Vísir - 27.06.1980, Side 1
Maöur lést
viöFnjóská
Bandarískur forsetaframbjóöandi
ræöir viö Flugieiöamenn:
LEIGIR ANDERSON
FLUGLEWAÞOTU?
Maöur um sextugt lést I gær er
hann var að veiöum viö Fnjóská
ásamt syni sinum. Maðurinn
fannst liggjandi i brattri grjóturð
og var hann látinn er læknir og
sjiikraliö kom á vettvang. Ekki er
enn ljóst með hvaða hætti maður-
inn lést en taliö er liklegt að hann
hafi fengið aðsvif og fallið niður
gr jóturðina. —Sv. G.
Drengurinn
er látinn
Drengurinn sem slasaðist er
hann féll af stuðara Land-Rover-
bifreiðar viö Félagsheimilið
Njálsbúð I V-Landeyjum á þriðju-
dagskvöldið lést i gær af áverka,
sem hann hlaut við slysið.
Hann hét Tryggvi Hákonarson
til heimilis að Vlöihvammi 22 i
Kópavogi. Hann var tæplega 14
ára gamall. —Sv.G.
Allar líkur benda til,
að John Anderson, for-
setaframbjóðandi i
Bandarikjunum, muni
taka á á leigu Boeing
727 þotu Flugleiða sem
hann hyggst nota á
tveggja vikna ferð
sinni um heiminn i júli.
Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi Flugleiða
staðfesti þetta f samtali
við Visi i morgun og
sagði hann að samn-
ingaviðræður hefðu
staðið yfir að undan-
förnu og benti allt til að
samningar myndu tak-
ast.
Hér er um að ræða leigu á
þotu þeirri sem verið hefur i
innanlandsflugi að undanförnu
og veröur hún leigð með fullri
áhöfn. Ef af verður mun vélin
fara utan i byrjun júli, til
Washington þar sem hún sækir
•80 manna hóp úr fylgdarliöi for-
setaframbjóöandans en siðan
liggur leiðin til London og þaðan
til Tel Aviv og Cario og siöan til
ýmissa borga i Evrópu áður en
haldiö verður til baka til
Washington.
Reiknað er með aö Anderson
taki vélina á leigu fram til 18.
júll og verður innréttingu henn-
ar breytt svo að betur megi fara
um hann og fylgdarlið hans ef úr
þessu veröur.
Frá setningu Iþróttahátíðar ISi Igær. Fremstá myndinni sést eldurinn, sem tendraður var í upphafi hátíðarinnar og logar meðan á henni
stendur. Vísismynd: FH.
mmwmm
Er VSl að neyða ASl tll aðgerða?
„ÞAÐ ER HREIN FJARSTÆÐA”
- seglr Þorstelnn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Þaö er auðvitað hrein fjar-
stæða”, sagði Þorsteinn Pálsson
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins við VIsi i
morgun er hann var inntur álits á
þeirri staðhæfingu samninga-
nefndar Alþýðusambandsins, að
VSl væri að neyða ASÍ til aö-
geröa. „Það er aöeins veriö að
kalla á”, sagði Þorsteinn, „að
þeir samþykki eina af forsendum
þessa samræmda samnings. Af
okkar hálfu var ljóst, að ekki var
hægt að eyöa meiri vinnu nema
forsendan um hiutfallslegar verð-
bætur lægi ljós fyrir af þeirra
hálfu”.
Þorsteinn sagði, aö þetta sýndi
aöeins, að ASI hefði i raun og veru
engan áhuga á samræmdum
launastiga. „Það kemur best
fram I þvl”, sagði hann, „aö I
svartillögum þeirra viö okkar
uppkasti, eru fólgnar miklu meiri
kauphækkanir til þeirra sem hafa
há laun en þeirra sem minni laun
hafa. Og þaö er svolitiö undarlegt
að Verkamannasambandiö skuli
standa að slikum tillögum á sama
tima og þeir tala um nauðsyn lág-
launastefnu”.
Þorsteinn kvaö VSI hafa lagt
fram I einu lagi tillögu að kjarna-
samningi, sem hefði bæði faliö i
sér tillögu að launastiga og sam-
ræmdum almennum kjaraákvæð-
um. Óskaö heföi verið eftir þvi að
viðræður hæfust þegar um siöar-
nefndu tillöguna, en þvi verið
hafnað.
Þorsteinn var spurður að þvi
hvernig honum litist á stöðuna.
„Þeir hafa greinilega hafnaö þvi
að halda áfram”, sagði hann.
„Það er augljóst að engin sam-
staba er innan þeirra raða að
koma á samræmdum launa-
stiga.”
„Og þið ætlið ekki að láta
undan?”
„Aö sjálfsögðu ekki. Það er
ekki hægt að samræma launastig-
ann nema visitalan sé hlutfalls-
leg”.
—Gsal