Vísir - 01.07.1980, Blaðsíða 24

Vísir - 01.07.1980, Blaðsíða 24
wimm Þriðjudagur 1. júlí 1980 síminner 86611 Veöriö hér og bar Klukkan sex I morgun: Akur- eyriléttskýjaö 8, Bergenskýj- aö 12, Helsinki léttskýjað 18, Kaupmannahöfn skýjað 14, Ósld skýjað 15, Reykjavlk skýjað 10, Stokkhólmurskýjað 15. Klukkan dtján í gær: Aþena heiðsklrt25, Berliniirkoma 12, Chicago hálfskýjað 23, Feneyjar léttskýjað 21, Frankfurt léttskýjað 18, Nuuk þoka 3, Luxembourg skýjaö 16, Las Palmas léttskýjað 23, Mallorcaskýjað 23, New York léttskýjað 27, Parlsskýjaö 19, Maiaga léttskýjað 24, Vln hdlfskýjaö 17, Winnipeg skýj- aö 23... veðurspá dagslns Skammt suöur af Hornafirði er 1023 mb hæð en yfir suð- vestanverðu Grænlandshafi er 995 mb lægö sem hreyfist norðaustur. Hiti breytist lit- Íö.-r Suðurland til Vestfjarða: SA gola og skýjaö i dag en SA gola eöa kaldi og siðan rigning i kvöld. Noröurland vestra: Hægviðri og víðast léttskýjað I dag en SA gola eða kaldi og skýjað 1 nótt. Norðurland eystra til Suðaust- urlands: Hæg breytileg átt og vlðast léttskýjaö en sums staðar þokubakkar á miðun- um lit af austanveröu landinu. segir ,,Eins og að stinga höföinu I sandinn” segir bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi um þá ákvörðun Seltirninga að hafna áfengisút- söiu. Þetta er nú i fyrsta sinn, sem guðaveigar eru blandaðar sandi. Vigdisi Finnbogadóttur, nýkjörnum forseta tsiands, fagnað við heimili hennar á Aragötunni I gærkvöldi. Vlsismyndir: GVA Vigdísi fagnað i gærkvöld: „Megi fsland lifa um aldir” Mikill mannfjöldi safnaöist saman fyrir utan hús Vigdlsar Finnbogadóttur, nýkjörins for- seta, að Aragötu 2 um niuleytið I gærkvöldi. Það voru stuðnings- menn hennar, sem stóðu fyrir fundinum, og streymdi þangað að fólk úr öllum áttum I góða veðr- inu. Fundurinn hófst á þvl, að lúðra- sveit undir stjórn Eyjólfs Melsted lék nokkur ættjarðarlög og Karla- kór Reykjavikur söng meðan fundarmenn biðu þess með eftir- væntingu, að hinn nýi forseti birt- ist. Þegar svo Vigdis kom fram á svalir húss sins var henni fagnað mikið og innilega. Þór Magnússon, þjóöminja- vörður, tók fyrstur til máls og sagöist fyrir hönd framkvæmda- nefndar stuðningsmanna Vigdis- ar vilja færa henni árnaðar- og hamingjuóskir fyrir verðskuldaö- an sigur og slöan var hrópað fer- falt húrra fyrir nýja forsetanum. Þá tók til máls Vigdls Finn- bogadóttir og sagöi, aö sér væri efst I huga þakklæti til þeirra, sem sýndu sér þann sóma aö heimsækja sig á heimasetur sitt. Slðan las hún upp úr bókinni Spá- maðurinn I þýðingu Gunnars Dal, en sú bók hafði henni verið færö að gjöf nokkru áöur, en þar sagði m.a.: „Til eru þeir, sem geyma litið af nægtum sínum og þeir, sem gefa til að láta þakka sér og hin dulda ósk þeirra eitrar gjöf- ina. Til eru þeir, sem eiga litiö að gefa og gefa það allt. Þetta eru þeir, sem trúa á llfið og nægtir íifsins og þeirra sjóður verður aldrei tómur”. 1 lokin sagöi Vigdls: „Megi Is- land lifa um aldir, frjálst land. ís- land lengi lifi! Guð blessi og allar landvættir Islands, sem eiga sinn appruna I helgri bók, börnin okk- ar”. Að siöustu þakkaði Þór Magnússon gestum komuna og túörasveit lék „Land mins föður, landiö mitt”. —K.Þ. Vigdls les hluta þeirra fjölmörgu skeyta, sem henni bárust I gær vlða að úr heiminum. Vigdis Finnbogadóttir ásamt dóttur sinni, Astrlði, og Þór Magnússyni, þjóðminjaverði, á svölum hússins að Aragötu 2 I gærkvöldi. Hún var klædd 1 prjónaföt, sem ónefnd kona utan af landi sendi til Vfsis I upphafi kosningabaráttunnar með beiðni um að Vlsismenn kæmu þeim áleiðis til Vigdisar. Sæmundur Guðvinsson, blaðamaður á VIsi, afhendir Vigdisi prjóna- fötin I maí s.l. Vísismynd: GVA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.