Morgunblaðið - 19.03.2002, Side 43

Morgunblaðið - 19.03.2002, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 C 43HeimiliFasteignir ilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr- ir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó aldrei yfir 50%.  Skipulagsgjald – Skipulagsgjald er greitt af nýreistum húsum. Af hverri byggingu, sem reist er, skal greiða 3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af brunabótavirðingu hverrar húseignar. Nýbygging telst hvert nýreist hús, sem virt er til brunabóta svo og við- byggingar við eldri hús, ef virðing- arverð hinnar nýju viðbyggingar nem- ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á einnig við um endurbætur, sem hækka brunabótavirðingu um 1/5. Húsbyggjendur  Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug- lýsingar um ný byggingarsvæði geta væntanlegir umsækjendur kynnt sér þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar eru á hverjum tíma hjá byggingaryf- irvöldum í viðkomandi bæjar- eða sveitarfélögum – í Reykjavík á skrif- stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2. Skilmálar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðublað og senda aftur til viðkom- andi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í umsókn að gera tillögu að húshönn- uði en slíkra sérupplýsinga er þá get- ið í skipulagsskilmálum og á umsókn- areyðublöðum.  Lóðaúthlutun – Þeim sem út- hlutað er lóð, fá um það skriflega til- kynningu, úthlutunarbréf og þar er þeim gefinn kostur á að staðfesta út- hlutunina innan tilskilins tíma, sem venjulega er um 1 mánuður. Þar koma einnig fram upplýsingar um upphæðir gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaút- hlutun taki gildi eru að áætluð gatna- gerðargjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaúthlutunar fá lóðarhafar afhent nauðsynleg gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo og hæðarblað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyfisumsókn til bygging- arnefndar, auk frekari gagna ef því er að skipta.  Gjöld – Gatnagerðargjöld eru mis- munandi eftir bæjar- og sveit- arfélögum. Upplýsingar um gatna- gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá borgarverkfræðingi en annars staðar hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 30% sex mánuðum eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum eftir úthlutun og loks 30% átján mánuðum eftir úthlutun.  Framkvæmdir – Áður en unnt er að hefjast handa um framkvæmdir þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst byggingaleyfi og til að fá það þurfa bygginganefndarteikningar að vera samþykktar og stimplaðar og eft- irstöðvar gatnagerðargjalds og önnur gjöld að vera greidd. Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóð- arafhendingu, sem kemur þegar byggingarleyfi er fengið og nauðsyn- legum framkvæmdum sveitarfélags er lokið, svo sem gatna- og holræsa- framkvæmdum. Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað- setningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig byggingarleyfi að liggja fyrir, lóðarafhending að hafa farið fram og meistarar að hafa skrifað upp á teikningar hjá byggingarfull- trúa. Fylla þarf út umsókn um vinnu- heimtaugarleyfi til rafmagnsveitu og með þeirri umsókn þarf að fylgja byggingarleyfi, afstöðumynd sem fylgir byggingarnefndarteikningu og umsókn um raforku með undirskrift rafverktaka og húsbyggjanda. Umsækjanda er tilkynnt hvort hann uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og staðfestir þá leyfið með því að greiða heimtaugargjald. Fljótlega þarf að leggja fram sökklateikningar hjá byggingarfulltrúa og fá þær stimpl- aðar en að því búnu geta fram- kvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf út- tektir á ýmsum stigum framkvæmda og sjá meistarar um að fá bygginga- fulltrúa til að framkvæma þær.  Fokhelt – Fokheldisvottorð, skil- málavottorð og lóðasamningur eru mikilvæg plögg fyrir húsbyggjendur og t.a.m. er fyrsta útborgun húsnæð- islána bundin því að fokheldisvottorð liggi fyrir. Byggingarfulltrúar gefa út fokheldisvottorð og skilmálavottorð og til að þau fáist þarf hús að vera fokhelt, lóðarúttekt að hafa farið fram og öll gjöld, sem þá eru gjald- fallin að hafa verið greidd. Skrifstofur bæja- og sveitarfélaga (í Reykjavík skrifstofa borgarstjóra) gera lóð- arsamning við lóðarleigjanda að upp- fylltum ýmsum skilyrðum, sem geta verið breytileg eftir tíma og að- stæðum. Þegar lóðarsamningi hefur verið þinglýst, getur lóðarhafi veð- sett mannvirki á lóðinni. Húsbréf  Húsbréfalán – Lán innan hús- bréfakerfisins eru svokölluð hús- bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á not- uðum íbúðum, til nýbygginga einstaklinga, nýbygginga bygging- araðila og til endurbóta á eldra hús- næði. Annars vegar er um að ræða fasteignaveðbréf, sem gefin eru út af íbúðarkaupanda, húsbyggjanda eða íbúðareiganda, og eru þau skuldavið- urkenningar þessara aðila. Húsbréfin sjálf koma kaupanda ekki beint við. Seljendur aftur á móti eignast hús- bréf með því að selja Íbúðalánasjóði fasteignaveðbréfin. Þar með losna seljendur við að inn- heimta afborganir af fasteignaveð- bréfunum og geta notað húsbréfin á þann hátt, sem þeir kjósa; ýmist með því að selja þau á verðbréfamarkaði, eiga þau sem sparnað eða nota hús- bréfin til að greiða með annaðhvort við kaup, eða upp í skuldir sínar. Hér að neðan er birt dæmi um þann feril, sem á sér stað við kaup á notaðri íbúð. Frekari upplýsingar ásamt al- mennri fjármálaráðgjöf í tengslum við lánveitinguna veita bankar og spari- sjóðir.  Kaup á notaðri íbúð  Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni, er að umsækjandi verður að sækja um skriflegt mat á greiðslugetu sinni hjá banka eða sparisjóði.  Þegar mat þetta er fengið, gildir það í sex mánuði.  Umsækjandi skoðar sig um á fast- eignamarkaðnum í leit að notaðri íbúð.  Þegar hann hefur í höndum sam- þykkt kauptilboð, kemur hann því til Íbúðalánasjóðs ásamt greiðslu- matskýrslu og öðrum fylgigögnum  Meti stofnunin kauptilboðið láns- hæft, fær íbúðarkaupandinn afhent fasteignaveðbréfið til undirritunar og hann getur gert kaupsamning.  Fasteignaveðbréfið er síðan afhent seljanda eftir undirskrift.  Því næst lætur kaupandi þinglýsa kaupsamningi og kemur afriti til seljanda.  Seljandi lætur þinglýsa fast- eignaveðbréfinu, útgefnu af kaup- andanum, sem Íbúðalánasjóður síðan kaupir og greiðir fyrir með húsbréfum. Afgreiðsla þeirra fer fram hjá Íbúðalánasjóði.  Stofnunin sér um innheimtu af- borgana af fasteignaveðbréfinu.  Lánskjör – Fasteignaveðbréfið er verðtryggt. Lánstími er 25 eða 40 ár og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir eru fastir og breytast því ekki á lánstím- anum. Gjalddagar á nýjum fast- eignaveðbréfum eru nú mánaðarlega eða ársfjórðungslega og afborganir hefjast á 3ja reglulega gjalddaga frá útgáfu bréfsins, sé um mánaðarlega gjalddaga að ræða og öðrum reglu- lega gjalddaga sé um ársfjórðungs- lega gjalddaga að ræða. Á allar greiðslur, bæði vexti og af- borganir, eru jafnan reiknaðar verð- bætur í samræmi við neyzluvísitölu. Lántökugjald er 1%. Mánaðarleg greiðslubyrði af 1 millj. króna láni til 25 ára er í dag 5.924 kr.  Önnur lán– Íbúðalánasjóður veitir einnig fyrirgreiðslu vegna byggingar leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða, meiriháttar endurnýjunar og end- urbóta eða viðbygginga við eldra íbúðarhúsnæði. Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til félaga sinna vegna húsnæðiskaupa, svo að rétt er fyrir hvern og einn að kanna rétt sinn þar. Möguleikar á lán- um til kaupa á íbúðarhúsnæði kunna einnig að vera fyrir hendi hjá bönkum og sparisjóðum. VELÚRKAPPI á 2.590 kr. metrinn, fæst í Álnabæ, storis kostar 3.490 metrinn. Velúr KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ Um 170 fm tveggja hæða raðhús með innbyggðum bílskúr. Tilbúið að utan og fokhelt að innan. ATH. Húsin verða einangruð að utan og k lædd álklæðningu. Verð frá 15,1 millj. KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ Um 113 fm endaíbúðir í litlum 2ja og 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 14,5 millj. LAUGARNESVEGUR Vandaðar 130 til 140 fm íbúðir á frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6 hæða fjölbýli með sérinngangi af svalagangi. Lyftublokk með bíla geymsluhúsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf verða flísalögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn. Verð frá 18,7 millj. Nýjar íbúðir til sölu hjá LAUGARNESVEGUR Vandaðar 110 til 130 fm íbúðir á frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6 hæða fjölbýli með sérinngangi af svala- gangi. Lyftublokk með bílageymsluhúsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf verða flísalögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn. Verð frá 15,8 millj. KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ Milli 75 og 80 fm íbúðir í litlum 2ja og 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 11,1 millj. LAUGARNESVEGUR Vandaðar tæplega 90 fm íbúðir á frá- bærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6 hæða fjölbýli með sérinngangi af svalagangi. Lyftublokk með bílageymslu- húsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf verða flísa- lögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn. Verð frá 13,3 millj. MÁNATÚN Örfáar 80 fm íbúðir í 7 hæða mjög vönduðum fjölbýlishúsum. Mjög eftirsóttur staður. Lyftublokk með bíla- geymsluhúsi. Afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf verða flísalögð. Verð frá 12,6 millj. KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ 59 til 66 fm íbúðir í litlum 2ja og 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 9,0 millj. 3ja herbergja 2ja herbergja 4ra herbergja Raðhús Þrjár staðsetningar 5 herbergja KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ Um 100 fm íbúðir í litlum 2ja og 3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru einangruð að utan og klædd harðviði og álklæðningu. Sérinngangur er inn í allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergis- og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli, leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni. Verð frá 13 millj. MÁNATÚN Örfáar 90 til 103 fm íbúðir í glæsilegum 7 hæða fjölbýlishúsum. Mjög eftirsóttur staður. Lyftublokk með bílageymsluhúsi. Afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf verða flísalögð. Verð frá 13,4 millj. Innréttingar eru sérlega vandaðar en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina a eigin smekk tökum við vel í slíkar óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma. Söludeild okkar er að Suðurlandsbraut 24, sími 530 4200. Einnig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is. Nánari upplýsingar Breytingar á íbúðum KARÖFLUR frá Holme Gaard, dönsk framleiðsla frá Royal Copen- hagen, 3.370 kr. karafla, 2.375 tvö staup í pakka. Fæst í Kúnígúnd. frá Holme Gaard MYND Þórðar Hall, Stilla, er unnin með olíulitum á striga. Myndin kostar 45 þúsund kr. og er til sölu í Meistara Jakob. Stilla ÞESSIR bangsar frá Flamant eru belgískir og kosta 3.700 og 8.200, fást Í húsinu við Ingólfs- stræti. Bangsar Taska aðeins 750 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.