Morgunblaðið - 23.01.2002, Síða 35

Morgunblaðið - 23.01.2002, Síða 35
Minnistæð eru ferðalög upp að Hafravatni þegar verið var að byggja félagsheimili sundfélagsins Ægis og var þá oft glatt á hjalla í „Ægis- klíkunni“. Einnig skemmtileg skíða- ferðalög í Jósefsdal sem þóttu í þá daga mikil ferðalög fyrir unglinga. Þetta voru glaðværir og góðir dagar og allt heilbrigðar saklausar skemmt- anir. Það er ekki ofmælt að segja að Svanhildur var miklum mannkostum búin. Vel greind, skemmtilega hnyttin í samræðum, ákveðin, með eldheitar skoðanir á mönnum og mál- efnum, en þó aldrei illkvittin. Skap- mikil var hún í meira lagi en jafn- framt afar viðkvæm og stundum auðsærð en sáttfús var hún svo sann- arlega. Á fimmtíu árum hafa vissu- lega skipst á skin og skúrir í lífi sex vinkvenna. Engin okkar hefur farið varhluta af erfiðleikum og sorgum. Við slíkar aðstæður hefur reynt á að sýna dyggan stuðning, trúnað og traust. Það kunni Svanhildur. Hún gat samglaðst á góðri stund og sýnt hluttekningu í sorg. Ekki má láta hjá líða að minnast síðasta fundar okkar vinkvenna, sem var í hádegi á sunnu- degi, viku áður en Svanhildur fór í sína örlagaríku ferð. Þá geislaði hún og var yfirveguð og afslöppuð. Henni leið vel í sambúðinni með Bæringi og lýsti honum sem ljúfum manni og prúðum. Við áttum svo sannarlega góða stund saman gömlu vinkonurn- ar og erum þakklátar fyrir þessa síð- ustu samverustund. Við viljum minn- ast Svanhildar eins og hún var þennan dag. Það er von okkar að mannkostir Svanhildar fái notið sín í afkomend- um hennar. Synirnir eru fimm talsins og unni hún þeim af öllu hjarta. Barnabörnunum fylgdist hún með af einstakri alúð og hlúði að eftir bestu getu. Ef til vill hefur sú kynslóð misst mest. Tengdadæturnar voru henni afar kærar. Vottum við þeim öllum samúð okkar. Fráfall Svanhildar var ótímabært en slysin gera ekki boð á undan sér. Ásta móðir hennar, háöldruð, sér að baki einkadóttur sinni og sendum við henni okkar hlýjustu samúðarkveðj- ur. Einnig sendum við sambýlismanni hennar, bræðrum og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Halla, Elsa, Sigrún, Sólveig og Thelma. Nú er höggvið skarð í hóp starfs- manna fjarsölu Flugleiða, Svanhildur hætti reyndar að vinna í september sl. eftir liðlega 20 ára starf hjá Flug- leiðum og ætlaði að njóta lífsins með sambýlismanni sínum, Bæringi. Svanhildur var litríkur persónu- leiki, bráðgreind og sagði skemmti- lega frá og var oft mikið hlegið í kaffi- tímum þegar hún tók sig til og sagði frá spaugilegum atvikum sem hent höfðu og gat hún gert óspart grín að sjálfri sér. Sem starfsmaður sinnti Svanhild- ur starfi sínu vel, var þjónustulunduð og vel liðin bæði af viðskiptavinum og samstarfsfólki. Við sem unnum næst henni sögðum alltaf að ef við værum farþegar veldum við Svanhildi sem okkar sölumann því hún var svo sér- lega hjálpleg við sína viðskiptavini. Það gustaði af henni þegar hún gekk í salinn, alltaf vel til höfð og glæsileg. Það skipti ekki máli hvort um vinnu, útlit eða hennar girnilega nesti var að ræða, allt var þetta gert af sömu al- úðinni. Það hefur margt breyst síðan Svanhildur hóf störf hjá Flugleiðum, ný kerfi verið tekin í notkun, ekki bara eitt heldur mörg en það vafðist ekki fyrir henni að tileinka sér nýj- ungar, hún hafði skoðanir á þessu öllu saman og viðraði þær ófeimin en eftir þessar útrásir þá tileinkaði hún sér ný vinnubrögð og gerði það með sóma. Það er mikill sjónarsviptir að manneskju eins og Svanhildi, í amstri dagsins fer maður í huganum yfir lið- in ár, hún færði okkur kveðjuköku í desember, þá nýkomin úr Hvera- gerði, endurnærð og geislandi en síst grunaði okkur að þetta yrði hennar hinsta kveðja til okkar. Við kveðjum hana með söknuði og sendum aðstandendum hennar inni- legar samúðarkveðjur. Samstarfskonur í fjarsölu Flugleiða. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 35 ✝ Þorbjörg HelgaÁsbjarnardóttir (Obba) fæddist í Reykjavík 25. maí 1932. Hún lést á Fylkissjúkrahúsinu á Stord í Noregi 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ásbjörn Ólafs- son Jónsson, mál- arameistari, f. 20. júlí 1901, d. 23. apríl 1967 og Petrína Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 13. júní 1908, d. 14. maí 1938. Systkini Þorbjargar eru Alma Ásbjarnardóttir, f. 10. mars 1926, Bragi Ásbjarnarson, f. 2. maí 1929, Gyða Ásbjarnar- dóttir, f. 8. desember 1935, Helga Jóna Ásbjarnardóttir, f. 26. júlí 1943, og Salvar Júl- íusson, f. 29. desember 1952. Hinn 20. júlí 1950 giftist Þorbjörg Sveini Ágústssyni, kenn- ara, f. 10. október 1923 á Ásum, d. 2. febrúar 1991. Börn þeirra eru Ásbjörn Sveinsson, f. 23. júní 1950, d. 10. ágúst sama ár, og Kristín Sveinsdótt- ir, verslunarmaður og húsfreyja í Steinkjer í Noregi, f. 23. október 1959. Maki hennar er Paul Rostad, f. 5. desember 1954 í Steinkjer. Börn þeirra eru Stef- án Marius, f. 17. janúar 1990, og Thor Inge, f. 18. júlí 1991. Hinn 17. maí 1969 giftist Þorbjörg Jo- hannesi Ask, bónda, f. 29 maí 1945 í Noregi. Útför Þorbjargar (Obbu) fór fram frá Hatlestrandkirkju í Noregi þriðjudaginn 22. janúar Þá er hún Obba systir dáin og þykir mér afar sárt að sjá á bak henni. Það voru ekki alltaf blíð örlög sem skópu líf hennar, en meðfædd lífsgleði hjálp- aði henni í gegnum lífsins ólgu sjó. Mamma okkar dó aðeins 29 ára að aldri frá fjórum börnum. Þá tvístr- aðist systkinahópurinn og varð það að sjálfsögðu okkur öllum sárt. Sáumst við Obba ekki í ein sex ár, sem var langur tími á þessum mikilvægu mót- unarárum. Fljótlega urðum við þó all nánar og æ síðan. Þar sem hún var 3 ½ ári eldri en ég fékk ég þó að sjálf- sögðu ekki alltaf að vera með henni. En ég minnist margra góðra stunda, t.d. þegar við vorum að æfa grip á gít- ar og þegar lagi var náð sungum við „híalagga, húalagga“ og æfðum stíft og náðum loks að verða samtaka. Ég minnist einnig lagsins „Ég langömmu á sem að létt er í lund“, sem var sung- ið af krafti. Mikið fannst okkur að langamma hlyti að vera gömul. Svo minnist ég einnig sólbaða uppi á þaki á Hringbraut 45. Þar var mjög bratt þak á þessu fjögurra hæða húsi, en við létum það ekki á okkur fá heldur fór- um út um þakgluggan og nutum sól- arinnar. Í dag má ég ekki svo mikið sem líta þarna upp þá sundlar mig við tilhugsunina. Já, það var ýmislegt brallað, skautaferðir á Tjörnina voru toppurinn og að sjálfsögðu sundferð- irnar í Sundhöllina. Obba var í Reykholtsskóla í tvo vet- ur, en á sumrin vann hún austur í Gnúpverjahreppi við sveitastörf í Fossnesi. Þar réðust hennar örlög að verða sveitakona, en hún kynntist þar fyrri manni sínum, Sveini Ágústssyni. Þau voru myndarlegt par og giftist hún honum 1950. Eignuðust þau Ás- björn, sem dó tæpra tveggja mánaða og saknaði Obba hans ætíð sárt. Hún var mikil barnagæla og man ég að hún sagðist alltaf ætla að eignast tíu börn en ég ekkert. En hún fæddi að- eins þennan eina son sem hún missti, en ég eignaðist átta. Það sýnir hvað við mennirnir ráðum litlu. Þau hjónin byggðu upp húsakost á Móum, en áð- ur bjuggu þau í Ásum, þaðan sem Sveinn var. Árið 1959 eignuðust þau kjördóttur, Kristínu, mikla ágætis stúlku. Hún býr nú í Steinkjer í Norð- ur-Noregi ásamt eiginmanni og tveimur yndislegum sonum, sem nú sakna ömmu sinnar sárt. En örlagadísirnar urðu Sveini og Obbu ekki hliðhollar, það er sitthvað gæfa og gjörvileiki, og slitu þau sam- vistum 1967. Þá fóru þær mæðgur Obba og Kristín í Mosfellsbæ þar sem Obba fór að vinna á Skálatúni í nokk- ur ár og eignaðist hún þar marga vini sem dáðu hana. Obba var nefnilega þeim kostum búin að ná til fólks með léttleika sínum og lífsgleði. Í Mosfellsbæinn kom ungur maður frá Noregi, búfræðingur að mennt, sem hóf störf á Blikastöðum. Það var hann Johannes Ask sem Obba giftist 17. maí 1969. Ári síðar fluttu þau svo til Noregs ásamt Kristínu, sem þá var á ellefta ári. Fyrstu sjö árin bjuggu þau í Norður-Noregi, en þar sem það er hefð í Noregi að elsti sonur taki við búi foreldra sinna, fluttu þau sig suð- ur til Hatlestrand þar sem Johannes tók við búinu á Ask og bjó Obba þar til dauðadags. Það voru því örlög Obbu að fara frá búskap á Íslandi til bú- skapar í Noregi. Munurinn var aðeins sá að kýrnar voru ögn stærri og trén allnokkru hærri og fleiri. Hún undi sér vel þótt hún saknaði ættingjanna heima fyrir og síminn var óspart notaður, þó meira í seinni tíð. Því miður hittumst við Obba allt of sjaldan, en hún var mjög góð heim að sækja. Við hjónin heimsóttum hana sumarið 2000 og það var yndisleg dvöl. Obba var snillingur í matargerð og reyndar í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Allt lék í höndunum á henni. Hún var þekkt í sveitinni sinni fyrir sínar frábæru pönnukökur og var hún ósjaldan fengin til að baka þær. Já, Obbu er svo sannarlega sárt saknað, eins og börnin mín sögðu: „Obba er alltaf svo ung.“ Hún var svo góð við þau og það gladdi Obbu mjög þegar einn sonur minn skýrði dóttur sína í höfuðið á henni. Því miður varð lífshlaup hennar ekki lengra, þar sem hún lést af völd- um heilablóðfalls 15. janúar sl. Ég og öll mín fjölskylda viljum þakka elsku Obbu systur samfylgdina og ekki síst vil ég þakka henni stuðn- inginn við missi barnsins míns. Ég bið Guð að blessa eiginmann hennar, dóttur, tengdason og dóttur- syni. Farðu í Guðs friði. Gyða systir og Baldvin. ÞORBJÖRG HELGA ÁSBJARNARDÓTTIR ASK (OBBA) Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.            6 07$0  8..  9#(!": $ !    )     - '     #"    '  $  #00% -     -/    ' 1 23/    &  '    ( /    )   -/ $$(( # 5 /)()* ,9%)1*()*  '" * "%)( 8%  2 /)()* -/9*%/ "%)( %&,0% ()* 9%  "%)( *4%)*4%%()*      &&&&&5           /       ' 18  8..  9 4//  %#    *  1 (         '   #4    '    5  '2   $  #6  39(<(( 1*<(( ,(=%()* -(>*1*(( '%)1*()* 1*'59(( 6!9")* 0  .51*(( %.!% -( ,%)* '" # 151*()* ?+=%&((5 3            ' 98 6 @  90$ 8.. 4,(/*   A; ! "#  *7  82     #  -( ((  /)(( $ 1*4 /)(( 9 >* /)((  "%( !%)5 9  2       - B @  .@ 8..   &! :: $ !    '     12   %   ' -/     "  #00% '"()* '"(( -/(( *%95()* '"(( $&"()* -25()* '*4%)()*  "%( !%)5 3    -0 8$  9%# : @(      )     :      )/      . 4%)1*4()*5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.