Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 34

Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ SvanhildurBjarnadóttir fæddist í Reykjavík 8. febrúar 1937. Hún lést af slysförum 5. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru hjónin Bjarni Pálsson vélstjóri, f. 27. júlí 1906, d. 17. febrúar 1967, og Ásta Jónasdóttir, f. 9. nóvember 1911. Bræður Svanhildar eru: Jónas, f. 23. júní 1938, maki Kristín Guðrún Hjartardóttir, og eiga þau einn son; og Svavar, f. 26. júlí 1943, maki Brynja B. Halldórsdóttir, og eiga þau þrjú börn. Árið 1956 giftist Svanhildur Þórarni Guðmundssyni, f. 9. júní 1936, d. 12. október 1955. Synir þeirra eru: 1) Bjarni, f. 4. mars 1957, maki Magnea Ingólfsdótt- ir; 2) Guðmundur Týr, f. 19. júlí 1958, maki Marsibil Jóna Sæ- mundsdóttir; Guðmundur á fjög- ur börn úr fyrri sambúðum; 3) Ragnar, f. 16. febrúar 1961, maki Elizabeth Jacobsen sem á tvö börn af fyrra hjónbandi; bú- sett í Bergen. Árið 1963 giftist Svanhildur Sigurði A. Magnús- syni, f. 31. mars 1928. Synir þeirra eru: 1) Magnús Aðal- steinn, f. 23. júní 1964, maki Ragnheiður Valdimarsdóttir, og eiga þau eina dóttur; 2) Sigurð- ur Páll, f. 13. des- ember 1968, maki Hulda Magnúsdótt- ir, og eiga þau tvo syni. Hálfsystur bræðranna eru: 1) Kristín, f. 14. októ- ber 1953, maki Gunnar Valur Jóns- son, og eiga þau þrjú börn; 2) Hild- ur, f. 27. júlí 1957, maki Kristján Vatt- nes Sævarsson; Hildur á þrjú börn af fyrra hjónabandi; 3) Þeódóra Aþan- asía f. 23. desember 1991. Sam- býlismaður Svanhildar undan- farin ár var Bæringur Guðvarðs- son, f. 9. júní 1928. Svanhildur lauk gagnfræða- prófi 1953 og stundaði nám í hraðritun í Bretlandi um eins árs skeið. Hún vann hjá Skipaút- gerð ríkisins frá 1961 til 1964. Árið 1974 réð hún sig á skrif- stofu Flugleiða og starfaði þar uns hún fór utan með manni sín- um vorið 1978. Heimkomin haustið 1980 var hún um skeið auglýsingastjóri Þjóðviljans, starfaði því næst hjá Hafskipum og síðan ferðaskrifstofunni Far- anda en hvarf aftur til Flugleiða árið 1990 og starfaði þar fram á haust 2001. Útför Svanhildar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Svanhildi tengdamóður minni kynntist ég fyrir tíu árum. Hún kom mér fyrir sjónir sem mjög glæsileg kona, enda var hún ávallt vel til höfð og stafaði af sér miklum þokka. Fyrstu árin kom ég mikið á heimili hennar og eyddi þar mörgum góðum stundum. Hún tók alltaf á móti mér með móðurlegri umhyggju. Hjá henni leið mér ævinlega eins og heima hjá mér. Ég gat leitað til henn- ar með flest það sem lá mér á hjarta og fengið hjá henni skilning og holl ráð. Þegar fram liðu stundir varð samband okkar mjög náið. Hún var að mörgu leyti mín önnur móðir enda held ég að hún hafi fundið í mér dótt- urina sem hana hafði langað að eign- ast. Til marks um það má hafa að þegar upp kom ágreiningur á milli okkar hjóna, tók hún alltaf minn mál- stað. Hún hrósaði mér oft og studdi mig í flestu sem ég tók mér fyrir hendur. Hún kom mjög fallega að mér á fyrri meðgöngu minni og studdi mig í sjálfri fæðingunni. Þar kom hún mér í skilning um að fæðing væri eðlilegasti hlutur í heimi og hún vissi nákvæmlega hvað ég væri að ganga í gegnum því sjálf hefði hún al- ið barn fimm sinnum. Eftir að eldri sonur minn fæddist sinnti hún ömmu- hlutverkinu af mikilli kostgæfni og gerði mér m.a. kleift að ljúka námi með því að gæta litla snáðans sem þá var aðeins tveggja mánaða. Komur hennar urðu síðan tíðari á heimili okkar þar sem hún vildi fylgjast með hvernig fjölskyldan dafnaði. Eftir að seinni sonurinn fæddist urðu heim- sóknir hennar ennþá tíðari. Seinni ár- in eyddi hún jólunum á heimili okkar og munu þær sérstöku stundir geym- ast í minningunni. Síðustu jól voru okkar síðustu stundir með henni og þykir mér sérstaklega vænt um þá minningu um hana. Svanhildur var mér góð og skiln- ingsrík tengdamóðir sem leita mátti til með hverskyns vanda. Hún var jarðtengd og gaf mér stuðning í að fá manninn minn til að sjá hlutina í réttu ljósi. Hún bar með sér gleði inn á heimilið og hafði hæfileika til að sjá fegurðina í umhverfinu. Hún var víð- sýn og veraldarvön, og hjálpaði mér til að koma auga á fjölbreytileikann í tilverunni. Mér þótti ákaflega vænt um Svanhildi og mun sakna hennar sárlega. Hún skilur eftir sig tóm sem ekki verður fyllt. Hulda I. Magnúsdóttir. „Tæp er lífsins leið,“ segir gamall málsháttur og sannaðist átakanlega við sviplegt fráfall Svanhildar Bjarnadóttur í Las Palmas á Kanarí- eyjum 5. janúar síðastliðinn. Hafði hún farið þangað á laugardagsmorgni til tveggja vikna dvalar ásamt sam- býlismanni sínum, Bæringi Guð- varðssyni, en var liðið lík að kvöldi sama dags eftir hörmulegt slys. Leiðir okkar Svanhildar lágu sam- an í tvo áratugi (1961–81). Af þeim sökum þykir mér tilhlýðilegt að minnast hennar með fáeinum kveðju- orðum í þakklætisskyni fyrir mikils- vert hlutverkið sem hún lék í lífi mínu og þann veigamikla þátt sem hún átti í uppeldi og mótun sonanna. Árin sem við áttum saman voru með köflum erfið, en þau voru í senn viðburðarík, margbreytileg og að flestu leyti ánægjuleg, enda var Svanhildur með afbrigðum atorkusöm, glaðvær og fé- lagslynd. Það var mikið verkefni og vandasamt að koma fimm sonum til manns og ekkert áhlaupaverk að koma þaki yfir fjölskylduna við þær aðstæður sem þá voru ríkjandi. En það lukkaðist og þá ekki síst vegna þess að Svanhildur var djarfhuga og órög við að leggja útí tvísýn ævintýri þegar um það var að ræða að láta drauma rætast. Við hjónin áttum ótaldar samveru- stundir með góðum vinum jafnt heima sem heiman. Við þau tækifæri var Svanhildur einatt hrókur alls fagnaðar, þrungin gáska og lífsorku, pjattlaus, frískleg, orðheppin, fas- mikil og framtakssöm. Til dyranna kom hún jafnan einsog hún var klædd, sem var kannski ekki ævin- lega vel séð af ráðsettum góðborg- urum, en hún lét sér það í léttu rúmi liggja. Hún var ekki haldin þeim sál- ræna kvilla sem lýsir sér í snobbi eða fagurgala. Ögrandi hispursleysi hennar og hreinskiptni kunni ég að jafnaði vel að meta, en einsog verða vill kom stundum fyrir að skærist í odda, og þá gat hvesst. En sáttfýsin var henni í blóð borin og langrækni ekki til í hennar fari. Svo kynlega sem það kann að hljóma var Svanhildur að eðlisfari dul um sínar innstu tilfinn- ingar, flíkaði þeim sjaldan og vildi helst ekki um þær ræða, en hún var ótrauður og örvandi félagi og mun seint gleymast þeim sem höfðu af henni persónuleg kynni. Þegar horft er um öxl svífa fyrir hugarsjónum fjölmargar ljóslifandi svipmyndir úr daglegu vafstri á Kleppsvegi 2 og Felli í Mosfellssveit, ökuferðir og útreiðar, ásamt árlegum ferðalögum til framandi staða í fjórum heimsálfum, að ógleymdum langdvölum í Grikklandi og Vestur- Berlín. Fyrir þær margbreytilegu minningar verð ég ævinlega þakklát- ur. Ég votta níræðri móður Svanhild- ar, Ástu Jónasdóttur, bræðrunum Jónasi og Svavari og fjölskyldum þeirra, sonunum fimm og fjölskyld- um þeirra, ásamt Bæringi Guðvarðs- syni, mína dýpstu samúð og bið góð- an Guð að hugga og styrkja eftirlifandi ástvini í sorg þeirra og söknuði. Blessuð sé minning Svan- hildar Bjarnadóttur. Sigurður A. Magnússon. Okkur langar í fáum orðum að minnast kærrar föðursystur okkar, Svanhildar Bjarnadóttur. Sviplegt andlát hennar var okkur mikið áfall. Svanhildur var glæsileg kona með sterkan persónuleika og setti hún mikinn svip á umhverfi sitt. Fyrstu minningar okkar um Svanhildi eru frá því hún bjó að Felli í Mosfellssveit ásamt þáverandi manni sínum og fimm sonum. Faðmlag og orðin „elsk- in mín“ er við hittumst, fylgdu henni alla tíð. Alltaf var gott að sækja Svan- hildi heim, hún var gestrisin og lét fólk finna að það væri velkomið. Sam- skipti okkar við Svanhildi voru helst tengd einhverjum viðburðum í fjöl- skyldunni og er við hittum hana hjá Ástu ömmu. Þrátt fyrir það fann maður aldrei fyrir því að einhver fjar- lægð hefði myndast, fjölskyldubönd- in voru sterk. Það stafaði alla tíð sér- stök útgeislun af Svanhildi og er mikill sjónarsviptir af henni. Við kveðjum nú kæra frænku með sorg í hjarta og ástvinum öllum vottum við okkar dýpstu samúð. … Hvíl í friði. Halldór, Ásta, Árný Anna og Helgi Páll Svavarsbörn. Elsku frænka og vinkona. Ekki ór- aði mig fyrir því þegar við töluðum saman á nýársdag að þetta yrði okkar síðasta samtal. Þú varst svo kát og hress, ánægð með að vera hætt að vinna og geta eytt meiri tíma fyrir þig og þína. Þú varst að fara í sólina til Kanaríeyja og það síðasta sem þú sagðir við mig var „Sjáumst þegar ég kem aftur.“ Við eigum ekki eftir að hittast hérna megin elskuleg, en ég veit að við eigum það eftir. Við voru systradætur og jafnöldr- ur og ólumst upp svo að segja saman. Við áttum saman margar eftirminni- legar bernskustundir og þá standa upp úr samverustundirnar á Gunn- arsbraut hjá ömmu og afa og síðan hjá afa eftir að amma féll frá. Við voru kátar og fjörugar stelpur, uppá- tækjasamar svo sumum þótti nóg um, en við skemmtum okkur dásamlega saman og það undarlega er að ég man ekki til þess að við höfum nokkurn tímann rifist. Við giftumst um svipað leyti og að- eins nokkrir mánuðir voru á milli elstu barna okkar, Gulla og Bjarna. Þó við værum ekki í daglegu sam- bandi og stundum leið langur tími á milli þá vissum við alltaf, að ef eitt- hvað bjátaði á þá var hægt að leita til hinnar. Að þínu frumkvæði áttum við því láni að fagna, að fara saman í ógleymanlega Grikklandsferð með Rannveigu móðursystur okkar og þær þrjár vikur sem við vorum sam- an þar verða mér ógleymanlegar. Lífið lék ekki alltaf við þig, en að mörgu leyti varstu gæfumanneskja, þú eignaðist 5 myndar syni sem þú varst ákafleg stolt af og varst orðin amma og langamma. Þú ljómaðir allt- af þegar þú varst að tala um litlu kríl- in þín og fjölskyldu. Þú varst líka svo lánsöm að eiga þitt góða skap og skörpu greind og þú varst alltaf hrók- ur alls fagnaðar og hláturinn þinn svo smitandi að yfirleitt endaði með því að allir tóku undir. Elsku Svanhildur mín, þú varst mín besta vinkona og trúnaðarvinur, engin reyndist mér betur en þú þegar ég þurfti á að halda. Ég á eftir að sakna þín svo lengi sem mér endist aldur. Nú ertu farin í ferðina sem við eigum öll eftir að fara, en ég veit að margar ástríkar hendur verða til að taka á móti þér. Ég kveð þig með kveðjuorðinu okkar. „Sjáumst.“ Regína. Mig langar að minnast frænku minnar Svanhildar með nokkrum orðum. Svanhildur kom snemma inn í líf mitt þar sem hún var eins og elsta dóttir móður minnar. Fyrstu minn- ingarnar eru frá því að hún var gift fyrri eiginmanni sínum og átti von á Ragnari yngsta syni þeirra. Þetta var á árum þar sem ekkert óvenjulegt gerðist og við lifðum frekar fábrotnu lífi dag frá degi, það var ekkert sjón- varp og hátindur vikunnar var Lög unga fólksins sem var einn klukku- tími í Ríkisútvarpinu einu sinni í viku. Svo kom Svanhildur og þá breyttist allt. Hún var fallegasta kona sem ég hafði á ævinni séð, mér fannst hún eins og Grace Kelly eða Shirley Mac- laine. Útgeislun Svanhildar og kímni- gáfa var engum lík, hún hafði ein- stakt lag á að hressa upp á tilveruna og hrífa fólk með sér. Svanhildur bjó á Bugðulæk og við á Hraunteig og þegar hún kom til okkar með strák- ana sína og öll vandamálin var sem lífið færi í gang. Athygli móður minn- ar var meira á henni en okkur systr- unum fjórum til samans en okkur Björgu sem eldri vorum leiddist þetta ekki, við fylgdumst með öllu sem fram fór og stundum þegar dramatíkin var á hátindi þurftum við að fela okkur í fatahenginu til að missa ekki af neinu. Þetta var sápu- ópera sjöunda áratugar síðustu aldar. Ekki minnkaði áhugi minn á þessari fallegu frænku þegar Sigurður A kom inn í líf hennar, þá uppgötvaði ég heim gleði og veisluhalda, frumsýn- inga og síðkjóladansleikja að ógleymdum ferðalögum hennar og Sigurðar til Grikklands og víðar. En það var ekki lognið á þeim bæ frekar en í fyrra hjónabandi hennar og þeg- ar stormarnir geisuðu sem hæst hafði ég oft samúð með Sigurði þó oftar hafi mér mislíkað við hann. Skrif Sig- urðar um Svanhildi í bókinni Undir dagstjörnu eru í fullkomnu ósam- ræmi við það sem birtist mér sem unglingur og ung kona. Eftir að ég fullorðnaðist urðum við Svanhildur nánar vinkonur í nokkur ár uns leiðir skildu, hún fór sína leið og ég mína en alltaf höfðum við samband öðru hvoru. Hún sagði mér glöð frá því þegar hún hitti Bæring og hversu gott líf hún ætti með honum, nú væri hún endanlega búin að finna sinn rétta félaga. Guð blessi minningu Svanhildar, ég sendi fjölskyldu hennar og ástvin- um mínar dýpstu samúðarkveðjur. Margrét Kjartansdóttir. Svanhildur Bjarnadóttir var vin- kona mín. Við kynntumst fyrir rúm- um 30 árum þegar við vorum báðar að byggja í Mosfellsveit. Meðan á byggingarframkvæmdunum stóð bjuggu þau hjónin og strákarnir 5 í litlum bragga sem stóð á lóðinni þar sem verið var að byggja húsið þeirra, Fell. Þrátt fyrir þröngan húsakost í bragganum var stöðugur gestagang- ur. Allir voru velkomnir og ekki minnkaði gestrisnin þegar flutt var í nýja húsið. Við urðum fljótt mjög góðar vin- konur og varla leið sá dagur að við hittumst ekki á þessum árum. Það var ávallt mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar á meðan við bjugg- um í Mosfellssveitinni. Þótt langt hafi liði á milli funda okkar síðastliðin ár vorum við ætíð góðar vinkonur. Þeg- ar ég hugsa til hennar kemur alltaf sama myndin upp í huga mér: Svan- hildur stendur brosandi og veifandi með strákahópinn í kringum sig, snúrurnar fullar af þvotti, ilmandi bökunarlykt úr eldhúsinu, iðnaðar- mennirnir saddir og sælir – enda voru þeir í fæði hjá henni, bæði kvölds og morgna. Svanhildur var bráðskemmtileg. Hún geislaði af lífs- orku og krafti. Það leiddist engum í návist hennar. Hún var glæsileg og bráðgreind kona sem tókst á við lífið af fullum krafti, ávallt jákvæð og bjartsýn. Ég hitti Svanhildi síðast í sumar. Að vanda geislaði hún af gleði, því hún var hamingjusöm með Bæringi sem hún hafði hafið sambúð með fyrir nokkrum árum. Hún hlakkaði mikið til þess að hætta að vinna og geta not- ið fleiri samverustunda með honum. Ég samgladdist henni innilega. Kæru Ásta, Bæringur, Bjarni, Mummi, Raggi, Magnús og Siggi Palli, ég votta ykkur og fjölskyldum ykkar innilega samúð mína. Ég finn til með ykkur á þessari sorgarstundu. „Drottinn gefðu dánum ró og hin- um líkn sem lifa.“ Hólmfríður Kofoed-Hansen. Mjög var okkur vinkonum Svan- hildar brugðið er okkur barst and- látsfrétt hennar. Við erum flestar búnar að þekkjast í yfir 50 ár og má telja það stórmerkilegt að milli eins ólíkra einstaklinga og okkar hafi vin- áttan haldist þetta lengi. Snerrur okkar í milli hafa verið ófáar en sætt- irnar jafn margar. Solla var með Svanhildi í bekk í Austurbæjarbarna- skólanum en Thelma, Sigrún, Elsa og Halla kynntust henni í 1. bekk í Gagnfræðaskólanum við Lindargötu. Seinna fórum við allar í Gagnfræða- skóla Austurbæjar. Við vorum lífs- glaðar ungar hnátur og fyrir utan skólaskemmtanir var aðal fjörið í Oddfellowhúsinu á sunnudögum milli kl. 3 og 5. Þar lék KK-sextettinn fyrir dansi. Í tvo tíma dönsuðum við linnu- laust og nutum okkar í „tjúttinu“ með tilheyrandi loftfimleikum. Okkur öll- um fannst við flinkar dansstjörnur. SVANHILDUR BJARNADÓTTIR                   ! "#                       !      "  #$%% &  '    ( )*     +  ,)--. $ %&"'"()* +' ,%)* -.*/(( 0%'" ,%)* ')%!'! 1*' ( # 0()* '%)*'"  2$-& 0!,'!  ,%'"'  3 31*41*(&5 ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.