Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
L
ÓÐIN tilheyrði áður Tjarn-
argötu 3 c og vestasta hluta
lóðarinnar Vonarstræti 10.
Í B-skjali er lóðin skráð
1240 ferálnir. Skúli Thoroddsen
sýslumaður, alþingismaður og rit-
stjóri reisti sér hús á lóðinni árið
1908. Það er tvílyft timburhús með
háu risi, kvistum og stendur á stein-
kjallara. Rögnvaldur Ólafsson arki-
tekt teiknaði húsið. Útbygging er á
suðurhlið, ofan á henni eru svalir
sem gengið er út frá kvisti. Enn
fremur fékk Skúli leyfi fyrir bygg-
ingu prentsmiðjuhúss á lóðinni.
Sama ár, þann 6. október, er
fyrsta brunavirðingin gerð. Þar seg-
ir m.a. að húsið sé 18 1/2 x 21 al. og
útskot á framhlið 2 x 5 al. og við-
bygging í norður 10 x 11 1/2 al. að
grunnfleti og hæð 12 1/2 al., byggt af
bindingi, klætt utan með 5/4“ plægð-
um borðum, plönkum og járni yfir á
þremur hliðum og þaki; eldvarnar-
gafl er að vestanverðu. Í öllum út-
veggjum er milliþil úr plægðum 3/4“
borðum með sagi að utanverðu en
pappa að innan. Milligólf er í öllum
bitalögum. Niðri í húsinu eru sex
herbergi, eldhús, búr, gangur, for-
dyri og einn skápur. Allt þiljað og
með striga og pappír á veggjum og
loftum, allt málað. Brjóstpanill er í
einu herberginu. Uppi eru sjö íbúð-
arherbergi, einn gangur í vinkil og
sex fastir skápar, allt þiljað, með
striga og pappír á veggjum og loft-
um, allt málað. Í risi eru fjögur íbúð-
arherbergi, þrjú geymsluherbergi
og gangur. Íbúðarherbergin eru þilj-
uð og með striga og pappír á veggj-
um og loftum, þar er allt málað. Á
skammbitum er gólf úr plægðum
5/4“ borðum. Kjallari með stein-
steypugólfi er undir húsinu öllu, 3
172 alin að hæð. Hann er með tveim-
ur langskilrúmum úr steini og einu
þverskilrúmi. Í honum eru þrjár
geymslur, þvottahús með eldavél,
kolaklefi og klefi með miðstöðvar-
hitavél. Rafleiðslupípur eru um allt
húsið.
Við norðurhlið hússins er einlyft
útbygging með risi, byggð eins og
húsið, járnklædd á þaki og veggjum.
Í henni er prentsalur og gangur sem
allt er þiljað og með striga og pappír
á veggjum og í loftum og málað. Upp
við vesturhliðina á útbyggingunni er
skúr með uppgangi á aðra hæð í
íbúðarhúsinu; byggður eins og það.
Grunnflötur hans er 4 x 5 álnir. Ofan
á útbyggingunni eru þaksvalir og
undir henni er kjallari 3 1/2 alin á
hæð, með steinsteyptu gólfi. Út-
byggingin er notuð fyrir prentsmiðj-
una. Ofan á útbyggingunni eru svalir
með fallegu handriði, en þakið hallar
dálítið.
Skúli Thoroddsen var fæddur 6.
janúar 1859. Foreldrar hans voru
Jón Thoroddsen
sýslumaður og skáld,
fæddur 5. október
1818 að Reykhólum
og Kristín Ólína þor-
valdsdóttir Sívertsen
í Hrappsey. Foreldr-
ar Jóns voru hjónin
Þórður Þóroddsson
bóndi á Reykhólum
og kona hans Þórey
Gunnlaugsdóttir.
Þórður faðir Jóns
nam beykisiðn í Dan-
mörku og tók upp
nafnið Thoroddsen,
en það var nokkuð al-
gengt á meðal Íslend-
inga að laga föður-
nafn sitt að erlendum
hætti. Þórey var dóttir Gunnlaugs
Magnússonar prests á Ríp í Skaga-
firði. Í ævisögu Skúla Thoroddsen
eftir Jón Guðnason, segir að Jón hafi
haft tvo um þrítugt þegar hann var
settur sýslumaður í Barðastranda-
sýslu. Kona Skúla var Theodóra
Guðmundsdóttir skáldkona frá
Kvennabrekku í Dölum, fædd 1. júlí
1863. Séra Guðmundur faðir hennar
var bæði prófastur og alþingismað-
ur. Hann var sonur Einars Ólafsson-
ar bónda í Skáleyjum og konu hans
Ástríðar Guðmundsdóttur. Móðir
Theodóru var Katrín Ólafsdóttir Sí-
vertsen prófasts og alþingismanns í
Flatey. Skúli og Theodóra voru þre-
menningar.
Þegar séra Guðmundur hafði setið
á Kvennabrekku í tvo áratugi fluttist
hann að Breiðabólstað á Skógar-
strönd og bjó þar til æviloka, árið
1882. Katrín og Guðmundur eignuð-
ust fimmtán börn en aðeins þrjú
þeirra komust til fullorðinsára, Ást-
hildur, sem varð eiginkona Péturs
Thorsteinssonar kaupmanns og út-
gerðarmanns, Ólafur er varð læknir
á Stórólfshvoli og Theodóra.
Skúli Thoroddsen var aðeins 26
ára þegar hann var skipaður sýslu-
maður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfóg-
eti á Ísafirði, þann 6. október 1885.
Þá var Ísafjörður annar stærsti
kaupstaður á landinu. Varla verður
annað sagt en gustað hafi um Skúla á
meðan hann gegndi þar embætti. Tíu
af þrettán börnum Skúla og Theo-
dóru fæddust á Ísafirði. Eitt barn
misstu þau hjón á meðan þau bjuggu
þar.
Á Ísafjarðarárum sínum stofnaði
Skúli prentsmiðju ásamt nokkrum
öðrum. Í þessari prentsmiðju var
fyrsta blað Þjóðviljans prentað.
Árið 1901 fluttist fjölskyldan að
Bessastöðum á Álftanesi. Þar fædd-
ust þrjú yngstu systkinin og var Sig-
urður Thoroddsen verkfræðingur
elstur þeirra. Í æviminningum hans,
„Eins og gengur“, eru skemmtilegar
frásagnir frá æskuárunum bæði frá
Bessastöðum og Vonarstræti 12.
Grímur Thomsen hafði búið á Bessa-
stöðum þegar hann lést árið 1896
seldi ekkja hans, Jakobína Jónsdótt-
ir, jörðina með húsum og kirkju
Landsbanka Íslands. Skúli virðist
strax hafa fengið áhuga á staðnum
en það var úr vöndu að ráða fyrir
hann að versla við Landsbankann
þar sem Tryggvi Gunnarsson réð
ríkjum, en vegna ólíkra stjórnmála-
Vonarstræti 12
Skúli Thoroddsen, sýslumaður, alþingismaður og
ritstjóri, reisti húsið við Vonarstræti 12 árið 1908,
segir Freyja Jónsdóttir. Húsið þótti mjög
veglegt á þeirra tíma vísu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vonarstræti 12 árið 1912.
Opið virka daga
frá kl. 8-12 og 13-17
Einbýlishús
LÆKJARSEL
Glæsilegt 387 fm einbýlishús með
tvöföldum bílskúr, teiknað af Kjartani
Sveinssyni. Íbúðarhús á tveim jafn-
stórum hæðum með tveim íbúðum.
Á efri hæðinni er keyrt að aðalhæð-
inni og á neðri hæðinni er minni íbúð
með sérinngangi sem hefur stækkun-
armöguleika. Húsið er allt hið vand-
aðasta, með vönduðum innréttingum
og gólfefnum. Hús með mikla mögu-
leika. 7800
LEIRUTANGI
Á einum vinsælasta stað í Mosfells-
bænum er til sölu 200 fm einbýlishús
á einni hæð með fallegri og stórri lóð.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, stofa,
borðstofa, sjónvarpshol, eldhús og
bað ásamt rúmgóðum innbyggðum
bílskúr. 7825
Sýnishorn úr söluskrá
4ra herb. og stærri
LAUGARNESVEGUR
Til sölu rúmgóð 101 fm 4ra herbergja
íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýlishúsi.
Íbúðin er óvenju rúmgóð, með ágætri
sameign. Áhugaverð snyrtileg íbúð,
að hluta í upprunalegu ástandi. Íbúð
sem vert er að skoða. 3722
KLUKKUBERG - HAFNAR-
FJÖRÐUR
Um er að ræða mjög fallega og góða
íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi
og stórri verönd út úr stofu. Íbúðin
skiptist í forstofu, baðherbergi, hol,
stofu, eldhús og eitt svefnherbergi.
Forstofan er flísalögð með fataskáp
og fatahengi. Baðherbergið er stórt,z
flísalagt með baðkari og þvottaað-
stöðu. Góð gólfefni og fallegar inn-
réttingar. Verð 12,9 m. 3723
NÓNHÆÐ - GARÐABÆR
Nýkomin í sölu ágæt 4ra herbergja
112 fm íbúð á 1. hæð. Íbúðin er rúm-
góð og björt. Stofan er rúmgóð og
nýtist einnig sem borðstofa. Gott
skápapláss. Svalir í suðvestur.
Parket og dúkur á gólfum. Stutt í
leikskóla, skóla og alla þjónustu.
Sameign mjög snyrtileg. Íbúðin er
laus strax. 3726
Landsbyggðin
LAUGARÁS - BISKUPSTUNGUR
Til sölu áhugav. glæsil. 137 fm einb. á
einni hæð auk um 50 fm bílskúrs. Hér
er um að ræða skemmtil. eign,
byggða eftir 1980. Húsið er í fögru
umhverfi. Hitaveita, stór ræktuð lóð.
Eign sem vert er að skoða. 14320
BÚJARÐIR BÚJARÐIR
Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða m.a. hlunnindajarðir,
jarðir með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir garð-
yrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frístundabúskap og ferða-
þjónustu. Jarðir þessar eru víðsvegar um landið. Erum einnig með á
söluskrá fjölda sumarhúsa og hesthúsa. Hjá okkur er einnig oft til
sölu framleiðsluréttur í mjólk. Lítið við á www.fmeignir.is eða fáið
senda söluskrá í pósti eða á skrifstofu.
SELFOSS - EINBÝLI - ÚTSÝNI
Til sölu áhugavert 153 fm einbýli sem
er hæð og ris. Eignarlóð. Góður út-
sýnisstaður. Fyrirliggjandi samþ.
teikning af tvöföldum bílskúr. Laust
fljótlega. 14289
REYKJAMÖRK - HVERAGERÐI
Gott 229 fm einbýli ásamt 31 fm bíl-
skúr. Um er að ræða glæsilegt stein-
hús byggt 1971. Eign sem áhugavert
er að skoða. Verð 17,8 m. 14324
EINBÝLISHÚS
Sunnubraut 202 fm einbýli á einni
hæð með innbyggðum bílskúr. Hús á mjög
eftirsóttum stað við sjávargötu. Einkas. V
20.0 m
Álfhólsvegur 152 fm nýl. endurbyggt
einb. á tveimur hæðum 5 svefnh. 41 fm bíl-
skúr, einkas. V 18,0 m.
Langabrekka 257 fm einbýli á tveim-
ur hæðum, góð innr. í eldh. 4 svh. Á jarðh.
er 2ja herb. ósamþykkt íbúð, 43 fm bílskúr,
mikið útsýni.
Hrauntunga 138 fm einbýli á einni
hæð, mikið endurnýjað, t.d. nýl. innr. í eld-
húsi, 4 svefnh. 36 fm bílskúr, eign í mjög
góðu lagi. Einkas.
Furugrund 133 fm einbýli á einni
hæð, nýlegt parket, 4 svefnh., 30 fm bíl-
skúr. Einkas.
RAÐHÚS OG PARHÚS
Starengi Glæsilegt 150 fm endaraðhús
á einni hæð, mjög fallegar innréttingar,
gegnheilt parket, 21 fm bílskúr, einkasala.
(958)
Bræðratunga 124 fm raðhús á
tveimur hæðum, 3 svefnh. laust fljótl. áhv.
3,0 m. Byggsj. Einkasala. V 16,3 m. (944)
Fjarðarsel 147 fm mikið endurnýjað
endaraðhús, 4 svefnh. 24 fm bílskúr (929)
SÉR HÆÐIR.
Þinghólsbraut 133 fm efri hæð með
sér inng. í tvíbýli, 4 svefnh. falleg innrétting
í eldhúsi, parket á gólfum, góð eign, bíl-
skúrsréttur.
2JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐIR.
Stórholt 3ja herb. 77 fm á 1. hæð í tví-
býli, nýleg innr. í eldhúsi, aukaherb. í kjall-
ara, einkas. V 9,8 m.
Gnoðavogur 77 fm 3ja herb. enda
íbúð á 2. hæð, laus strax, einkas.
Reynihvammur 60 fm neðri hæð
með sér inng. í tvíbýli afh. fullfrágengið að
utan án málningar og tilbúið til innréttingar.
Til afh. strax.
Þinghólsbraut 104,7 fm á 1. hæð
með sér inng. 4 svefnh.
NÝBYGGINGAR.
Jónsgeisli 215,7 fm raðhús á tveimur
hæðum 4 svefnh. stór stofa, 22 fm bílskúr.
Afhent tilbúið að utan með grófjafnaðri lóð,
en að innan fulleinangrað og múrðir út-
veggir, maghónií-gluggar.
Atvinnuhúsalóð 2070 fm til sölu,
samþykktar teikingar fyrir 1026 fm húsi,
byggingarhæf í vor.
SUMARHÚSALÓÐIR
Eigum eftir nokkra skógivaxnar lóðir í landi
Hvamms við Skorradalsvatn. Allar nánari
uppl. og teikningar á skrifstofu og á
www.eignaborg.is
HÖFUM Fjársterkan kaupanda að einbýlis-
húsi við Birkigrund í Kópavogi.Sjá nánar
og fleiri eignir á á netinu www.eigna-
borg.is/
SJÁ NÁNAR OG FLEIRI EIGNIR Á NETINU WWW.EIGNABORG.IS/—
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA