Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 C 43HeimiliFasteignir
ilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr-
ir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó
aldrei yfir 50%.
Skipulagsgjald – Skipulagsgjald er
greitt af nýreistum húsum. Af hverri
byggingu, sem reist er, skal greiða
3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af
brunabótavirðingu hverrar húseignar.
Nýbygging telst hvert nýreist hús,
sem virt er til brunabóta svo og við-
byggingar við eldri hús, ef virðing-
arverð hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á
einnig við um endurbætur, sem
hækka brunabótavirðingu um 1/5.
Húsbyggjendur
Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug-
lýsingar um ný byggingarsvæði geta
væntanlegir umsækjendur kynnt sér
þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar
eru á hverjum tíma hjá byggingaryf-
irvöldum í viðkomandi bæjar- eða
sveitarfélögum – í Reykjavík á skrif-
stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2. Skilmálar eru þar afhentir gegn
gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur
skulu fylla út nákvæmlega þar til gert
eyðublað og senda aftur til viðkom-
andi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í
umsókn að gera tillögu að húshönn-
uði en slíkra sérupplýsinga er þá get-
ið í skipulagsskilmálum og á umsókn-
areyðublöðum.
Lóðaúthlutun – Þeim sem út-
hlutað er lóð, fá um það skriflega til-
kynningu, úthlutunarbréf og þar er
þeim gefinn kostur á að staðfesta út-
hlutunina innan tilskilins tíma, sem
venjulega er um 1 mánuður. Þar koma
einnig fram upplýsingar um upphæðir
gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaút-
hlutun taki gildi eru að áætluð gatna-
gerðargjöld o.fl. séu greidd á réttum
tíma. Við staðfestingu lóðaúthlutunar
fá lóðarhafar afhent nauðsynleg
gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo
og hæðarblað í tvíriti og skal annað
þeirra fylgja leyfisumsókn til bygging-
arnefndar, auk frekari gagna ef því er
að skipta.
Gjöld – Gatnagerðargjöld eru mis-
munandi eftir bæjar- og sveit-
arfélögum. Upplýsingar um gatna-
gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá
borgarverkfræðingi en annars staðar
hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma
til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að
greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá
úthlutun, síðan 30% sex mánuðum
eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum
eftir úthlutun og loks 30% átján
mánuðum eftir úthlutun.
Framkvæmdir – Áður en unnt er
að hefjast handa um framkvæmdir
þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst
byggingaleyfi og til að fá það þurfa
bygginganefndarteikningar að vera
samþykktar og stimplaðar og eft-
irstöðvar gatnagerðargjalds og önnur
gjöld að vera greidd.
Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóð-
arafhendingu, sem kemur þegar
byggingarleyfi er fengið og nauðsyn-
legum framkvæmdum sveitarfélags
er lokið, svo sem gatna- og holræsa-
framkvæmdum.
Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað-
setningarmæling bygginga á lóð en
þá þarf einnig byggingarleyfi að liggja
fyrir, lóðarafhending að hafa farið
fram og meistarar að hafa skrifað
upp á teikningar hjá byggingarfull-
trúa. Fylla þarf út umsókn um vinnu-
heimtaugarleyfi til rafmagnsveitu og
með þeirri umsókn þarf að fylgja
byggingarleyfi, afstöðumynd sem
fylgir byggingarnefndarteikningu og
umsókn um raforku með undirskrift
rafverktaka og húsbyggjanda.
Umsækjanda er tilkynnt hvort hann
uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og
staðfestir þá leyfið með því að greiða
heimtaugargjald. Fljótlega þarf að
leggja fram sökklateikningar hjá
byggingarfulltrúa og fá þær stimpl-
aðar en að því búnu geta fram-
kvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf út-
tektir á ýmsum stigum framkvæmda
og sjá meistarar um að fá bygginga-
fulltrúa til að framkvæma þær.
Fokhelt – Fokheldisvottorð, skil-
málavottorð og lóðasamningur eru
mikilvæg plögg fyrir húsbyggjendur
og t.a.m. er fyrsta útborgun húsnæð-
islána bundin því að fokheldisvottorð
liggi fyrir. Byggingarfulltrúar gefa út
fokheldisvottorð og skilmálavottorð
og til að þau fáist þarf hús að vera
fokhelt, lóðarúttekt að hafa farið
fram og öll gjöld, sem þá eru gjald-
fallin að hafa verið greidd. Skrifstofur
bæja- og sveitarfélaga (í Reykjavík
skrifstofa borgarstjóra) gera lóð-
arsamning við lóðarleigjanda að upp-
fylltum ýmsum skilyrðum, sem geta
verið breytileg eftir tíma og að-
stæðum. Þegar lóðarsamningi hefur
verið þinglýst, getur lóðarhafi veð-
sett mannvirki á lóðinni.
Húsbréf
Húsbréfalán – Lán innan hús-
bréfakerfisins eru svokölluð hús-
bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á not-
uðum íbúðum, til nýbygginga
einstaklinga, nýbygginga bygging-
araðila og til endurbóta á eldra hús-
næði. Annars vegar er um að ræða
fasteignaveðbréf, sem gefin eru út af
íbúðarkaupanda, húsbyggjanda eða
íbúðareiganda, og eru þau skuldavið-
urkenningar þessara aðila. Húsbréfin
sjálf koma kaupanda ekki beint við.
Seljendur aftur á móti eignast hús-
bréf með því að selja Íbúðalánasjóði
fasteignaveðbréfin.
Þar með losna seljendur við að inn-
heimta afborganir af fasteignaveð-
bréfunum og geta notað húsbréfin á
þann hátt, sem þeir kjósa; ýmist með
því að selja þau á verðbréfamarkaði,
eiga þau sem sparnað eða nota hús-
bréfin til að greiða með annaðhvort
við kaup, eða upp í skuldir sínar. Hér
að neðan er birt dæmi um þann feril,
sem á sér stað við kaup á notaðri
íbúð. Frekari upplýsingar ásamt al-
mennri fjármálaráðgjöf í tengslum við
lánveitinguna veita bankar og spari-
sjóðir.
Kaup á notaðri íbúð
Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni, er
að umsækjandi verður að sækja
um skriflegt mat á greiðslugetu
sinni hjá banka eða sparisjóði.
Þegar mat þetta er fengið, gildir
það í sex mánuði.
Umsækjandi skoðar sig um á fast-
eignamarkaðnum í leit að notaðri
íbúð.
Þegar hann hefur í höndum sam-
þykkt kauptilboð, kemur hann því
til Íbúðalánasjóðs ásamt greiðslu-
matskýrslu og öðrum fylgigögnum
Meti stofnunin kauptilboðið láns-
hæft, fær íbúðarkaupandinn afhent
fasteignaveðbréfið til undirritunar
og hann getur gert kaupsamning.
Fasteignaveðbréfið er síðan afhent
seljanda eftir undirskrift.
Því næst lætur kaupandi þinglýsa
kaupsamningi og kemur afriti til
seljanda.
Seljandi lætur þinglýsa fast-
eignaveðbréfinu, útgefnu af kaup-
andanum, sem Íbúðalánasjóður
síðan kaupir og greiðir fyrir með
húsbréfum. Afgreiðsla þeirra fer
fram hjá Íbúðalánasjóði.
Stofnunin sér um innheimtu af-
borgana af fasteignaveðbréfinu.
Lánskjör – Fasteignaveðbréfið er
verðtryggt. Lánstími er 25 eða 40 ár
og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir eru
fastir og breytast því ekki á lánstím-
anum. Gjalddagar á nýjum fast-
eignaveðbréfum eru nú mánaðarlega
eða ársfjórðungslega og afborganir
hefjast á 3ja reglulega gjalddaga frá
útgáfu bréfsins, sé um mánaðarlega
gjalddaga að ræða og öðrum reglu-
lega gjalddaga sé um ársfjórðungs-
lega gjalddaga að ræða.
Á allar greiðslur, bæði vexti og af-
borganir, eru jafnan reiknaðar verð-
bætur í samræmi við neyzluvísitölu.
Lántökugjald er 1%. Mánaðarleg
greiðslubyrði af 1 millj. króna láni til
25 ára er í dag 5.924 kr.
Önnur lán– Íbúðalánasjóður veitir
einnig fyrirgreiðslu vegna byggingar
leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða,
meiriháttar endurnýjunar og end-
urbóta eða viðbygginga við eldra
íbúðarhúsnæði.
Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til
félaga sinna vegna húsnæðiskaupa,
svo að rétt er fyrir hvern og einn að
kanna rétt sinn þar. Möguleikar á lán-
um til kaupa á íbúðarhúsnæði kunna
einnig að vera fyrir hendi hjá bönkum
og sparisjóðum.
VELÚRKAPPI á 2.590 kr. metrinn,
fæst í Álnabæ, storis kostar 3.490
metrinn.
Velúr
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
Um 170 fm tveggja hæða raðhús með
innbyggðum bílskúr. Tilbúið að utan
og fokhelt að innan. ATH. Húsin verða
einangruð að utan og k lædd
álklæðningu.
Verð frá 15,1 millj.
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
Um 113 fm endaíbúðir í litlum 2ja og
3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru
einangruð að utan og klædd harðviði
og álklæðningu. Sérinngangur er inn í
allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-
og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli,
leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 14,5 millj.
LAUGARNESVEGUR
Vandaðar 130 til 140 fm íbúðir á
frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða
6 hæða fjölbýli með sérinngangi af
svalagangi. Lyftublokk með bíla
geymsluhúsi. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna en baðherbergisgólf
verða flísalögð. Stutt í laugarnar og
miðbæinn.
Verð frá 18,7 millj.
Nýjar íbúðir til sölu hjá
LAUGARNESVEGUR
Vandaðar 110 til 130 fm íbúðir á
frábærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6
hæða fjölbýli með sérinngangi af svala-
gangi. Lyftublokk með bílageymsluhúsi.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna
en baðherbergisgólf verða flísalögð.
Stutt í laugarnar og miðbæinn.
Verð frá 15,8 millj.
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
Milli 75 og 80 fm íbúðir í litlum 2ja og
3ja hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru
einangruð að utan og klædd harðviði
og álklæðningu. Sérinngangur er inn í
allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-
og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli,
leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni.
Verð frá 11,1 millj.
LAUGARNESVEGUR
Vandaðar tæplega 90 fm íbúðir á frá-
bærum stað í höfuðborginni. 5 eða 6
hæða fjölbýli með sérinngangi af
svalagangi. Lyftublokk með bílageymslu-
húsi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án
gólfefna en baðherbergisgólf verða flísa-
lögð. Stutt í laugarnar og miðbæinn.
Verð frá 13,3 millj.
MÁNATÚN
Örfáar 80 fm íbúðir í 7 hæða mjög
vönduðum fjölbýlishúsum. Mjög
eftirsóttur staður. Lyftublokk með bíla-
geymsluhúsi. Afhendast fullbúnar án
gólfefna en baðherbergisgólf verða
flísalögð.
Verð frá 12,6 millj.
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
59 til 66 fm íbúðir í litlum 2ja og 3ja
hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru
einangruð að utan og klædd harðviði og
álklæðningu. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-
og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli,
leikskóli og öll þjónusta í næsta nágrenni.
Verð frá 9,0 millj.
3ja herbergja
2ja herbergja
4ra herbergja
Raðhús Þrjár staðsetningar
5 herbergja
KLAPPARHLÍÐ - MOSFELLSBÆ
Um 100 fm íbúðir í litlum 2ja og 3ja
hæða fjölbýlishúsum. Húsin eru
einangruð að utan og klædd harðviði
og álklæðningu. Sérinngangur er inn í
allar íbúðirnar. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar án gólfefna en baðherbergis-
og þvottahúsgólf verða flísalögð. Skóli,
leikskóli og öll þjónusta í næsta
nágrenni.
Verð frá 13 millj.
MÁNATÚN
Örfáar 90 til 103 fm íbúðir í glæsilegum
7 hæða fjölbýlishúsum. Mjög eftirsóttur
staður. Lyftublokk með bílageymsluhúsi.
Afhendast fullbúnar án gólfefna en
baðherbergisgólf verða flísalögð.
Verð frá 13,4 millj.
Innréttingar eru sérlega vandaðar en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina a
eigin smekk tökum við vel í slíkar óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma.
Söludeild okkar er að Suðurlandsbraut 24, sími 530 4200. Einnig
eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is.
Nánari upplýsingar Breytingar á íbúðum
KARÖFLUR frá Holme Gaard,
dönsk framleiðsla frá Royal Copen-
hagen, 3.370 kr. karafla, 2.375 tvö
staup í pakka. Fæst í Kúnígúnd.
frá Holme Gaard
MYND Þórðar Hall, Stilla, er unnin
með olíulitum á striga. Myndin
kostar 45 þúsund kr. og er til sölu í
Meistara Jakob.
Stilla
ÞESSIR bangsar frá Flamant eru
belgískir og kosta 3.700 og
8.200, fást Í húsinu við Ingólfs-
stræti.
Bangsar Taska
aðeins 750 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is