Vísir - 13.05.1980, Blaðsíða 16
VZSZ2Z
Þriðjudagur 13. mal 1980
Umsjón^
Axei
Ammendrdp,
Pianð-
tónleikar
Jónasar
Sen
i kvðld
Jónas Sen heldur pianótónleika
i Austurbæjarbiói í kvöld kl. 19.
Er það seinni hluti einleikara-
prófs hans frá Tónlistarskólanum
i Reykjavik, en i vetur lék hann
pianókonsert nr. 1 eftir Liszt með
Sinfóniuhljómsveit lslands i
Háskólablói. Á efnisskrá eru verk
Jónas Sen
eftir J.S. Bach, Beethoven,
Schumann og Skrjabin. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
Frá uppsetningu Litla leikklúbbsins á „Hart I bak'
„Hart r bak” á ísafiröi
Litli leikklúbburinn á Isafiröi
frumsýndi „Hart i bak” eftir
Jökul Jakobsson i Alþýöuhúsinu
á Isafiröi á sunnudagskvöldið.
Þessi sýning er færö upp i tilefni
af þvf aö liöin eru 15 ár frá stofnun
leikklúbbsins.
Meö helstu hlutverk I sýning-
unni fara Guörún Eyþórsdóttir,
Kristján Finnbogason, Elisabet
Þorgeirsdóttir og Reynir Sigurös-
son. Leikstjóri er Margrét
Oskarsdóttir.
„Hart i bak” er 32. verkefni
Litla leikklúbbsins þar af hafa 11
veriö fslensk verk og fjögur leik-
rithafa veriö flutt I fyrsta skipti á
tslandi af Litla leikklúbbnum.
Jakob sýnir í Grindavík
Mlniasafni Akureyrar bersl höfðingleg gjöf:
Gaf ðll áhðld og tæki
vlnnustofu sinnar
Oddur Jónsson skósmiöur
hefur nýlega gefiö Minjasafninu
á Akureyri öll áhöld og vélar úr
skósmlöavinnustofu, sinni, sem
hann rak á Akureyri i nær 46 ár
eöa frá árinu 1934 og þar til nú
um siðustu áramót og innti meö
þvi af hendi góöa og merka
þjónustu viö bæjarbúa.
Hér er um afar veglega og
verömæta gjöf aö ræöa, sem
stjórn og safnvöröur Minja-
safnsins á Akureyri meta mjög
mikils. Þaö hefur einmitt veriö
stefna safnsins aö koma upp
samstæöum heildum áhalda úr
verkstæöum handiönaöar-
manna og hafa til sýnis. Áöur
haföi safninu veriö gefiö
úrsmiöaverkstæöi Friöriks
Þorgrimssonar, og er skó-
smlðaverkstæöi Odds þvi hiö
annaö i rööinni.
Auk þess á safniö allmikiö af
góöum handverkfærum úr
ýmsum iöngreinum, ekki sist
tréiðnaöi, og marga merka
gripi tengda iönaöarmönnum,
en lengi má um þaö bæta og
fylla I sköröin. Allt slikt er með
þökkum þegið og safninu mikill
fengur.
1 gjöf Odds Jónssonar eru
nærri 200 safnmunir.einkum
áhöld og verkfæri stór og smá,
en einnig má nefna margar teg-
undir nagla, kósa og annars
rekstrarvarnings. Sum áhöldin
eru frá þvi fyrir aldamótin 1900,
önnur yngri. Meginstofninn er
úr skósmiöaverkstæbi
Magnúsar Lyngdals, sem Oddur
keypti 1934, eftir aö hafa unnib
þar i tvö ár, en sumt er úr verk-
stæöi Hallgrims, bróöur Odds,
og þangaö komiö úr verkstæöi
Guölaugs Sigurössonar skó-
smiös, sem stundaöi iön slna
bæöi á Akureyri og Siglufiröi á
fyrstu áratugum þessarar ald-
ar. Margir þessara hluta eru hið
mesta fágæti og aö þeim sér-
stakur fengur.
Skósmiöaáhöldum Odds hefur
nú verið komið fyrir I Minja-
safninu og þar eru þau til sýnis.
Rausn og viösýni Odds, sem
lýsir sér I þessari miklu gjöf,
ber aö þakka sérstaklega, enda
er hún I senn hið merkasta
framlag til varöveislu þekk-
ingar á óöum hverfandi hand-
iönaðarmenningu Islendinga og
skörp brýning til allra þeirra,
sem hafa áþekk menningar-
verömæti undir höndum, aö láta
þau fremur ganga til safna en
kasta þeim á hauga aö lok-
inni notkun.
fj jíðiljl
Wi rSi. æX
Þóröur Frlöbjarnarson, safnvörður, og Oddur Jónsson, skósmiöur. — A myndinni má sjá hiuta þeirra
muna, sem Oddur gaf safninu.
Jakob V. Hafstein opnar mál-
verkasýningu I Festi I Grindavik
á fimmtudaginn.
Þetta er 23. einkasýning Jakobs
og á henni sýnir hann 31 oliumál-
verk, 10 vatnslitamyndir, 9 past-
elmyndir og 1 touch og tempera-
leífur jóelsson
SÓLARÁTT
Solarátt
Nýlega kom út önnur ljóöabók
Leifs Jóelssonar er ber nafniö
Sólarátt. I bókinni eru 14 ljóö.
Bókaútgáfan Letur fjölritaöi.
mynd. Allar eru myndirnar til
sölu.
Aögangur aö sýningunni er
ókeypis, en hún stendur til sunnu-
dagsins 18. mai.
Jakob V. Hafsteln.
Kvðldsýningar hiá
Leikbrúðulandi
Fyrsta kvöldsýningin á „Sál-
inni hans Jóns mins”, sem Leik-
brúðuland hefur sýnt aö Kjar-
valsstööum, veröur I kvöld.
Leikbrúðuland hefur sýnt verk-
iö I tæpan mánuö- yfirleitt um
helgar, og hafa fullorönir ekki
siöur haft gaman af sýningunum
en börn, aö sögn forráöamanna
Leikbrúöulands. Þess vegna var
ákveöið aö hafa þrjár kvöldsýn-
ingar i þessari viku. Sú fyrsta
veröur sem fyrr segir I kvöld, önn-
ur sýningin verður annaö kvöld
og sú þriöja á fimmtudagskvöld.
Sýningarnar hefjast klukkan
20:30.
Siöustu sýningar á „Sálinni
hans Jóns mins” veröa svo á
laugardag og sunnudag klukkan
15.
Leikstjóri er Briet Héöinsdóttir
og leiktjöld og brúöur eru eftir
Messiönu Tómasdóttur.