Morgunblaðið - 28.03.2002, Síða 38
MINNINGAR
38 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ísleif IngibjörgJónsdóttir fædd-
ist 9. júní 1910 á
Borgareyrum og ólst
þar upp. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Lundi á Hellu, mið-
vikudaginn 20. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Jón
Ingvarsson, f. 28.9.
1872, d. 9.3. 1950, og
Bóel Sigurleif Er-
lendsdóttir, f. 1.11.
1878, d. 21.10. 1960,
en þau bjuggu á
Borgareyrum í V-
Eyjafjallahreppi. Systkini Ísleifar
Ingibjargar eru Júlíus, f. 15.7.
1902, d. 20.7. 1902; Guðmundur
Júlíus, f. 6.1. 1904, d. 16.1. 1989;
Markús, f. 6.3. 1905, d. 28.7. 1988,
og Sigríður, f. 19.9. 1911. Ísleif
Ingibjörg giftist 1931 Árna
Kristni Sigurðssyni, f. 20.12. 1902,
d. 11.11. 1983. Þau
bjuggu á Bjarka-
landi, V-Eyjafjalla-
hreppi. Börn Ísleifar
Ingibjargar og Árna
Kristins eru: 1) Sig-
urður, f. 26.4. 1932;
2) Unnur, f. 25.11.
1934, d. 23.10. 1935;
3) Trausti, f. 2.8.
1936, kvæntur Ernu
Markúsdóttur, f. 9.8.
1947. Börn Trausta
og Ernu eru Edda, f.
10.6. 1979, og Árni,
f. 5.1. 1984; 4) Bragi,
f. 14.6. 1938; og 5)
Valdimar, f. 27.3. 1946, d. 30.6.
2000, kvæntur Þórnýju Guðna-
dóttur, f. 17.2. 1963.
Útför Ísleifar Ingibjargar fer
fram frá Stóra-Dalskirkju í V-
Eyjafjallahreppi laugardaginn 30.
mars og hefst athöfnin klukkan
14.
„Ég hef augu mín til fjallanna
hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín
kemur frá Drottni skapara himins
og jarðar.“ Þetta er upphafið á einu
þeirra ljóða sem kennt er við Davíð
konung og eru gyðingum og kristn-
um mönnum meðal kærustu sálma.
Talið er að þetta sé meðal þeirra
sálma sem pílagrímar hafi sungið
þegar hillti undir fjöllin umhverfis
borgina helgu, Jerúsalem.
Þegar ég hugleiði þennan sálm
kemur bærinn Bjarkaland í Vestur-
Eyjafjallahreppi í huga minn og
fjallahringurinn sem umvefur þá
fögru sveit með Eyjafjallajökul sem
gnæfir tignarlegur í austri, Fljóts-
hlíðina í norðri og Vestmanneyjar
sem blasa fagurbláar við í suðri.
Öll þessi fagra umgjörð var stór
hluti bernsku minnar og bróður
míns Sigurjóns en þar vorum við
mörg sumur í sveit hjá heiðurshjón-
unum Árna Kr. Sigurðssyni og Ís-
leifu Jónsdóttur sem nú hefur kvatt
þennan heim eftir starfsaman og
innihaldsríkan ævidag nánar tiltekið
20. mars síðastliðinn en Árni lést ár-
ið 1983. Í bernskuminningunni fær
hin fagra sveit sitt innihald og litróf í
þeim kærleika og þeirri hlýju sem
við bræður nutum svo ótæpilega af
hálfu hjónanna Ísleifar og Árna og
sona þeirra Valdimars, Sigurðar,
Braga og Trausta þau sumur sem
við dvöldum þar.
Ísleif var einstök kona, hún var
ljúf, dugleg og áræðin. Hún sinnti
heimilinu af miklum myndarskap og
var hún eins og sönn eiginkona og
móðir, hjarta síns heimilis. Það fór
enginn bónleiður til búðar þegar
komið var á Bjarkaland, rausnar-
skapur og elskulegheit mættu hverj-
um ferðalangi sem þar bar að garði.
Það var okkur bræðrum mikil
gæfa að fá að dvelja á Bjarkalandi
og margs að minnast er ævi Ísleifar
Jónsdóttur hefur runnið sitt skeið.
Minningar um sterka návist þeirra
hjóna, umhyggju og þær heillagjafir
sem þeim fylgdu og við fengum svo
vel að njóta. Eftir standa fagrar
minningar og dýrmæt reynsla sem
við bræður munum ávallt búa að.
Nú er þökkin efst í huga, þökkin
til Guðs fyrir þá gjöf sem þau hjónin
Ísleif Jónsdóttir og Árni Kr. Sig-
urðsson voru okkur til handa.
Að lokum biðjum við Guð að
blessa og styrkja alla afkomendur
og ástvini þeirra hjóna. Í niðurlagi
þess Davíðssálms sem ég hóf þessa
grein á segir: „Drottinn mun varð-
veita útgöngu þína og inngöngu héð-
an í frá og að eilífu.“ Í þeirri von og
trú kveðjum við heiðurskonuna Ís-
leifu Jónsdóttur.
Björn Sveinn og
Sigurjón Björnssynir.
Hin mikla rausnarkona Ísleif
Jónsdóttir, húsmóðir á Bjarkalandi
undir Eyjafjöllum, er látin tæplega
92ja ára að aldri.
Með þessari mikilhæfu konu er
merkasta húsmóðir aldamótakyn-
slóðarinnar horfin. En ekki verður
Ísleifar svo minnst, að ekki verði
sagt með nokkrum orðum frá hinum
stórbrotna eiginmanni hennar, Árna
Sigurðssyni, sem lést 1983 þá 81 árs.
Þau hjónin, Ísleif og Árni, reistu ný-
býlið Bjarkaland undir Eyjafjöllum
upp úr 1930 þar sem þau bjuggu
rausnarbúi til æfiloka. Með þeim við
búskapinn hin síðari ár voru þeir
synir þeirra, Sigurður, Bragi og
Valdimar. Eftir fráfall Árna bjó Ís-
leif áfram með sonum sínum sama
rausnarbúinu að Bjarkalandi. Einn
sonur Árna og Ísleifar, Trausti, er
búsettur í Reykjavík.
Fyrir um ári síðan varð Ísleif fyrir
því mikla áfalli, að missa yngsta son
sinn, Valdimar, en hann var þá ný-
kvæntur, Valdimar var einstakur at-
gervismaður – virtur og dáður af öll-
um, sem hann þekktu. Sorgin við
fráfall hans var því þungbær, ekki
síst fyrir móðurina öldruðu og eig-
inkonuna ungu, Þórnýju Guðnadótt-
ir. Stúlkubarn misstu þau hjónin á
Bjarkalandi í frumbernsku.
Við hjónin, sem þessar línur rit-
um, vorum þess láns aðnjótandi, að
tveir sona okkar dvöldust mörg
sumur hjá þessari mikilhæfu og
gæskuríku fjölskyldu. Þarna var
hinn besti skóli fyrir drengina okk-
ar, enda hafa þeir báðir haft á orði
hvílíkrar gæfu þeir hafi orðið aðnjót-
andi við kynnin af þessum góðu
hjónum og sonum þeirra. Þarna
lærðu þeir góða siði og virðingu fyrir
öllum mönnum lágum sem háum.
Þarna var öllum vel tekið, með alúð
og hlýju, enda var Bjarkalandsheim-
ilið orðlagt fyrir gestrisni og mynd-
arbrag.
Bæði voru þau hjón, Ísleif og
Árni, góðum gáfum gædd og var
Árni skáld gott – þó að lítt flíkaði
hann kveðskap sínum. Þá var lestur
góðra bókmennta iðkaður og saga
þjóðarinnar í hávegum höfð.
Trúrækni var mikil með fjölskyld-
unni á Bjarkalandi og skal þess get-
ið, að Árni söng í kirkjukór sóknar
sinnar árum saman.
En nú eru þessi elskulegu hjón
horfin yfir móðuna miklu.
Við Sigríður og fjölskylda okkar
öll þökkum vináttu og velgjörðir
Bjarkalandshjónanna og biðjum
góðan Guð að varðveita þau og
blessa um alla ókomna tíð.
Sigríður
og Björn Önundarson.
ÍSLEIF INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
! " ##
$ % & ' ('(
$& '
& ' ) *+
,+ - % +
+
& '.
!
"
/,0
1* 23
45
# $
%" & ' &' "( )
*
+,
& "-)- &
.,
/
' '6
7 '
!89 : '
$ *
. '6+ ) $* '
) $*'
4 1 ) $*+
) 5 9) $*+
7 / 18 ' / ! 5% 9 !;+ + .
0
,0
)<0
6 % +:
&$ %=
45
# $
%"
(
)
12
$! 5% >? +
4 4+ 1 +" '
,' :+% 4' 4'
$
* 4' 1 5 % +
1 5. @ ': @
$ 5% .
"'+ .'
'6 '
97 % $4'
6 67 '$6 6 67 .
0
9A
/
$ 4$BC
1+# 4'$
# "
$
%"
" 3%
14
7 ) $*' / $ !+
) $*' %-9$ +
/ ) $*+
9 ) $*+ ,+ ' 9$ '
9 7 5) $*+
97'
4 ) $*' 9 ! * 5%+
6 67 '$6 6 67 .
0
/1A&
A
% 452D
' $
8% ":89'!4 $72=
45
5
%- % ++ 9 + 1.1 8'
$ % +' ) 5 /'+
9+:! 5% +" % ++ + % $'
6 67 '$ $7::67 .
0
"
9/1
)8B
% 6E
# $
%"
6
7
1
+,
("
" 8- "
%"
5
)
)
&
7
# 9
42::21
A +'
$ % A + 9: '
+ A '
A + %: / &4 '
$ 9: '
A 9 !9: '.
0
&
&
/0
! 4.! :4E: + 8/
4$BF
)'!6E
# )
12
+,&
(
%"4
1 5+: +
) $ ?& +
& & '
4+
/% & +
/ ,+ 5& + !'" '
'$! 7 .
!
<A
9/
! 87$ 6 59 * ! %
7$"5%2F
45
# $
%"
6
7
1;
9 + >8'
7 $ 45%+
>8>8'
% *) $ ?>8+ 9 G
$$ 4 5 45% 1
1 5 1 +! >8'$ 45%H .