Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 37 sæll. Allt stóð eins og stafur á bók sem hann sagði og hann sýndi mikla hagsýni og forsjálni og skilaði hvar- vetna góðu búi þar sem hann fór með ráðsmennsku. Sigurjón Pétursson var enda afburða glöggur og gjörhug- ull maður, skarpgreindur og ávann sér traust og virðingu þeirra sem með honum störfuðu. Í persónulegum samskiptum var Sigurjón Pétursson afar þægilegur og umgengnisgóður. Hann var glaður og reifur og hló hátt og hressilega þegar tilefni var til og það var oft þeg- ar hann átti í hlut. Hans er því sárt saknað af samstarfsmönnum og vinnufélögum gegnum tíðina. Sigur- jón var útivistarmaður og ferðagarp- ur. Þau hjónin, hann og Ragna, ferð- uðust mikið um landið og mátti búast við því að rekast á þau á ólíklegustu stöðum. Ég votta eftirlifandi eiginkonu hans, sonum og fjölskyldu allri samúð mína og fjölskyldu minnar og kveð góðan dreng með söknuði. Steingrímur J. Sigfússon. Þegar fréttir berast af alvarlegu umferðarslysi spyr maður sjálfan sig oft þeirrar spurningar hvort um banaslys hafi verið að ræða eða hvort einhver hafi slasast það alvarlega að um varanleg örkuml verði að ræða. Þessi spurning vaknaði þegar fréttir bárust af alvarlegu umferðarslysi á Holtavörðuheiði fimmtudagskvöldið 10. janúar sl. Því miður er tíðni alvar- legra umferðaslysa orðin það mikil að maður verður hálfdofinn í hvert sinn sem slíkar fréttir berast. Þegar ég frétti af þessu slysi grunaði mig ekki að morguninn eftir fengi ég fréttir af því að Sigurjón Pétursson, starfmað- ur Sambands íslenskra sveitarfélaga og samstarfsmaður okkar hjá Kenn- arasambandi Íslands, hefði látist í umræddu slysi – en sú var samt raun- in. Það er erfitt að trúa því að þessi lífsglaði maður hefði verið kallaður burt úr þessum heimi svona skjótt. Maður spyr sig af hverju, hver er til- gangurinn? Við þessum spurningum fæst ekki svar. Starf Sigurjóns hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga var þannig að hann var einn nánasti samstarfsmað- ur okkar hjá Kennarasambandinu hvað varðar öll málefni grunn- og tón- listarskóla einkum á sviði kjarasamn- ingagerðar og úrvinnslu samninga. Með störfum sínum ávann Sigurjón sér traust okkar og kemur þar margt til. Sigurjón kunni manna best að gera greinarmun á starfi og leik og þess vegna var alltaf hægt að líta upp úr dægurþrasinu og slá á létta strengi þegar hann var annars vegar. Þó að Sigurjón hafi ekki alltaf verið sam- mála okkur og stundum hafi okkur fundist hann standa fullfast á sínu vann hann starf sitt af trúmennsku og heiðarleika. Þegar niðurstaða var fengin í mál þurfti ekki að hafa frekari áhyggjur af því máli vegna þess að það sem hann samþykkti var endan- legt hvort sem það var munnlegt eða skriflegt. Helsti kostur góðs samn- ingamanns er heiðarleiki og í þeim anda vann Sigurjón. Við munum því fyrst og síðast minnast hans fyrir það að hann var maður orða sinna. Þannig mátti alltaf treysta því að það sem Sigurjón sagði það stóð. Það verður vissulega tómlegra að líta inn á Háaleitisbrautinni í framtíð- inni þegar Sigurjóns nýtur ekki leng- ur við. Við munum sakna hlýlegs við- móts hans, léttleika, hláturs og gefandi samstarfs. Við kveðjum nú kæran samferða- mann með þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og vinna með honum. Eiginkonu Sigurjóns og fjölskyldu hans allri sendum við inni- legar samúðarkveðjur og biðjum þann sem öllu ræður að styrkja þau í sorginni. Guð blessi minningu Sigurjóns Péturssonar. F.h. Kennarasambands Íslands Eiríkur Jónsson. Skrýtið hvernig lífið kynnir fólk fyrir manni. Sem unglingur kynntist ég borg- arfulltrúanum Sigurjóni Péturssyni úr fjarlægð. Hafði svosum ekki marg- ar skoðanir á honum. Hann var glað- beittur en æsingslaus baráttumaður með hjartað á réttum stað, og yfirveg- aður sigurvegari í sögulegum borg- arstjórnarkosningum 1978. Mörgum árum seinna tókust kynni með okkur Skildi syni hans sem varð fljótt kærasti vinur sem nokkur getur hugsað sér. Þá brá öðru ljósi yfir Sigurjón Pétursson, því að það hlaut að vera mikið spunnið í fólk sem framleiddi eintök eins og Skjöld og Brynjar. Sú tilgáta sannaðist mjög fljótt. Fundirnir urðu auðvitað of fáir og of stuttir. En það þurfti ekki mörg gamlárskvöld í Asparfellinu til að skynja glaðværðina og hlýjuna á heimilinu, jákvæð lífsviðhorf og sam- heldni fjölskyldunnar. Það var aug- ljóst að þarna þótti „gamla“ og Rögnu bezt að vera, með fólkinu sínu, strákunum og barnabörnunum. Og líklega var það sú ánægja sem gerði tartaletturnar svona ógleymanlegar. Ég sendi fjölskyldunni allri mínar dýpstu samúðarkveðjur. Karl Th. Birgisson. Það er alltaf erfitt að kveðja vini og samstarfsfélaga, ekki síst þegar þeir hverfa snögglega á braut. Sigurjón Pétursson er mörgum harmdauði. Hans er sárt saknað af fjölskyldu sinni en að auki var hann vinmargur maður og einstaklega traustur í sam- starfi. Í áratugi lagði Sigurjón fram krafta sína í þágu annarra og mældi þann tíma ekki í krónum og aurum. Hann var í forsvari fyrir fagfélag sitt í mörg ár og málsvari fyrir kjósendur Alþýðubandalagsins í borgarstjórn Reykjavíkur í á annan áratug. Þá eru ótalin fjölmörg félagsstörf sem Sig- urjón tók þátt í innan flokksins sem og annars staðar. Við sem hér skrifum unnum náið með Sigurjóni síðustu árin sem Al- þýðubandalagið starfaði sem form- legur stjórnmálaflokkur. Þar kom hann að mörgum erfiðum málum, m.a. að fjármálum flokksins, sem eru öllum stjórnmálaflokkum erfið en voru einstaklega erfið í Alþýðubanda- laginu á þeim árum. Þar reyndist ráð- gjöf Sigurjóns okkur heilladrjúg eins og alltaf. Þótt hann væri glaðvær maður í daglegri framkomu var hann alltaf með báða fæturna á jörðinni og vissi ekki hvað það var að gefast upp. Hann taldi að ætíð mætti finna lausn á öllum vandamálum og hafði auðvit- að rétt fyrir sér í því. Rætur Sigurjóns í Alþýðubanda- laginu og þeim hugsjónum sem það stóð fyrir voru djúpar. Hann naut trausts og virðingar ungra jafnt sem eldri flokksmanna, enda valinn þar til margra trúnaðarstarfa. Til margra ára sat hann í stjórn og sá um rekstur Sigfúsarsjóðs sem stofnaður var í minningu baráttumannsins Sigfúsar Sigurhjartarsonar. Þar nýttust kraft- ar hans vel og þá um leið flokknum í heild vegna þess hversu traustur bak- hjarl Sigfúsarsjóður hefur alla tíð ver- ið í hreyfingu vinstrimanna á Íslandi. Síðustu árin sem Alþýðubandalag- ið var með skrifstofu fór starfsemin fram í nýuppgerðu húsnæði sem Sig- fúsarsjóður keypti og lagði flokknum til í Austurstræti í Reykjavík. Sigur- jón var þar potturinn og pannan í öllu sem viðkom framkvæmdum. Það voru stoltir félagar í Sigfúsarsjóði sem afhentu flokknum húsnæðið til afnota 1. maí 1997 og eins og venju- lega brýndi Sigurjón það fyrir okkur sem þar áttum að vinna, að njóta vel en ganga jafnframt vel um. Hann var síðan reglulegur gestur á skrifstof- unni, leit eftir rekstri húsnæðisins og vakti dag og nótt yfir því sem honum var falið að sjá um. Þá tók hann einnig virkan þátt í þeirri pólitísku umræðu sem átti sér stað á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins þar sem reynsla hans og þekking nýttist okkur öllum, m.a. í að- draganda þess að Samfylkingin varð til. Við viljum þakka Sigurjóni fyrir gott og innihaldsríkt samstarf. Hann var sannarlega einn af þeim sem unnu óeigingjarnt starf í annarra þágu ára- tugum saman. Hann gerði það vegna þess að hugsjón hans fyrir kjörum þeirra sem minna mega sín og fyrir betri framtíð allra landsmanna knúði hann til þess. Við höfum misst mikinn og góðan félaga sem skilur eftir sig minningar sem munu næra baráttu- vilja okkar. Fjölskyldu og nánustu vinum Sigurjóns sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur með ósk um styrk í sorginni sem svo óvænt hefur knúið dyra. Margrét Frímannsdóttir, Heimir Már Pétursson, Elín Björg Jónsdóttir. Leiðir okkar Sigurjóns Pétursson- ar lágu saman árið 1970, er við vorum kjörnir í borgarstjórn Reykjavíkur. Það tókst strax með okkur gott sam- starf, sem stóð í tæp 12 ár eða allan þann tíma, er við vorum samtímis í borgarstjórn. Sigurjón var góður í samstarfi, heiðarlegur og orðheldinn. Hann var góður stjórnmálamaður, flutti ágætar ræður og var mikill málafylgjumaður. Hann tók við for- ustu borgarstjórnarflokks Alþýðu- bandalagsins árið 1970 af Guðmundi heitnum Vigfússyni og fórst það vel úr hendi. Var þó engan veginn auðvelt að taka við af Guðmundi Vigfússyni, svo vel hafði hann unnið sem borg- arfulltrúi. Mest reyndi á samstarfshæfileika Sigurjóns á tímabilinu 1978–1982, er Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur fóru með völd í Reykjavík. Sigurjón var þá forseti borgarstjórnar og leiðtogi meirihlut- ans enda þótt samstarfið væri að öðru leyti á jafnréttisgrundvelli. Sigurjón sýndi mikla lipurð og hæfileika í þessu samstarfi ólíkra flokka. Í borg- arstjórnarkosningunum 1978 hlaut Alþýðubandalagið fimm borgarfull- trúa, Alþýðuflokkurinn tvo og Fram- sóknarflokkurinn einn. En þrátt fyrir þennan mikla mun á stærð flokkanna í borgarstjórn samþykkti Sigurjón, að samstarf flokkanna yrði á jafnréttis- grundvelli og hver flokkur hefði einn fulltrúa í borgarráði. Með þessu sýndi hann mikið raunsæi og sanngirni gagnvart samstarfsflokkunum. Við Sigurjón sátum saman í borg- arráði, borgarstjórn og útgerðarráði Reykjavíkurborgar allan þann tíma, er við vorum saman í borgarstjórn. En einnig fórum við saman í ferðalög til útlanda á vegum borgarstjórnar Reykjavíkur. Ég kynntist því Sigur- jóni vel á þessum árum. Sigurjón var hrókur alls fagnaðar á góðri stundu. Hann var vel að sér og það var skemmtilegt að ræða við hann, ekki aðeins um stjórnmál, heldur einnig um hin ýmsu mál. Sigurjón var einlægur verkalýðs- sinni og mikill Alþýðubandalagsmað- ur. Hann valdist til margvíslegra trúnaðarstarfa í sínu stéttarfélagi og flokki. Það er mikil eftirsjá að Sigurjóni Péturssyni. Hann var vel gerður mað- ur og hæfileikaríkur. Efirlifandi eig- inkona hans er Ragna Brynjarsdóttir. Við hjónin vottum henni og sonum þeirra okkar dýpstu samúð. Drottinn blessi minningu Sigurjóns Pétursson- ar. Björgvin Guðmundsson. Kveðja frá Grunni, félagi stjórnenda á skólaskrifstofum Hörmulegar slysafregnir setja svip sinn á samfélag okkar þessa dagana. Fjölskyldur og vinir horfa með sorg og söknuði á bak ástvinum sem svo sviplega eru frá þeim teknir. Í dag kveðjum við kæran félaga og samstarfsmann, Sigurjón Pétursson. Yfirfærsla á málefnum grunnskól- ans frá ríki til sveitarfélaganna var mikið verkefni. Ýmsar úrtöluraddir heyrðust og margir efuðust um að sveitarfélög væru fær um að valda því verkefni. Þær raddir eru nú þagnaðar og öllum ljóst að þar var vel að verki staðið. Margir lögðu þar hönd á plóg og var Sigurjón Pétursson þar fremstur í flokki. Sigurjón var deild- arstjóri grunnskóladeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá stofnun þeirrar deildar til dauðadags. Víðtæk reynsla hans og þekking nýttust vel í því starfi. Það útheimti marga hans bestu kosti, góða skipulagsgáfu og skilning á stöðu sveitarfélaga, yfirsýn og skilning á málefnum skóla og kennara, lipurð og ákveðni, sanngirni og réttsýni og síðast en ekki síst mikla starfsorku og þrautseigju. Þannig verður Sigurjóns minnst af sam- starfsmönnum hans um málefni skóla. Hans verður sárt saknað úr okkar röðum. Við vottum fjölskyldu Sigurjóns dýpstu samúð.            $ $$ @.$ .0  8..  /34%# C $ !  *  #;  '    -/    6  #00% #(1*()* $ 3(( %)1*(( 6! 6  ()* ("3#/1*((9 ''"()* &&&&&5 3 (        8$6 @'1D  4//  36/ )%   *    #$    '     ) '    $  #00% 7      '         '     ( 2  *  2 '"((  &"8( ()* 0%#&'"()* &"'"()* D) "  0% /)()*           )(!( 5 <               =      =  '                 7 - @$ 6 8..  9"%%& E& *F5 *            2     > 82  258 ' ?2   82      5    9%) "*()* *% 1*4(( 0))'3 &"()* 9%)1*4()* 1*4(1*4(( '"()* ,1*4()* (5((( *% 1 %% 1*4(1 %% '"?3%/ ! -()#(5           - B $ $ 8..  <(&:: '%)*( '     7    $  #6%%  ' 1     <(  ()* 1,%#($*(( &" ()* '"'"(( &" ()* #(%?+((  # ()* /("3((     &&&&&5 7   .90 8 $   ((!A 9      *  #"    '       8  2 5    1     $  #00% 05%(( &"5%()* $ )#(%()* 5%((5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.