Vísir - 01.07.1980, Qupperneq 14
,,Væri nú ekki ráö aO minnka aöeins loftiö I blöörunni”? segir bréfritari.
STOLT SIGLIR
R.Þ. skrifar:
Stolt siglir fleyiö mitt.. er nú
sungiö af kappi um þessar
mundir. Þetta fiey gæti allt eins
veriö þjóðarskútan — stolt og
sperrt, þótt inni fyrr sé aðeins
17. júni blaðra, alveg að þvi
komin að springa. Þessa blöðru
er búið að þenja svo oft út og
fylla af svomiklu munnvatni, að
fljótlega gefst hún upp, og þar
með glansmyndin utan á henni.
Væri nú ekki ráð að minnka
FLEYID
aðeins loftið i blöðrunni? Auö-
vitað væri það á kostnaö glans-
myndarinnar utan á, hún myndi
aðeins krumpast og ekki vera
eins fögur — en ætli blaðran
haldist ekki heil með þvi móti?
Stolt siglir fleyið mitt, stór-
MIITT
sjónum á — enn er vist timi til
að hoppa þvi frá — en biöjum
þess þó, að við höfum skipstjóra
sem hefur kjark og þor til þess
að taka ákvarðanir um að hægja
ferðina þótt skipsgestir verði
ekki allir jafn ánægðir.
,,Ég vil fyrir hönd allra Clashaödáenda i landinu þakka listahátiö fyrir Clashhljómleikana” segir
bréfritari.
Endurflyijio elnl með Clash
Meira
um
fjúkandi
rusl
en áður
Þjóðþrifamaður
skrifar:
Ég minnist þess er ég hripa
þessar llnur, aö ekki alls fyrir
löngu lét stjórnmálaflokkur svo
um mælt að nú væri helsta verk-
efni Islendinga að prýða landið.
Nú höfum við fengið prýðilegan
forseta af öörum ólöstuðum en
ýmislegt má betur prýða svo vel
sé aö staðið. Hér á ég viö um-
gengni manna á götum og gang-
stéttum.
Það er ekki ýkja langt slöan,
sem það þótti sjálfsagt að
henda ösku og rusli úr
öskubökkum bifreiöa beint á
götuna. Jafnvel þótti þaö dæmi
um þrifið fólk sem haföi alltaf
öskubakkann hreinan.
Nú er þaö svo að Reykja-
víkurborg virðist ekki lengur
hafa efni á að gefa öldruðum at-
innu með þvl að þeir þrifi
óturnar og þvi finnst mér
meira fariö að bera á fjúkandi
rusli en áður.
Ég minnist á þetta, nú þvl á
kosningadaginn varð ég vitni að
þvi að fá yfir mig fjúkandi ösku
og sigarettustubba, þegar eldri
kona á Fólksvagni taldi sig
þurfa að þrlfa til I bílnum sln-
um. Það er eins og fólk haldi aö
til sé eitthvert dularfullt afl sem
eyði þvl er við fleygjum um
götur borgarinnar okkar, já-
höfuöborgar Islands. Það safn-
ast þegar saman kemur og á
þaö jafnt við um rusl sem pen-
inga, þó hiö fyrrnefnda aukist
meir þar sem blessuö verö-
bólgan vinnur ekki á þvl.
Reynum nú að vanda fram-
komu okkar og gera borgina
prýðilega i orðsins fyllstu merk-
ingu.
Clash-aðdáandi
skrifar:
Ég vil fyrir hönd allra Clash-
aðdáenda I landinu þakka lista-
hátíö fyrir Clashhljómleikana.
Ég vil einnig þakka Þorgeiri
Astvaldssyni fyrir lögin með
Clash, sem hann spilaöi i sjón-
varpinu og útvarpinu.
Svo vildi ég spyrja nokkurra
spurninga sem hljóða svo:
1. Getur Þorgeir Astvaldsson
ekki endursýnt i sjónvarpinu
lögin, sem hann spilaöi með
Clash? Það eru nefnilega miklu
fleiri sem þekkja Clash núna en
fyrir hljómleikana og hafa
meiri áhuga á þeim núna. Það
ætti að vera hægt að endurtaka
þetta, eins og Þorgeir hefur
endurtekið mörg lög með ekkert
vinsælum hljómsveitum.
2. Getur útvarpið endurflutt
þáttínn um Clash? Hann var á
svo óþægilegum tima (um
miðjan dag á virkum degi,
þegar allir unglingar eru að
vinna). Best væri að endurflytja
hann á kvöldin á virkum degi,
helst mánudegi.
3. Af hverju spiluðu Fræflarn-
ir ekki á Clashhljómleikunum?
Bubbi Morthens var svo sem
frábær, eins og við mátti búast
og ekki siðri en sjálfir Clash,
það hefði verið fjölbreyttara að
hafa tvær hljómsveitir á undan
Clash, og þar að auki hefði
hljómleikarnir orðið lengri.
Ég vona að einhver geti
svarað þessu.
14
sandkorn
Að nafa bað
heldur er
sannara
reynlst
t Sandkorni I gær birtist
ósmekklegar aðdróttanir I
garð Siguröar Magnússonar
skrifstofustjóra tSt, sem höf-
undur þessa dálks harmar að
vera ábyrgur fyrir. A þessu
máli sem öðrum eru tvær
hliðar og á þeirri hliö sem velt
er upp i Sandkorni er farið
frjálslega meö staðreyndir og
þagað yfir öðrum, sem á rætur
að rekja til rangra upplýsinga.
1 skrifum þessum var gefiö I
skyn, að það væri óeðlilegt að
Sigurður færi á Olympluleik-
ana I Moskvu sem blaða-
maður. Sannleikurinn er hins
vegar sá, að APN fréttastofan
bauð iþróttablaöinu að senda
fulltrúa á leikana en Sigurður
er ritstjóri þess blaðs. Það er
þvi ekkert óeölilegt við aö
hann fari sem fulltrúi blaðs-
ins.
1 öðru lagi er Sigurður velt
upp úr gamalli slúðursögu um
að hann hafi farið sem nuddari
á Olympluleikana I Munchen
1972. Það er ekki rétt þvl Sig-
urður fór I þá ferð einnig sem
fulltrúi iþróttablaðsins.
Nú er þaö svo, að oft reynist
erfitt að byggja upp það sem
búið er að rifa niöur, sem I
þessu tilfelli er ósanngjörn aö-
för að mannorði Sigurðar. t
trausti þess, að menn hafi það
heldur er sannara reynist er
Sigurður hér með beöinn af-
sökunar.
Að leika
á fiðlu
Þá eru forsetakosningarnar
afstaönar og menn væntan-
lega aftur komnir niður á jörð-
ina eftir alla þá umræðu há-
stemmdra lýsingarorða sem
fylgdi kosningabaráttunni.
t hita leiksins gleymdust
raunveruleg vandamál
þjóðarinnar sem auövitað
hrönnuðust upp á meðan menn
léku sér með hégómleg orð um
útlit og framkomu forseta-
frambjóðendanna. t ágætum
leiöara I VIsi I slöustu viku var
þessu likt við það þegar Neró
lék á fiðlu meðan Róm brann.
En nú er gálgafresturinn
runninn út, og villuráfandi
ráðamenn geta ekki lengur
falið sig I moldviröri barátt-
unnar um forsetaembættið.
Hins vegar viröist fátt benda
til, að úr þeim herbúðum sé að
vænta einhverra úrbóta á
þeim vandamálum sem nú
blasa við...