Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 45

Morgunblaðið - 23.01.2002, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 45 DAGBÓK EINN veikasti hlekkur- inn í Standard-kerfinu er opnun á tveimur gröndum til að sýna 20–22 punkta með jafnri skiptingu. Engu breytir þótt þessari spila- gerð sé troðið inn í Multi-tvo tígla eða aðra tveggja opnun – vandinn er sá sami: sagnir eru komnar of hátt áður en svarhönd fær að tjá sig. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 10963 ♥ 10963 ♦ G105 ♣82 Vestur Austur ♠ 8 ♠ K72 ♥ KG8542 ♥ D ♦ D2 ♦ K9843 ♣K1074 ♣D953 Suður ♠ ÁDG54 ♥ Á7 ♦ Á76 ♣ÁG6 Spil suðurs falla í tveggja- granda-flokkinn og norður hefur svo sem enga ástæðu til að skipta sér af þeirri sögn. Tvö grönd er ekki góð- ur samningur og tapast með bestu vörn, en hitt er verra, að fjórir spaðar virðast standa í NS þar eð tromp- kóngurinn liggur fyrir svín- ingu og vestur á Dx í tígli. Með því að spila litlum tígli að blindum má tryggja tvo slagi á litinn og vörnin ætti þá ekki að fá nema þrjá slagi – einn á hjarta, einn á tígul og einn á lauf. „Ég fór niður,“ sagði Að- alsteinn Jörgensen, þegar spilið kom til umræðu í mat- arhléi keppenda í Reykja- víkurmótinu um helgina. Aðalsteinn og Sverrir Ár- mannsson í sveit Subaru spila sterkt-lauf og náðu því fjórum spöðum léttilega. En vörnin var nákvæm. Vestur kom út með hjarta og Að- alsteinn drap drottningu austurs með ás og spilaði laufás og gosa. Vestur tók á kónginn, síðan á hjartakóng og spilaði svo gosanum! Við það fríaðist hjartatían í blindum, en hún gagnaðist sagnhafa ekkert. Þvert á móti gaf þessi vörn austri tækifæri til að henda tveim- ur laufum, svo nú komst Að- alsteinn ekki inn í borð til að svína fyrir trompkónginn. Glæsilegt. Í AV voru Gísli Þór Tryggvason og Leifur Krist- jánsson. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake Afmælisbörn dagsins: Þú hefur sterkan persónu- leika og átt auðvelt með að tileinka þér nýjar aðferðir. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert kraftmikill í dag og dregur að þér fólk sem vill deila jákvæðri orku þinni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú átt auðvelt með að hrífa áhrifamikla einstaklinga með þér í dag. Það er sama hvað þú segir og gerir, fólk gleypir við því. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Njóttu útiveru eða íþrótta með vinum þínum. Það er keppnisskap í þér og þú hefur hug á að sigra í hverju því sem þú tekur þér fyrir hend- ur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Metnaður þinn er vakinn í dag. Þú getur heillað peninga og stuðning út úr hverjum sem er því fólk er reiðubúið til að hlíta forystu þinni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það liggur einstaklega vel fyrir þér að sannfæra aðra, sérstaklega almenning, í dag. Hikaðu ekki við að selja, tala um og kenna hvað sem er. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú átt auðvelt með að leggja þig fram í vinnunni í dag. Þú nýtur virðingar og fólk vill rétta þér hjálparhönd vegna þess að jákvætt hugarfar smitar út frá sér. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin er sannkallað sam- kvæmisljón. Þú vilt njóta lífs- ins til hins ýtrasta í dag ein- faldlega vegna þess að innst inni ertu hamingjusamur. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Samræður við mikilvæga fjöl- skyldumeðlimi, hugsanlega foreldra, ganga vel í dag. Fólk er tilbúið að hjálpa þér og veita þér allan þann stuðn- ing sem þú þarft til að ljúka ákveðnu verki. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú munt njóta þess að fara í stutta ferð í dag. Farðu í stutta ökuferð ef þú getur og njóttu tilbreytingarinnar og umhverfisins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú getur hugsanlega fundið leið til að fjármagna umbæt- ur á heimili þínu. Þig langar til að gera svo margt fyrir heimilið og því mun smávægi- legasta breyting gleðja þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hæfni þín til að sannfæra aðra er með mesta móti í dag. Það rennur upp fyrir þér að þú getur rakið velgengni þína til vitneskjunnar um það að þú ert sáttur við sjálfan þig. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert reiðubúinn til að leggja þig fram við að bæta afkomu þína með nýjum hætti. Peningar eru alls stað- ar og þú ert ekki bara að afla þeirra heldur einnig að eyða þeim. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VATNSBERI LJÓÐABROT ÁFRAM Já, láttu gamminn geisa fram í gegnum lífsins öldur. Þótt upp þær stundum hefji hramm, ei hræðstu þeirra gnöldur. Sjá, hvílík brotnar báru mergð á byrðing einum traustum, ef skipið aðeins fer í ferð, en fúnar ekki’ í naustum. Og mundu, þótt í votri vör þú velkist fyrir sandi, að bylgjur þær, sem brjóta knör, þær bera þó að landi, og stormur þurrkar segl í svip, þótt setji um stund í bleyti, og – alltaf má fá annað skip og annað föruneyti. Hannes Hafstein Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 23. janúar er fimmtugur Ásgeir Einarsson bílstjóri og kaf- ari, Sigtúni 6, Patreksfirði. Eiginkona hans er Bylgja Gísladóttir. Ásgeir er að heiman í dag. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. h3 Bb7 9. d3 d6 10. a3 Ra5 11. Ba2 c5 12. Rc3 Rc6 13. Re2 Bc8 14. Rg3 Be6 15. Rf5 Bxf5 16. exf5 Dd7 17. g4 h6 18. c3 Hfe8 19. b4 cxb4 20. cxb4 Bd8 21. Bb2 a5 22. bxa5 Bxa5 23. He2 Bb6 24. Db3 Db7 25. Dd1 Ha4 26. Hc2 Re7 27. Rh2 Red5 28. Df3 Hf4 29. Dg2 e4 30. He1 Staðan kom upp í A-flokki Corus stór- meistaramótsins í Wijk aan Zee. Fé- lagarnir Boris Gelf- and (2.708) og Mich- ael Adams (2.742) hafa marga hildina háð. Fyrir um 8 ár- um tefldu þeir áskorendaeinvígi. Stuttu fyrir einvígið fór heitkona Adams frá honum og beint í fangið á Gelfand. Eins og gefur að skilja bar Adams ekki sitt barr eftir það og tapaði einvíginu. Hann tók þó Gelfandi í karphúsið í stöð- unni en Englendingurinn hafði svart. 30. ...Hxf2! 31. Hxf2 Rf4 32. Dg3 Bxf2+ 33. Kxf2 Rxd3+ 34. Kf1 Rxb2 35. h4 Dd7 36. Kg2 Rd3 37. Hf1 e3 38. g5 hxg5 39. hxg5 Rh5 og hvítur gafst upp saddur lífdaga. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Ljósmyndaverið Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Háteigskirkju af sr. Sigurði Helgasyni Ruth Kristjánsdóttir og Birgir Ás- geirsson. Ljósmynd Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. september sl. í Digra- neskirkju af sr. Gunnari Sigurbjörnssyni Hildur Björg Ingi- bertsdóttir og Erlingur Snær Erlingsson. Íslandsmót í parasveitakeppni Vinsælasta mót vetrarins, Ís- landsmótið í parasveitakeppni, verð- ur haldið helgina 2.–3. febrúar næst- komandi. Þetta er fyrsta mótið sem spilað verður í nýju húsnæði Brids- sambands Íslands, Síðumúla 37, 3. hæð. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og undanfarin ár. Spilaðar eru sjö umferðir með 16 spila leikjum og raðað í umferðir með Monrad-fyrir- komulagi. Spilamennska hefst kl. 11 báða dagana. Skráning er hafin í s. 587 9360 eða á www.bridge.is. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Glæsibæ, mánud. 14. jan. 21 par. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 249 Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 241 Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 230 Árangur A-V: Haukur Guðm. – Friðrik Hermannss. 256 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 244 Jón Karlsson – Eggert Þórhallsson 239 Tvímenningskeppni spiluð fimm- tud. 17. janúar. 20 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 242 Haukur Sævaldsson – Magnús Oddss. 237 Þórarinn Árnas. – Sigtryggur Ellertss. 237 Árangur A-V: Aðalbjörn Bened. – Leifur Jóhanness. 251 Viggó Nordquist – Þórólfur Meyvantss. 242 Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 239 Bridsfélag Hafnarfjarðar Hinn 21. janúar var spilað fyrsta kvöld af fjórum í fjögurra kvölda barómeter. Spilað var á átta borðum, sjö umferðir með fjögur spil á milli para. Staða efstu para eftir sjö umferð- ir: Erla Sigurjónsdóttir – Sigfús Þórðarson 53 Halldór Einarsson – Einar Sigurðsson 30 Njáll G. Sigurðsson – Guðni Ingvarsson 20 Guðbrandur Sigurb. – Friðþjófur Einarss.17 Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila tvímenning á 5 borðum í Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50, tvisvar í viku, þ.e. á þriðjudögum og föstudögum. Spilað var 15. janúar og þá urðu úrslit þessi: Árni Bjarnason – Þorvarður Guðmundss. 93 Jón Ó. Bjarnason – Jón R. Guðmundsson 84 Sigurlín Ágústsd. – Guðm. Guðmundsson 83 Sveinn Jónsson – Jóna Kristinsdóttir 82 18. janúar: Maddý Guðmundsd. – Guðm. Árnason 47 Árni Bjarnason – Sævar Magnússon 44 Ásgeir Sölvason – Einar Sveinsson 42 Hermann Valsreinss. – Árni Guðmundss. 34 Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á tólf borðum mánudaginn 21. janúar sl. Miðlung- ur 220. Efst vóru: NS Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 264 Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 260 Karl Gunnarsson – Ernst Backman 252 AV Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 256 Guðmundur Pálss. – Kristinn Guðm. 249 Ólafur Stefánsson – Garðar Alfonsson 246 Spiladagar: Mánudagur og fimmtudagur. Mæting: kl. 12.45 á hádegi. Isl-Antik Hólshrauni 5, sími 565 5858, 220 Hfj. Bakvið Fjarðarkaup. Opið kl. 12-18 alla daga. RISA-ÚTSALA á ANTIKI er hafin Verslun hættir – Allt á að seljast Allt að 75% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.