Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 25
FYRIR jól fréttu Hafnfirðingar
að bæjarstjórinn hefði stofnað
einkahlutafélagið Norðurbakka
ehf., ásamt tveimur öðrum. Mikil
leynd hafði hvílt yfir þessu, enda
verið að gefa ákveðnum aðilum
einkarétt á lóðabraski á besta stað í
bænum. Þátttakendur í þessu
Monopoly-spili ætla að byggja Man-
hattan-hverfi á Norðurbakkanum.
Áformin voru kynnt með gögnum
sem benda til þess að þremenning-
arklíkan sé búin að spila lengur en
Hafnfirðingar halda. Ráðgert er að
byggja 600 íbúðir með nýtingar-
stuðli sem er margfaldur á við það
sem þéttast þekkist hér á landi. Til-
lagan endurspeglar eiginhagsmuna-
hyggju aðstandenda. Ekkert tillit
er tekið til þess að útlit Hafnar-
fjarðar breytist til frambúðar, né
næstu nágranna. Útkoman verður
svefnbær við sjó.
Að frátöldum tekjum á bygginga-
tíma verða fasteignagjöld einu tekj-
urnar af þessum framkvæmdum.
Hafnfirskir verktakar fá að berjast
innbyrðis um að bjóða í einstaka
verkþætti, sem undirverktakar. Er-
lendir arkitektar eiga síðan að
skipuleggja hverfið. Skólahverfi
Víðistaðaskóla, skólahverfi Norður-
bakkans, verður í uppnámi því skól-
inn er illa í stakk búinn til að bæta
við sig nemendum. Hann er enn
ekki einsetinn og uppfyllir hvorki
væntingar né kröfur um nútíma
skólastarf.
Bryggjuhverfi eru þekkt fyrir-
brigði erlendis. Gott dæmi um vel-
heppnað bryggjuhverfi er í Björg-
vin í Noregi. Það er að hluta til
gamalt og nýtt í bland.
Nýrri hlutinn hefur
verið lagaður að þeim
eldri. Tekið var mið af
stærð, lögun og mæli-
kvarða húsanna. Hæð
húsanna er hvergi
meiri en fjórar hæðir
og þetta hefur ekki
hamlað uppbyggingu
hverfisins. Í hverfinu
eru 4 hótel, þar á með-
al 273 herbergja Rad-
isson SAS hótel í
hæsta gæðaflokki,
ásamt fjölmörgum
verslunum, söfnum,
veitingastöðum og
íbúðum. Það er til eft-
irbreytni hvernig að þessari upp-
byggingu Björgvinjarbúa var staðið
og jafnframt umhugsunarefni að
hugmyndir eins og þær sem Norð-
urbakki ehf. matreiddi ofan í Hafn-
firðinga á jólaföstunni skuli yfirleitt
á borð bornar. Við Íslendingar get-
um „státað“ af einu bryggjuhverfi,
sem er hjákátleg eftirlíking af hafn-
arhverfum við Miðjarðarhaf, illa
staðsett, dæmi um lélegt skipulag
og slæman arkitektúr. Þetta stend-
ur nú Hafnfirðingum til boða.
Tillögur
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð í Hafnarfirði telur að Norður-
bakkinn verði betur
nýttur sem athafna-
svæði og sem stækk-
unar- og þróunar-
möguleiki fyrir mið-
bæinn. Svæðið verði
áfram tengt hafnar-
starfsemi. Þannig
mætti stuðla að efl-
ingu atvinnulífs í
Hafnarfirði með sér-
stakri áherslu á ferða-
þjónustu. Stöðugt vax-
andi fjöldi ferðamanna
kemur til landsins, en
allt of fáir koma til
Hafnarfjarðar. Nokkr-
ir aðilar í Hafnarfirði
hafa reynt að byggja
upp starfsemi tengda ferðaþjónust-
unni og er það virðingarvert fram-
tak sem þarf að styðja miklu betur
við. Markviss uppbygging gæti
skapað 300–400 ný störf.
Uppbygging
VG í Hafnarfirði telja að með öfl-
ugri uppbyggingu ferðaþjónustunn-
ar í bænum megi auka verulega
tekjur bæjarins og samtímis auka
veg og virðingu hans. Möguleikarn-
ir eru miklir. Liður í því er að á
Norðurbakkanum rísi stórt 3–4
stjörnu hótel með 200–250 her-
bergjum, ásamt fjölnota ráðstefnu-
sal og fundaraðstöðu. Í tengslum
við hótelið yrði aðstaða fyrir aðila,
sem gera út á ferðamenn, s.s. með
hestaferðum, hvalaskoðun og dags-
ferðum um Reykjanes og nágrenni.
Huga þarf að því að hægt sé að taka
á móti skemmtiferðaskipum.
Vítamínsprauta
Ráðstefnusal við hótel má nýta til
margra annarra hluta en til ráð-
stefnuhalds. Salinn má nýta sem
leikhús, tónlistarhús, kvikmynda-
hús og jafnvel óperuhús. Tækni-
skóli Íslands með tilheyrandi þró-
unarsetri væri velkominn á
Norðurbakkann. Þar verði enn-
fremur yfirbyggð göngugata með
verslunum og skrifstofum auk
íbúða. Þetta myndi stuðla að fjöl-
skrúðugra mannlífi og yrði vítamín-
sprauta fyrir menningarlíf Hafn-
firðinga. Hafnarfjörður er vaxandi
bær og það verður aukin þörf fyrir
athafnasvæði, stjórnsýslu, menntun
og menningu á næstu árum og ára-
tugum. Okkur ber að hafa langtíma-
hagsmuni Hafnarfjarðar í huga og
hafna steingeldum hugmyndum um
uppbyggingu, sem engu skilar,
nema skammtímagróða til þeirra
sem eru að spila Monopoly með
bæjarstjóranum.
Manhattan á
Norðurbakka
Sigurbergur
Árnason
Höfundur er arkitekt og formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Hafnarfirði.
Skipulagsmál
Tækniskóli Íslands með
tilheyrandi þróunar-
setri, segir Sigurbergur
Árnason, væri velkom-
inn á Norðurbakkann.
Skipulags- og byggingarsvið
Tillaga a›
A›alskipulagi
Reykjavíkur
2001- 2024
Fjölmargar nýstárlegar hugmyndir um þéttingu byggðar og
uppbyggingu Reykjavíkur sem alþjóðlegrar og vistvænnar
höfuðborgar eru birtar í aðalskipulagstillögunni og eru
borgarbúar hvattir til að kynna sér þær.
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með
auglýst til kynningar tillaga að Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Skipulagstillagan er sett fram í greinargerð á
þéttbýlisuppdrætti sem sýnir þróun byggðar,
landnotkun og helstu umferðaræðar í Reykjavík
og á sveitarfélagsuppdrætti sem sýnir land-
notkun utan þéttbýlis í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur. Greinargerð er skipt í þrjá hluta:
Stefnumörkun
Lýsing aðstæðna, forsendur, skýringar og
rökstuðningur með stefnumörkun
Þróunaráætlun miðborgar, landnotkun.
Umhverfismat aðalskipulagsins og þemaheftin
Umhverfi og útivist og Húsvernd í Reykjavík
munu liggja frammi með tillögunni. Umsögn
Skipulagsstofnunar um tillöguna og athuga-
semdir Skipulags- og byggingarsviðs við hana
munu jafnframt liggja frammi.
Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024 liggur frammi á eftirtöldum
stöðum, frá 23. janúar 2002 til 6. mars
2002:
Kynningarsal Skipulags- og byggingarsviðs
að Borgartúni 3
Ráðhúsi Reykjavíkur
Borgarbókasafni Reykjavíkur við Grófartorg
Þjóðarbókhlöðu við Arngrímsgötu
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Miðgarði, fjölskylduþjónustu í Grafarvogi
Þéttbýlisuppdráttur tillögunnar verður til sýnis
víða um borgina á upplýsingaskiltum Reykjavík-
urborgar frá 28. janúar til 16. febrúar 2002.
Einnig er hægt að kynna sér efni tillögunnar á
www.reykjavik.is.
Athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega
til Skipulags- og byggingarsviðs Reykja-
víkurborgar, Borgartúni 3, 105 Reykjavík,
merkt Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024,
eigi síðar en 6. mars 2002.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillög-
una innan tilskilins tíma teljast samþykkir
tillögunni.
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar
A
T
H
Y
G
L
I