Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 17
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Frá stofnfundi um sjálfseignarstofnun Safns Jósafats Hinrikssonar. FYRIR skemmstu var haldinn stofnfundur sjálfseignarstofnunar um Safn Jósafats Hinrikssonar í Fjarðabyggð. En eins og kunnugt er þáði Fjarðabyggð safnið að gjöf frá erfingjum Jósafats heitins Hin- rikssonar á árinu 2000. Á undan- förnum mánuðum hefur sérstök nefnd á vegum sveitarfélagsins unnið að því að flytja safnið austur, gera úttekt á mögulegu húsnæði undir safnið og undirbúa stofnun sjálfseignarstofnunarinnar. Nú eru allir safngripirnir komnir austur í geymslu og eru í fínu ástandi þrátt fyrir að hafa lent í eldsvoða þegar gamla frystihúsið brann nú rétt fyrir jólin. Fram að þessu hefur verið gert ráð fyrir að safnið verði til húsa í gamla hafn- arhúsinu sem er í miðbæ Neskaup- staðar, en það þarfnast töluverðra viðgerða. Enn sem komið er eru aðilar að sjálfseignarstofnuninni samtals sjö: Síldarvinnslan hf., Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, Fjarðabyggð, hafnarsjóður Fjarða- byggðar, Netagerð Friðriks Vil- hjálmssonar, Sparisjóður Norð- fjarðar og Trölli ehf. En gert er ráð fyrir að þau fyrirtæki sem gerast aðilar að sjálfseignarstofnuninni á árinu 2002 verði stofnaðilar. Verk- efni sjálfseignarstofnunarinnar næstu misserin er að móta næstu skref í uppbyggingu safnsins, koma því upp og, þegar þar að kemur, halda utan um rekstur þess. Stefnt er að því að opna safnið á sum- armánuðum árið 2003. Sjálfseignarstofnun um rekstur Safns Jósafats Hinrikssonar Neskaupstaður LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 17 „FJÁRHAGSSTAÐA beggja hrepp- anna er sterk, svo sameiningin er á jafnréttisgrundvelli. Íbúafjöldinn er líka svipaður, en samtals erum við um 500,“ segir Bjarni Einarsson, oddviti Gnúpverjahrepps. Gnúp- verjahreppur og Skeiðahreppur hafa nú verið sameinaðir, en nafn á nýja sveitarfélagið verður ákveðið á næstunni. Bjarni segir að sameiningin sé í raun aðeins formleg staðfesting á orðnum hlut, hrepparnir eigi langa og farsæla sambúð að baki. Þeir hafi til dæmis rekið saman skóla. „Það breytist nánast ekkert við þetta, nema hvað nú þurfum við að finna nafn á sveitarfélagið og að loknum kosningum í vor verður ráðinn sveit- arstjóri. Við ætlum ekki að velja einn úr hópi sveitarstjórnarmanna, held- ur einhvern utanaðkomandi, enda hefur það virkað vel annars staðar.“ Fjárhagsstaða hreppanna er sterk og er hvorugur að bjarga hinum með sameiningunni, að sögn Bjarna. „Stærsti útgjaldaliðurinn er rekstur leikskóla og skóla, sem er um 50– 60% af útgjöldunum árlega. Við njót- um hins vegar fasteignaskatta frá Búrfellsvirkjun og Sultartangavirkj- un og erum því betur settir en marg- ir aðrir hreppar.“ Gullskeið eða KÁ-hreppur? Sameiningarnefnd mun velja nafn á nýja sveitarfélagið. „Margir hafa nefnt nafnið Þjórsárhreppur. Svo hafa ýmsar tillögur komið fram og ekki allar í alvöru, t.d. Gullskeið og KÁ-hreppur.“ Rökin fyrir síðastnefnda nafninu munu vera þau, að ef sveitarfélagið kenni sig við Kaupfélag Árnesinga þurfi ekki að breyta nafninu á ný þótt aðrir hlutar Suðurlands verði innlimaðir síðar. „Ég býst við að margar frumlegar tillögur komi fram, en ég á von á að jarðbundnir menn veljist í sameiningarnefndina,“ segir Bjarni Einarsson oddviti. Kosið um sameiningu Skeiða- og Gnúpverjahrepps Sameining á jafnréttisgrunni                    ! " #$%    +&# &, .& "# /0 & .& "#" +1(                            ! "# $  &     $$' (    ' %      %    %         %               2 *   "3"  4 ""3"        Árnessýsla SKJÓT og rétt viðbrögð skipta oft sköpum á neyðarstund. Björgunar- sveitin Björg á Drangsnesi eign- aðist nýlega svokallaða neyðar- tösku. Það er taska með súrefnistækjum sem grípa má til þegar veikindi eða slys ber að hönd- um. Það getur skipt öllu máli fyrir t.d hjartasjúkling að fá súrefni strax. Læknisþjónustu sækja Drangs- nesingar sem og flestir aðrir íbúar Strandasýslu til Heilbrigðisstofnun- ar Hólmavíkur. Þar er nýr fullbúinn sjúkrabíll. Við bestu skilyrði að sumarlagi er sjúkrabíllinn um 20 mínútur að fara þessa leið á Drangsnes og er það aukið öryggi að nú er á staðnum tæki til að grípa til meðan beðið er eftir lækni og sjúkrabíl með fullkomin tæki. Og við erfiðari aðstæður getur ferðin tekið mun lengri tíma. En þessi súrefnistæki koma að litlu gagni á neyðarstund ef enginn kann að nota þau og því var nám- skeið á Drangsnesi í notkun súrefn- istækisins. Leiðbeinendur á nám- skeiðinu voru þau Sigríður Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur á Hólmavík og Gunnar Jónsson sjúkraflutningamaður. Var einnig farið yfir undirstöðuatriði við blást- ursaðferðina og hjartahnoð. Mjög margir voru á námskeiðinu og má ætla að fimmti hver íbúi Drangs- ness geti nú brugðist við og notað súrefnistækin ef á þarf að halda. Voru þau Sigríður og Gunnar mjög ánægð með þátttökuna á námskeið- inu og það framtak að kaupa þessi tæki á staðinn. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Sigríður Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Óskar Torfason, Guðbjörg Hauksdóttir og Gunnar Jónsson sjúkraflutningamaður æfa handtökin. Læra að nota neyðartöskuna Drangsnes ELDUR kom upp síðdegis á mánu- dag í timburplötum í verknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Vegfarandi, sem átti leið um, varð eldsins var og hringdi á slökkviliðið. Því næst náði hann sambandi við húsvörðinn til að komast inn og sameiginlega slökktu þeir eldinn. Þegar slökkvi- liðsmenn komu á vettvang beið þeirra aðeins að reykræsta hús- næðið. Má fullvíst telja að þessi glöggi vegfarandi hafi forðað skól- anum frá stórtjóni en fleiri höfðu áður átt þarna leið um án þess að verða nokkurs varir. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Sauðárkróki varð tjón óverulegt og gat kennsla hafist að nýju í gærmorgun. Talið er að neistar úr logsuðutækjum hafi læst sig í timburplötur með fyrrgreind- um afleiðingum en þegar eldsins varð vart voru tveir tímar liðnir frá því að verklegri kennslu lauk í hús- inu. Eldur í verknámshúsinu Vegfarandi af- stýrði stórtjóni Sauðárkrókur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.