Vísir - 01.07.1980, Blaðsíða 16
Umsjón:
Magdalena
Schram
VÍSIR
Uriöjudagur 1. júll 1980.
Gáfu af rausn: Ingibjörg Guömundsdóttir og Sverrir Sigurösson.
„Fullkomlð yfirlll
á verkum Þorvaifls"
Björn Th. Björnsson. lístfræðingur inntur eltlr
málverkagjöf ill Háskúia isiands
Eins og fram hefur komið f
fréttum, hefur Háskóla Islands
veriö gefin mikil málverkagjöf
af hjónunum Ingibjörgu Guö-
mundsdóttur og Sverri Sigurðs-
syni. Til aö forvitnast nánar um
myndirnar, var talaö viö Björn
Th Björnsson iistfræöing.en
hann skipar, ásamt Gylfa Þ.
Gfslasyni og Sverri fyrstu stjórn
safnsins:
— Þaö ættu nú flestir að kann-
ast við Sverri, hann er oft nefnd-
ur Sverrir iSjóklæðagerðinniog
hefur verið mikill stuönings-
maður lista og listamanna. Þor-
valdur Skúlason, Kristján
Davfðsson og Jóhannes Geir
höfðu allir vinnustofu I Sjóð-
klæðagerðinni og Sverrir aðstoð-
aöi þá og keypti af þeim myndir,
einkum Þorvaldi.
Tilgangurinn með gjöfinni er,
að hún verði stofn aö rannsókn-
arsafni til kennslu i Islenskri
myndlist við Háskólann. í stofn-
skrá safnsins segir enn fremur
aö þaö skuli fá 1% af öllu ný-
byggingarfé skólans á hverju
ári, sem er geysilega mikil upp-
hæð.
Slfkt rannsóknarsafn opnar
ótal möguleika. Hér viö skólann
eru rannsóknarstofnanir bók-
mennta, örnefna, þjóöfræði
o.s.fr., en engin hefur veriö til
fyrir islenska myndlist.
Nú, myndirnar verða sýndar i
Háskólanum til 3. ágúst. Þeim
er hugsaö húsnæði I Hugvis-
indahúsi skólans, en bygging
þess hefst nú I sumar. Það verð-
ur staösett fyrir neðan Arna-
garö. En I framtiðinni munu
málverkin vera I Safnhúsi
Háskólans.
,,Fullkomið yfirlit”
— Gjöf hjónanna er 70 málverk
eftir Þorvald Skúlason og einar
40 teikningar eftir hann og svo
eru um 25 málverk eftir ýmsa
aðra. A sýningunni núna er
þessu skipt þannig, að I fordyr-
inu niðri eru verk eftir eldri
málara, t.d. Gunnlaug Schev-
ing, Snorri Arinbjarnarson,
Kristinu Jónsdóttur og Gunn-
laug Blöndal. Og uppi, i fordyr-
inu, þar eru myndir yngri
manna, þar er allur Septem
hópurinn, Kristján, Jóhannes,
Valtýr og Kjartan og einn að
auki, Vilhjálmur Bergsson. Og i
hátiðasalnum eru siðan mynd-
irnar eftir Þorvald.
Þær hanga i rétttri timaröð,
það elsta ersiöan Þorvaldur var
12 ára og áður en hann fór að
læra. Það eru 56 eða 57 ár, sem
skilja aö elstu og yngstu mynd-
irnar. —Já, þessar myndir gefa
alveg fullkomið yfirlit á sögu
Þorvalds, ég held það vanti eitt
einasta ár i alla hans sögu.”
Fleiri gjafir
Sýningin er opin á hverjum
degi milli kl. 2 og 6 og er að-
gangur ókeypis.
Háskóla tslands hefur einnig
borist önnur höfðingleg gjöf,’
ekkja Luöviks Storr, Svava,
og dætur þeirra hjóna, hafa af-
hent skólanum húseignina við
Laugaveg 15 til ráðstöfunar aö
vild. Ms
Rannsaka islenskan framburð
Af úthlutun Vfslndasjóðsstyrkja
Úthlutun styrkja úr Visinda-
sjóði er lokið fyrir þetta ár. Hæsta
styrk hugvisindadeildar fengu að
þessu sinni þeir dr. Höskuldur
Þráinsson og dr Kristján Arna-
son, 5 milljónir, til rannsókna
á Islenskum nútfmaframburði.
Að sögn Höskuldar fengu þeir
félagar styrk i fyrra til að byrja á
þessum rannsóknum og hafa íeir
verið aö þreifa sig áfram meö aö-
ferðir og skipulag verkefnisins.
Rannsólknirnar eru tviþættar:
annars vegar samanburður á
þeim rannsóknum, sem Björn
Guðfinnsson, málfræðingur gerði
um og eftir 1940 á framburöi og
heins vegar samanburður á
framburði yngri og eldri kyn-
slóða, nefndi Höskuldur, að Björn
Guðfinnsson hefði notaö um 3 ár
til aö safna gögnum. „Björn
athugaði aðeins framburð
unglinga á aldrinum 10-13 ára, en
við höfum áhuga á að hlusta á
framburð fleiri kynslóða og e.t.v.
emira en framburðinn, t.d. orð-
færi og eitthvað fleira. „Þvf er
ekki gott að segja um þaö fyrir-
fram hversu mikils tima við
þörfnumst.”
Úr hugvisindadeild sjóðsins
hlutu einnig styrk þeir Jón Gunn-
arsson ldctor og Indriði Gislason
lektor til verkefnisins „Máltaka
Islenskra barna á forskólaaldri”,
kr. 4 milljónir. Sömu upphæð
hlaut Nanna Hermannsdóttir,
borgarminjavörður i verkefniö
„Vöxtur Reykjavfkur og skipting
búsetunnar 1876-1902.” Hugvis-
indadeild veitti alls 39 styrki.
Raunvisindi.
Hæsta styrk úr raunvisinda
deild hlaut Raunvisindastofnun
Háskóla Islands, sex milljónir
i verkefni „Efnajafnvæg
milli steinda og vatns i jaröhita
kerfum,, Hans Guömundsson
eðlisfræöingur fékk 5.5 milljónir I
verkefniö „Lághitabúnaöur til
rannsókna á spinnaglerástandi
fastra efna” og þrir aöilar hlutu 5
milljón kr. styrki, Norræna eld-
fjallastöðin, Siguröur St. Helga-
son lifeðlisfræðingur og
Rannsóknastofa H.l. Raunvis-
indadeild veitti I allt 46 styrki.ms
„ísland í dagM
Fimmta sumarsýning Norræna
hússins hefur nú veriö opnuð og
stendur hún fram til 10. ágúst. Að
þessu sinni sýna þrfr málarar,
þeir Benedikt Gunnarsson,
Jóhannes Geir og Sigurður Þórir
Sigurðsson, og einn myndhöggv-
ari, Guðmundur Elfasson.
Sumarsýning Norræna hússins
hefur verið fastur þáttur i menn-
ingarlifi Reykjavikur I nokkur ár.
Þótt hún sé vitanlega öllum opin,
þá er tilgangur hennar fyrst og
fremst sá að kynna erlendum
ferðamönnum Islenska myndlist.
Og eins og segir I fréttabréfi
Norræna hússins, þá nægir ekki
að beina þeim gestum á listasöfn-
in eingöngu, þar sem þeir geta
skoðað myndir margra málara,
þvi þargefst sjaldnast kostur á að
sjá mörg verk sama listamanns-
ins.
Annar liður I Islandskynningu
Norræna hússins eru fyrirlestrar
af ýmsu tagi, sem haldnir eru
hvert fimmtudagskvöld I „Opnu
húsi.” A fimmtudaginn kemur
talar Haraldur Olafsson lektor
um Island I dag. „Opnu húsin”
hefjast'kl. 20.30 og loka kl. 23.!!.
Sumarsýning Norræna hússins er
opin daglega frá 14-19.
Ms
Til minn-
ingar um
Umhverfi 80
Umhverfi 80 átti ekki litinn hlut I
þeim gleðisvip, sem var á
Reykjavikurborg Listahátiðar-
mánuði. Og eins og flesta rekur
eflaust minni til, var þar rekin
myndsmiðja, sem öllum var opin.
Þar var vefstóll, sem freistaði
margra gesta og að sýningunni
lokinni var árangurinn teppi, 2m
á hæð og einir 4 á breidd. Þetta
teþpi hefur nú verið gefið Reykja-
vikurborg af aðstandendum
Umhverfis 80 „til að minna á, hve
æskilegt væri að koma á fót opnu
verkstæöi, með leiðbeinendum
þar sem ungir og aldnir gætu
fengið gleði og athyarf” eins og
segir f afhendingarbréfinu. Vegg-
teppiö, „ofiö af 1000 fingrum
gesta I myndsmiðju Umhverfis 80
I Breiðfiröingabúö” hangir nú i
anddyri Laugardalshallarinnar.
Þau, sem afhentu teppiö voru
þau Bjami Danielsson, Borghild-
ur óskarsdóttir, Halldóra Thor-
oddsen, Jóhanna Bogadóttir, Sig-
urður Þórir Sigurðsson og Unnur
Jónsdóttir, en þau unnu öllf sjálf-
boðavinnu við leiðbeiningu i
myndsmiðjunni.
Veggteppiö er liklega það
heppilegasta, sem Umhverfi 80
lætur eftir sig til áminningar
borgaryfirvöldum, þvi það er ofið
af þeim fjölda manns sem lagði
leiðina i Breiðfirðingabúð og
sýndi um leið nauösyn þess að
miðbærinn væri lifandi athvarf
borgarbúa fremur en verslunar-
miðstöð eingöngu. Ms
Sigurjón Pétursson, forseti borg-
arstjórnar veitir veggteppinu
móttöku.
Myndllst
Akranes.
1 dag lýkur sýningu „Narpers
Konstklubb” frá Finnlandi i
Bókasafninu. Myndlistarfélagið
„Narpes Kostklubb” er frá vina-
bæ Akraness og það eru um 10
málarar, sem hafa sent myndir
sinar á þessa sýningu. Þeir sýna
bæði ollumálverk, vatnslita-
myndir og grafik, en alls eru um
40 myndir á sýningunni. Að sögn
aöstandenda eru myndirnar bæði
fjölbreytilegar og skemmtilegar.
Sýningin er opin frá kl. 2-10.
Selfoss.
Hans Christiansen opnaði mál-
verkasýningu I Safnahúsi Arnes-
sýslu á föstudaginn. Hann sýnir
þar 34 vatnslitamyndir og teikn-
ingar gerðar á þessu ári og þvi
slöasta.
Hans hefur lagt stund á mynd-
list um árabil og stundaði nám i
Myndlistarskólanum i Reykjavlk
og Akademiet for fri og merkantil
kunst i Kaupmannahöfn. Þetta er
hans önnur einkasýning. Hún er
opin frá kl. 8-10 virka daga og 2-10
um helgar. Sýningunni lýkur
næsta sunnudagskvöld.
Hveragerði.
Gunnar Gestsson málari sýnir i
Eden. A sýningunni eru 25 oliu-
málverk. Þetta er áttunda einka-
sýning Gunnars. Ms