fermetra
upphituð vöruskemma með
þjófa- og brunavarnarkerfi frá
Securitas.
Í fréttatilkynningu kemur
fram að einnig hafa Íslenska
Pökkunarfélagið ehf. og
Geymsla.is tekið við rekstri bú-
slóðageymslu Rafha-hússins í
Hafnarfirði og verður starfsem-
in flutt í húsnæðið að Bakka-
braut 2.
Íslenska Pökkunarfélagið ehf.
og Geymsla.is sérhæfa sig í
pökkun og flutning á vöru og bú-
slóðum fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga, búslóðaflutninga inn-
anlands og erlendis, geymslu á
búslóðum og vörulagerum.
Geymsla.is
og Íslenska
Pökkunar-
félagið
ehf. flytja