Vísir - 27.06.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 27.06.1980, Blaðsíða 6
Föstudagur 27. júnf 1980. AUGLÝSING um aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæmi Reykjavíkur i júlimánuði 1980 Þriöjudagur l.júli R-44501 til R-44700 Miövikudagur 2. júli R-44701 til R-44900 Fimmtudagur 3. júli R-44901 til R-45100 Föstudagur 4. júli R-45101 til R-45300 Mánudagur 7. júli R-45301 til R-45500 Þriöjudagur 8. júli R-45501 tii R-45700 Miövikudagur 9. júli R-45701 til R-45900 Fimmtudagur 10. júli R-45901 til R-46100 Föstudagur 11. júli R-46101 til R-46300 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins, Bildshöfða 8 og verður skoðun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé greiddur og vatrygging fyrir hverja bif- reið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi að skráningar- númer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tima. Á leigubifreið- um til mannflutninga, allt að 8 farþegum, skal vera sérstakt merki með bókstafnum l: Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Aðalskoðun bifreiða mun ekki fara fram á timabilinu frá 14. júli til 8. ágúst n.k. Lögreglustjórinn i Reykjavik 25. júni 1980. Sigurjón Sigurðsson. Leysum út vörur fyrir fyrirtæki, kaupum vöruvíxla. Tilboð sendist augl. Vísis, Síðumúla 8, merkt „Víxlar" Æfingagallar á alla %Margar Htasamstæður • Ýmsar gerðir með eða án hettu Verð fra STÚRMÖT MEÐ ÞÁTT- TÖKU ERLENDRA GESTA Badminton mun skipa veg- legan sess á íþróttahátiö ÍSt. í hiísi TBR veröur haldiö fjögurra daga mót i badminton og veröa sjö danskir gestir meöal kepp- enda. Mót þetta veröur meö fjöl- mennustu mótum sem haldin hafa veriö hér á landi. Kepp- endur eru 141 og leiknir veröa yfir 200 leikir. Erlendu gestirnir sem hingaö komu eru annars vegar frá danska badmintonsambandinu, og hins vegar frá „Virum Sorgenfri Badminton Klub”. Frá danska sambandinu komu: Susanne Berg, Gentofte: 25 ára nýútskrifaöur kennari. Hefur leikiö þrjá landsleiki fyrir Dan- mörku. Danmerkurmeistari I tviliöaleik ásamt Lene Köpperi 1979. Lék til úrslita i einliöaleik i danska meistaramótinu 1980. Sigraöi i tviliöaleik i norska opnameistaramótinu 1978. Varö Noröurlandameistari i tviliöa- leik 1978. Claus B. Andersen, Hilleröd. 31 árs læknir. Talinn mjög leikinn badmintonmaöur. Er Sjálands- meistari I einliöa- og tviliöaleik 1980. Komst i undanúrslit i ein- liöaleik i danska meistaramót- inu 1980, þar sem hann tapaöi fyrir Morten Frost meö 15/7 og 15/10. Undanfarin ár hefur hefur hann veriö i 6-7. sæti á styrkleikalista Dana. 5 gestir eru komnir i boöi Badmintonfélags Akraness. Þeir eru félagar i Virum Sorgenfri Badminton Klub, en hann er I úthverfi Kaupmanna- hafnar. 1 félaginu eru ca. 825 meölimir og þar af 150 ungl- ingar ,50 keppnismenn. Félag þetta er ekki mjög gamalt, en þaö var stofnaö 1967. Mikil gróska er þó i starfseminni, og vænta Akurnesingar þess aö hér hefjist góö og varanleg sam- skipti milli félaganna. 1 kvöld veröur keppt i unglingaflokkum og i einliöaleik i fulloröinsflokkum. A laugar- dag verður keppni haldiö áfram meö keppni i tviliöa- og Þótt Iþróttahátiöin sé þaö sem hæst ber I heimi iþróttanna hér innanlands um helgina sitja knattspyrnumenn I 2. deild ekki aögerðarlausir, heldur leika þeir heila umferö I Islandsmótinu. Þaö er 6. umferöin sem er aö hefjast, og I kvöld eru tveir leikir á dagskrá. A Akureyri leika Þór og Þróttur frá Neskaupstaö og Selfyssingar fá KA frá Akureyri I heimsókn. Bábir þessir leikir hefjast kl. 20. A morgun eru aörir tveir leikir á dagskránni, Völsungar fá Hauka i heimsókn og liöin leika kl. 15, og kl. 16 mætast Austri og Isfiröingar á Eskifiröi. Siöasti leikur umferöarinnar veröur svo háöur á mánudags- kvöldiö og þá leika Fylkir og Armann á Laugardalsvelli. Ef marka má fyrstu umferöir tvenndarleik i fullorðinsflokk- um. Orslit I öllum greinum, svo og undanúrslit i einliöaleik verða á sunnudeginum 29. júni. keppninnar i 2. deild aö þessu sinni og úrslit leikjanna þyrfti engum aö koma á óvart þótt Akureyringar ættu tvö liö I 1. deild aö ári. Bæöi KA og Þór hafa sýnt mjög góöa leiki og liöin eru I efstu sætum deildarinnar. En þaö er stutt I næstu lið, og Isfiröingar, Völsungar og Haukar geta hæg- lega blandaö sér I baráttuna. Þá eru fylkismenn ekki langt undan eins og sjá má af stööunni sem fylgir hér meö. Þór...............5 4 0 1 12:4 8 KA................5 3 11 10:4 7 Isafj.............5 3 1 1 12:9 7 Haukar...........5 3 1 1 11:10 7 Völsungar........5 3 0 2 7:5 6 Fylkir...........5 2 1 2 9:4 5 ÞrótturN.........5 2 0 3 8:12 4 Armann.............5 113 6:10 3 Selfoss............5 113 6:12 3 Austri..........5 0 0 5 3:15 0 Heil umferð í 2. deílfl um helgina ATVINNUMENNSKA ER EKKI í SJÚNMÁLI 1 athyglisveröum fréttaauka I útvarpinu á dögunum ræddi Hermann Gunnarsson frétta- maöur nokkuö um þann mögu- leika aö koma á atvinnu- mennsku i iþróttum hér á landi og átti viötal viö nokkra menn i þvi sambandi. Ég er ekki I aö- stööu til aö rekja þær umræöur sem fram fóru I þættinum aö þessu sinni, en geri þaö e.t.v. siöar. Þaö er min skoðun, aö at- vinnumennska I Iþróttum eigi langt i land hér á landi og tel aö hún sé vart I sjónmáli. Hins vegar er þaö nauösynlegt aö gera eitthvað I þessum málum, ef svo á ekki aö fara sem horfir, aö allir knattspyrnumenn, svo dæmi sé tekið, veröi keyptir úr landi um leiö og þeir fara aö sýna umtalsveröa getu og það jafnveltil 3. deildar félaga I Svl- þjóö.-En hér er meira mál en svo, aö veröi rætt til hlitar aö þessu sinni og á þessum vett- vangi. Ég sagöi hér aö framan, ab þaö væri vart I sjónmáli aö ræöa um atvinnumennsku hér á landi, en hinsvegar er þaö brýnt aö fara aö vinnu aö þvi, aö bæta mönnum upp þaö mikla vinnu- tap sem þeir veröa fyrir vegna æfinga og keppni. Viö ger- um miklar kröfur til okkar áhugamanna þegar þeir keppa viö atvinnumenn annarra þjóöa og ætlumst til aö þeir fari meö sigur af hólmi. Og svo þegar viö mætum jafningjum okkar, áhugamönnum frá öörum þjóö- um og stöndum okkur bærilega, meö þvi jafnvel aö halda jöfnu, erum viö óánægöir og finnst litiö til koma. Ég hef rætt þaö áöur á þessum vettvangi, aö þaö kostar mikla peninga aö halda úti og reka sæmilega iþróttadeild, t.d. knattskpyrnudeild. Ég dáist aö mörgum þeim forystumönnum i Iþróttahreyfingunni sem sjá um aö afla þess fjár sem þarf til þess aö halda þessu gangandi og ég tel aö þeir geri sumir hverjir kraftaverk á hverjum degi. Þaö er t.d. ángægjulegt aö fylgjast meö þvi hvernig unniö er aö framkvæmd margra leikja I knattspyrnunni, enda sýnist mér aösókn aö knattspyrnu- leikjum hafa verið meiri I ár, en oft áöur. Hjá öörum þjóöum hafa bæöi sambönd og einstök félög fjársterk fyrirtæki á bak viö sig sem veita verulegum fjármunum til iþróttastarfsins sem ekki er fyrir hendi hér á landi. Meöan svo er, aö viö þurfum aö fjármanga Iþróttastarfiö I landinu meö söfnun auglýsinga og sölu happdrættismiöa sýnist mér langt i land aö hægt sé aö tala um atvinnumennsku.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.