Vísir


Vísir - 25.06.1980, Qupperneq 8

Vísir - 25.06.1980, Qupperneq 8
8 VÍSIR Miövikudagur 25. júni 1980. utgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Davlft Guömundsson. 'Ritstjórar: ðlafur Ragnarsson og Ellert B. Schram. RitsfjórnarfuMtrúar: Bragi Guðmundsson, EMas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaftamenn: Axel Ammendrup. Fríða Astvaldsdóftir, Halldór Reynlsson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttlr, Magdalena Schram, Póll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sæmundur Guftvinsson, Þórunn J. Hafstein. Blaftamaftur á Akureyri: Glsli Sigur- geirsson. Iþróttir: Gylfl Kristjánsson, Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson og Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 82260. Afgreiftsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Askriftargjald er kr.5000 á mánufti innanlands og verft i lausasölu 250 krónur ein- takift. Visirer prentaftur I Blaftaprenti h.f. Siftumúla 14. SkoDanakönnunin er ekki dómur í gær og í dag eru birtar hér í blaðinu niðurstöður skoðana- könnunar Vísis vegna forseta- kosninganna. Vitað var að birt- ingar úrslita könnunarinnar var beðið með eftirvæntingu, ekki síst af þeim sem næst standa frambjóðendum og fyrir þá starfa. Það er til merkis um að skoðanakönnun Vísis er talin áreiðanleg og hlutlaus aðferð til að kanna hugi kjósenda, og er það vissulega viðurkenning fyrir Vísi og þá sem könnunina hafa unnið. Hitt er annað, hvernig mönnum líka hinar efnislegu niðurstöður. Það fer auðvitað eftir því, hvern menn styðja og hversu vel við- komandi frambjóðanda vegnar samkvæmt könnuninni. Rétt er þó í þessu sambandi að undir- strika rækilega, að skoðanakönn- unin er ekki dómur um endanleg úrslit, boðar hvorki sigur ne tap, og segir alls ekki til um, að fylgi geti ekki tekið miklum breyting- um fram að kjördegi. Skoðanakönnunin er vísbend- ing um hug fólks á þeim tíma, sem hún er f ramkvæmd, og getur að þvi leyti verið leiðbeining fyr- ir frambjóðendur og stuðnings- menn þeirra um vinnubrögð og málf lutning til að auka fylgi við- komandi. Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á tvennu. Niðurstöðurnar Skoöanakönnun VIsis hefur öOlast viöurkenningu, sem heiöarleg og áreiöanleg aöferö til aö kanna hugi kjósenda. Þaö má þó enginn lita svo á aö skoöanakannanir séu endan- legur dómur um úrslit kosninganna. nú hafa ekki tekið miklum breytingum, frá þeim niðurstöð- um, sem fyrri skoðanakönnun leiddi í Ijós fyrir þremur vikum. Þá var því einmitt haldið fram, að í Ijósi þess, að tveir frambjóð- endanna, Guðlaugur Þorvaldsson og Vigdís Finnbogadóttir, sýnd- ust hafa meira fylgi en aðrir, myndu fleiri kjósendur greiða þeim atkvæði sitt, frekar en öðr- um sem minni möguleika virtust hafa til að ná kjöri. Þessar kenn- ingar haf a ekki staðist, enda ekki ætlunin að skoðanakannanir Vís- is hafi áhrif á afstöðu manna. Þvert á móti hef ur komið í Ijós, að einmitt þeir Pétur Thorsteins- son og Albert Guðmundsson, sem í fyrri skoðanakönnun, stóðu lak- ar að vígi en hin tvö fyrrnefndu, hafa báðir bætt við fylgi sitt frá því fyrir þrem vikum. Þegar á heildina er litið, eru merkilega litlar breytingar á fylgi einstakra frambjóðenda á þeim tíma, sem líður milli kann- anna, og vekur upp þá spurningu, að hve miklu leyti hin mikla kosningabarátta hefur áhrif á viðhorf og afstöðu fólks. Alla- vega sýnist það í engu hlutfalli við það ótrúlega og aðdáunarlega framlag, sem frambjóðendur allir hafa lagt á sig síðustu vikur. Hitt atriðið sem eftirtekt vek- ur, er sá möguleiki, að næsti for- seti lýðveldisins verði kjörinn með 30-35% atkvæða, hugsanlega minna, ef menn einblína á skoð- anakönnunina. A sínum tíma var sú hugmynd settfram hér í Vísi, aðef f leiri en tveir væru í framboði og enginn frambjóðenda fengi yfir 50% at- kvæða, þá skyldi kjósa aftur milli þeirra tveggja sem mest at- kvæðafylgi hefðu í fyrri kosning- um. Ljóst var að þessi tillaga gat ekki komið til framkvæmda nú í sumar, en Vísir er enn þeirrar skoðunar, aðslíka breytingu eigi að gera á stjórnarskrá lýðveldis- ins, fyrir næstu forsetakosningar á Islandi. Það er lýðræðisleg nauðsyn og augljós styrkur fyrir hyern þann sem kosinn er forseti Islands, að hann hafi hlotið meirihlutafylgi kjósenda. Þannig verður hver sá sem kosningu hlýtur, viðurkenndur og óum- deildur sem æðsti maður íslensku þjóðarinnar. j ÉR KJARADðMUR lÆKÍ ' I FJARMALARttUNEYTISINS? Nýlega féll kjara- dómur i máli BS hjúkr- unarfræðinga. Niður- staða dómsins er sú, að gamli sérkjarasamn- ingurinn gildi áfram i meginatriðum. Sam- kvæmt þvi er byrjunar- launaflokkur 103 BHM. Mun það vera lægst skipaði launaflokkur innan BHM. Vegna óánægju þeirra, sem hér eiga hlut að máli hafði Visir samband við tvo hjúkrunarfræð- inga i félagi háskóla- menntaðra hjúkrunar- fræðinga, þær Ingi- björgu Sigmundsdótt- ur, fulltrúa stjórnar FHH, og Sigriði Ólafs- dóttur, fulltrúa kjara- nefndar FHH. — Hver er ástæöan fyrir óánægju ykkar meö úrskurö kjaradóms? ..Við höfum lokiö fjögurra ára námi viö Háskóla Islands og okkur finnst þaö próf ekki vera réttilega metiö til launa, þar sem allflestir meö sama náms- einingafjölda frá H.I. eru 4-6 launaflokkum hærri en viö. Þetta köllum viö litilsviröingu viö hjúkrun.” — Hvernig rökstyöjiö þiö launakröfur ykkar? „BS próf I hjúkrunarfræöi er metiö til 173 stiga, en slikt námseiningamat hefur einmitt veriö haft til viömiðunar viö niöurrööun i launaflokka hjá rlkinu. Nú hefur þaö hins vegar gerst, aö kjaradómur hefur virt þaö aö vettugi, en fariö eigin leiöir. Hjúkrun er grein i þróun, sem löngum hefur veriö vanmetin. BS hjúkrunarfræöingar hafa aö baki fjögurra ára strangt há- skólanám, og verið undirbúnir undir sjálfstæö og ábyrgðar- mikil störf. Nú hefur þaö hins vegar gerst meö úrskuröi kjara- dóms, aö horft er framhjá þess- um þáttum, þ.e. sjálfstæöi og ábyrgö.” — En eruö þiö ekki meö þessu þar meö aö ýta undir launamis- mun hjúkrunarstéttarinnar? ,,A meöan um tvenns konar grunnnám i hjúkrunarfræöum er aö ræöa, þ.e.a.s. annars veg- ar i Háskóla íslands og hins vegar i Hjúkrunarskóla Islands, er e.t.v. ekkert óeölilegt, aö um Sigriöur ólafsdóttir, fulltrúi kjaranefndar FHH, t.v. og Ingibjörg Sigmundsdóttir, fulltrúi stjórnar FHH. (Mynd GVA) einhvern launamismun sé aö ræöa. I sjálfu sér er þaö ekki keppikefli okkar heldur þaö, aö hjúkrunarmenntun i háskóia sé réttiátlega metin til launa. Þar sem stefnan er sú, aö öll hjúkrunfarifram innan H.I. má segja, að kjarabarátta okkar taki miö af þvi. Þess vegna er barátta okkar jafnframt barátta allrar stéttarinnar og tekur miö af framtiöinni.” — Nú hefur komiö fram hörö gagnrýni af ykkar hálfu á kjaradóm. Hvaö viljiö þiö segja um vinnubrögö kjaradóms i þessu máli? „Kjaradómur hefur látiö okk- ar kröfur sem vind um eyrun þjóta. Hann dæmir nú I annaö sinn i kjaramálum okkar og gætir svo augljóslega hagsmuna varnaraöilans i þessu máii, þ.e.a.s. fjármálaráöuneytisins. Hann mismunar aöildarfélög- um innan sama stéttarfélags, þ.e. BHM, þar sem fólki meö sömu prófgráöu er boðiö upp á minnst fjögurra launaflokka misræmi. öll sú vinna, sem viö lögöum I kröfugerö, gagnasöfn- un, greinargerö o.fl. máli okkar til stuönings, viröist hafa veriö virt aö vettugi. Hlutdrægni þessa dóms er undarleg og alls- endis óviöunandi, og halda mætti eftir niöurstöÖum aö dæma, aö hann væri einungis tæki fjármálaráöuneytisins til að fá slnum kröfum framgengt. Hefur þaö hvarflaö aö okkur, aö stór þáttur þess aö hjúkrunar- fræðingar eru láglaunahópur sé sú staöreynd aö hér er um kvennastétt aö ræöa. -K.Þ.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.