Vísir - 04.07.1980, Page 7

Vísir - 04.07.1980, Page 7
vtsm Föstudagur 4. júll 1980. Þrír leikir á dagskránni Keppnin í 1. deild Islands- mótsins I knattspyrnu hefst aftur um helgina. >á leika Valur og Keflavlk I Laugardal kl. 14 á morgun, á sama tfma leika IBV og FH i Vestmannaeyjum og á Akranesi leika Skagamenn gegn Breiöablik kl. 15. Sepp Piontek landsliösþjálfari Dana t.v. og meö honum var staddur fyrirliöi grænlenska landsliösins Lars Olsvlg. Vlsism. Friöþjófur. Sá sem stýrir græn- lenska landsliðinu i knattspyrnu i þriggja landa keppninni hér á landi nú i vikunni er enginn annar en V-Þjóðverjinn Sepp Piontek. Hann er mjög kunnur þjálfari i heimalandi sinu, en tók nýlega við störfum hjá danska knattspyrnu- sambandinu og sér alveg um landsliðsmál- in hjá Dönum. Við hittum Piontek á Hótel Esju i fyrradag og ræddum við hann um landsliðsmálin i Z anmörku og um kynni hans af islenskri knatt- spyrnu og islenskum leikmönnum meðal annars. „Islendingar eiga viö sama vandamál aö etja og viö i Dan- mörku, aö ná saman sinu sterk- asta liöi fyrir landsleiki,, sagöi Piontek. „>aö er erfitt aö ná saman atvinnumönnum viös- vegar aö úr Evrópu og oftast tekst þaö ekki fyrr en tveimur til þremur dögum fyrir leik og kemurþaö aösjálfsögöuniður á leik liösins ,menn ná ekki aö þekkja nógu vel inn á hver annan og þar afleiöandi veröur útkoman ekki alltaf eins og maöur vildi hafa hana.” — Nú eiga Danir aö leika viö Sovétmenn i Moskvu 13. júli, hvernig leggst sá leikur i þig? „Nokkuö vel, aö visu ætla ég eingöngu aö nota leikmenn sem leika I Danmörku en ég er bjart- sýnn, I siöustu viku fórum viö I æfingabúöir I suöur-Danmörku og þá var sú nýbreytni viöhöfö að leikmenn tóku meö sér eigin- konur og börn og var dvaliö i sumarbústööum og var þetta mjög ánægjuleg ferö. >arna gafst timi til aö kynnast og æfa ýmislegt sem ekki haföi veriö hægt áöur sökum timaskorts t.d. hornspyrnur i aukaspyrnur og aöra taktik. >arna komu 21 leikmaöur af 22 manna hópnum sem ég haföi valiö aöeins einn fékk ekki heimangengt.” — Viö spuröum Sepp Piontek þvi næst aö þvi hvort hann þekkti eitthvaö til islensku at- vinnumannana. Pétur er góður „Já ég hef haft spurnir af nokkrum þeirra og reyndar hef' ég séö Pétur Pétursson leika. Ég sá hann leika meö Feyen- oord þegar ég var i Hollandi aö lita á Ivan Nielsen en hann leik- ur með Pétri, Pétur er mjög góöur leikmaður, hann er sæk- inn, hefur góöa skallatækni og ávallt á réttum staö og þegar hann fór út til Hollands þá gekk honum mjög vel aö aölagast aö- stæöum og komast I liðiö. Minni þjóöirnarl knattspyrnunni hafa ekki sömu möguleika á aö koma sinum mönnum á framfæri eins og stóru þjóöirnar, en ég hef fylgst meö samningsgerö Atla Eövaldssonar og skrifaöi meira aö segja grein i þýskt blaö um gangsamningsmála hjá honum. Einnig veit ég að markvöröur ykkar hvaö heitir hann aftur, Ólafsson er þaö ekki, leikur i Sviþjóö, og einn leikmaöur enn er I >ýskalandi (þar á hann viö Janus Guðlaugsson innsk. blm.) >á vissi hann einnig um As- geir Sigurvinsson en haföi ekki séöhannleika, „og einn enn,þaö er tannlæknirinn , hvaö heitir hann aftur, Elmar er þaö ekki, ég man eftir þvi aö hann þurfti aö hætta útaf meiöslum i hné, og ég heyröi þaö að hann væri byrj- aöur aö leika aftur á Akureyri’.' Hvaö ertu meö langan samning við danska knatt- spyrnusambandiö? „>etta er tveggja ára samningur og er hann hálfnaöur, þaö er allt óráöiö hvaö ég geri eftir að hann er útrunninn, mað- ur á eftir aö sjá hvernig útkom- an verbur I þeim leikjum sem eftir eru. Gætiröuhugsað þér að taka aö þér landsliösþjálfarastarf hérna á Islandi? Athuga islenskt tilboð „Ég veit það ekki, en ef aö til- boð kæmi mundi ég aö sjálf- sögöu athuga þaö. Mér finnst of snemmt aö tala um þetta núna, það er ennþá eitt ár eftir af samningi minum i Danmörku og þetta er I fyrsta skipti sem landsliösþjálfari er i fullu starfi þar. Kemur þaö aðallega til af þvi aö Carlsberg bjórverk- smiöjurnar greiöa um 200 milj. islenskra króna til danska knattspyrnusambandsins og á þaö aö fara i landsliðsmálin, m.a. til aö þjálfarinn geti fariö utan og skoöaö leikmenn sem leika meö erlendum liöum, en þaö eru 55 danir sem leika er- lendis”. Viö spuröum Sepp Piontek um grænlenska liðiö. „Ég veit jafnlitiö og þú um þetta lið, þeir báöu mig aö aö- stoöa sig og ég varö viö þvi, ég veit aö þeir geta ekki leikiö knattspyrnu nema 2-3 mánuöi á ári og Lars Olsvig fyrirliði þeirra sem kom meö mér frá Danmörku sagði mér að þeir æfðu daglega, og tvisvar á dag þegar gott veður væri. „>ab er slæmt aö geta ekki haft neina æfingu fyrir leikinn viö Færeyjar til aö sjá leik- mennina. Sumir hafa aldrei sést >eir búa svo dreift á Græn- landi aö erfitt hefur verið aö ná þeim saman á æfingar og sumir hafa ekki sést áöur. Fyrir tveimur árum léku þeir i Danmörku en hitinn gerði þeim erfitt um vik en þeir búast viö betri árangri hérna þvi þaö er ekki eins heitt. Tveir komast ekki vegna peningaleysis, en þeir þurfa að greiöa ferðina sjálfir, en Græn- lendingar hafa átt tvo leikmenn 11. deildinni dönsku og hafa þeir staðiö sig vel” sagöi Sepp Pion- tek landsliðsþjálfari Dana aö lokum. röp-. Viö vitum ekki hvort Guömundur Steinsson er svona hissa yfir vali landsliösins eöa einhverju ööru. ÁTTA NÝLIDUM TEFLT FRAM! - Gegn grænlendingum í kvöld á Húsavík Hvorki fleiri eöa færri en 8 nýliöar eru I Islenska landsliös- hópnum sem á ab mæta græn- lenska landsliöinu á Húsavik i kvöld, en val hópsins var tilkynnt i gær. >ab mótast auövitaö af þvi aö leikmennirnir eru einungis valdir úr þeim félögum sem eiga ekki leik i 1. deildinni á morgun eöa sunnudag, þaö er aö segja úr Fram, Viking, >rótti og KR, enginn er frá Val, Akranesi, Vest- mannaeyjum, FH, Breiöablik eöa Keflavik. Hópurinn litur þannig út: Diörik Ólafsson Viking Stefán Jóhannsson KR Þrjú golfmót um helgina >rjú „opin” golfmót fara fram um þá helgi er fer f hönd, og eru þau á Akureyri, Akranesi og I Reykjavik. Hjá Golfklúbbi Reykjavikur er GR mótiö á dagskrá en þaö er eitt mesta mót sem hér er haldiö. Tveir og tveir leika saman og telur betri bolti. Leiknar veröa 18 holur á morgun og aörar 18 á sunnudag. A Akureyri fer fram minn- ingarmót um Ingimund Arnason. >að er opiö mót, leiknar veröa 36 holur á morgun og sunnudag meb og án forgjafar. A Akranesi er opin kvenna- keppni, Skagaprjónskeppnin. Hún er 18 holu keppni meö og án forgjafar og verður ræst út á milli 10 og 12 1 fyrramáliö. Lárus Guðmundsson Viking Hinrik >órhallsson Viking Trausti Haraldsson Fram Marteinn Geirsson Fram Jón Pétursson Fram Simon Kristjánsson Fram Guömundur Steinsson Fram Pétur Ormslev Fram Agúst Hauksson >rótti Jóhann Hreiöarss. >rótti Páll Ólafsson >rótti Ottó Guömundsson KR Elias Guömundsson KR >eir Stefán, Lárus, Simon, Guömundur, Agúst, Jóhann Páll og Elias eru allir nýliöar. Ekki er ástæöa til aö fjalla um þetta val hér, Landsliösnefnd eru settar þannig skoröur viö val sitt aö hér er nánast ekki um neitt landslið aö ræöa nema aö nafninu til. gk — „Sömu vandamál og í DanmöPKu” - Segor sepp Piontek pjálfari danska landsiiösins og stjórnandi grænlenska landsliðsins í einkaviðiali við vrsi

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.