Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Uppfærslutilboð – 30% afsláttur!! www.atv.is – Skeifunni 17 Afritunarhugbúnaður INGA Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, tilkynnti á blaða- mannafundi í gær að hún hygðist draga framboð sitt í leiðtogaprófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík til baka. Hún lýsti jafnframt yfir stuðn- ingi við Björn Bjarnason mennta- málaráðherra í fyrsta sætið. Hún segist taka þessa ákvörðun í trausti þess að sjálfstæðismenn sam- einist um að Björn leiði framboðslista flokksins. Sjálf býðst Inga Jóna til að taka áttunda sætið á framboðslista flokksins, baráttusætið, ef þess verð- ur óskað. „Þegar svo mikið liggur við eiga forystumenn ekki að sundra liðinu heldur að sameina kraftana. Í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur frammi fyrir því að endurheimta borgina úr höndum R-listans, vil ég leggja mitt af mörk- um til að sjálfstæðismenn gangi sam- einaðir til þeirrar baráttu,“ sagði Inga Jóna í yfirlýsingu sinni. „Ég þakka sérstaklega þennan stuðning sem kemur fram í yfirlýs- ingu Ingu Jónu og ég er henni inni- lega sammála um það, að lykillinn að því að við sjálfstæðismenn náum ár- angri í kosningunum í vor er að sjálf- sögðu að við stöndum saman,“ sagði Björn Bjarnason um ákvörðun Ingu Jónu. „Þetta er mjög mikilvæg og þýð- ingarmikil yfirlýsing af hálfu Ingu Jónu. Það er ljóst að hún er ekkert að hugsa um eigið skinn í þessum efnum heldur hagsmuni heildarinnar og að skapa sem best skilyrði þess að það megi leggja grunn að því að koma hér á góðri stjórn í höfuðborginni á nýjan leik. Mér þykir vænt um að þetta skuli ganga fram með þessum hætti,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráð- herra um ákvörðun Ingu Jónu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði ekki ný tíðindi að Sjálf- stæðisflokkurinn skipti um forystu- mann í borginni. „Mér finnast þetta talsvert merkileg tíðindi. Það sem kannski opinberast þarna er að það skuli þurfa að ganga svona langt í því að ryðja hindrunum úr vegi svo að Björn Bjarnason geti ákveðið að fara í framboð, en sem kunnugt er liggur sú ákvörðun ekki enn fyrir,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Inga Jóna lýsir yfir stuðningi við Björn  Forystumenn/26 Býðst til að taka áttunda sætið á framboðslista sjálfstæðismanna DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að auðvitað eigi að fylgja því eftir að stórir aðilar misnoti ekki aðstöðu sína og 60% eignaraðild á verslunarfyrirtækjum í matvæla- iðnaði sé allt of há hlutdeild og auðvitað komi til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum séu þær misnot- aðar. Þetta kom fram í umræðu utan dagskrár um horfur í efna- hagsmálum á Alþingi í gær. Málshefjandi í umræðunni var Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, og sagði hann að stóru verslunarkeðjurnar í landinu hefðu í skjóli einokunar keyrt upp matarverð. „Hreðjatak þeirra á markaðnum hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur,“ sagði hann og bætti við að ríkisstjórninni bæri skylda til þess að feta í fótspor verkalýðshreyfingarinnar og fara í viðræður við þessa aðila, krefjast þess í nafni þjóðarheillar að þeir sýndu ábyrgð og lækkuðu mat- arverð. Verðbólgan, hækkun vísitölu neysluverðs og verðþróun í þjóð- félaginu komu mjög til umræðu í utandagskrárumræðunni og lýstu bæði Össur og Davíð yfir ánægju með framlag þeirra fyrirtækja sem þegar hefðu gripið til þess ráðs að lækka sitt vöruverð. Vaxtalækkun innan skamms Forsætisráðherra sagði ljóst að ríkisstjórnin mundi standa við það sem hún hefði þegar tilkynnt verkalýðshreyfingunni að hún mundi gera varðandi hækkun á út- gjöldum. Sagði hann verulegar lík- ur og „jafnvel yfirgnæfandi líkur“ á því að það mark sem menn hefðu sett sér gagnvart uppsögn kjara- samninga stæðist. Vísaði hann til jákvæðrar þróunar á ýmsum svið- um efnahagsmála, t.d. styrkingar krónunnar og hækkunar á verði hlutabréfa auk þess sem atvinnu- leysi væri lítið og hefði verið lengi. „Þess vegna segi ég að það eru miklar líkur á að þetta muni allt saman ganga eftir en við verðum að sjá mjög jákvæða hluti ganga fram hvarvetna. Og þegar þetta gengur eftir, þá mun það einnig ganga eftir að verðbólgan á árinu verði kringum 3,5% sem er mjög viðunandi árangur,“ sagði for- sætisráðherra. Aðalatriðið sagði forsætisráð- herra vera það að trúin á mark- aðnum færi vaxandi og það væri enn eitt dæmið um það að efna- hagsástandið hér á landi væri að komast í mjög gott horf og allar ástæður væru til þess að fyllast bjartsýni. „Ég tel að vaxtalækkanir séu ekki langt undan heldur skammt undan. Ég tel að við munum sjá fram á vaxtalækkanir þegar í næsta mánuði. Þegar eftir næstu mælingu á vísitölunni munum við sjá fram á vaxtalækkanir til við- bótar öðrum hlutum,“ sagði Davíð Oddsson og bætti við: „Skatta- lækkanir, vaxtalækkanir, styrking á gengi, lækkandi verðbólga, lítið atvinnuleysi, traustur kaupmáttur. Hver myndi ekki vera ánægður með þess háttar efnahagsástand í sínu landi?“ Davíð Oddsson forsætisráðherra um samþjöppun á matvörumarkaði Kemur til greina að skipta upp eignum  Forsætisráðherra segir/10 „FLESTIR þeirra sem sitja í fang- elsum á Íslandi í dag eru þar vegna afbrota sem þeir frömdu í tengslum við fíkniefnaneyslu,“ segir Heimir Ríkharðsson, lögreglumaður í for- varnar- og fræðsludeild lögregl- unnar í Reykjavík og segir lög- regluna fullyrða að fíkniefni og afbrot haldist í hendur. Lögreglan í Reykjavík stendur ásamt Félags- þjónustunni í Reykjavík og Marita forvarnar- og hjálparstarfi að fíkni- efnafræðsluverkefninu „Hættu áður en þú byrjar“ sem beint er að nem- endum í 9. bekk grunnskóla. Haldnir eru fræðslufundir í grunnskólunum með nemendum þar sem leitast er við að skýra út fyrir unglingunum hvernig heimur það sé í raunveru- leikanum sem neytendur fíkniefna lifa í. Markmiðið er, að sögn að- standenda verkefnisins, ekki að hræða nemendur heldur skýra út með faglegum forsendum lífið, hætt- urnar og afleiðingar eiturlyfjaneyslu eins og þær líta út fyrir þá sem hafa upplifað slíkt og eins og málið lítur út frá sjónarhóli lögreglu. Morgunblaðið/Júlíus Fíkniefni og afbrot hald- ast í hendur UM 500 aldraðir einstaklingar bíða nú eftir rými í þjónustuhúsnæði eða á hjúkrunarheimilum í Reykja- vík. Þörf þeirra er misjöfn, en sam- kvæmt nýrri vistunarskrá frá heilbrigðisráðuneytinu er þörf 255 einstaklinga sem bíða eftir hjúkr- unarrými mjög brýn. 1.014 aldr- aðir einstaklingar bíða rýmis á landsvísu samkvæmt vistunar- skránni. „Skráin hefur lítið breyst und- anfarna fjóra mánuði,“ segir Hrafn Pálsson, deildarstjóri öldrunar- mála hjá heilbrigðisráðuneytinu. „Ástæðan er sú að þegar Sóltún var opnað fóru aðeins um 20 manns úr heimahúsum þar inn, hinir komu af sjúkrahúsunum. Landakot hefur verið stíflað. Þar þarf að vera möguleiki á flæði í gegn svo að hægt sé að taka fólk til endurhæfingar og koma því heim aftur, sé þess kostur. Markmiðið er að enginn þurfi að bíða eftir hjúkr- un í mjög brýnni þörf lengur en 90 daga. Við vonumst til að ná því markmiði á næstu fjórum árum.“ Hrafn segir að ítarlegri úttekt heilbrigðisráðuneytisins á mál- efnum aldraðra sé að ljúka um þessar mundir og er ætlunin að kynna hana fyrir ríkisstjórn og þingheimi á yfirstandandi þingi. Langur biðlisti þegar á Sóltúni Þegar eru komnir 192 ein- staklingar á biðlista eftir plássi á Sóltúni, en heimilið var opnað 4. janúar sl. Alls eru þar 92 hjúkr- unarrými og er búið að úthluta þeim öllum. Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Öldungs hf. sem rekur Sóltún, segir sama fólk- ið oft á biðlistum eftir hjúkr- unarrúmi á fleiri en einu hjúkr- unarheimili og svo sé einnig um þá sem bíða eftir plássi í Sóltúni. Ingibjörg Hjaltadóttir, sviðs- stjóri hjúkrunar á öldrunarsviði Landspítala – Háskólasjúkrahúss á Landakoti, segir að 43 sjúklingar af öldrunarsviði hafi fengið pláss á Sóltúni. „Það hefur grynnkað á biðlistanum inn á öldrunarsvið af bráðadeildunum, en hann er ekki tæmdur.“ Nú bíða 19 sjúklingar af bráðadeildum í Fossvogi eftir plássi á öldrunarsviði, en voru 30 áður en Sóltún var opnað. Af Land- spítala við Hringbraut bíða 20 eftir plássi, en voru 22 fyrir opnun Sól- túns. „Það eru ekki allir fluttir inn í Sóltún ennþá svo áhrifin munu vara fram í næstu viku og jafnvel eitthvað lengur,“ segir Ingibjörg. „Við búumst við því að það verði langtímaáhrif af opnun Sóltúns svo álagið komi til með að minnka.“ Ingibjörg segir misjafnt hve lengi sjúklingar þurfi að bíða eftir plássi. Þeir sem beðið hafa lengst hafa verið á biðlista síðan í októ- ber, en flestir frá því um og eftir áramótin. 255 í mjög brýnni þörf fyrir aðstoð bíða hjúkr- unarrýmis í Reykjavík  Þið verðið/14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.