Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEIRIHLUTI allsherjarnefndar
Alþingis hefur lagt fram frumvarp
til laga um breytingar á lögum um
íslenskan ríkisborgararétt sem felur
í sér að þeir útlendingar, sem veitt-
ur er ríkisborgararéttu, skuli hafa
nægilega þekkingu á íslensku máli
til að halda uppi almennum samræð-
um á íslensku.
Í frumvarpinu er lagt til að eft-
irfarandi málsgrein bætist við lögin
um íslenskan ríkisborgararétt:
„Umsækjandi hafi nægilega þekk-
ingu á íslensku máli til þess að halda
uppi almennum samræðum á mál-
inu. Þetta skilyrði gildir þó ekki um
þá sem eru orðnir 65 ára og hafa bú-
ið á Íslandi í a.m.k. 15 ár eða eiga
óhægt um mál sakir fötlunar eða
sjúkdóms eða annarra sambæri-
legra ástæðna. Dómsmálaráðherra
setur nánari reglur um prófun á ís-
lenskukunnáttu umsækjenda og
vottun um þá kunnáttu.“
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að íslenskukunnátta útlend-
inga hafi verið til umræðu upp á síð-
kastið í tengslum við veitingu dval-
arleyfis og veitingu ríkisborgara-
réttar og þá sérstaklega vegna
lagafrumvarps dómsmálaráðherra
um útlendinga. Þar er lagt til að
veita megi útlendingi búsetuleyfi ef
hann hefur m.a. sótt námskeið í ís-
lensku fyrir útlendinga. „Allsherj-
arnefnd hefur haft frumvarpið til
umfjöllunar og telur hún að slík
kunnátta hljóti að vera forsenda
þess að útlendingar geti tekið virk-
an þátt í íslensku samfélagi. Nefnd-
in telur eðlilegt og ekki síður mik-
ilvægt að þeir sem veittur er
íslenskur ríkisborgararéttur geti
sýnt fram á kunnáttu í íslensku máli
og leggur því til breytingu þess efn-
is á lögum um íslenskan ríkisborg-
ararétt.“ Lagt er til að lögin, verði
frumvarpið að lögum, öðlist gildi 1.
janúar 2003. Þeir sem eru í meiri-
hluta allsherjarnefndar eru: Þor-
gerður K. Gunnarsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins og formaður
nefndarinnar, Jónína Bjartmarz,
þingmaður Framsóknarflokksins,
Kjartan Ólafsson, Katrín Fjeldsted
og Ásta Möller, þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins.
Hafna skilyrði um
íslenskunámskeið
Því má bæta við að minnihluti
allsherjarnefndar, þau Guðrún Ög-
mundsdóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, Lúðvík Bergvinsson,
þingmaður Samfylkingarinnar, og
Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, gerir athuga-
semdir við það skilyrði að útlend-
ingar sem sæki um búsetuleyfi skuli
hafa sótt námskeið í íslensku fyrir
útlendinga. „Alvarleg athugasemd
er gerð við það að þátttaka í ís-
lenskunámskeiði sé skilyrði búsetu-
leyfis,“ segir í nefndaráliti minni-
hlutans. „Hér er greinilega um að
ræða mismunun á grundvelli þjóð-
ernis því ekki þurfa allir „útlend-
ingar“ að sækja um búsetuleyfi, t.d.
Norðurlandabúar, EES-borgarar og
makar Íslendinga.“
Frumvarp um breytingu á lögum um íslenskan ríkisborgararétt
Sýni fram á
kunnáttu í ís-
lensku máli
HARÐUR árekstur sjúkrabíls og
fólksbíls varð skammt frá Kúagerði
á Reykjanesbraut á níunda tímanum
í gærmorgun.
Sjúkrabíllinn, sem er af Suð-
urnesjum, var að koma frá Reykja-
vík en fólksbíllinn var á leiðinni til
Reykjavíkur. Talið er að ökumaður
fólksbílsins, kona um tvítugt, hafi
misst stjórn á bílnum á veginum en
talsverður krapi var við Kúagerði.
Konan slasaðist á handlegg en mikil
mildi er talin að ekki fór verr. Fólks-
bílinn er gjörónýtur og sjúkrabíllinn
talsvert skemmdur að framanverðu.
Sjúkraflutningamenn og lækni í
sjúkrabílnum sakaði ekki. Þeir voru
að koma úr flutningi til Reykjavíkur
með ungt par sem slasaðist í bílveltu
á Miðnesheiði fyrr um morguninn.
Ekki var þar um alvarleg meiðsl að
ræða en óhappið varð í mikilli hálku
á heiðinni um sjöleytið. Unga fólkið
var ekki í bílbeltum.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Harður árekstur við Kúagerði
UNGUR karlmaður var fluttur
á slysadeild sjúkrahússins á
Selfossi í fyrrinótt eftir að
höndin á honum fór í gegnum
rúðu á félagsheimilinu Árnesi í
Gnúpverjahreppi. Þar fór fram
dansleikur um nóttina.
Að sögn lögreglu eru máls-
atvik óljós en maðurinn mun
hafa verið ölvaður. Hlaut hann
talsverða skurði á hendi.
Þá er lögreglan á Selfossi að
rannsaka stuld úr geymslu-
gámi við bensínstöð Olís við
Arnarberg á Selfossi aðfara-
nótt laugardags. Talsverðu
magni af gosdrykkjum var stol-
ið úr gámnum. Innbrotið upp-
götvaðist þegar starfsmenn
komu til vinnu í gærmorgun.
Skarst á
hendi á
dansleik
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands mun
standa fyrir Evrópuráðstefnu 26.
september næstkomandi í aðdrag-
anda að ársfundi sambandsins, sem
haldinn verður 31. október og 1.
nóvember.
Vinnuheiti ráðstefnunnar er
,,Evrópusamvinnan og hagsmunir
launafólks“.
,,Við ætlum að vera með einhvers
konar stöðumat á stöðu EES samn-
ingsins og á Evrópusamvinnunni,
meðal annars varðandi stækkun
sambandsins og þá umræðu sem nú
á sér stað innan Evrópusambands-
ins um þróun lýðræðis,“ segir Hall-
dór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ.
Hefur m.a. Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra og Gerhard Sab-
athil, sendiherra Evrópusambands-
ins á Íslandi og í Noregi, einnig
verið boðið að flytja erindi á ráð-
stefnunni, skv. upplýsingum Hall-
dórs. Einnig er fyrirhugað að fá
fulltrúa frá rannsóknarstofnuninni
Center for European Policy Studies
til að gera grein fyrir úttekt sem
stofnunin gerði fyrir norska at-
vinnurekendasambandið á stöðu
EES samningsins.
Gæti orðið grundvöllur að
stefnumótun á ársfundi ASÍ
Á ráðstefnunni verður fjallað um
atvinnumál í ljósi Evrópusamvinn-
unnar, efnahagsmál og evruna og
um vinnumarkaðinn og þróun hans.
,,Þessi ráðstefna verður lögð upp
sem vettvangur fyrir hlutlæga upp-
lýsingamiðlun en menn eiga von á
að í framhaldinu eigi sér stað skoð-
anaskipti og eftir atvikum umræða
og mögulega stefnumótun á árs-
fundinum,“ segir Halldór.
ASÍ undir-
býr Evrópu-
ráðstefnu
í haust
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, leggur til að
íbúalýðræði og fjölskylduvænt sam-
félag verði á meðal megináherslna
framboða Samfylkingarinnar um
landið til sveitarstjórna. Í ræðu sem
Össur flutti á flokksstjórnarfundi
Samfylkingarinnar á Akureyri í gær,
laugardag, sagði hann breytt hlut-
verk sveitarstjórna kalla á nýjar
reglur við ákvarðanatöku innan
þeirra.
„Íbúalýðræði felur í sér lausn á
því. Þar eru íbúar sveitarfélagsins
kallaðir til leiks, fengnir til samráðs
um lausnir og skipulag. Enginn veit
betur en fólkið sjálft hverjar þarf-
irnar eru og hvernig íbúar hvers
sveitarfélags vilja forgangsraða fjár-
munum þess í eigin þágu,“ sagði í
ræðu Össurar.
Samráðsvettvangur íbúalýðræðis-
ins feli það einnig sjálfkrafa í sér að
deilur og átök minnki til muna og
stjórnmálin verði heilbrigðari fyrir
vikið.
Samfylkingin á uppleið
Össur sagði fjölmiðla ekki hafa
spáð Samfylkingu góðu gengi á ár-
dögum flokksins, en að í dag væri
landslagið breytt. „Samfylkingin á
landsvísu er mánuðum saman búin
að vera á öruggri uppleið. Við höfum
öðlast sjálfstraust, höfum öðlast
virðingu umhverfisins fyrir þeim
karakter sem við sýndum á erfið-
leikatímum okkar, erum í dag hinn
ótvíræði forystuflokkur stjórnarand-
stöðunnar. Við höfum sýnt stefnu-
festu og þann kjark sem ábyrgur
flokkur þarf til að taka á sig óþæg-
indin sem óhjákvæmilega fylgja því
stundum að sýna ábyrgð og forystu-
sýn,“ sagði Össur í ræðu sinni.
Össur Skarphéðinsson á flokksstjórnarfundi
Áhersla verði lögð
á íbúalýðræði
RÚMLEGA 50 nemendur frá Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum
sem voru í skólaferðalagi á Laug-
arvatni voru reknir heim á föstu-
dag. Ólafur H. Sigurjónsson, skóla-
meistari skólans, segir ástæðuna
hafa verið að einhverjir hafi haft
áfengi um hönd aðfaranótt föstu-
dags í húsnæði Menntaskólans á
Laugarvatni. Hann á þó eftir að
ræða við nemendur og fá nánari
skýrslu frá Menntaskólanum á
Laugarvatni.
Hópurinn kom aftur til Eyja á
föstudagskvöld, fyrir utan nokkra
sem héldu annað á eigin vegum, en
áætlað var að hópurinn sneri aftur í
dag, sunnudag. Ólafur segir að
skólameistarar skólanna tveggja
hafi fyrirfram ákveðið að hart yrði
tekið á áfengisneyslu, þeir hafi lagt
ákveðin fyrirmæli sem einhverjir í
hópnum hafi ekki farið eftir og
þannig hafi þeir skemmt fyrir hin-
um. Ólafur segist telja að meirihluti
nemenda hafi staðið sig ágætlega.
Halldór Páll Halldórsson, skóla-
meistari ML, segir áfengisdrykkju
bannaða í húsnæði skólans, þónokk-
urt áfengi hafi verið með í för hjá
þessum hópi og slíkt eigi ekki við í
íþróttakeppni og skólaheimsókn.
„Ég dreg ekki dul á að ein-
staklingar hjá okkur hafa tekið þátt
í þessu líka,“ segir Halldór Páll og
segir að fundað verði um málið inn-
an skólans á þriðjudag. Hann segist
harma það að þessa ákvörðun hafi
þurft að taka, en hún hafi verið
nauðsynleg engu að síður. Hann tel-
ur nauðsynlegt að skólastjórnendur
framhaldsskóla og nemendafélög
komi saman og ræði fyrirkomulag
skólaheimsókna.
Nemendur
reknir heim
úr skóla-
ferðalagi
♦ ♦ ♦