Vísir - 01.07.1980, Page 6
lék vel á
SR-molið i goiii:
Siguröur
Bifreiðin á myndin i sem herramennirnir standa við er i verðlaun fyrir þann sem fer holu I höggi á 17.
brautí „Opna GR mótinu” i golfium helgina.
Utanlandsferðir 09
fleira i verðlaun
- Og Hll fyrir Uann sem verður svo hepninn að fara holu I einu
höggi á „Opna CR” mðfinu í golfl sem fram fer um helgina
„Þetta mót hefur náð geysi-
legum vinsældum enda er
keppnisfyrirkomulagið til þess
fallið að laða menn að og við
reiknum með að fá á milli 100 og
150 manns i mótið núna, sagði
Magnús Jónsson formaður Golf-
klúbbs Reykjavikur á fundi með
blaðamönnum á dögunum, en þar
var rætt um „Opna GR-mótið”
sem fram fer i Grafarholtinu um
næstu helgi.
Öhætt mun að fullyrða að aldrei
hafa jafnglæsileg verðlaun verið i
boði hjá GR um helgina. Verð-
launin skipta sennilega tugum
milljóna að verðmæti og alls
verða þaö um 45 aðilar sem fá
örugglega verðlaun.
Keppnisfyrirkomulagið er það
sama og áður, tveir og tveir leika
saman sem liö og telur betri bolti
þeirra á hverri holu. Gefin er 7/8
forgjöf, og það hefur reynst mjög
vinsælt að maður með lága for-
gjöf og annar með háa forgjöf
spili saman.
Þátttökugjald fyrir hvern ein-
stakling er 25 þús. krónur og
hefúr að sögn þeirra GR-manna
ekki nærri þvi fylgt verðbólgunni
miðað við að það kostaði 15
þúsund i fyrra. En þeir tóku fram
að öll verðlaunin væru verðmeiri
en þátttökugjaldið og flest
reyndar margföld að verðgildi.
Fyrstu verðlaun verða 2 sólar-
landaferðir, önnur verðlaun 2
flugferðir Reykjavik-Lond-
on-Reykjavik og þriðju verðlaun 2
Slazenger golfsett. Af öðrum
verðlaunum en þau eru veitt 20
fyrstu pörunum má nefna hræri-
vélar grillofna, útvörp, viðleguút-
búnað, gólflampa, vasatölvur,
veiðistangir og Iþróttafatnaður.
Aukaverðlaun
Ef einhver keppandanna
verður svo heppinn að slá fyrsta
teigskot á holu á 17. braut þá get-
ur sá hinn sami ekiö heim á glæ-
nýrri „Chrysler Horison” bifreið
að verðmæti 6,5 milljónir, en hún
er í boði fyrr þann heppna. 1 fyrra
munaöi aöeins nokkrum cm að
billinn gengi út og hvað gerist nú?
Fleiri aukaverðlaun eru; glæsi-
leg málverk eftir Baltazar og
Gunnar Þorleifsson fyrir holu i
höggi á 2. og 6. braut og herraföt,
jakki og golfpoki fyrir að vera
næstur holu á 2. 6. og 11. braut.
I keppninni verða leiknar 36
holur, 18 á laugardag og 18 á
sunnudag. Þátttakendum er boðið
til kvöldfagnaðar á föstudags-
kvöldið I Golfklúbb Reykjavikur
en þar verður keppnisfyrirkomu-
lagiö kynnt og gamlar og nýjar
golfmyndir skoðaðar. — Þess má
aö lokum geta að verndari
mótsins að þessu sinni er Anna
Kristjánsdóttir en hún er eigin-
kona Gunnlaugs Einarssonar sem
var fyrsti formaður GR. — gk.
Æfingagallar á alla
fjölskylduna
%Margar
litasamstædur
Ymsar gerðir
með eða án
hettu
Verð fra
kr.
11.100.-
íprðlfamaður Vísis og Adídas i júni:
Kjðrinu lýst í
blaðinu á morgun
Kjöri tþróttamanns VIsis og var það lyftingamaöurinn hreppir hin veglegu ADIDAS-
Adidas fyrir júnimánuð veröur Arthur Bogason sem var kosinn verölaun fyrir júnl-mánuö
lýst hér I blaöinu á morgun. en iþróttamaöur VIsis og Adidas kemur semsagt I ljós á morgun
þaöveröur!2. skipti sem kjöriö fyrir mai-mánuö og var hann er viö kunnkjörum kjöriö hér I
fer fram. leystur út meö veglegum verö- VIsi.
Eins og menn eflaust muna launum hjá Adidas. — En hver gk—.
Skaganum
Sigurður Hafsteinsson.hinn
knái kylfingur úr Golfklúbbi
Reykjavikur varö sigurvegari i
SR golfmótinu sem fram fór á
velli Golfklúbbsins Leynis á
Akranesi um helgina. Sigurður
lék mjög vel á Skipaskaga um
helgina.og hannlék 36holurnar á
sunnudaginn á 148 höggum.
Eftir fyrstu 9 holurnar var
Sigurður Pétursson GR, meistar-
inn frá i' fyrra i fyrsta sæti á 37
höggum en Sigurður Hafsteinsson
náði forustunni i næsta hring er
hann lék á 36 höggum. í þriðja
hringnum lék hann enn betur,
kom inn á 35 höggum og innbyrti
sigurinn meö þvi aö leika siðustu
9 holumar á 38 höggum. Efstu
menn uröu þessir:
Sigurður Hafsteinss. GR... 148
Björgvin Þorsteinss. GA... 151
Sig. Pétursson GR......... 152
HannesEyvindss.GR......... 153
Óskar Sæmundss GR ........ 156
Guðni Jónsson GL.......... 159
Siguröur Hafsteinsson.
Jdh. Ó. Guömundss. GR...... 159
JUlÍusR. Júliuss. GK ...... 161
Sig. Thorarenssen GK ...... 163
Bjöm H. Bjömsson GL........ 165
Jónas Kristjánss. GR....... 165
Með forgjöf (fyrri 18 holurnar”
varð Guðni Jónsson sigurvegari,
og I 2. flokki varð Alfreð Viktors-
son GL sigurvegari á 81 höggi en I
þeim flokki voru leiknar 18 holur.
Þetta mót var stigamót fyrir
landsliðsval og gaf mótiö 85 stig.
Keppendur voru alls 53, en það er
mun minna en undanfarin ár. Er
ekki erfitt að sjá ástæður þess.
Kosningar stóðu yfir,
unglingamót I golfi fór fram á
Hvaleyri og Iþróttahátiö ISÍ var i
fullum gangi.
gk —.
Bikarkeppni KSÍ:
Víkingur
mæfir
KAá
Akureyri
Aðalhluti Bikarkeppni Knatt-
spyrnusambands Islands hefst I
kvöld meö tveimur leikjum, og
verða þeir háðir á Laugardals-
velli og á Akureyri. Þetta eru
fyrstu leikirnir I 16-liöa úrslitun-
um en á morgun eru siðan 5 leikir
á dagskrá og sfðasti leikur þess-
arar umferðar fer siðan fram um
æstu helgi.
Leikirnir I kvöld eru á milli KA
og Vikings og fer sá leikur fram á
Akureyri. Eflaust verður þarna
um hörkubaráttu aö ræða, KA er I
hópi efstu liða i 2. deild en
Vikingarnir i neðri hluta 1.
deildar.
Hinn leikurinn er á milli
Þróttar og Breiðabliks og fer
fram i Laugardalnum. Þar mæt-
ast tvö lið sem eiga að vera
nokkuö jöfn ef allt er eölilegt, en
miklar sveiflur hafa verið I leik
beggja þessara liöa aö undan-
förnu. Báðir leikirnir hefjast kl.
20. gk -.