Vísir - 27.06.1980, Blaðsíða 16
20
vtsm
Föstudagur 27. júni 1980.
Tilboð óskast
i eftirfarandi
bifreiðar i
tjónástandi:
Daihatsu Charmant station árgerð 1979.
Lada sport árgerð 1978.
Simca 1100 station árgerð 1976.
Fiat 132 árgerð 1974.
Lada 1500 árgerð 1979.
Saab 99 árgerð 1975.
Lada 1600 árgerð 1979.
Datsun 100A árgerð 1974.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut 26/
Hafnarfirði laugardaginn 28. júní frá kl. 1—5.
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu Lauga-
vegi 103 fyrir kl. 5 mánudaginn 30. júnf.
Brunabótafélag Islands.
GULL - SILFUR
Kaupum brotagull og silfur, einnig mynt og
minnispeninga úr gulli og silfri.
Staðgreiðsla. Opið 10-12 f.h. og 5-6 e.h.
Islenskur útflutningur
Ármúla 1 Sími 82420
T Hafnarfjörður -
== Skrifstofustarf
Laust er til umsóknar starf afgreiðslugjald-
kera á Bæjarskrifstofunum.
Laun eru samkvæmt 10. launaflokki bæjar-
starfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist undirrituðum á
Bæjarskrifstofurnar Strandgötu 6 fyrir 5. júlí
n.k.
Bæjarritari
Frá Kennaraháskó/a ís/ands
Ennþá er hægt að komast á námskeið í Dan-
mörku 12.-28. ágúst fyrir íslenska dönsku-
kennara 4.-6. bekkjar. Nánari upplýsingar eru
veittar f Kennaraháskólanum i sfma 32290 kl.
10.30-12.00
Endurmenntunarstjóri
HUSVORÐUR
Starf húsvarðar í félagsheimili Frfmúrara
Skúlagötu 55 er laust til umsóknar.
Til greina koma eingöngu félagar i Frfmúr-
arareglunni.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Reglunn-
ar í Frímúrarahúsinu Skúlagötu 55 virka daga
milli kl. 13-16.
Umsóknir um starfiðþurfa að hafa borist fyr-
ir 15. júlf n.k.
Auglýsing
um styrki til leiklistarstarfsemi.
t fjárlögum fyrir áriö 1980 eru ætlaðar 7.5 millj. kr. til leiklistar-
starfsemi atvinnuleikhúsa, sem ekki hafa sérstaka f járveitingu f
fjárlögum.
liér meðer auglýst eftir umsóknum um styrki þessa.
I msóknum skal fylgja greinargerð um leikstarfsemi um-
sækjenda á siðastliðnu leikáriog áætlun um slarfsemina á næsta
leikári.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 25. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið, 25. júni 1980.
Gerast lánadrottnar
hluthafar í
NlðursuDuverksmiðju
K. Jónssonar & Co ?
Eins og fram kom i Visi I gær,
þá er allt útlit fyrir að rekstur
Niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
sonar & Co stöðvist i byrjun næsta
mánaðar verði ekkert aö gert.
Kemur þetta fram I bréfi sem
Mikael Jónsson, einn af forráða-
mönnum verksmiðmunnar, ritaði
til forseta bæjarstjórnar, Freys
Ófeigssonar, mánudaginn 23.
júní.
1 bréfinu segir orðrétt: Þar sem
fyrirsjáanleg er rekstrarstöðvun i
fyrirtæki okkar i byrjun næsta
mánaðar, sem skapa mun mjög
alvarlegtástand I atvinnumálum
bæjarins, förum við þess á leit aö
fjárhagserfiöleikar fyrirtækis
okkar verði teknir til umræðu á
fundi bæjarstjórnar sem haldinn
veröur á morgun þ.e. 24. júni 1980.
Við höfum sjálfir undanfarna
mánuði unniö að lausn þessara
erfiöleika, en þykir nú einsýnt að
þeir verði ekki leystir án for-
göngu bæjarfélagsins. Er það þvi
ósk okkar að bæjarstjórn Akur-
eyrar skipi nefnd til aö gera til-
lögur um lausn á þessum vanda-
malum. Við leggjum áherslu á að
mál þetta þolir enga bið.”
Traust og gott
fyrirtæki
Niðursuðuverksmiðja K. Jóns-
son & Co á sér áratuga sögu að
baki i atvinnulifi Akureyrar. Þar
hefur átt sér stað mikil uppbygg-
ing, svo eftir hefur verið tekið.
Verksmiðjan er einkafyrirtæki.
Hluthafar eru fimm og munu
bræöurnir Kristján og Mikael
Jónssynir vera aöaleigendurnir,
enda hvilir reksturinn á þeirra
herðum. Hefur dugnaður þeirra
verið rómaður hjá þeim er til
þekkja. Til skamms tfma naut
fyrirtækiö trausts og var álitið
stöidugt. Segir það sig raunar
sjálft, fyrst það er ekki löngu orð-
ið gjaldþrota eftir þau áföll sem
dunið hafa yfir.
Áföllin hafa verið stór
En skakkaföllin sem verk-
smiðjan hefur orðið fyrir hafa
gengið nærri fyrirtækinu. Það
fyrsta varð vegna gallaðra gaff-
albita, sem komnir voru á Rúss-
landsmarkað. Þeir reyndust
skemmdir að þvi er taliö var
vegna þess að hráefnið hafi veriö
Gisli
Sigurgeirsson
blaðamaður
skrifar:
skemmt. Samið var við kaupand-
ann um að bæta honum tjónið, að
hluta með fjárbótum og að hluta
meö nýjum gaffalbitum og skipf-
ist það nokkurn veginn til helm-
inga. Að sögn Gylfa Þórs
Magnússonar var tjón verksmiðj-
unnar af þessu á bilinu 130-150 m.
kr.
Ekki urðu menn ásáttir um
hver væri ábyrgur fyrir þvi að
gaffalbitamir fóru skemmdir á
markað. Kristján Jónsson tairi að
Rannsóknarstofnun fiskiönaöar-
ins hafi fengið marktæk sýni af
hráefninu. Starfsmenn stofnunar-
innar hafi þvi átt að finna gallann
og gera viðvart. Forráðamenn
Rannsóknarstofnunarinnar létu
hins vegar á sér skilja, aö Kristj-
an hafi valiö i þá sýnin. Þá var
haft eftir starfsfólki i verksmiðj-
unni, að þvi hafi ekki þótt allt með
^Unnið við niðuriagningu hjá K. Jónsson & co.
felldu við niðurlagningu á gaffal-
bitunum. Stjórnendur verksmiðj-
unnar hafi hins vegar ekki viljað
hlusta á slikt.
Úr þessu varö leiðindamál, sem
var látiö hjaöna niöur. Þaö þótti
ekki ástæða til að „hengja”
hvorkibakara eða smið. Það þótti
hins vegar ljóst að gallinn var i
hráefninu.
Varö þetta til aö skaða Rúss-
landsmarkaðinn i fyrra en Gylfi
Þór Magnússon taldi að mark-
aðurinn væri búinn að jafna sig og
horfur á góöri sölu þangað I ár.
Rækjurnar i
rangri sósu
En það var ekki búið með þetta.
Á sfðasta ári var kvartaö undan
rækjum frá verksmiðjunni, sem
sendar höfðu veriö til Þýska-
lands. Ekki er þó sýnt samkvæmt
áreiðanlegum heimildum, að
hægtsé að saka verksmiðjuna um
handvömm I þvl sambandi. Hins
vegar var ekki réttur lögur á
rækjunum, aö þvl er virðist fyrir
einhvern misskilning á milli
kaupandans og framleiðandans.
Þessar rækjur fóru aldrei á
markað og það var samdóma álit
heimildarmanna blaðsins að
þessi mistök hafi ekki skaöað
markaöinn I Þýskalandi, mest
fyrir tilstuðlan góðs umboðs-
manns Sölustofnunarinnar þar
ytra. Niðurstaðan varð sú að
rækjumar voru sendar til baka
aftur til endurvinnslu og þær sett-
ar I nýjan lög.
Hvaö, þetta varö mikið tjón
fyrir verksmiðjuna er ekki ljóst.
Kostnaðurinn hefur þó verið
verulegur við að endurvinna
rækjuna, flytja hana fram og til
baka og fá nýjar dósir.
Óvist með sildina
á Hornafirði
Niðursuðuverksmiðjan á birgð-
ir af saltslld á Hornafirði. Fyrir
skömmu kom I ljós að svonefndur
„spinnpækill” eöa „seigpækill”
haföi gert vart við sig, a.m.k. I
einhverjum hluta birgöanna.
Heildarverðmæti þeirra er um
300 m kr., en ekki er ljóst hvað
umfangsmikill pækillinn er, né
hvort hægt er að vinna sildina i
gaffalbita. Mun það ekki koma i
ljós fyrr en að nokkrum mánuð-
um liðnum. Þá verða opnaðar
gaffalbitadósir, sem sildar úr
þessum birgðum voru lagðar i.
Það fer eftir lyktinni úr dósinni
hvort tjón hefur orðið.
Umræddur pækill hefur skotið
upp kollinum I saltsild af og til.
Hann hefur þó orðið tiðari á seinni
árum, að þvl er heimildir blaðsins
telja. 1 þessu tilviki sendi verk-
smiöjan gamlar tunnur til Horna-
fjarðar undir sildina og er talið að
þær hafi ekki verið nægilega vel
þrifnar. Þvl hafi gerillinn kvikn-
að.
Ýmislegt fleira hefur
verið tint til
Ýmislegt fleira hefur veriö tint
til I fjölmiölum Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónssonar & Co hf. til
foráttu. Sumt hefur verið á rökum
reist annað ekki.
öll þessi umræða hefur orðiö til
þess að verksmiöjan og fram-
leiðsluvörur hennar hafa beöið
verulegan álitshnekki. Hefur sá
hnekkiroröið meirien ella vegna
þess að Kristján Jónsson hefur
veriö afskaplega fár I samskipt-
um slnum við fjölmiöla, svo ekki
sé meira sagt. Fyrst eftir að gaff-
albitamáliö kom upp gaf hann þó
„comment”, en hætti þvl fljót-
lega. Slðan hafa blaðamenn oftast
gengiö bónleiðir til búðar hjá