Morgunblaðið - 23.01.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 23.01.2002, Síða 16
SUÐURNES 16 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ BROTIST var í fyrrakvöld og -nótt inn í tvo vörubíla sem stóðu í Helguvík. Annar bíllinn er í eigu Ístaks og hinn í eigu sementsfyr- irtækisins Aalborg Portland. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Keflavík voru bílrúður brotnar með grjóthnullungum og úr öðrum bílnum var stolið geisla- spilara og útvarpi. Ekkert var tekið úr hinum. Að sögn lögreglu var tilkynnt um innbrotin í gærmorgun þegar starfsmenn mættu til vinnu sinn- ar. Er talið að innbrotin hafi verið framin eftir lok vinnudags á mánudag. Lögreglan biður þá sem urðu varir við mannaferðir í Helguvík á þessu tímabili að hafa samband. Innbrot í vörubíla Helguvík REYKSKYNJARI varð tveimur húsráðendum og heimilishundi þeirra til happs þegar eldur kom upp í stóru einbýlishúsi við Norðurtún í Sandgerði í fyrrinótt. Lögreglunni í Keflavík var gert viðvart um brun- ann laust fyrir klukkan eitt um nótt- ina. Þegar lögreglu og Slökkvilið Sandgerðis bar að var talsverður reykur í eldhúsinu en lítill eldur í innréttingunni. Er slökkviliðsmenn fóru inn í húsið voru rúður í eldhúsi sprungnar og húsið fullt af reyk. Að sögn lögreglu eru skemmdir í húsinu talsverðar, einkum vegna sóts á innanstokksmunum og vatns á gólfefni. Heimilisfólkinu og hundin- um varð ekki meint af reyknum. Gísli Arnbergsson skipstjóri er húsráðandi við Norðurtún 10 og ásamt konu hans vöknuðu þau upp við reykskynjarann. Hann sagði við Morgunblaðið að þau hefðu reynt að slökkva eldinn sjálf en reykurinn hefði verið það mikill að þau hefðu orðið að hörfa út ásamt hundinum og bíða eftir slökkviliðinu. Hann sagði ljóst að reykskynjarinn hefði bjarg- að miklu því svefnherbergi þeirra væri í öðrum enda hússins og eldhús- ið í hinum endanum. Eldhúsið er gjörónýtt og unnu iðnaðarmenn við það í gær að ryðja út skemmdum húsgögnum og raftækjum. Eldsupptök ókunn Guðmundur Baldursson, rann- sóknarlögreglumaður í Keflavík, sagði eldsupptök ókunn en að málið væri í rannsókn. Við fyrstu sýn virt- ist sem kviknað hefði í út frá upp- þvottavél en Guðmundur sagði það óstaðfest. Hann sagði þetta atvik minna enn og aftur á mikilvægi reykskynjara og vildi brýna fyrir fólki að koma slíkum eldvarnarbúnaði upp í híbýl- um sínum, væri hann ekki fyrir hendi nú þegar. Brunatjón í stóru einbýlishúsi Reykskynjari vakti húsráðend- ur og hundinn Sandgerði MARÍA Svavarsdóttir, 25 ára göm- ul úr Vestur-Landeyjum, er að læra til smiðs í Sandgerði og hyggst útskrifast með sveinspróf um næstu jól. Hún fór upphaflega til Sandgerðis til að heimsækja bróður sinn og taka sér mánaðarfrí frá bústörfunum heima í sveitinni. Í fríinu fékk hún vinnu við smíðar hjá Hagtré ehf. og í framhaldi af því samning hjá Heimi Sigursveins- syni, húsasmíðameistara og annars eigenda Hagtrés. María ílengdist því í Sandgerði, þar sem hún hefur verið í fjögur ár. Hún segir starfið mjög fjöl- breytt og fela í sér verkefni allt frá því að sópa upp í að smíða heil hús. Þá sé það líka kostur að geta bjarg- að sér heima og sinnt þar ýmsu sem þarf að laga og bæta, en María er í sambúð með Elvari Ólafssyni, sem nemur iðnrekstrarfræði í Tækniskólanum í Reykjavík. Hann hefur verið í málningarvinnu á sumrin og segir María það hafa komið sér vel þegar þau standsettu íbúðina sína að hafa bæði málara og smið á heimilinu. ,,Ég er vön ,,groddavinnu“ úr sveitinni, en annars væri ég ekkert í þessu starfi. Ég get ekki verið að hanga í einhverri kyrrsetuvinnu, því ég hef gaman af fjölbreytninni og að vera ekki alltaf á sama stað að gera það sama allan daginn. Svo er líka alveg frábær vinnuandi í fyrirtækinu og það gerir starfið enn skemmtilegra.“ – Er það rétt að þú sért stundum kölluð ,,smiðjan? ,,Já, það passar, ég er kölluð „Maja smiðja“. Það kom þannig til að það var verið að tala um það innan fyrirtækisins hvort ég ætlaði að verða smiður, en Heimir sagði að það passaði náttúrlega ekki og sagði að ég væri smiðjan þeirra. Eftir það hef ég gengið undir nafn- inu „Maja smiðja“ og þeir eru mjög stoltir af því að eiga þessa smiðju. Svo töluðu þeir líka um það að ég yrði ekki ,,sveinn“ að loknu sveins- prófi heldur ,,María mey“,“ segir María brosandi og er það greini- lega ekkert á móti skapi að bera hin ýmsu viðurnefni. ,,Annars fæ ég rosalega mikla at- hygli út á þetta og er mikið spurð um starfið. Það er heldur ekki mik- ið um að konur læri til smiðs. Ég veit um eina sem útskrifaðist með Heimi, en svo hefur dóttir hins eig- andans unnið hér á sumrin.“ Brandararnir ekki sparaðir – Hvað finnst strákunum um að fá kvenmann í ,,karlastörfin“? ,,Þeim finnst það bara gaman, en upphaflega fékk ég samt bara vinnuna af því þetta var svo stuttur tími. Líklega væri ég ekki hér enn ef þeim væri illa við það. Það var að minnsta kosti tekið mjög vel á móti mér og hefur verið mjög gam- an allan tímann.“ – Nú tíðkast það oft að það sé grófur og kaldhæðnislegur húmor á svona karlavinnustöðum, kannast þú eitthvað við það? ,,Já, já,“ segir María hlæjandi. ,,Það kemur stundum fyrir að þeir vilji ekki segja frá einhverju þegar kvenmaðurinn heyri til, heldur bara ræða það síðar. Það er nú líka þannig að ef maður gerir einhver smámistök að þá er ekkert verið að spara brandarana. Hér er skotið á fólk fram og til baka og þá ekki síst á mig. Mér datt það í hug á tímabili hvort það stæði á enninu á mér að það ætti að stríða mér,“ segir María brosandi, en bætir við: ,,Ég fæ alveg að finna fyrir því að ég sé kvenmaður og það getur bæði verið jákvætt og neikvætt. Það kemur fyrir að mér sé til dæm- is hlíft við því að bera einhverja þunga hluti og strákarnir frekar teknir í það. Það kom mér hins vegar á óvart í byrjun hvað mér var oft treyst fyrir miklu,“ segir hin glaðbeitta „Maja smiðja“ að endingu í samtali við Morgun- blaðið. María Svavarsdóttir gengst við viðurnefninu „Maja smiðja“ Stefnir á sveinspróf í húsasmíðinni Sandgerði Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir María Svavarsdóttir, kölluð „Maja smiðja“, að störfum í húsasmíðinni. STEFNT er að eflingu og markaðs- setningu Bókasafns Reykjanesbæjar sem upplýsingamiðstöðvar. Einnig verður þjónustutíminn endur- skoðaður. Kemur þetta fram í starfs- áætlun safnsins sem lögð hefur verið fram. Í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar er veitt heimild til ráðningar nýs bókasafns- og upplýsingafræðings að safninu síðar á þessu ári. Aðeins einn bókasafnsfræðingur er við safnið, auk forstöðumanns, og hefur því ekki verið hægt að sinna fyrirspurnum gesta allan daginn. Hulda Björk Þorkelsdóttir bæjar- bókavörður segir að nemendur leiti töluvert eftir aðstoð við upplýsinga- leit. Þá sé lögð áhersla á að aðstoða fólk við leit í rafrænum gagnasöfnum og tímaritum og kenna því að leita. Mikilvægt sé að bæta við bókasafns- og upplýsingafræðingi til þessara verka. Hulda Björg segir að stefnt sé að því að auglýsa betur einstaka þætti starfsins. Nefnir hún notkun rafræna gagnabankans, hvar.is, og upplýs- ingaþjónustu safnsins almennt enda átti margir sig ekki á því hvað margt sé í boði á almenningsbókasöfnum. Hún segir ákveðið að kynna betur barna- og unglingastarfið. Reynt verði að ná betur til barna og ung- linga, meðal annars í tengslum við starfsemi æskulýðsmiðstöðvarinnar Fjörheima. Þá verði laugardagarnir auglýstir sem fjölskyldudagar. Endurskoðun á þjónustutíma Vegna fjölgunar háskólanema í fjarnámi hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hafa komið fram óskir um að safnið sé lengur opið, einkum að aðgangur að lessal sé lengur á kvöldin og á laugardögum. Gerð var tilraun með það í vetur. Hulda Björk segir að aðsókn hafi ekki verið mikil eftir hefðbundinn lokunartíma til að byrja með en hafi aukist þegar prófin nálguðust. Hún segir að ætlunin sé að kanna frekar óskir gesta safnsins um þjón- ustutíma og reyna að verða við þeim. Útlán Bókasafns Reykjanesbæjar voru á síðasta ári 107.979 sem er tæp- lega 10 útlán á íbúa. Eru þetta svipuð útlán og árið á undan þegar lánaðar voru 107.804 bækur. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Hulda Björk Þorkelsdóttir, bæjarbókavörður í Reykjanesbæ. Aukin upplýsinga- miðlun á bókasafni Reykjanesbær LÍKAMSRÆKTARSTÖÐIN Ree- bok við Hafnargötu í Keflavík hefur verið lokað í kjölfar þess að Lífsstíll keypti stöðina á dögunum. Pálmi Þór Erlingsson, einn af eig- endum Lífsstíls, segir að Reebok hafi gengið frekar illa enda sé ekki pláss fyrir þrjár slíkar stöðvar í Keflavík. Segir hann að Lífsstíll hafi ákveðið að kaupa þessa stöð, þegar það bauðst. Nú eru tvær líkams- ræktarstöðvar á staðnum. 70–80% aukning Lífsstíll er í Hótel Keflavík. Frá því nýir aðilar tóku við rekstrinum, 1. maí á síðasta ári, hefur starfsemin gengið vel. Segir Pálmi Þór að 70– 80% aukning hafi orðið í viðskiptum á þessum tíma. „Það verður að sinna viðskiptavinunum og elta þarfir þeirra. Gæta sín á því að allt sé í lagi,“ segir Pálmi um ástæður aukn- ingarinnar. Hann bætir því við að Lífsstíll sé stærsta líkamsræktar- stöðin í Keflavík, hafi stærsta hús- næðið og mestu fjölbreytnina. Hann segir ánægjulegt hve marg- ir séu að byrja í líkamsrækt. Mun skemmtilegra sé að stækka markað- inn með þeim hætti en að kroppa af öðrum. Líkams- ræktar- stöðvar sameinast Keflavík Á FIMMTA tug fyrirtækja í bygg- ingariðnaði og þjónustu á Suðurnesj- um eiga aðild að nýju verktakafyr- irtæki, VT verktökum hf. í Reykja- nesbæ, sem hyggst hasla sér völl á Keflavíkurflugvelli. „Stofnun fyrirtækisins er svar okk- ar við því sem er að gerast uppi á flug- velli. Þar er verið að auka útboð og ár- ið 2004 verða allar framkvæmdir, viðhald og þjónusta boðin út,“ segir Anton S. Jónsson, framkvæmdastjóri Húsagerðarinnar, en hann er jafn- framt framkvæmdastjóri VT verk- taka og á sæti í stjórn félagsins. Með honum í stjórn eru Einar Guðberg Gunnarsson, framkvæmdastjóri Meistarahúsa, og Ingólfur Bárðarson rafverktaki. Þarf öflugt fyrirtæki Anton segir að öflug fyrirtæki þurfi til að geta tekið þátt í útboðum hjá varnarliðinu því til þeirra séu gerðar afar miklar kröfur. Til þess að ekki færu öll verk fram hjá Suðurnesja- mönnum hefði þurft að láta reyna á samstöðu þeirra. Í ljós hafi komið að hún væri mikil og færi vaxandi. 38 að- ilar stofnuðu fyrirtækið og fleiri hafa bæst við síðan. Býst Anton við að fljótlega verði hluthafarnir orðnir 50 talsins en hver þeirra leggur fram 200 þúsund krónur í hlutafé í upphafi. Anton neitar því ekki að sviptingar á verktakamarkaðnum á Suðurnesj- um kunni einnig að hafa haft áhrif á þróunina. Keflavíkurverktakar hf. sem áður voru í dreifðri eigu iðnaðar- manna og fleiri aðila á Suðurnesjum eru nú komnir að mestu í eigu eins manns. VT verktakar hf. munu bjóða í verk sem um þessar mundir eru í útboði hjá varnarliðinu. Anton segir að tím- inn verði að leiða það í ljós hvernig fyrirtækinu gangi að komast að á þessum markaði. Nýtt verktaka- fyrirtæki stofnað Hyggjast hasla sér völl á flug- vellinum Reykjanesbær ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.