Vísir - 27.06.1980, Blaðsíða 14
Föstudagur 27. júnl 1980.
. 14
Albert Jónsson á Fálka sigraöi I töitinu og Islenskri tvlkeppni.
Þaö voru einungis fjórir ung-
lingar sem kepptu i flokki 12 ára
og yngri. Skipulagiö i sambandi
viö sýningar þeirra var ekki
nógu gott. Af eitthverjum
ástæöum var keppni þeirra
háttaö á þann veg aö úrslit i öll-
um keppnisgreinum þeirra voru
búin fyrir klukkan 13.00 á
sunnudeginum, en þá hófst
aöaldagskráin. Þaö heföi veriö i
lagi aö gefa krökkunum tæki-
Þarna fara þátttakendur I unglingaflokki 12 ára og yngri.
Þaö voru ekki nema fjórir
knapar af ellefu skráöum sem
mættu til leiks I hlýönikeppni B i
fulloröinna flokki, en þrátt fyrir
þaö rikti mikill spenningur
meöal áhorfenda um hver
myndibera sigur úr býtum. Þaö
haföi nefnilega kvisast út aö
Eyjólfur tsólfsson og Reynir
Aöalsteinsson, sem báöir eru
meö alskegg, heföu gert meö sér
veömál um aö ef annar þeirra
yröi i 1. sæti þá yröi hinn aö raka
af sér skeggiö. Eyjólfur Isólfs-
son vann hlýönikeppni B á Ljós-
faxa, Kristján Birgisson varö
annar á Hrappi og Reynir Aöal-
steinsson varö þriöji á Fjölni.
Þaö kemur því i hlut Reynis aö
taka fram rakvélina á ný og
raka af sér skeggiö.
Giæsilegt
gæöingaskeið
KRAKKARNIR EKKI
MEÐ EFTIR HADEGI
færi á aö sýna a,m.k. töltiö i
aöaldagskránni.
t fjórgangi unglinga 12 ára og
yngri sigraöi Siguröur Kol-
beinsson á Vind. Haraldur
Snorrason varö annar á Smára
og Guömundur Snorri Ólafsson
þriöji á Þokka. Dagný Ragnars-
dóttir var fjóröi keppandinn en
hún varö fyrir þvi óhappi aö
missa hestinn sinn út úr braut-
inni þegar hún átti einungis
hálfan hring eftir af sýningunni
og var þar meö úr leik.
t tölti unglinga 12 ára og yngri
voru sömu keppendurnir og i
fjórgangi en úrslit uröu önnur.
Guömundur Snorri Ólafsson
vann á Þokka, Dagný Ragnars-
dóttir varö önnur á Dofra og
Haraldur Snorrason þriöji á
Smára.
Dagný Ragnarsdóttir vann
hlýönikeppnina á Dofra.Guö-
mundur Snorri Ólafsson varö
stigahæstur knapa 12 ára og
yngri og Guömundur Snorri
vann einnig islenska tvlkeppni, i
flokki unglinga 12 ára og yngri.
Þriöja lslandsmótiö i hesta-
iþrdttum var haldiö á Melavell-
inum laugardaginn 21. og
sunnudaginn 22. júni. Keppend-
ur voru 80 aö tölu og keppt var I
tólf greinum. Búist var viö
miklum áhorfendafjölda þar
sem veðriö var mjög gott báöa
dagana, en sú von brást og mjög
sennilega vegna þess hve veðriö
var gott, en einnig vegna þess
hve mótiö var litiö auglýst. A
laugardeginum voru undanúr-
slit i flestum greinum en einnig
úrslit i fjórgangi unglinga 13-15
ára, hindrunarstökki, hlýðni-
keppnunum og úrslit i tölti ung-
linga 12 ára og yngri. Sett var
timasetning á hvert atriði sem
stóöst mjög vel. A Sunnudegin-
um voru svo úrslit i fimmgangi,
fjórgangi, og tölti fulloröinna,
fjórgangi og tölti unglinga 13-15
ára. Gæöingaskeiðið var siöasta
keppnisgreinin og var ákaflega
glæsileg.
1 mdtslok rööuöu allir verö-
launahafar sér I breiöfylkingu
og tóku á móti verölaunum. Siö-
asta atriöi dagskrárinnar var
sýning Sigurbjörns Báröar-
sonar á hindrunarstökki. Hann
sat Blesa. tlrslit uröu sem hér
segir.
I fjórgangi fulloröinna mættu
ekki allir knapar sem skráöir
voru til leiks og munaöi mest
um aö kappreiöar voru haldnar
viö Arnhamar I Kjós á sama
tima. Sigurbjörn Báröarson,
Siguröur Sæmundsson og
Trausti Þór Guömundsson voru
þvi illa fjarri góöu gamni.
Þaö kom i hlut Kristjáns Birg-
issonar aö sigra I fjórgangi á
Hrappi. Albert Jónsson var
annar á Fálka og Þorkell Þor-
kelsson þriöji á Svaöa. Gylfi
Gunnarsson á Kristal var meö
örugga forustu eftir undan-
keppnina en gekk illa i úrslitum.
Þaö var ljóst eftir fjtírgang
fulloröinna aö töltkeppnin yröi
jöfn og skemmtileg þvi margir
hágengir og skemmtilegir tölt-
arar ttíku þátt I fjórkeppninni.
Keppt er um glæsilegasta bikar
sem um getur i hestaiþróttum,
gefin afEggert Hvanndalog var
þvi til mikils aö vinna. Eyjólfur
Isólfsson haföi forustu eftir
undankeppnina og keppti á
Ljósfaxa. En þaö var Albert
Jónsson sem kom sá og sigraöi á
Fálka. Eyjólfur varö annar á
Ljtísfaxa og þriöji Reynir Aöal-
steinsson á Gáska.
Reynir Aöalsteinsson bætti
um betur i fimmgangi. Hann
vann á Hrafni og sýndi mikla
fágun og öryggi. Annar varö
Siguröur Sæmundsson á Fáfni
og þriöji Albert Jónsson á Loga.
Þaö var keppt i fimmganginum
á sunnudagsmorguninn þannig
aö Siguröur Sæmundsson var
kominn af kappreiöunum viö
Arnhamar.
Myndir og
texti Eirlkur
Jónsson
Gæöingaskeiðiö var siöasta
keppnisatriðiö og er mér til efs
aö glæsilegri skeiösýning hafi
átt sér staö hér á landi. Allir
keppendur fengu aö fara tvo
spretti og er dæmd niöurtaka,
skeiölag og hvernig knapinn
lýkur sprettinum. Timi gildir
einnig þrjátiu af hundraði.
Siguröur Sæmundsson keppti á
Þór og vann. Trausti Þór
Guömundsson varö annar á
Vikingi og þriöji varö Tómas
Ragnarsson á Berki. Þessir
knapar og hestar þeirra voru
mjög öruggir á báðum sprett-
unum. Stigahæsti knapi I flokki
fulloröinna var Kristján Birgis-
s«i og hann vann einnig olymp-
Iska tvikeppni, sem sam-
eiginlegur besti árangur i
hindrunarstökki og hlýöni-
keppni B. Albert Jónsson vann
islenska tvikeppni en þaö er
sameiginlegur besti árangur i
tölti og svo annaö hvort fjór-
gangi eöa fimmgangi.
Dræm Dátttaka í
hlndrunarstökklnu
Lenti í Driðja sæti
09 lapaðl skegginu
Þaö er ekki eins mikill áhugi á
hindrunarstökki á Islandi og i
útlöndum. A íslandsmótinu i
hestaiþróttum I fyrra á Skógar-
hólum voru þrir keppendur og
sama tala hóf keppnina i ár.
Fyrsti keppandinn var Simon
Grétarsson á Skyggni og tókst
honum aö fara yfir nokkrar
hindranir en Skyggnir lét ekki
vel aö stjórn og neitaöi aö fara
yfir allar hindranirnar og var
þvi úr leik. Kristján Birgisson
keppti á Hrapp og tókst aö kom-
ast yfir allar hindranirnar I báö-
um feröunum og sama geröi
Sigurbjörn Báröarson á Blesa
Viöars Halldórssonar sem er al-
ræmdur hindrunarstökkhestur.
Sigurbjörn fékk flest stig úr
keppninni og Kristján varð ann-
ar.
Hirtu öll verðlaunin
Þaö voru ekki miklar
sviptingar I fiokki unglinga 13-
15 ára. Þaö vakti helst athygli
hve illa gekk aö samræma
atriösskrána I hlýönikeppninni.
Ekki voru nógu skýrar reglur
Kristján Birgisson stigahæsti knapi mótsins og sigurvegari I fjór-
gangi fulloröinna og olymplskri tvikeppni leggur hér Vaka.
Sigurbjörn Bárðarson sigraði I hindrunarstökkinu á Blesa og fara
þeir léttilega yfir slðustu hindrunina.
um framkvæmdina þannig aö
hlýönikeppnin tók miklu lengri
tíma en áætlaö var. Tómas
Ragnarsson var sigursælastur
knapa I þessum flokki, en Ester
Haröardóttir veitti honum
haröa keppni.
I f jórgangi unglinga 13-15 ára
vann Tómas Ragnarsson á
Glotta. Ester Haröardóttir á
Blesa veitti honum mikla
keppni og varö önnur. Magnús
Arngrímsson varö þriöji á
Svarta-Blesa. Magnús var meö
flest stig eftir undanúrslitin, en
gekk illa I úrslitunum.
Ester Haröardóttir sneri
dæminu viö I tölti unglinga 13-15
ára og vann á Blesa. Tómas
Ragnarsson var annar á Lýsa
og Magnús Arngrimsson þriöji á
Svarta-Blesa.
1 hlýönikeppninni gekk mikiö
á og þurfti aö endurtaka mörg
atriöanna þar sem ekki var
fariö aö á réttann hátt og atriöin
tekin I réttri röö.
Tómas Ragnarsson varö
stigahæstur knapa I flokki
unglinga 13-15 ára en Ester
Haröardóttir vann Islenska tvi-
keppni.