Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 38

Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 38
FRÉTTIR 38 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Atvinnuhúsnæði til leigu Höfum til leigu ýmsar gerðir og stærðir af skrifstofu- og verslunarhúsnæði í Reykjavík. Allar upplýsingar veittar á skrifstofu Eyktar í síma 595 4400. Eykt ehf., Lynghálsi 4. HÚSNÆÐI Í BOÐI Barcelóna Ertu að fara til Barcelóna? Leigi íbúð viku í senn. Uppl. gefur Helen í síma 899 5863. KENNSLA Eigum lausa tíma fyrir fótbolta á sunnudögum í Íþróttahúsi Gerplu, Skemmuvegi 6. Einnig í hádeginu á þriðjudögum og miðvikudögum. Upplýsingar í símum 557 4925 og 557 4923. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Áshamar 57, 2. hæð til hægri (010203), þingl. eig. Kristina Goremykina og Jósef Agnar Róbertsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður mið- vikudaginn 30. janúar 2002 kl. 14.00. Bessastígur 8 (Skógar), vesturendi, þingl. eig. Hrefna María Guð- mundsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 15.00. Bílskúr á Áshamri 57 nr. 060109, þingl. eig. Gunnar Ingólfur Gíslason, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 14.30. Brekastígur 31, kjallari, þingl. eig. Guðni Stefán Thorarensen, gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður og Vestmannaeyjabær, miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 15.30. Heiðarvegur 41, þingl. eig. Sólveig Thorarensen og Heimir Guð- mundsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Hafnar- fjarðar, miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 16.00. Strandvegur 81—83—85, þingl. eig. Lífró ehf., gerðarbeiðandi Vest- mannaeyjabær, miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 17.00. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, 22. janúar 2002. TILKYNNINGAR Auglýsing um skipulag í Kópavogi Nýbýlavegur 72 Deiliskipulag Tillaga að breyttu deiliskipulagi Nýbýlavegar 72 auglýsist hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Í tillögunni felst að heimilt verði að byggja þriggja hæða íbúð- arhús á lóðinni með 5 íbúðum og tveimur inn- byggðum bílskúrum. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,65. Uppdrættir, ásamt skýringarmynd- um verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 9.00—16.00 alla virka daga frá 25. janúar til 22. febrúar 2002. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa bor- ist skriflega Bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15.00 þriðjudaginn 12. mars 2002. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil- ins frests, teljast samþykkir tillögunni. Skipulagsstjóri Kópavogs. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir, Lára Halla Snæfells, Erla Alex- andersdóttir, Margrét Haf- steinsdóttir og Garðar Björg- vinsson michael-miðill starfa hjá félaginu og bjóða félags- mönnum og öðrum uppá einka- tíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á sím- svara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1821238  N.K.  GLITNIR 6002012319 I  Njörður 6002012319 I I.O.O.F. 7  1821237½  Þb. I.O.O.F. 9  1821238½   HELGAFELL 600201239 IV/V Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Í kvöld kl 20 Bænastund, alþjóðleg bænavika. Samkoma í Kristniboðs- salnum í kvöld kl. 20.30. Guðlaugur Gunnarsson talar. Allir hjartanlega velkomnir. sik.is Háseti og vélavörður Vélavörð, helst með 1000 ha réttindi, vantar strax á 280 tonna netabát frá Grindavík. Upplýsingar í síma 426 8032 og 868 5988. ATVINNA mbl.is BANDARÍSKA alríkislögreglan (FBI) í Flórída hefur yfirheyrt ung- an Kýpur-Grikkja frá grískumæl- andi hluta Kýpur vegna sprengju- hótunarinnar í bresku farþega- þotunni sem lenti á Keflavíkur- flugvelli á á laugardag á leið sinni frá London til Orlando. Maðurinn er grunaður umfram aðra farþega um að bera ábyrgð á hótuninni. Tveir lögreglumenn frá lögregl- unni á Keflavíkurflugvelli fóru með flugvélinni áfram til Orlando og bentu bandarísku lögreglunni á manninn við komuna og var hann tekinn í yfirheyrslu með réttarstöðu grunaðs einstaklings. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum en unnt er að ná tali af honum síðar ef þörf krefur og sama gildir um hina farþegana sem voru í vélinni. Grunsemdir lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli beindust að manninum við athugun á meðan flugvélin átti viðdvöl á Keflavíkur- velli en ekki var gengið svo langt að láta hann sæta sérstakri gæslu ís- lensku lögreglumannanna í flugvél- inni á leiðinni til Orlando. Þá treysti lögreglan á Keflavíkurflugvelli sér ekki til að halda honum eftir hér á landi. Grunsemdir lögreglu vöknuðu eftir ábendingar frá samferðafólki mannsins um óeðlilega hegðun hans. Mishermt var í Morgunblaðinu í gær um málið að íslenska lögreglan hefði ekki vitneskju um hinn grunaða í vélinni á leið vestur um haf. Rithandarsýnishorn rann- sökuð í Bandaríkjunum Samkvæmt upplýsingum Óskars Þórmundssonar, yfirlögregluþjóns á Keflavíkurflugvelli, var sprengju- hótunin tvíþætt, annars vegar skrif- uð á spegil á salerni flugvélarinnar og hins vegar skrifuð á blað við hlið spegilsins. Sérfræðingar hjá bandarísku lög- reglunni eru m.a. að fara yfir rit- handarsýnishorn sem tekin voru af farþegum og áhöfn vélarinnar við komuna til Keflavíkur og send voru út með íslensku lögreglumönnunum. Verið er að bera sýnishornin saman við skriftina á spegli vélarinnar þar sem sprengjuhótunin var birt. Enn- fremur var hótun skrifuð á blað sem fest var við spegilinn og er sömuleið- is verið að bera skriftina saman við rithandarsýnishornin sem aflað var hérlendis. Athugun hérlendis leiddi í ljós líkindi á milli rithandar hins grunaða og skriftarinnar á hótunar- blaðinu. Sprengjuhótunin 14 mínútur að berast Almannavörnum Könnun hjá Almannavörnum rík- ins í gær hefur leitt í ljós að tilkynn- ing um sprengjuhótunina var tæpar 14 mínútur að berast Almannavörn- um en ekki 40 mínútur, sem olli áhyggjum um að boðin hefðu mis- farist í kerfinu. „Klukkan 15.36 berst fyrsta til- kynning til Flugmálastjórnar í Reykjavík frá [flugstjórnarmiðstöð- inni í] Gander,“ sagði Hafþór Jóns- son aðalsviðsstjóri Almannavarna. „Í framhaldi af því afgreiðir Flug- málastjórn málið til Keflavíkur. Klukkan 15.38 hefur flugturninn í Keflavík samband við vélina sem svarar þannig: „We dońt need any assistance. Low level security threats.“ Flugmaðurinn segist vera í sambandi við flugfélag sitt og allt er talið í lagi. Klukkan 15.52 kemur orðið „sprengjuhótun“ fyrst til sög- unnar. Í framhaldi af því hefst boð- un samkvæmt þeim áætlunum sem þar um gilda. Boðin berast síðan Al- mannavörnum kl. 16.05. Ég held því að þetta sé innan eðlilegra marka.“ Sprengjuhótunin í farþegaþotu Virgin Atlantic-flugfélagsins Kýpur-Grikki grunaður umfram aðra farþega og yfirheyrður af FBI SJÚKRAÞJÁLFARAR hafa til skoðunar að gefa einhliða út gjald- skrá. Gauti Grétarsson, formaður samninganefndar sjúkraþjálfara, segir að sjúkraþjálfarar hafi verið samningslausir í 15 mánuði og hvorki gangi né reki í viðræðum við Tryggingastofnun ríkisins um gerð nýs samnings. „Samninganefnd Tryggingastofn- unar hefur vísað til þess að hún geti ekki vikið frá fjárveitingu sem ákveðin er í fjárlögum og því hefur hún hafnað því að skoða leiðréttingu á gjaldskrá þrátt fyrir að TR geri auknar kröfur til sjúkraþjálfara um aðbúnað og vinnuframlag. Við vorum með félagsfund í síð- ustu viku þar sem samþykkt var að ef ekki verður breyting á afstöðu samninganefndar munum við fara út í aðgerðir sem skila árangri. Í dag rukkum við TR um hlut sjúklings, en ef við förum út í aðgerðir munum við rukka sjúklinginn um þá gjaldskrá sem við setjum upp einhliða. Síðan þurfa okkar skjólstæðingar að fara upp í Tryggingastofnun og fá end- urgreiddan þann mismun sem um ræðir,“ sagði Gauti. Gauti sagði að samninganefnd TR hefði krafist þess að sjúkraþjálfarar gæfu afslátt af gjaldskrá við tiltek- inn fjölda meðferða. Sjúkraþjálfarar væru þeirrar skoðunar að hann kæmi óeðlilega snemma inn og höfn- uðu algerlega kröfum TR um aukinn afslátt. Ekki náðist í fulltrúa samninga- nefndar Tryggingastofnunar í gær. Sjúkraþjálfarar undirbúa aðgerðir HARALDUR Örn Ólafsson sjö- tindafari er einn eftir af Íslending- unum fjórum sem hafa glímt við Aconcagua, hæsta fjall S-Ameríku, að undanförnu. Hann er kominn með lungnakvef og á leið til byggða. Aðstæður hafa verið óvenju erfið- ar undanfarnar vikur og mikil snjó- koma á fjallinu sem hefur gert það að verkum að enginn fjallgöngumaður hefur komist á tindinn um nokkurt skeið. Flestir hafa yfirgefið efstu búðir til þess að bíða af sér veður og margir gefist upp. Haraldur fékk lungnakvefið í efstu búðum, sem kenndar eru við Berlín, í 5.800 metra hæð. Ef ekki er brugðist hart við get- ur það reynst skeinuhætt hraustustu mönnum. „Ég er á sýklalyfjum og verð fram að helgi í borginni Mend- oza en vonast þá til þess að veður verði skapleg svo ég geti snúið aftur og glímt við Aconcagua,“ sagði Har- aldur Örn við bakvarðasveit sína. Haraldur með lungna- kvef á leið til byggða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.