Vísir - 01.07.1980, Page 11
VISIR Þriöjudagur 1. júll 1980.
r " P av a rötTi "u n dTpöýr^s í g TýriT kvíkmvnfl"aÍeÍk"og hinir Hoíiy wooflsi jörnur: 1
.Jlermdi eftlr Mario Lanza
fyrir framan spegilinn”
Luciano Pavarotti sem hér
söng við frábærar undirtektir á
Listahátið var á ferð i Holly-
wood fyrir skömmu, þar sem
verið er að undirbúa töku kvik-
myndar með honum i aðalhlut-
verki.
Kvikmyndataka á ,,Já,
Giorgio”, en svo á myndin að
heita, hefst næsta sumar. Þetta
er rómantiskur gamanleikur og
til stendur að fá Sally Fields
sem mótleikara.
Hollywood-stjörnur héldu
Luciano Pavarotti veislu og
buðu hann velkominn i hópinn.
Luciano mætti i veisluna með
hnappa sem á stóð „Verið hug-
rakkir”. Hann byrjaði siðan á
að kyssa allt kvenfólk sem var i
seilingarfjarlægð. ,,Ég elska
fallegar konur”, sagði hann.
Þvi næst réðst hann á veiting-
arnar af engu minni ástriðu en
kvenfólkið, að þvi er segir i
bandarisku timariti, sem Visi
hefur borist. „Ég verð máttlaus
ef ég borða ekki”, sagði hann og
Carol Burnett með áritaða mynd af goðinu, „Ef þú kennir mér aö
syngja”, sagðihún, ,,þá skal ég kenna þér Tarsan-öskrið mitt”.
Luciano, Bernadette Peters og Steve Martin.
virtist i augnablikinu hafa
gleymt allri megrun.Luciano er
sifellt i megrun, en árangurinn
lætur á sér standa.
Stjörnurnar voru yfir sig
hrifnar af kappanum, og þyrpt-
ust um hann.
Luciano sagði við viðstadda
að sig hefði alltaf langað til að
verða stjarna. „Þegar ég var
ungur sá ég allar myndir Mario
Lanza. Siðan stóð ég fyrir
framan spegilinn og reyndi að
herma eftir honum. Það lá við
að ég spryngi á háu tónunum”.
„Ég held ég yrði nú samt
ruglaður ef ég yrði of lengi hér i
Hollywood”, sagði Luciano
Pavarotti.
„Vertu bara þú sjálfur”, segir Kirk Dogulas. „Þegar ég kom fyrst
til Hollywood, var sett kitti i hökuskarðið á mér. Það er ekki gert
iengur. Núna er það vörumerkið mitt’f
pew® GULLFALLEGA SÓFASETT
íK
v Vs,'*', •
mMi
Húsgagnavers/un, S/ðui
Simi 84200
klætt mohair áklæði er til sölu
ásamt 2 sófaborðum
Kostar aðeins kr. 1.050.000.-
(Notað - en mjög vel farið)