Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 23 meistar inn. is HÖNNUN LIST Bíll og borg – Ráðstefna og sýning um nýjungar í bílaiðnaði og hvernig draga má úr mengun bíla á höfuðborgarsvæðinu á Grand Hóteli, Reykjavík, 25. janúar 2002 Borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, setur ráðstefnuna kl. 9:00. Síðan flytur umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, ávarp. Fyrirlesarar dagsins eru: Peter Ahlvik, Ecotraffic í Svíþjóð, Jouko Parviainen, Finnlandi, Þór Tómasson, Hollustuvernd ríkisins, Runólfur Ólafsson, FÍB, Eiríkur Ein- arsson, Toyota/P. Samúelsson, Kristján Kristinsson, Olíufélagið hf. Esso, Björn Halldórsson, Sorpu, Guðmundur Tryggvi Ólafsson, Kjöt- mjöli, Þorsteinn I. Sigfússon, Íslensk NýOrka hf., Pétur Pétursson, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Landvernd. Í ráðstefnulok verða pallborðsumræður. Ráðstefnugjald: 7.000 kr. og innifalið er léttur hádegisverður og molakaffi. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna með því að senda tölvupóst til sibbaa@simnet eða í síma: 466 1266/864 0019. Á SÝNINGU Orra Jóns- sonar sem opnaði fyrir skömmu í Gallerí Skugga á Hverfisgötu, er röð þessarra mynda; innlit í yfirgefin hús víða um land. Orri nam ljósmynd- un við School of Visual Arts í New York, lauk námi fyrir fimm árum og hefur haldið nokkrar sýn- ingar á ljósmyndum, nú síðast á þessari röð mynda úr eyðibýlum í elsta ljósmyndagalleríi Danmerkur og fékk hún ákaflega góða dóma þar- lendra gagnrýnenda. Þá hefur hann unnið talsvert að tónlist, meðal annars í hljómsveitinni Slowblow. Hann samdi tónlistina við kvikmyndina Nói albinói ásamt leikstjóranum, Degi Kára Péturssyni, en hún verður frumsýnd síðar á þessu ári, og einn- ig tónlist við kvikmyndina War and Resilience eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska sem frumsýnd verður í mars næstkomandi. Hingað til hefur Orri haldið sig við persónulega svarthvíta ljós- myndun en það átti eftir að breytast þegar hann leit inn í eyðibýlin í Öx- arfirði. „Þegar ég var krakki fórum við stundum í heimsókn til skyld- fólks þar og það var reynt að skilja mig nokkrum sinnum eftir,“ segir Orri. „Þegar ég heimsótti ætt- ingjana þar sumarið 1999 þá var stór hluti sveitarinnar farinn í eyði. Ég rambaði um á þessum bæjum með litla myndavél, tók mikið af myndum og þegar ég kom heim sá ég að það hlyti að vera áhugavert að mynda þetta með stærra formati. Þannig gæti ég náð einhverju af þessum fínlegu smáatriðum inni í húsunum, blæbrigðum í litum, flagn- andi málningu, ryki og slíku.“ Orri sneri því aftur í Öxarfjörðinn, vopn- aður stórri belgvél sem tekur 4 x 5 tommu blaðfilmur. „Þegar ég sá út- komuna úr þeim tökum vildi ég halda áfram. Ég fékk styrk til verksins úr Menningarborgarsjóði og síðasta sumar komst ég aftur af stað, fór hringinn með fjölskyldunni á tveimur og hálfri viku og myndaði mikið. Í lok sumars fór ég svo á Vestfirðina og safnaði efni.“ – En hvað er það sem heillar við eyðibýlin? „Ég hef lítinn áhuga á að skil- greina það mjög nákvæmlega. Það er sérstök upplifun að ferðast á milli og snuðra um annarra manna hý- býli. Ég áttaði mig ekkert á því hvernig verkið myndi þróast meðan ég var á kafi í myndatökunum en inni í húsunum gerir maður sér ósjálfrátt í hugarlund hvernig fólk hafi búið þar. Á hverju býli er sér- stök stemmning. Stundum er eins og fólkið hafi farið í miklum flýti. En ég reyni á engan hátt að takast á við þann veruleika í myndunum; ég reyni bara að búa til myndir sem mig langar að horfa á. Ég er ekki heimildaljósmynd- ari. Hef meiri áhuga á smáatrið- um sem oft fara framhjá fólki eins og hvar rykið sest, hversu mörg lög af málningu séu und- ir veggfóðrinu. Svo finnst mér hin líkamlega vinna við að taka ljósmynd; mæla ljósið, reikna út framköllunartím- ann og vinnan í myrkraherberg- inu, vera stór hluti af ánægjunni. Sumir geta ef- laust horft á myndirnar og velt sér uppúr landspólitískum pæling- um um eyðingu byggðar og slíkt, en það er ekki kveikja myndanna. Að einhverju leyti eru þær þó heimildir. Nokkrum sinnum hef ég myndað í býlum og snúið aftur síðar til að taka meira en þá eru þau horfin. Eyðibýlin eru ekki í varanlegu ástandi og þessvegna finnst mér liggja á að vinna verkefnið hratt, núna. Ég ætla að halda áfram að mynda þessi býli í svona tvö ár og síðan er draumurinn að gefa mynd- inar út á bók. Ég vil ekki þurfa að svekkja mig eftirá yfir að hafa ekki þurrausið efnið þegar býlin verða öll farin eða erlendir auðmenn búnir að gera þau upp.“ Orri bendir á að þar sem hann fari inn í býlin verði útkoman öðruvísi en þegar hús eru mynduð að utan og í heild. Þessvegna reyni hann líka alltaf að fá leyfi eigenda eða umsjón- armanna húsanna áður en hann hefst handa. „Stundum hefur fólk óskað eftir því að nafn býlisins eða staðsetning komi ekki fram og sjálf- sagt að verða við því, enda kemur slíkt málinu ekki við. En ég hef stundum hugsað um að ef ég væri ekki Reykvíkingur heldur utan af landi, segjum úr Öxarfirðinum, þá hefði ég aldrei farið útí þetta. Fólk í sveitunum skilur oft ekkert í því sem ég er að gera: að ljósmynda ruslið! En það sýnir ótrúlegt um- burðarlyndi gagnvart því sem það telur vitleysu í mér, sem er ágætt.“ – Þú víkur þér ekkert undan feg- urðinni; þetta eru óneitanlega fal- legar myndir. „Ég reyni að búa til fallegar myndir, þótt þær séu af hlutum sem sumum þykja ljót viðfangsefni. Ég reyni alltaf að gera fallegar myndir sem ég hef sjálfur áhuga að horfa á.“ Fegurð í eyðingunni Á ljósmyndum Orra Jónssonar sjást innviðir íslenskra eyðibýla; litríkur heimur flagnandi málningar, upplitaðs veggfóðurs og um- merkja um horfna menn. Í ofurskörpum myndunum birtist fegurð sem ljósmyndarinn skynjar í eyðingunni, en í samtali við Einar Fal Ingólfsson sagðist hann hafa takmark- aðan áhuga á heimildargildinu. Ljósmynd/Orri Jónsson efi@mbl.is Ljósmynd/Orri Jónsson Morgunblaðið/Einar Falur Orri Jónsson, ljósmyndari og tónlistarmaður. EINS og annars staðar í heim- inum gerir nú önnur kynslóð sænskra innflytjenda kvikmyndir sem endurspegla hvernig tveir heimar þeirra blandast saman og stöðu þeirra innan hans. Það væri gaman að fá eina þannig íslenska mynd og sjálfsagt upplýsandi fyrir marga. Josef Fares er af líbönskum uppruna og í þessari mynd sinni tekur hann létt á málum og sýnir heim sinn í rómantískri gaman- mynd. Roro er ástfanginn af Lisu, þegar líbönsk amma hans finnur handa honum fallega stúlku, Yazmin, til að giftast. Þau hafa engan áhuga hvort á öðru en ljúga í fjölskyldur sínar að þau ætli að giftast bara til að hætt verði að nauða í þeim. En það á eftir að hafa margar ófyrirsjáan- legar afleiðingar. Inn í ævintýrið fléttast Måns, vinur Roro, en greyið á í vandræðum með að ná honum upp. Mér varð strax hugsað til bresku myndarinnar East Is East þar sem umfjöllunarefnið er svipað og efn- istökin einnig bráðfyndin. Það verð- ur að segja að sú mynd tók alvar- legar á vandamálunum sem skapast geta þegar maður er fastur á milli tveggja menningarheima, einnig er tekið á skilningi sem þarf að ríkja á milli foreldra og barna sem sjá hlut- ina í mjög ólíku ljósi. Jalla Jalla er einnig áhrifarík mynd en á mun yfirborðskenndari hátt þar sem hún er býsna form- úlukennd og eiginlega er lokaatriðið neyðarlega „amerískt“. Fares lætur vonda karlinn vera þann sem vill halda í gamla siði og upphefja sjálf- an sig út á það og góði karlinn er sá sem vill halda í siðina en lætur að lokum undan þar sem hann virðir tilfinningar annarra. Það er kannski ekki rétt að reyna að rýna í þessa á mynd á þessum nótum. Jalla Jalla er fyrst og fremst góð skemmtanagildsins vegna, þótt bakgrunnurinn sé árekstrar ólíkra menningarheima. Bróðir Fares leikur Roro, og pabba hans leikur einmitt pabbi þeirra. Amman leikur ömmuna, og á allt þetta fólk stórleik, þótt það sé að öllum líkindum að leika sjálft sig að mestu. Það gefur myndinni ótvírætt heimildargildi sem er skemmtilegt. Þetta er einfaldlega mynd um ástina... já vel heppnuð, rómantísk gamanmynd með góðum húmor, sem er sætur og grófur og allt þar á milli. Mynd sem flestir ættu að hafa gaman af og skiptir þá ekki máli aldur, kyn, litarháttur, trúarbrögð eða þjóðerni. Jamm og já. Tveggja heima rómantík KVIKMYNDIR Regnboginn Leikstjórn og handrit: Josef Fares. Kvik- myndataka: Aril Wretblad. Aðalhlutverk: Fares Fares, Torkel Petersson, Tuva Nov- otny, Laleh Pourkarim, Jan Fares og Leonard Terfelt. Svíþjóð. 88 mín. Memfis Film & Television 2000. JALLA JALLA  Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.