Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 29
Ein af teikningum Hjartar í
Sverrissal Hafnarborgar.
NÝJAR myndir kallar Hjörtur
Hjartarson sýningu sína á hartnær
þrjátíu myndum í Hafnarborg.
Megnið eru teikningar af manneskj-
um í ýmsum stellingum, en einnig
má finna málverk, jafnvel hraðsoðin
portrett, og allt þar á milli. Hjörtur
hikar ekki við að blanda saman miðl-
um sínum svo að blýantur og olíulitir
lenda á pappírnum, ásamt kolum, ef
honum finnst það gefa myndinni
aukinn kraft. Einkennandi fyrir
myndir hans er hraði, risskenndar
fígúrur og fljótandi lína.
Allt eru þetta þekktar stærðir úr
vopnabúri síð-formalískra málara og
teiknara. Stundum dettur áhorfand-
anum í hug Picasso, en þó væri öllu
fremur hægt að líkja stílnum við eft-
irkomendur hans, svo sem de Koon-
ing, eða Kristján okkar Davíðsson.
Það er hin fyndna og hálfskrýtlu-
kennda ásýnd persónanna sem
minnir svo mjög á þá tvo síðar-
nefndu. Oft nær Hjörtur að kitla
hláturstaugar okkar með skondnu
hraðrissi sínu, einkum af konum með
hunda í bandi.
Hjörtur er slyngur teiknari, en
það er fremur fátítt að sjá íslenska
listamenn leggja jafnríka áherslu og
hann á leikandi línuspil. Hins vegar
lætur hann sér í léttu rúmi liggja
þótt aðferðafræði hans stefni ekki til
frumleika eða átaka við ónumdar
lendur. Svo virðist sem Hjörtur uni
glaður við miðil sinn í fullkomlega
afslöppuðum tengslum við sinn innri
mann, sem er næsta fátítt af lista-
manni á hans aldri sem lokið hefur
námi úr fjöltæknideild MHÍ.
Án þess að vilja æsa Hjört til ein-
hverra ofurdáða sem eflaust eru ekki
eiginlegur hluti af persónu hans og
geðslagi, mætti samt vel hugsa sér
hann beita hæfileikum sínum á sam-
tímalegra og spennuþrungnara
myndefni. Í stað venjubundinna
stellinga úr líkamsræktarstöðvum
sem segja ekki neitt umfram form-
ræna línu- og litaleikfimi væri hægt
að hugsa sér Hjört takast á við öld-
urhúsamenningu okkar þar sem við-
skiptavinir frussa bjór hver framan í
annan í ofurtroðnu og reykmettuðu
hávaðaumhverfi. Eða hvað með súlu-
staðina umdeildu? Væri túlkun á
þeim ekki ögn nærtækari og um-
ræðuhvetjandi en myndefnið í
Sverrissal? Var það ekki Hallgrímur
Helgason sem staðsetti nýklassísku
bryðjurnar hans Picasso á götuhorn-
um, reykjandi eins og tilkippilegar
portkonur? Það var eitthvað krass-
andi og ferskt við slíkar glettur;
nokkuð sem gæti keyrt upp trukkið í
annars vel útfærðum myndum
Hjartar.
MYNDLIST
Hafnarborg, Sverrissal
Til 14. apríl. Opið miðvikudaga til mánu-
daga frá kl. 11–17.
TEIKNINGAR & MÁLVERK
HJÖRTUR HJARTARSON
Í ýmsum stellingum
Halldór Björn Runólfsson
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 29
PRENTARAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Plastkorta
Vefsíða: www.oba.is
LEIKSTJÓRINN og leikarinn
Edward Burns hefur reynt sitt-
hvað fyrir sér í kvikmyndagerð frá
því að hann vakti fyrst athygli á
Sundance-hátíðinni fyrir róman-
tísku gamanmyndina The Brothers
McMullen árið 1995. Síðan hefur
Burns haldið sig við rómantíkina
sem umfjöllunarefni og er nýjasta
mynd hans, Sidewalks of New
York, mjög í þeim anda. Tilfinn-
ingasambönd og kynlíf nútímafólks
er skoðað frá ýmsum hliðum og
hér eru það nokkrir einstaklingar
á ólíkum aldri sem verða mið-
punktur þeirrar könnunar. Útkom-
an er fín mannlífssaga, sem svið-
sett er á hinni rómantísku
stórborgareyju Manhattan í anda
Woody Allen. Þessi sviðsetning
varð reyndar til þess að frumsýn-
ingu myndarinnar var frestað eftir
hryðjuverkin 11. september, þar
sem Tvíburaturnarnir eru mjög
áberandi í bakgrunni nokkurra at-
riða. Burns mun þó hafa hafnað
þeirri tillögu framleiðenda að
þurrka turnana út með tölvu-
vinnslu. Auk góðrar frammistöðu
traustra og sjarmerandi leikara
hefur þessi kvikmynd sérstaka frá-
sagnaraðferð til að bera, þar sem
leikstjórinn leikur sér dálítið með
návist kvikmyndatökuvélarinnar.
Helsti galli myndarinnar er hins
vegar hversu hún rambar á barmi
tilgerðar á köflum.
BÆKUR
Háskólabíó
Leikstjórn og handrit: Edward Burns.
Aðalhlutverk: Edward Burns, Rosario
Dawson, Heather Graham, Stanley
Tucci, Brittany Murphy. Sýn.tími: 107
mín. Bandaríkin. Paramount, 2001.
SIDEWALKS OF NEW YORK (Á GANGI Í
NEW YORK) 1⁄2
Sundur
og
saman
Heiða Jóhannsdóttir
Þumalína
Pósthússtræti/Skólavörðustíg
Allt fyrir mömmu og litla krílið
Póstsendum – sími 551 2136