Vísir - 01.07.1980, Blaðsíða 1
Anderson og Flugleiðir:
Leigir botu
með íslenskri
áhöfn
Bandariski forsetafram-
bjóöandinn John R. Anderson
hefur ákveöið aö taka eina af
Boeing 727 þotum Flugleiða á
leigu i júli.
t fréttum fjölmiðla fyrir helgi,
kom fram að Anderson væri
hættur við að leigja þotuna, en
samningagerð var þá næstum
lokiö. Hinsvegar kom i ljós að
bandariskt flugfélag sem stóð til
að leigja Anderson vél gat það
ekki, og var þvi aftur snúið til
Flugleiða.
Islensk áhöfn verður meö
vélinni. Vélin flygur héðan þann
6. júli. Flogið verður til
Washington DC þaðan til London,
Tel Aviv, Kariro, Bonn, Berllnar,
Paris, London og svo aftur til
Washington. Innréttingu vélar-
innar verður breytt, og verða
sæti fyrir 80 manns. Vélin kemur
aftur til tslands 18. iúlL SÞ
FlugumferOarsilörar:
Ekkerf yfir-
vinnubann
,,Það náðist ekki samkomulag
við samgönguráðuneytið um þær
leiðréttingar á sumarsamkomu-
laginu sem við fórum fram á, en
við ákváðum um helgina að
hafast ekkert frekar að i málinu
og vinna samkvæmt óbreyttum
samningum”, sagði Baldur
Agústsson, formaður Félags flug-
umferðarstjóra, i samtali við Visi
~i morgun.
Baldur sagði þessa ákvörðun
vera i samræmi við úrslit al-
mennrar atkvæðagreiðslu, sem
fram fór nýlega meðal félags-
manna.
Eins og kunnugt er boðuðu flug-
umferðastjórar yfirvinnubann ef
ekki fengjust fram ákveðnar
breytingar i sambandi við
greiðslur fyrir aukavinnu, en nú
hafa þeir sem sagt fallið frá þeim
aðgerðum. —P.M.
Meðalhiti i iúní
undlr meðallagii
Hjá veðurstofunni fengum viö
þær fréttir, að meðalhiti 29 fyrstu
dagana i júni væri 9,2 stig, eða 0,2
stigum undir meöallagi. Það skal
tekið fram að á þeim tlma sem
við miðaö er við (1930-1960) voru
júnimánuöir óvenju heitir, og
þykir því gott að ná meðallagi.
Vinningshalar i
Sumargelrauninni
Dregið hefur verið I Sumar-
getraun Visis, sem birtist 12. júnf.
Vinningar eru 5 Petrol King
bensinsparar á kr. 22.540 pr.st.
Lárus Agústsson,
Hátúni 12, Reykjavik.
Gunnlaugur Thorarensen
Vesturbergi 72, Reykjavlk.
Margrét Pétursdóttir,
Skipasundi 44, Reykjavik.
Soffla Guðmundsdóttir,
Eyrarvegi 27, Akureyri.
Pálina Björnsdóttir,
Kjarrhólma 30, Kópavogi.
Vinningar eru frá Sveini Egils-
syni h/f.
Dregiö hefur verið I
sumargetraun VIsis, sem birtist
13. júni.
Vinningshafi: er Ásdis Braga-
döttir,
Nesbala 8, Seltjarnarnesi.
Vinningur er Binatone 6 leikja lit-
tæki<verö 55.280.
Vinningur er frá Radlóbæ h/f.
Einn fálkaunganna gægist upp úr töskunni, sem þjófarnir hugöust flytja hann i úr landinu. Visismynd: ÞG
Austurriskir fálkaungaplðfar handteknir og sendlr út:
ÆTLUÐII Afl SMVGLA
9 UNGUM ÚR LANDI
SOluverðmæti hvers lugis um 15-20 mllljónlr krðna
Þrír Austurríkismenn
voru handteknir á
Reykjavíkurflugvelli í
gærmorgun en þeir höföu
meðferðis frá Akureyri
fimm fálka og fjóra
smyrilsunga sem þeir
munu hafa ætlað sér að
smygla úr landi.
Að sögn Héðins Skúlasonar
fulltrúa I rannsóknardeild lög-
reglunnar komu mennirnir
hingað til lands hinn 24. júni sl.
og héldu strax noröur i land.
Þar voru fuglarnir veiddir og
komst lögreglan á snoðir um
fyrirætlanir mannanna aö
smygla þeim úr landi. Hér er að
sjálfsögðu um lögbrot að ræöa
en taliö er aö gangverö á slikum
fuglum sé á bilinu 15-20 milljón-
ir.
Stuldurinn átti sér stað noröur
i Þingeyjarsýslu og er ekki I
fyrsta sinn, sem þar er gerð til-
raun til sllks þjófnaðar.
Einn fáikaunginn dauður
L
„Viö uröum að afllfa einn
fálkaungann, hann var brotinn
og orðinn mjög lélegur. Við von-
um aö annar sem er einnig illa
farinn nái sér”, sagði Ævar
Pedersen hjá Náttúrufræöi-
stofnun Islands.
„Við munum reyna að hafa
ungana uppi á Keldum, ef það
tekst að halda I þeim Ilfinu, og
ráögerum að sleppa þeim eftir
nokkrar vikur”.
„Annars viröist þetta alltaf
vera aö gerast. Nú I vor komu
t.d. þýskumælandi menn á þess-
ar slóöir, voru með mynd af
Lögreglumenn meö töskurnar, sem ungarnir voru geymdir I.
Visismynd: ÞB
fálka og spuröu börn um hreiö-
urstaöi”.
„Þaö horfir til stórvandræða
að þetta skuli koma upp á
hverju vori og aldrei að vita
hversu algengt þetta er. Það
besta sem viö getum gert er að
fólk úti á landi veröi meira vak-
andi fyrir grunsamlegum ferð-
um og láti vita, slikt væri til
stórra bóta”, sagði Ævar
Pedersen.
Skandinavia lokar á þjóf-
ana í fimm ár
„Höfuðpaurinn kom hingaö 6.
mal og virtist hafa stúderað
þetta til 16. mai er hann fór úr
landi. Siðan kom hann með
þetta liö 24. júni”. sagði Arni
Sigurjónsson hjá Útlendinga-
eftirlitinu.
Hver er sektin?
„Ætli fjársekt sé ekki 25.000
krónur en refsingin er mikiö
meiri, þvi nú er lokaö á þá til
Skandinaviu næstu 5 ár”.
Meðferð þessa máls gekk
mjög fljótt fyrir sig. Austur-
rikismennirnir voru dæmdir um
sjöleytið I gær og voru fluttir ut-
an i morgun.
Arni sagði að fylgst væri vel
með ferðum útlendinga á fálka-
slóöir og væri gott samstarf við
fólk i dreifbýlinu.
AS/-Sv.G.