Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 36

Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Með fáum orðum vil ég minnast félaga Sig- urjóns Péturssonar, sem nú hefur verið burt kallaður í blóma lífsins. Mig minnir við hittast fyrst í iðnnemasamtök- unum á síðari hluta sjötta áratugar- ins. Seinna lágu leiðir saman í Æsku- lýðsfylkingunni, Sósíalistaflokknum og Alþýðubandalaginu. Sigurjón hóf nám í húsasmíði hjá föður sínum, Pétri Laxdal húsasmíða- meistara, árið 1958. Hann tók strax þátt í störfum Félags húsasmíðanema og var fljótlega kosinn formaður fé- lagsins. Í stjórn Iðnnemasambands Íslands átti hann sæti sem ritari og síðar forseti sambandsins á árunum 1958–1960. Á þessum vettvangi hygg ég að hann hafi fengið sína fyrstu skólun í félagsstörfum. – Í bókinni Með framtíðina að vopni (um hreyf- ingu iðnnema í 100 ár) eftir Helga Guðmundsson er haft eftir Sigurjóni „að hvergi hafi hann setið fundi þar sem fundarmenn voru jafnnákvæmir um fundarsköp og reglur eins og á þingum Iðnnemasambandsins“. – Sú reynsla og þekking í félagsmálum sem Sigurjón hlaut í iðnnemasamtök- unum kom honum síðar til góða í þeim fjölmörgu félags- og trúnaðarstörfum sem hann gegndi. Það var því engin tilviljun að hann var oft kosinn fund- arstjóri á þingum þeirra samtaka sem hann starfaði í. – Lengst af vann hann hjá Trésmiðafélaginu, og jafnhliða starfaði hann á vettvangi stjórnmál- anna. Árið 1970, þá liðlega þrítugur, var Sigurjón fyrst í framboði til borg- arstjórnarkosninga fyrir Alþýðu- bandalagið í Reykjavík og hlaut kosn- ingu. Eins og fjölþætt störf hans bera vott um naut hann trausts og virð- ingar langt út fyrir raðir pólitískra samherja. Sigurjón og Raggý leigðu í Sól- heimunum á sínum fyrstu búskapar- árum. Um þetta leyti vorum við hjón- in að innrétta litla íbúð aðeins tveimur húslengdum neðar í sömu götu. Stundum vantaði okkur ráðgjöf eða aðstoð, og þá var stutt að fara til tré- smiðsins. Þar mætti manni jafnan elskulegt viðmót og hlýja þessara ungu hjóna og aðstoðin var auðsótt. Leiðin lá líka stundum til foreldra Sigurjón, þeirra Péturs og Ingibjarg- ar, sem bjuggu í einu háhýsanna við Sólheima. Erindi mín þangað tengd- ust yfirleitt vafstri fyrir Sósíalista- flokkinn eða Þjóðviljann, s.s. undir- búningi kosninga eða innheimtu happdrættis á vegum málgagnsins. Því nefni ég hér þessi kynni af for- eldrum Sigurjóns að manni varð síðar ljóst að sonurinn átti ekki langt að sækja ósérhlífni og hollustu við mál- stað sósíalista og verklýðshreyfingar. Þessar eigindir voru honum í blóð bornar; ekkert annað kom til álita. Eftir að Sigurjón og Raggý byggðu og fluttu í blokk í Fellsmúlanum, bar SIGURJÓN PÉTURSSON ✝ Sigurjón Péturs-son fæddist á Sauðárkróki 26. október 1937. Hann lést af slysförum 10. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgríms- kirkju 21. janúar. fundum okkar oftar saman. Það mátti m.a. rekja til þess að meðal íbúa í sömu blokk voru tvær vinafjölskyldur okkar hjóna og fornvin- ir mínir úr Æskulýðs- fylkingunni, þau Lena og Gísli B. og Sigrún og Stefán Sigfússon. – Byggingarfélagarnir úr Fellsmúlanum hafa haldið hópinn þótt þeir eigi ekki lengur heima undir sama þaki. Við hjónin og fjölskyldurn- ar þrjár úr Fellsmúlan- um höfum æ síðan verið tengd vin- áttuböndum. Á seinni árum voru þau kynni endurnýjuð. Sigurjón var hrók- ur alls fagnaðar á góðra vina fundum. Hann var góður söngmaður, kunni mikið af sönglögum og textum og hafði yndi af margs konar tónlist. Áð- ur var minnst á hæfileika hans sem félagsmálamanns. Í starfi því sem hann gegndi síðast munu fjölþættir hæfileikar hans á því sviði hafa komið að góðum notum. – Vinahópurinn kveður góðan félaga með söknuði. Við Sigrún vottum Raggý, sonunum og skyldmennum öllum einlæga samúð okkar. Gunnar Guttormsson. Að morgni 11. janúar barst okkur sú harmafregn að félagi okkar og vin- ur Sigurjón Pétursson hefði farist í bílslysi kvöldið áður. Leiðir okkar Sigurjóns munu fyrst hafa legið saman á síðari hluta sjö- unda áratugarins en eftir að undirrit- aður hóf störf sem skrifstofustjóri borgarstjórnar 1979 áttum við náið samstarf. Sigurjón var þá forseti borgarstjórnar og leysti þar vanda- samt starf vel af hendi og átti traust borgarstjórnarinnar allrar. Hann sat í borgarstjórn í 24 ár eða til ársins 1994. Með okkur og þeim hjónum, Sig- urjóni og Rögnu, þróaðist góð vinátta. Sameiginleg áhugamál okkar voru ekki síst ferðalög um hálendið. Fjöl- skyldur okkar og vinir hafa farið ár- lega, í rúmlega tuttugu ár, í tíu daga ferð um hálendið, auk vetrar- og haustferða. Við áttum ekki margar slóðir ókannaðar á hálendinu. Síðustu ferðir okkar voru í Grímsvötn sl. vor og um Brúaröræfi í sumar. Við höfð- um ráðgert að fara í Þórsmörk liðna helgi með félögunum, ferð sem aldrei var farin. Hann var einkar góður söngmaður og engan hef ég hitt sem kunni jafn- mikið af ljóðum, söngtextum, þulum og þjóðsögum. Okkur eru ógleyman- leg kvöldin í ferðum okkar þar sem setið var við söng og sögur. Börn hændust mjög að Sigurjóni og hann tók þeim alltaf með miklum fögnuði og segir það sitt um hjartalag hans. Hann hafði gjarnan þann sið að taka þau á kné sér og syngja þeim barnagælur. Þótt ljúfur fjallasöngur hans sé nú þagnaður mun hann alltaf hljóma í huga okkar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Elsku Ragna og fjölskylda, við sendum ykkur vinar- og samúðar- kveðjur á erfiðum tíma. Ykkar missir er mikill. Ásgerður og Gunnar Eydal. Sigurjón Pétursson var vinur minn. Í fljótu bragði er ekki augljóst hvað kallaði á vinskap okkar Sigur- jóns. Á okkur er talsverður aldurs- munur, við höfum ólíkan bakgrunn; hann smiður og ég kennari, og líklega má telja vináttu okkar merkilega vegna þess að í síðustu tveimur kjara- samningum vegna grunnskóla sátum við hvort andspænis öðru við samn- ingaborðið. Fáum mönnum treysti ég betur en Sigurjóni og starfsorka hans var með ólíkindum. Þó má viðurkenna að ráðning hans til Sambands ís- lenskra sveitarfélaga vakti ekki mikla hrifningu meðal kennara. Við skildum ekkert í því hvað maður með hans bakgrunn hefði að gera í embætti deildarstjóra nýrrar grunnskóla- deildar. Hvernig gæti hann sett sig inn í fagleg málefni grunnskólans og hvernig ætti hann að geta skilið flók- inn kjarasamning grunnskólakenn- ara? Sjálfur var hann á varðbergi gagnvart faglegu innra starfi skóla. Hann sagði oft við mig í byrjun sam- skipta okkar að hann væri enginn menntamálaráðherra og Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefði engan áhuga á að taka við hlutverki mennta- málaráðuneytisins. Hann sá heldur lítinn tilgang í því að vera ásamt okk- ur og menntamálaráðuneytinu með sérstaka samráðsnefnd en féllst á að hún hefði hugsanlega tilgang fyrstu eitt til tvö árin eftir að sveitarfélögin tóku við grunnskólanum. Sú afstaða hans breyttist og hann varð mjög áhugasamur um fjölmörg mál og nú síðast voru eineltismálin honum sér- staklega hugleikin. Hann sagði að af- loknu málþingi um einelti í grunn- skólum að það hefði verið sérstakt og stefnumótandi og vildi að gerð yrði framkvæmdaáætlun til að koma í veg fyrir einelti meðal grunnskólabarna sem fyrst. Sigurjón lagði sig allan fram við að setja sig inn í kjarasamn- inginn og hinar margvíslegu túlkanir á honum þar til hann var orðinn sér- fræðingur í honum. Hann sat í sam- starfsnefnd vegna kjarasamninga og í samninganefnd launanefndar sveitar- félaga í samningunum 1997 og 2000/ 2001. Í tengslum við samningana fór- um við í mikla undirbúningsvinnu sem m.a. fól í sér kynnisferð til Norð- urlandanna. Sigurjón var áhugasam- ur og hafði trú á að hægt væri að breyta samningnum og færa hann nær nútímanum. Að öllum öðrum ólöstuðum var Sigurjón grunnskóla- deild Sambands íslenskra sveitarfé- laga holdi klædd. Öllum fyrirspurn- um vegna grunnskóla var beint til hans. Hann var ómissandi við að kynna og innleiða nýja samninginn. Hann fór í ótal fundaferðir og var í einni slíkri þegar andlát hans bar að höndum. Hann hélt utan um alla þræði, vann fundargerðir samstarfs- nefndar og var okkar mikilvægasti tengiliður í öllu er lýtur að kjara- samningi grunnskólakennara. Vissu- lega vorum við ekki alltaf sammála en við hættum ekki fyrr en fyrir lá sam- eiginleg og ágreiningslaus túlkun. Skemmtilegast var þegar við sendum ótal tölvubréf okkar á milli þar til nið- urstaða var fengin. Við höfðum mikil samskipti, Sigurjón og ég. Töluðum saman í síma oft í viku og stundum oft á dag. Þess á milli notuðum við tölvu- póstinn. Skömmu áður en hann and- aðist sagði hann mér frá fyrirhuguðu námskeiði vegna tónlistarskólans. Ég skrifaði honum á Netinu og kvartaði yfir því að nú væru tónlistarskóla- kennarar búnir að „ræna“ honum frá okkur. Ég óskaði honum jafnframt góðrar ferðar. Sigurjón er farinn í sína hinstu ferð og sá sem öllu ræður hefur tekið hann til sín. Skyndilega er honum kippt í burtu, fullum af lífs- gleði og starfsþreki. Hann var nýbú- inn að festa kaup á sumarbústað og hlakkaði til að taka þar til hendi og stunda veiði enda mikill áhugamaður um útivist. Grunnskólakennarar hafa misst mikið og það verður erfitt að fylla skarðið sem Sigurjón skilur eftir sig. Ég syrgi látinn vin en sárastur er þó söknuður fjölskyldunnar og færi ég henni mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Félag grunnskólakennara þakkar Sigurjóni Péturssyni samstarfið og vottar honum virðingu. Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Minnisstæður stjórnmálamaður og mjög góður félagi er skyndilega fall- inn í valinn og fregnin um það var okkur vinum hans mikið reiðarslag. Sigurjón Pétursson er eftirminni- legur öllum sem kynntust honum. Fundum okkar bar fyrst saman í borgarstjórn þegar ég kom þar sem óreyndur varaborgarfulltrúi. Sigur- jón var þá foringi Alþýðubandalags- manna í borgarstjórn og þótt við vær- um ekki í sama flokki þá voru flokkar okkar báðir í andstöðu við meirihluta sjálfstæðismanna og því áttum við margvíslegt samstarf. Sigrurjón var glöggskyggn málafylgjumaður og gaman var að fylgjast með honum á borgarstjórnarfundum. Hann gekk gjarnan um gólf meðan aðrir töluðu, sérstaklega ef um miklar ákvarðanir var að ræða, en þegar umræðunni var að ljúka fór hann í ræðustól og rökfast og í hnitmiðuðum setningum dró hann saman kjarna málsins. Hann hafði einlægan vilja til þess að gera borgina okkar betri og rétta hlut þeirra sem áttu undir högg að sækja eða voru verr settir. Þrátt fyrir það að Sigurjón ætti oft í hvössum deilum við andstæðinga og þá sér- staklega sjálfstæðismenn leyfi ég mér að fullyrða að hann átti vináttu og virðingu okkar allra í borgarstjórn- inni. Sigurjón naut trausts langt út fyrir raðir Alþýðubandalagsmanna og átti trausta vini ekki síður í öðrum flokkum. Mér var persónuleg vinátta Sigurjóns, hlýleiki og hollráð afar mikils virði. Sigurjón var ættaður að norðan, Skagfirðingur og Siglfirðingur, og kunni vel að gleðjast og í mannfagn- aði naut hann sín ákaflega vel. Söng- maður var hann ágætur og á góðum stundum kyrjaði hann af listfengi og innri gleði siglfirska bragi og kvæði frá æskustöðvum sínum. Mörgum kvöldverðarboðum okkar sveitarstjórnarmanna bæði í Reykja- vík og út um land gjörbreytti hann með léttleika og söng. Hann hafði þann sérstæða eiginleika að geta hrif- ið fólk úr ólíkum áttum með sér, eig- inleika sem ég hygg að flestir stjórn- málamenn vildu hafa. Hann var vaxinn upp í fremur þröngum kjörum en hófst af sjálfum sér, skynsemi sinni og atgjörvi til far- sællar forystu. Hann gleymdi aldrei uppruna sínum og hjarta hans sló ætíð með þeim sem hann deildi kjör- um með í æsku. 1994 hvarf Sigurjón úr borgar- stjórn Reykjavíkur eftir langa og far- sæla setu þar. Það var okkur sem mynduðum Reykjavíkurlistann mikill missir því Sigurjón hafði reynslu framyfir flest okkar og víðtæka þekk- ingu á málefnum borgarinnar. Síðar gerðist Sigurjón starfsmaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og ann- aðist þar málefni grunnskólans eftir að rekstur hans fluttist alfarið til sveitarfélaganna. Þar lágu leiðir okk- ar aftur saman. Vann hann þar gott starf og átti þátt í því hve yfirfærslan tókst vel. Sigurjón var mikill útivistarmaður og/eða öllu heldur nútímaútilegumað- ur. Hann var jeppakarl og ferðaðist um hálendið ætíð þegar færi gafst, vetur, sumar, vor og haust og þar átti hann unaðsstundir. Sigurjón átti ein- staklega góðan lífsförunaut þar sem var Ragna kona hans. Þau voru mjög samhent hjón og deildi hún útivist- aráhuganum með honum. Það duldist engum sem kynntist Sigurjóni hvað fjölskyldan var honum kær. Nú er Sigurjón fallinn frá. Hörmu- legt slys á Holtavörðuheiði batt enda á vegferð hans. Ég færi Rögnu og öðrum ástvinum mínar innilegustu hluttekningarkveðjur. Eftir lifir í huga okkar minning um elskulegan vin og samferðamann. Sigrún Magnúsdóttir. Hreinskiptinn, rökfastur og glað- lyndur. Þessir eðlisþættir Sigurjóns Péturssonar koma fyrst í huga okkar fyrrum samstarfsmanna í borgar- stjórn Reykjavíkur þegar við minn- umst hans við hinstu kveðju. Hörmu- legt slys svipti honum burt úr jarðvistinni langt fyrir aldur fram. Hann var við sveitarstjórnarstörf, á leið af fundi norður í landi, þegar kall- ið kom. Sveitarstjórnarstörfum helg- aði hann stærstan hluta starfskrafta sinna. Sigurjón var fyrst kjörinn í borgarstjórn Reykjavíkur 32 ára gamall. Þar var hann fulltrúi Alþýðu- bandalagsins og borgarráðsmaður frá 1970–1994. Við sem sátum með hon- um í minnihluta borgarstjórnar um nokkurra ára bil deildum með honum sýn félagshyggjunnar hvort sem við vorum samflokksmenn hans eða í öðr- um þeim flokkum sem síðar mynduðu Reykjavíkurlistann. Þekking Sigur- jóns á málefnum Reykjavíkurborgar var mikil og nýttist vel í samstarfi okkar, m.a. í þéttum vinnulotum við fjárhagsáætlanagerð borgarinnar. Sigurjón Pétursson var sósíalisti að lífsskoðun, vaxinn af kjarna róttækr- ar verkalýðshreyfingar. Þegar hitn- aði í kolum og réttlætismálin brunnu honum á hjarta mátti kenna ylinn frá hugsjónaeldum þeim sem kveiktir voru í foreldrahúsum bernsku hans. En Sigurjón bjó einnig yfir fastri rök- hyggju og íhygli sem komu störfum hans til góða, ekki síst þegar hann sat yfir tölum og reiknaði til niðurstöðu af yfirvegaðri skynsemi. Sigurjón var prýddur mörgum mannkostum. Einn var sá að geta verið ósammála og jafnvel deilt við félaga sína sem og pólitíska andstæðinga án þess að það bitnaði á persónulegum samskiptum. Á þann eiginleika hans reyndi oftar en einu sinni á hans ferli, meðal ann- ars við átök sem urðu í Alþýðubanda- laginu á sínum tíma. Sigurjón kunni að sýna fólki virðingu og vinskap þótt hrikti í pólitískum stoðum. Eftir skoð- anaskipti var stutt í handabandið þétta og ævinlega var gamansemin skammt undan, leiftrandi sönggleði og hlátrasköll á góðum stundum. Sigurjón Pétursson var rökfastur stjórnmálamaður, mælskur og fylginn sér. Fáir Íslendingar hafa afl- að sér meiri reynslu og þekkingar á sviði sveitarstjórnarmála en hann, enda voru honum jafnan falin trún- aðarstörf á þeim vettvangi. Með glað- lyndi sínu og léttleika aflaði hann sér velvildar vina og félaga sem nú minn- ast hans við leiðarlok. Við erum hon- um þakklát fyrir samfylgdina og kveðjum hann með söknuði og virð- ingu. Rögnu Brynjarsdóttur eigin- konu hans, sonum og öðrum nákomn- um vottum við innilega samúð okkar. Kristín Á. Ólafsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Elín G. Ólafsdóttir. Fallinn er frá, langt um aldur fram, Sigurjón Pétursson húsasmiður og fyrrverandi forseti borgarstjórnar í Reykjavík. Sigurjón lést í einu hinna hörmulegu umferðarslysa sem því miður hafa mjög sett mark sitt á ný- byrjað ár. Leiðir okkar Sigurjóns lágu fyrst saman fyrir rúmum tuttugu árum, en hann gegndi þá, og lengi síðan, ýms- um trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu- bandalagið. Sigurjón átti að baki glæstan feril í sveitarstjórnarmálum, en þeim helgaði hann krafta sína sem starfsmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga síðustu árin. Áður var hann borgarfulltrúi í Reykjavík í ára- tugi, þar af forseti borgarstjórnar ár- in 1978–1982 og í borgarráði frá 1970– 1991. Á þessum tíma gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum á veg- um borgarinnar. Fyrir utan störf að borgarmálum og sveitarstjórnarmál- um vann Sigurjón mikið að verkalýðs- málum, var m.a. formaður Iðnnema- sambandsins og lengi í forustu Trésmiðafélags Reykjavíkur. Sigur- jón gegndi eins og áður sagði fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir flokk sinn, Sósíalistaflokkinn, og síðan Al- þýðubandalagið. Þar var hann m.a. lengi formaður framkvæmdastjórnar og um langt árabil í forsvari fyrir svo- nefndan Sigfúsarsjóð sem sá hreyf- ingunni fyrir húsnæði. Í þessum störfum, sem og öllum öðrum, var Sigurjón einstaklega traustur og far- MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning- @mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.