Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 15 Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2002 BIC Atlantis penni Verð 91 kr/stkk NOVUS MASTER gatar 25 blöð. Verð 382 kr NOVUS heftari heftar 30 blöð. Verð 674 kr Borðmotturnar frá Múlalundi 2 dagar í Slava! Miðasala opin alla virka daga kl 13-17 og fram að sýningu sýningardaga. Sími 4621400. www.leikfélag.is FORMENN stéttarfélaga á Akureyri og Eyjafirði afhentu Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra á Akureyri, bréf þar sem minnt er á samkomulag á milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka at- vinnulífsins frá því í desember síðastliðnum um frestun á endurskoðun launaliðar kjarasamninga, en skýr viðmið eru í samkomulaginu um uppsagn- arheimild fari verðbólga yfir ákveðið mark. „Með þessu var samþykkt að allir legðust á eitt um að lækka verðbólguna, en sveitarfélögin voru ekki formlega inni í þessu samkomulagi og því vildum við minna þau á þetta samkomulag,“ sagði Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju. Önnur sveitarfélög í Eyjafirði, Grímsey, Hrísey, Ólafs- fjörður, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörg- árbyggð, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandar- hreppur og Grýtubakkahreppur hafa einnig fengið samskonar bréf frá forsvarsmönnum stétt- arfélaganna. Varnaðarorðin áttu fullan rétt á sér Markmið samkomulags ASÍ og SA var að stuðla að hjöðnun verbólgu og treysta kaupmátt launa, en það var byggt á samráði við ríkisstjórnina m.a. um stöðugleika í efnahagsmálum, lækkun á græn- metisverði, verðlagseftirliti og lækkun trygging- argjalds svo dæmi séu tekin. Formenn eyfirsku stéttarfélaganna benda á að nú hafi komið í ljós að varnaðarorð þau sem féllu í aðdraganda sam- komulagsins í liðnum mánuði, þar sem varað var við fyrirætlunum um stórfelldar hækkanir á þjón- ustugjöldum og íþyngjandi álögum á íbúa bæði á vegum ríkis og sveitarfélaga, hafi átt fullan rétt á sér. „Gjaldskrárhækkanir þessara aðila á síðustu vikum eru ein helsta ógnunin við markmið sam- komulags aðila vinnumarkaðarins um lækkun verðbólgu og aukningu kaupmáttar launa,“ segir í bréfi formanna stéttarfélaganna til forsvars- manna eyfirsku sveitarfélaganna. Segja þeir að opinberir aðilar geti með aðgerðum sínum eða að- gerðarleysi ráðið úrslitum um hvort markmið samkomulagsins náist. „Þess er krafist að sveit- arfélögin axli sína ábyrgð með því að draga þegar í stað til baka ákvarðanir sem þegar hafa náð fram að ganga eða eru áformaðar um hækkanir á álög- um,“ segir í bréfinu og bent á að ábyrgð þeirra sem ekki verði við áskoruninni sé mikil. Björn sagði misjafnt milli sveitarfélaga hvort búið væri eða ætti að hækka gjaldskrár. Þannig ætti að skoða milli umræðna um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar tillögu um 8% hækkun á leik- skólagjöldum. Hann sagði vissulega jákvætt að búið væri að lækka gjaldskrá Norðurorku vegna heita vatnsins. Ætlumst til þess að sveitarfélögin standi með okkur í baráttunni Hann bendir á að einungis 3 sveitarfélög á svæðinu, Eyjafjarðarsveit, Arnarneshreppur og Hörgárbyggð nýti ekki hámarksútsvar. Í hinum sveitarfélögunum þar sem skattprósentan sé í botni greiði menn þannig 38,78% í skatta, en íbúar hinna sveitarfélaganna þriggja 38,54% eða 0,24% minna en nágrannar þeirra. Það þýddi um 8 þús- und krónum meiri álögur á fólk með 2ja milljón króna tekjur á ári. Íbúar þessara sveitarfélaga njóti þannig ekki þeirrar skattalækkunar, 0,33% sem ríkið ákvað á liðnu ári. „Menn verða ekki varir við þessa lækkun þegar sveitarfélögin hækka sín- ar álögur á móti,“ sagði Björn. „Við ætlumst til þess að sveitarfélögin standi með okkur í þessari baráttu við verðbólguna, enda hlýtur það að vera einnig þeirra hagur.“ Sveitarstjórnarmenn minntir á samkomulag ASÍ og SA um lækkun verðbólgu Gjaldskrárhækkanir ógna markmiðum samkomulagsins Morgunblaðið/Kristján Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, t.h., ræðir við Björn Snæbjörnsson, formann Ein- ingar-Iðju, Helga Jónsson, formann Rafvirkja- félags Norðurlands, og Konráð Alfreðsson, for- mann Sjómannafélags Eyjafjarðar, í gær. FJÁRHAGSAÐSTOÐ félagsmála- ráðs Akureyrarbæjar nam rúmum 37 milljónum króna á síðasta ári og hækkaði um tæp 44% á milli ára. Í desember sl. lágu fyrir 215 beiðnir um fjárhagsaðstoð og voru veittir 195 styrkir að upphæð tæplega 6,4 milljónir króna og 6 lán að upphæð um 280.000 krónur. Í ljósi mikillar hækkunar fjár- hagsaðstoðar á síðasta ári var í fé- lagsmálaráði rætt um hvort og þá hvernig eigi að breyta úthlutunar- reglum. Félagsmálaráð samþykkti tillögur um breytingar á framfærslu- grunni, sem gera ráð fyrir hækkun á húsnæðishluta þeirra í samræmi við breytingar undanfarinna ára. Jafn- framt leggur félagsmálaráð áherslu á að skerpa þurfi á framkvæmd út- hlutunarreglna. Rúmar 37 milljónir í fjárhags- aðstoð MIKILL samdráttur hefur orðið í fraktflutningum áætlunarskipa sjó- leiðina til og frá Akureyri á undan- förnum árum. Árið 1996 voru sjó- flutningar til og frá bænum tæplega 100 þúsund tonn en á síðasta ári að- eins um 30 þúsund tonn. Pétur Ólafsson, skristofustjóri Hafnasamlags Norðurlands, sagði að Samskip hefðu hætt sjóflutningum frá Akureyri hinn 1. ágúst árið 2000 og að einnig hefðu sjóflutningar dregist saman hjá Eimskipi. Þetta hefði þýtt mun minna umfang í frakt- flutningum um höfnina. „Þessir flutn- ingar eru að mestu komnir á vegina, sem þola illa þessa auknu umferð, auk þess sem slysahætta hefur auk- ist. Vörugjöld Akureyrarhafnar hafa dregist mikið saman, sem aftur gerir allan rekstur mun erfiðari en áður. Það hefur orðið mikil uppbygging hafnarmannvirkja og þetta er þróun sem menn sáu ekki fyrir.“ Pétur sagði að einnig hefði orðið samdráttur í sjóflutningum á olíu og þá hefðu sementsflutningar einnig verið fluttir á vegina sl. haust. „Við eigum okkar tryggu viðskiptavini, sem eru Samherji og ÚA, en skip þeirra hafa einnig landað annars staðar á landinu. Á vordögum og fram á sumar, þegar frystiskipin eru á karfaveiðum á Reykjaneshrygg, kemur varla frystiskip hingað til bæj- arins. Þá landa skipin fyrir sunnan og það er vel skiljanlegt en það hefur vissulega áhrif á þá aðila hér sem þjónusta skipin.“ Samdráttur í löndun á frystum fiski og bolfiski Á síðasta ári var um 8.000 tonnum af frystum fiski landað á Akureyri en árið áður var aflinn um 12.000 tonn. Bolfiskaflinn sem fór um Akureyrar- höfn í fyrra var um 10.600 tonn en um 12.600 tonn árið 2000. Heldur meira af rækju var landað á Akureyri í fyrra en árið áður. Landaður rækju- afli í fyrra var um 6.900 tonn og jókst um 1.200 tonn á milli ára. Einnig varð aukning í loðnu á milli ára en sam- dráttur í síld. Pétur sagði að loðnan hefði mikil áhrif á tölur um landaðan afla á milli ára „en við hefðum viljað fá meira af frystum fiski og bolfiski hér í gegn“. Heildartekjur Hafnasamlags Norðurlands á síðasta ári voru 123 milljónir króna en voru 127 milljónir króna árið áður. Pétur sagði sam- dráttinn vera um 13% á milli ára, á föstu verðlagi. Tekjur Hafnasamlags Norðurlands dragast saman á milli ára Mikill samdráttur í fraktflutningum á sjó SPARISJÓÐUR Svarfdæla og Slökkvilið Dalvíkurbyggðar skrifuðu í gær undir samkomu- lag, sem felur í sér að slökkvi- liðsmenn byggðarlagsins munu á næstu vikum gera úttekt á ástandi reykskynjara í öllum íbúðarhúsum Dalvíkurbyggðar og í Hrísey. Og þar sem ekki eru reykskynjarar munu þeir gera tillögur um úrbætur. Á móti skuldbindur Spari- sjóðurinn sig til þess að greiða niður um helming kaup á öllum reykskynjurum þar sem þeirra er þörf og slökkviliðsmenn munu aðstoða fólk við uppsetn- ingu þeirra endurgjaldslaust. Undanfarin 12 ár hefur Sparisjóðurinn styrkt kaup á hjálmum fyrir hjóla-, skíða- og hestafólk í byggðarlaginu og nemur sá stuðningur milljónum króna, að sögn Friðriks Frið- rikssonar sparissjóðsstjóra. Hann sagði að kaup á hjálmum hefðu verið styrkt eftir alvar- legt slys á skíðasvæðinu í Böggvisstaðafjalli fyrir um 12 árum. Styrkir kaup á reyk- skynjurum FLUGMÁLASTJÓRN gekkst fyrir ráðstefnu á Akur- eyri fyrir helgina, þar sem fjallað var um vetrar- viðhald. Ráðstefnuna sátu um 40 manns, starfsmenn Flugmálastjórnar, Keflavíkurflugvallar og Vegagerð- arinnar. Tilgangur ráðstefnunnar var að samræma vinnuað- ferðir og ræða leiðir til að bæta öryggi á flugvöllum og vegum með tilliti til hálkuvarna og snjómoksturs. Fulltrúar Flugmálastjórnar, Keflavíkurflugvallar og Vegagerðarinnar fluttu erindi og einnig norskur sér- fræðingur á sviði tækjabúnaðar til hreinsunar á flug- völlum og vegum. Bætt öryggi á flugvöllum og vegum til umræðu Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn Vegagerðarinnar, Keflavíkurflugvallar og Flugmálastjórnar sátu ráðstefnu. Ráðstefna um snjómokstur og hálkuvarnir á flugvöllum og þjóðvegum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.