Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 12
DÓMNEFND um samkeppni um
skipulag við tónlistarhús, ráð-
stefnumiðstöð og hótel við höfnina
í Reykjavík telur að markmið sam-
keppninnar hafi náðst, þ.e. að fá
fram hugmyndir að skipulagi svæð-
isins sem nýst gætu við framhald
verkefnisins um TRH. Alls bárust
44 tillögur og sagði Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri þegar
niðurstöður voru kynntar að dóm-
störf hefðu verið vandasöm vegna
fjölda tillagna og þeirra fjölmörgu
þátta sem taka þurfti tillit til.
Þá telur dómnefndin að tillög-
urnar sýni að sú ákvörðun að velja
TRH stað á hafnarsvæðinu bjóði
uppá marga áhugaverða mögu-
leika á skipulagi og útfærslu bygg-
inga. Hægt verði með góðu skipu-
lagi og vönduðum byggingum að
tengja saman miðborgar-, menn-
ingar-, athafna- og hafnastarfsemi.
Bygging TRH á þessum stað geti
orðið eitt helsta kennileiti borg-
arinnar.
Eins og fram hefur komið í
blaðinu hlaut tillaga Guðna Tyrf-
ingssonar, Lotte Elkjær, Mikel
Fischer-Rassmussen og Lasse
Grosböl fyrstu verðlaun. Dómnefnd
ákvað að veita þrenn þriðju verð-
laun en engin önnur verðlaun. Með
því vildi hún gefa verðlaunatillög-
unni meira vægi gagnvart þeim
sem eiga eftir að koma við sögu
framkvæmda.
Íslenskir arkitektar eru höf-
undar tillagnanna þriggja sem
hlutu þriðju verðlaun. Í fyrsta lagi
eru það Kristján Ásgeirsson og
Jakob E. Líndal. Annar hópur sem
fékk þriðju verðlaun eru arkitekt-
arnir Aðalsteinn Snorrason, Björn
Guðbrandsson, Egill Guðmunds-
son, Gísli Gíslason, Guðrún Ingv-
arsdóttir, Jón Guðmundsson og
Örn Þór Halldórsson. Í hópnum
voru einnig Hilmar Gunnarsson
hönnuður og Þorvarður Björg-
vinsson byggingafræðingur. Í
þriðja lagi fékk Auður Hrönn Guð-
mundsdóttir, arkitekt í Þýskalandi,
þriðju verðlaun.
Dómnefnd um tónlistarhús telur markmið samkeppni hafa náðst
Dómnefnd telur Auði Hrönn Guðmundsdóttur hafa tekist að skapa umhverfi sem yrði eftirsóknarverður samkomustaður borgarbúa.
Þessi tillaga Aðalsteins Snorrasonar og fleiri þykir dómnefnd bjóða
uppá góðar lausnir þrátt fyrir óraunhæfar breytingar á höfninni. Þykja
breytingar á Austurhöfninni draga úr notagildi hennar.
Dómnefnd telur að arkitektunum Kristjáni Ásgeirssyni og Jakobi E.
Líndal hafi tekist að leysa það erfiða verkefni sem snýr að legu TRH
gagnvart miðborginni og byggðinni austan við Lækjargötu.
Hugmyndir munu
nýtast við skipu-
lag svæðisins
LÖGREGLAN í Reykjavík
handtók í gær tvo unga menn
sem grunaðir eru um innbrot
í verslunina Office 1 í fyrri-
nótt. Þýfið, skjávarpi og borð-
tölva, er jafnframt komið til
skila.
Tilkynnt var um grunsam-
legar mannaferðir við versl-
unina skömmu eftir miðnætti
í fyrrinótt.
Þegar lögreglumenn bar að
reyndist hafa verið brotin
rúða í hurð og verðmætun
stolið. Skömmu síðar fann
lögregla stolinn bíl sem talið
var að mennirnir hafi verið á
en þeir fundust þó ekki í
fyrstu. Eftir að hafa unnið úr
tiltækum gögnum í framhaldi
af afbrotinu hóf lögreglan leit
og handtók hina grunuðu.
Tveir hand-
teknir vegna
innbrots
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆSTIRÉTTUR hefur heimilað
Félagsbústöðum hf. í Reykjavík að
láta bera út konu sem leigt hefur
íbúð í eigu félagsins frá því í ágúst
en fengið ítrekaðar viðvaranir
vegna ónæðis sem nágrannar
hennar urðu fyrir. Leigusamn-
ingnum var rift með símskeyti og
féllst Héraðsdómur Reykjavíkur
ekki á útburðarkröfuna þar sem
ekki var talið sannað að konan
hefði fengið símskeytið í hendur.
Hæstiréttur taldi hins vegar að yf-
irlýsingin í símskeytinu hefði þau
áhrif að lögum sem henni var ætl-
að, þótt óvíst væri hvort hún hefði
nokkru sinni borist í hendur leigj-
andans.
Fram kemur í úrskurði héraðs-
dóms að leigusamningur var gerð-
ur 7. ágúst sl. og fékk konan afnot
íbúðarinnar degi síðar. Íbúar í fjöl-
býlishúsinu sendu fyrirsvarsmanni
Félagsbústaða bréf dagsett 20.
ágúst og kvörtuðu undan ónæði frá
íbúðinni. Í bréfinu kemur fram, að
frá fyrsta degi fylgdu mikil vanda-
mál leigjandanum, sem höfðu mjög
truflandi áhrif á íbúa hússins. Þau
tengdust mikilli óreglu, há-
stemmdri tónlist, háreysti, slags-
málum o.fl., enda var oft gest-
kvæmt í íbúðinni og þar var um að
ræða svonefnda „góðkunningja
lögreglunnar“.
Samdægurs sendi fyrirsvars-
maður Félagsbústaða leigjandan-
um bréf sem bar yfirskriftina AÐ-
VÖRUN og sagði þar að ef
aðvörunin yrði ekki tekin til greina
sendi leigusali lokaaðvörun um
rýmingu íbúðarinnar. Leigjandinn
kvittaði fyrir móttöku símskeyt-
isins.
Hélt uppteknum hætti
þrátt fyrir aðvörun
Konan hélt síðan uppteknum
hætti og 1. október sendu Fé-
lagsbústaðir henni annað sím-
skeyti sem bar yfirskriftina
LOKAAÐVÖRUN þar sem vísað
var til fyrra símskeytis og lagt fyr-
ir leigjandann að bæta ráð sitt að
viðlagðri riftun húsaleigusamn-
ingsins og eftirfarandi útburði.
Konan kvittaði einnig fyrir mót-
töku þessa símskeytis.
Hinn 15. október riftu Félagsbú-
staðir síðan húsaleigusamningnum
með símskeyti sem ber yfirskrift-
ina RIFTUN. Á símskeytið er
skráð „Enginn heima. Tilk. skilin
eftir“. Leigjandinn sagðist fyrir
dómi ekki hafa fengið riftunaryfir-
lýsingu Félagsbústaða og ekkert
hafa um hana vitað fyrr en hún
fékk tilkynningu héraðsdóms um
útburðarkröfu.
Í úrskurði héraðsdóms segir að
ráða megi af framlögðum gögnum
að háttsemi leigjandans gagnvart
íbúum í fjölbýlishúsinu veiti Fé-
lagsbústöðum rétt til að rifta
leigusamningnum. Á hinn bóginn
liggi ekki fyrir ótvíræð sönnun fyr-
ir því, að leigjandinn hafi móttekið
riftunaryfirlýsingu Félagsbústaða
frá 15. október sl. Því verði að
hafna útburðarkröfunni.
Hæstiréttur segir hins vegar í
sínum dómi, að samkvæmt fram-
lögðu afriti símskeytisins hafi Fé-
lagsbústaðir falið Landssíma Ís-
lands hf. að koma símskeytinu til
skila. Afrit þetta beri með sér að
þetta hafi verið reynt, en starfs-
maður ritsímans í Reykjavík ritaði
á það að enginn hefði verið heima
og skeytið verið skilið eftir. Sam-
kvæmt meginreglu 13. greinar
húsaleigulaga hafði þessi yfirlýs-
ing þau áhrif að lögum, sem henni
var ætlað, þótt óvíst væri hvort
hún hefði nokkru sinni borist í
hendur varnaraðila. Af þeim sök-
um taldi Hæstiréttur ekki efni til
annars en að verða við útburð-
arkröfunni.
Dóminn kváðu upp hæstarétt-
ardómararnir Markús Sigur-
björnsson, Árni Kolbeinsson og
Gunnlaugur Claessen. Skúli
Bjarnason hrl. var lögmaður sókn-
araðila, Félagsbústaða hf., og
Kristján Stefánsson hrl. lögmaður
varnaraðila, konunnar.
Útburður heimilað-
ur þrátt fyrir óvissu
um skil á símskeyti ÞRÍTUG kona var á mánudagdæmd í tíu mánaða fangelsi, þar afaf 8 mánuði skilorðsbundið, í Hér-aðsdómi Reykjavíkur fyrir fjögur
þjófnaðarbrot árið 2001.
Konan játaði að hafa stolið mat-
vörum og vaxtæki, samtals að
verðmæti 19.586 krónur í Hag-
kaupum, Kringlunni, í febrúar í
fyrra, matvörum að verðmæti
3.030 krónur í versluninni 10–11 í
Arnarbakka, einnig í febrúar, og
stolið límmiðum og dúkkuleikföng-
um að verðmæti 2.850 krónur í
versluninni Leikbæ í Faxafeni í
ágúst.
Konan hefur allnokkurn saka-
feril að baki en henni hefur sex
sinnum verið refsað fyrir umferð-
arlagabrot og fimm sinnum hefur
hún verið dæmd fyrir hegningar-
lagabrot. Hún var síðast dæmd í
september sl. en þá var ekki talin
ástæða til þess að gera henni sér-
staka refsingu í viðbót við 8 mán-
aða skilorðsbundinn fangelsisdóm
frá í júní sl. fyrir þjófnaði, hylm-
ingu, skjalafals, nytjastuld og
fíknilagabrot. Refsing ákærðu nú
var hegningarauki við þann dóm
að því er varðar þjófnaðina í febr-
úar og ágúst. Brot ákærðu í nóv-
ember sl. telst hins vegar vera
ítrekað. Var því skilorðsdómurinn
dæmdur upp og konunni gerð refs-
ing í einu lagi.
Pétur Guðgeirsson héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Kári Rafn
Kjartansson sótti málið fyrir
ákæruvaldið. Verjandi ákærðu var
Hilmar Ingimundarson hrl.
Tíu mánaða
fangelsi
fyrir þjófn-
aðarbrot
UM ÁRAMÓT hækkaði
geymslugjald hjá Skráningar-
stofu úr 600 krónum í 1.500
krónur. Jafnframt hækkaði
verð á númeraplötum sem
framleiddar eru á Litla-
Hrauni um 50%. Mikil aukn-
ing varð á síðasta ári í inn-
lögnum á númeraplötum.
Karl Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Skráningar-
stofu, sagði að á síðasta ári
hefðu bifreiðagjöld og þunga-
skattar verið felldir niður á
bílnúmerum sem lögð hefðu
verið til geymslu hjá Skrán-
ingarstofu og öðrum skoðun-
arstöðvum. Við þessa breyt-
ingu hefði innlögn á númerum
aukist mjög mikið. Dæmi
væru um að eigendur vinnu-
véla hefðu lagt númer í
geymslu og einungis tekið
þau út þegar einhver verkefni
væru fyrir vélina.
Þessi aukning hefði orðið
til þess að skoðunaraðilar,
þ.e. Skráningarstofa, bifreiða-
skoðunarstöðvar og pósthús-
in, hefðu kvartað undan því
að umsýslugjaldið, sem var
600 kr., væri allt of lágt og
langt undir því að standa
undir kostnaði sem af þessu
leiddi. Pósthúsin hefðu gengið
svo langt að segja samningn-
um upp vegna óánægju með
gjaldskrána. Niðurstaðan
hefði orðið sú að hækka
geymslugjaldið upp í 1.500
krónur.
Karl sagði að þó að þetta
væri umtalsverð hækkun
mætti ekki gleyma því að bú-
ið væri að fella niður gjöld og
skatta af geymdum númerum
og því væri í reynd um minni
gjöld fyrir bifreiðaeigendur
að ræða.
Verð á númeraplötum
hækkar um 50%
Karl sagði að um áramót
hefði verð á númeraplötum
hækkað um 50%, en ákvörðun
um það hefði verið tekin á
Litla-Hrauni þar sem plöt-
urnar eru framleiddar. Karl
sagði að framleiðsla á plötum
hefði minnkað mikið á síðustu
misserum vegna þess að inn-
flutningur á bílum hefur
dregist mikið saman. Hann
sagði að verð á númeraplöt-
um hefði verið óbreytt í tíu
ár.
Geymslu-
gjald á
bílnúm-
erum
hækkar