Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 41

Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 41 ÚT er komin ný námskrá Endur- menntunarstofnunar Háskóla Ís- lands fyrir vorönn 2002. „Hátt á þriðja hundrað nám- skeiða á fjölmörgum fræðasviðum eru í boði fyrir háskólafólk og al- menning. Nýjung í fræðslukostum er Nám á Netinu, og er hvort tveggja í senn boðið upp á stök netnámskeið á sviði stjórnunar og samskipta og lengra nám. Netnámskeiðin eru frá banda- ríska fyrirtækinu Skillsoft en einnig kynnir Endurmenntunarstofnun sex mánaða fjarnám í Markaðssetn- ingu á Netinu við The University of British Columbia í Vancouver í Kanada. Í fréttatilkynningu frá Endur- menntunarstofnun HÍ segir: „End- urmenntun HÍ hefur jafnframt tek- ið upp samstarf við IMG um fræðslu fyrir stjórnendur. Á vormisseri munu sérfræðingar IMG m.a. kenna nýjum stjórnendum grunn- þætti í stjórnunarfræðum, fjalla um mat á arðsemi starfsmannastjórn- unar og fræða fólk í stjórnunar- störfum um hvernig nýta megi nið- urstöður neyslurannsókna í mark- aðssetningu. Sérsniðin námskeið fyrir fyrir- tæki og stofnanir njóta vaxandi vin- sælda og er það orðinn fastur liður í starfsemi Endurmenntunar að miðla námskeiðum beint til vinnu- staða. Meðal þeirra eru námskeið í samskiptafærni, þjónustu, sölu- tækni og markaðssetningu. Nú sem endranær kappkostar Endurmenntun HÍ að fá til kennslu færustu sérfræðinga – innlenda sem erlenda. Meðal erlendra fyrir- lesara sem miðlar sérþekkingu sinni á vorönn er Ivan Robertson, prófessor í vinnusálfræði við Man- chester School of Management. Hann kennir á námskeiðinu Starfs- mannaval og starfsmannamat og heldur auk þess erindi á ráðstefnu Félags viðskipta- og hagfræðinga um skyld málefni í byrjun febrúar. Aðrir sérfræðingar sem leggja Endurmenntun lið eru David Platt frá Harvard-háskóla sem kennir metnaðarfullt námskeið um Micro- soft.NET og hinn margverðlaunaði bandaríski vefhönnuður Kelly Goto kennir hvernig má skipuleggja og hanna lifandi gagnvirkar vefsíður. Goto er höfundur bókarinnar Web – Redesign and Workflow that works. Nú sem fyrr verða allar listgrein- ar teknar fyrir á kvöldnámskeiðum Endurmenntunar. Framhald verð- ur á námskeiðinu Hvað ertu tónlist? sem naut gífurlegra vinsælda á haustmisseri. Þar kennir Jónas Ingimundarson píanóleikari fólki að njóta tónlistar eins og honum einum er lagið. Hann fær til liðs við sig þekkta tónlistarmenn, m.a. Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Guðna Franz- son. Ópera Wagners Hollendingur- inn fljúgandi er viðfangsefni á nám- skeiði sem haldið er í samstarfi við Vinafélag Íslensku óperunnar, en hún verður sett upp á Listahátíð snemmsumars. Í samstarfi við Þjóðleikhúsið verður efnt til námskeiðs um leik- ritun og í tilefni af aldarafmæli Hall- dórs Laxness verður haldið nám- skeið um höfundaverk hans. Rímnakveðskapur, íslensk myndlist fyrri alda, ævintýrabókmenntir, isl- am og nútíminn og stjörnuskoðun verða viðfangsefni á öðrum nám- skeiðum. Á tungumálasviði verður boðið upp á námskeið í arabísku, rússnesku og tékknesku og Karl Ágúst Úlfsson leikari kennir hvern- ig nýta má kímni í daglegu lífi. Frekari upplýsingar um vornám- skeiðin, nám á Netinu og nám sam- hliða starfi eru á vef Endurmennt- unar www.endurmenntun.is. Þar og í síma er hægt að skrá sig á nám- skeið,“ segir í fréttatilkynningu frá Endurmenntunarstofnun. Nám á Netinu og sam- starf við IMG Á þriðja hundrað námskeiða á vorönn Endurmenntunarstofnunar HÍ RANGT var haft eftir Ægi Axels- syni hjá Flytjanda á Egilsstöðum í frétt í blaðinu sl. fimmtudag um upphæð tjóns vegna bílveltu á Jök- uldal. Ægir sagði að tjónið gæti numið allt að tug milljóna króna, en það færi eftir því hvort bíllinn væri grindarskakkur og skemmdum á farmi. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Flygillinn úr Vídalínskirkju Í tónlistarumfjöllun í blaðinu í gær um tónleika í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ var Fazioli-flygill- inn ranglega sagður úr Víðistaða- sókn. Rétt er að hann var fenginn að láni úr Vídalínskirkju í Garðasókn. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT FÉLAGSFUNDUR verður hjá Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði í Hafnarfirði fimmtudaginn 24. janúar kl. 20 í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7 í Hafnarfirði. Á dagskrá fundarins verður m.a. kosning upp- stillingarnefndar fyrir framboðslista VG í bæjarstjórnarkosningunum í vor, segir í frétt frá stjórn VG í Hafn- arfirði. Félagsfundur hjá VG í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.