Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMonica Seles stöðvaði sigur-
göngu Venus Williams/B4
Liverpool hefur lagt Manchester
Utd. að velli í fimm skipti í röð/B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
„MÉR líður eins og ég hafi lent und-
ir beittum valtara, ég er allur skor-
inn og lurkum laminn,“ sagði Jök-
ull Bergmann fjallgöngumaður,
sem lenti í snjóflóði í Skíðadal sl.
sunnudag. „Hann var ótrúlega
heppinn,“ sagði móðir hans, Anna
Dóra Hermannsdóttir, er blaða-
maður Morgunblaðsins ræddi við
þau á bæklunardeild Landspítala í
Fossvogi í gær.
Jökull er hálsbrotinn og viðbeins-
brotinn og hlaut slæm sár bæði á
fótum og höfði. Hann er þó ekki
lamaður. Segir hann læknana hafa
hætt að telja fjölda sauma á höfði
hans en þó nefnt að í aðgerðir þar
hefðu farið 10 pakkar af saumum.
„Það er eins og hópur af indíánum
hafi farið í hausinn á mér,“ segir
hann. Jökull missti mikið blóð og
verður honum gefið blóð á næst-
unni og hann segir að sig svimi
strax og hann reyni að rísa á fætur.
Hann segir sig verkja í skrokkinn
og fær lyf til að halda verkjunum í
skefjum en ber sig annars vel.
Líklega vont að lenda
„Þetta var svo þunnt flóð og lítill
snjór að ég lendi að miklu leyti í
stórgrýti og þess vegna fer ég
svona illa,“ segir Jökull og kveðst
lítið geta sagt hvað gerðist eftir að
flóðið hreif hann fyrr en hann rank-
ar við sér nokkru síðar. „Ég man þó
að rétt áður en flekinn fer af stað
bið ég annan félaga minn sem var
næst mér að doka við því mér
fannst þetta eitthvað tvísýnt. Síðan
fer flekinn af stað og ég er mjög ná-
lægt brotlínunni. Síðan man ég að
ég fer fram af klettabrún og er
nokkuð lengi í loftinu. Þá hugsa ég
með mér að nú verði líklega vont að
lenda og dett síðan út aftur.“
Jökull kveðst muna það næst að
Sigurbjörn Gunnarsson, annar fé-
lagi hans í fjallgöngunni, er að
skera hluta af bakpoka sínum til að
nota sem hálskraga. Þriðji sam-
ferðarmaður þeirra, Jón Marinó
Sævarsson, fór að sækja hjálp og
kom síðan til baka. Sagði hann
þessi viðbrögð Sigurbjörns bera
vott um ótrúlega næmt auga hans
fyrir því hvað gerst hefði en Jökull
kvartaði um eymsl í hálsi og í fram-
haldi af því útbjó Sigurbjörn krag-
ann. Hann sagði fagmennsku hafa
setið í fyrirrúmi hjá öllum sem
komu við sögu björgunarinnar,
björgunarsveitinni á Dalvík sem og
öðrum.
Þegar hér var komið sagði Jökull
að þeir félagar hefðu rölt áleiðis
niður fjallið. Móðir Jökuls, Anna
Dóra Hermannsdóttir og unnusta,
Sunna Björk Bragadóttir, fóru til
móts við þá en þær voru á Klængs-
hóli, innsta bæ í Skíðadal sem er í
eigu fjölskyldunnar. Þar hefur Jök-
ull aðsetur og hefur tekið á móti
hópum sem hann fer með á fjöll.
Jökull, sem er 25 ára, hefur síðustu
10 árin stundað fjallamennsku og
starfað sem leiðsögumaður á því
sviði bæði hérlendis og erlendis.
Björgunarmenn komu á vettvang
og var Jökull fluttur á börum síð-
asta spölinn og var ekið með hann á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Þar kom í ljós að hann var hálsbrot-
inn og var ákveðið að flytja hann
suður með sjúkraflugi strax á
sunnudagskvöldið.
Ótrúlegt að ekki fór verr
Anna Dóra Hermannsdóttir segir
það hreint ótrúlegt hversu heppinn
Jökull hafi verið og að ekki skyldi
hafa farið verr. Jökull segir líka
mikinn stuðning í viðveru móður
sinnar og unnustu á sjúkrahúsinu
og bendir líka á að unnustan sé
sjúkraþjálfari og hann eigi því að
geta verið í góðum höndum áfram.
Þá hefur mikið af vinum og fé-
lögum Jökuls úr björgunar- og
fjallamennskunni heimsótt hann.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Jökull lendir í hremmingum í fjalla-
klifri en hann hefur ekki látið það á
sig fá og ekki heldur nú. „Ég er
orðinn vanur að lenda í svona og
það hjálpar,“ segir hann og kveðst
ætla að halda áfram í fjallaklifri.
Allur lurkum laminn
Morgunblaðið/Kristinn
Jökull Bergmann liggur á bæklunardeild Landspítala í Fossvogi. Hjá
honum er móðir hans, Anna Dóra Hermannsdóttir.
SALA á kjöti jókst um 2% á síðasta
ári samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Bændasamtökunum. Sala á kinda-
kjöti dróst hins vegar saman um
5,7%. Líkt og undanfarin ár jókst
sala á svínakjöti og kjúklingum, en
þessar tvær greinar eru núna með
rúmlega 45% kjötmarkaðarins.
Í fyrra seldust 19.733 tonn af
kjöti, samanborið við 19.544 tonn ár-
ið 2000. Sala á kindakjöti hefur
minnkað ár frá ári síðustu ár, en ár-
ið 2000 stöðvaðist þessi þróun. Þá
jókst kindakjötssala um 4,4%. Í
fyrra gekk þessi aukning til baka.
Salan á árinu var 6.825 tonn, sem er
heldur minni sala en á árinu 1999.
Framleiðsla á kindakjöti dróst hins
vegar saman um 11,5% í fyrra.
Ástæðan er minni fallþungi og
fækkun á sauðfé í kjölfar niður-
skurðar í tengslum við gildistöku
nýs búvörusamnings. Í fyrra voru
framleidd 8.612 tonn af kindakjöti
og er framleiðslan því um 1.800
tonnum meiri en salan á innanlands-
markaði.
Þessi umframframleiðsla er flutt
úr landi. Árið 1991 nam neyslan á
kindakjöti á innanlandsmarkaði
7.947 tonnum. Samdrátturinn er því
rúmlega þúsund tonn á 10 árum.
14,8% aukning í kjúklingasölu
Í fyrra jókst sala á alifuglum um
14,8% og sala á svínakjöti jókst um
9,1%. Nokkur ár eru síðan sala á
svínakjöti fór fram úr sölu á nauta-
kjöti, en á síðasta ári fór salan á
kjúklingum líka upp fyrir nautakjöt-
ið sem nú er fjórða söluhæsta kjöt-
tegundin. Sala á nautakjöti dróst
saman í fyrra um 4,2%.
Sala á mjólk reiknuð á prótein-
grunni nam tæplega 108 milljónum
lítra sem er aukning um 3,5%. Sala
reiknuð á fitugrunni dróst hins veg-
ar saman um 0,9% og varð 98 millj-
ónir lítra. Munurinn hefur verið að
aukast ár frá ári, en ástæðan er sú
að sala á feitum mjólkurvörum, eins
og nýmjólk og smjöri, er sífellt að
minnka, en sala á próteinríkum
mjólkurvörum eykst að sama skapi.
Sala á kjöti jókst um 2% í fyrra
Sala á kindakjöti
minnkaði um 5,7%
!""
# #
$%
$
$%
$
%
! "&#'&()
! & #*#+ ,)
-
-
-
-
ÞRÍR smábátar sem lágu við
flotbryggju í Ólafsvík skemmd-
ust töluvert er 80 tonna bátur,
Gullborg SH338, sem var að
koma inn til löndunar, rakst utan
í þá. Festingar slitnuðu á flot-
bryggjunni sem skemmdist einn-
ig við áreksturinn og færðist úr
stað. Hafnarstarfsmenn unnu við
það í gærkvöldi að festa hana.
Óhappið átti sér stað laust eft-
ir kl. 20 í gærkvöldi og sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar í Ólafsvík var orsökin bilun í
skiptingu bátsins. Björn Arnalds-
son, hafnarstjóri í Ólafsvík, sagð-
ist ekki vita til þess að Gull-
borgin hefði skemmst við árekst-
urinn. Hann sagði erfitt að meta
hversu mikið fjárhagslegt tjón
hefði hlotist af árekstrinum en að
í dag yrði haft samband við
tryggingafélögin og bryggjan
lagfærð.
Bátur rakst á flotbryggju
Flotbryggjan losnaði og þrír smábátar skemmdust.
Morgunblaðið/Alfons
STJÓRN Knattspyrnusam-
bands Íslands (KSÍ) hefur
ákveðið að greiða tæpar tíu
milljónir króna til 56 aðild-
arfélaga KSÍ. Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ, sagði að
sambandið hefði reynt að létta
undir með aðildarfélögum frá
árinu 1992 er 5% gjald af að-
göngumiðum efstu deildar og
bikarkeppni var fellt niður.
Með þessu síðasta útspili
KSÍ hefur sambandið skilað
aðildarfélögum sínum um 160
milljónum króna frá árinu
1992 með framlögum, niður-
fellingu gjalda og yfirtöku á
kostnaði.
KSÍ
greiðir arð
til félaga
Aðildarfélög KSÍ/B3
TÆPLEGA helmingur fyrirtækja,
sem svöruðu könnun Samtaka at-
vinnulífsins um viðhorf til Háskóla Ís-
lands, taldi að framlög sín til kennslu
og rannsókna við HÍ myndu aukast ef
skattafrádráttur vegna slíkra fram-
laga yrði aukinn. Um 28% svöruðu
neitandi og um 24% tóku ekki afstöðu.
Gústaf Adolf Skúlason, forstöðu-
maður stefnumótunar- og samskipta-
sviðs SA segir að hefði verið spurt um
háskóla almennt mætti ætla að fleiri
fyrirtæki hefðu svarað játandi. Könn-
unin var gerð að beiðni Stúdentaráðs
HÍ og voru spurningar sendar 1344
aðildarfyrirtækjum SA.
Skattafrá-
dráttur mun
auka fram-
lög til HÍ
Vilja aukin/27