Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 1
ÞRJÁTÍU og níu manns særðust
þegar palestínskur byssumaður hóf
að skjóta af riffli sínum á fjölfarinni
verslunargötu í vesturhluta Jerúsal-
em um miðjan dag í gær. Þar af
særðust sex lífshættulega. Ísraelska
lögreglan brást snöggt við og felldi
manninn en hann er talinn hafa verið
liðsmaður Al-Aqsa herdeildanna,
sem tengsl hafa við Fatah-hreyfingu
Yassers Arafat, forseta heimastjórn-
ar Palestínumanna.
Mikil öryggisvarsla var á Jaffa-
götu, þar sem ódæðið átti sér stað,
enda féllu fimmtán þar í sjálfsmorðs-
árás Palestínumanns í ágúst og tíu til
viðbótar í desember. Ódæðismaður-
inn, sem vopnaður var M-16 árásar-
riffli, lét skotum rigna yfir nær-
stadda drykklanga stund en reyndi
síðan að flýja af vettvangi. Ísraelska
lögreglan skaut hann hins vegar til
bana í nálægu húsasundi.
Avi Pazner, talsmaður Ísraels-
stjórnar, sakaði Arafat um að bera
ábyrgð á verknaðinum enda „gerði
hann ekkert“ til að koma í veg fyrir
ódæðisverk hryðjuverkamanna.
Árásin kom einungis klukkustund-
um eftir að Hamas-samtökin lýstu
yfir „algeru stríði“ á hendur Ísrael í
kjölfar þess að ísraelski herinn felldi
fjóra liðsmenn Hamas í aðgerðum í
bænum Nablus á Vesturbakkanum í
gærmorgun.
Ísraelar sakaðir um að hafa
drepið fjóra „með köldu blóði“
Talsmenn Ísraelshers sögðu að í
aðgerðunum í Nablus hefði ein allra
stærsta sprengjuverksmiðja, sem
fundist hefði á Vesturbakkanum,
verið eyðilögð. Héldu þeir því fram
að mennirnir fjórir hefðu fallið í
skotbardaga en tveir þeirra voru á
lista Ísraelsmanna yfir þá menn sem
þeir vilja hvað helst handsama.
Mahmud Allul, borgarstjóri í
Nablus, sagði mennina hins vegar
hafa verið drepna „með köldu blóði“.
Sagði hann að þrír þeirra hefðu
fundist látnir í rúmi sínu en lík þess
fjórða hefði fundist á baðherberginu.
Eftir að hersveitir Ísraela héldu á
brott aftur frá Nablus söfnuðust um
fimm þúsund stuðningsmenn Hamas
saman fyrir framan fangelsi í bæn-
um og kröfðust þess að öllum föng-
um þar yrði sleppt. Köstuðu þeir
grjóti að byggingunni og létu ófrið-
lega.
Til að komast hjá frekari óeirðum
greindi einn af yfirmönnum palest-
ínsku lögreglunnar múgnum frá því
að Arafat hefði skipað svo fyrir að
sleppa skyldi bróður eins mannanna,
sem felldir voru í gærmorgun. Múg-
urinn ærðist hins vegar á nýjan leik
þegar tilkynnt var að kanna þyrfti
betur hvort rétt væri að sleppa tutt-
ugu róttækum íslamstrúarmönnum
úr fangelsinu til viðbótar.
Áður hafði Ísraelsher dregið sig til
baka frá bænum Tulkarm á Vestur-
bakkanum en hann hernámu Ísr-
aelsmenn á mánudag. Það var í
fyrsta sinn sem Ísraelar hernema
heilan bæ á sjálfstjórnarsvæðum
Palestínumanna frá því að palest-
ínska heimastjórnin var stofnuð árið
1994.
Palestínumaður felldur
eftir skotárás í Jerúsalem
AP
Ísraeli lætur geðshræringu sína í ljós eftir árásina í Jerúsalem í gær.
Jerúsalem. AFP.
!"# $
! " &
!
' #$
()$
*
#+
% %
'
18. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 23. JANÚAR 2002
TIL handalögmála kom þegar
hnefaleikakapparnir Mike Tyson
og Lennox Lewis hittust í gær til að
kynna væntanlegan slag sinn um
WBC-heimsmeistaratitilinn í hnefa-
leikum sem fara á fram 6. apríl nk.
Gæti farið svo að uppákoman yrði
til þess að ekkert yrði af bardag-
anum, að sögn fréttaskýrenda.
Tildrög slagsmálanna voru þau
að Tyson lét sér ekki nægja að gefa
Lewis illúðlegt augnaráð, þegar
þeir félagar voru kynntir til sög-
unnar á sviði í New York, heldur óð
beint í heimsmeistarann núverandi.
Ruddi hann sér leið framhjá aðstoð-
armönnum Lewis og upphófust
slagsmál milli kappanna tveggja og
hóps fylgdarmanna þeirra. Aðstoð-
armenn Lewis fullyrtu að Tyson
hefði bitið í fætur þess fyrrnefnda
meðan á átökunum stóð en hinn síð-
arnefndi hlaut hins vegar ljótan
skurð á höfðinu eins og sjá má á
myndinni. Tyson lét sér þó ekki
nægja að gera atlögu að Lewis
heldur hreytti einnig ónotum í við-
stadda fréttamenn áður en hann
hvarf á braut.
Reuters
Tyson óð
í Lennox
Lewis
NÝLEG heimsókn Karstens Han-
sens, sem fer með fjár- og efnahags-
mál í færeysku landsstjórninni, til Ís-
lands og yfirlýsingar hans við það
tækifæri hafa dregið dilk á eftir sér
innan landsstjórnarinnar. Er þá eink-
um átt við þau ummæli hans í viðtali
við Morgunblaðið, að gangi olíuleitin
vel verði Færeyjar líklega orðnar
sjálfstætt ríki eftir fjögur ár.
Anfinn Kallsberg lögmaður úr
Fólkaflokkinum hefur mótmælt opin-
berlega ummælum Hansens á Ís-
landi, sem og líkum ummælum Høgna
Hoydals í færeyskum fjölmiðlum.
Þeir Hansen og Hoydal eru í Þjóðveld-
isflokknum en þriðji stjórnarflokkur-
inn er Sjálfstjórnarflokkurinn.
„Sem lögmaður og formaður lands-
stjórnarinnar vísa ég á bug yfirlýs-
ingum um fjögurra ára aðlögunar-
tíma sem óábyrgu hjali. Þær ganga
þvert á samninga milli stjórnarflokk-
anna og einnig gegn meirihlutasam-
þykkt lögþingsins um fullveldi Fær-
eyja,“ segir Kallsberg.
Kallsberg bendir á, að samkvæmt
stjórnarsamþykkt skuli hin efnahags-
lega aðlögun að fullveldi standa í 10 til
12 ár og hann segir, að yfirlýsingar
Þjóðveldisflokksmannanna stangist á
við það, sem þeir hafi sjálfir skrifað
undir með Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur. Þar er
kveðið á um, að Færeyingar taki
smám saman við sérfæreyskum mál-
um og þá því aðeins, að þeir treysti
sér til að bera allan kostnað af þeim.
Hansen og Hoydal vísa aðfinnslun-
um hins vegar á bug og segja, að gert
sé ráð fyrir, að Færeyingar verði bún-
ir að taka við sínum sérmálum ekki
síðar en eftir 10 ár. Ekkert banni hins
vegar, að það gerist á skemmri tíma.
Deilt um yfirlýs-
ingar Hansens
Þórshöfn. Morgunblaðið.
NORSKIR skólar mega nota
kennslubækur með auglýsing-
um og þurfa ekki að bera það
sérstaklega undir menntamála-
ráðuneytið. Þessi er niðurstaða
Kristinar Clemet, menntamála-
ráðherra Noregs.
Clemet segir í viðtali við
norska dagblaðið Verdens
Gang, að hún ætli ekki að hafa
neitt eftirlit með þeim kennslu-
bókum, sem prýddar séu auglýs-
ingum, og Ulf Erik Knudsen,
talsmaður Framfaraflokksins í
menntamálum, er sama sinnis.
Segir hann, að kennslubækur,
sem fjármagnaðar eru með aug-
lýsingum, geti dregið verulega
úr útgjöldum skóla og nemenda.
Þetta fyrirkomulag er þekkt
frá Svíþjóð en þar hefur Free-
book-útgáfan bæði gefið út og
gefið nemendum sjö ólíkar
kennslubækur, sem kostaðar
eru með auglýsingum. Að sögn
Ylvu Pavlov, framkvæmda-
stjóra Freebook, er nú farið að
vinna að norskum kennslubók-
um og þegar búið að safna 40
auglýsendum.
Knudsen, talsmaður Fram-
faraflokksins, lagði þó áherslu á,
að það væri ekki sama hver aug-
lýsti í kennslubókunum. Aldrei
kæmi til greina að leyfa, að
klámfyrirtæki eða annar slíkur
iðnaður fengi að bjóða nemend-
um vöru sína með þessum hætti.
Auglýs-
ingar í
skóla-
bókum
FJÖRUTÍU og níu ára gamall Íri,
Colm Murphy, var í gær fundinn
sekur fyrir rétti í Dublin um aðild að
sprengjutilræðinu í Omagh á Norð-
ur-Írlandi 15. ágúst 1998 en 29
manns féllu í ódæðinu. Murphy er
fyrsti maðurinn sem sakfelldur er
fyrir aðild að tilræðinu, sem var það
mannskæðasta í sögu átakanna á N-
Írlandi en klofningshópur úr Írska
lýðveldishernum, IRA, lýsti á sínum
tíma ábyrgð á því á hendur sér.
Aðstandendur fórnarlamba ódæð-
isins í Omagh fögnuðu fréttunum
mjög en þeir hafa lengi barist fyrir
því að sökudólgarnir yrðu látnir
sæta ábyrgð. Murphy var þó ekki
fundinn sekur um að hafa borið
beina ábyrgð á ódæðinu heldur er
hann dæmdur fyrir að hafa átt aðild
að samsæri til að koma fyrir
sprengju, sem líkleg var til að verða
fólki að bana. Fólust sannanir á
hendur honum einkum í notkun
tveggja farsíma, sem tengdir hafa
verið glæpnum með óyggjandi hætti.
Dæmt vegna
ódæðisins
í Omagh
Dublin. AFP.