Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 5
5 Tass-fréttastofan Hirtír tilkynningu úr sendiráöinu. bar sem varaö er viO ráöageröum um aö hertaka sendiráðíö Er sovéska sendiráöiö í Teheran í hættu? Þessimynd var tekin, þegar herskáir stúdentar tóku með valdi sendiráö Bandarikjanna i Teheran, en Moskva flýtti sér þá að lýsa yfir stuðningi við hina herskáu, og steinhætti að nefna friðhelgi diplómata um nokkra hrið. — Nú eru Sovétmenn uggandium sendiráö sitt i Teheran. Eyðimerkurhrakningin var til einskis gagns Fjórtán ólöglegir innflytjendur frá E1 Salvador, sem höfðu nær farist i brennandi hita Ari- zóna-eyðimerkurinnar, fengu að vita i morgun, að þeir hefðu til lit- ils lagt á sig hörmungarnar. Þeir verða sendir aftur til E1 Salvador. Þ.e.a.s. þeir sem af lifðu. — Þaðan höfðu þeir þó einmitt reynt aö flýja pólitiskt of- beldi og óvissu. mörkinni, þar sem borin von þykir, að nokkur sé lifs eftir rúma fimm sólahringa vatnslaus i eyði- mörkinni. Fernt liggur enn á sjúkrahúsi, en hin tiu eru i haldi landamæra- vörslunnar. Flestir i hópnum höfðu mexikönsk vegabréf og verða þeir sendir til Mexikó, en hinir beint til E1 Salvador. það verður gripið i fyrstu tilraun. Sovétrikin, sem segja, að sendi- ráð þeirra i Teheran gæti hlotið sömu örlög og það bandariska, hafa skorað á Iransstjórn að af- stýra tilraunum „fjandsamlegra afla” til þess að hernema það. 1 tilkynningu, sem sendiráð Sovét i Teheran sendi frá sér, — og Tass-fréttastofan greinir frá — segir: „Upplýsingar liggja fyrir um öfl fjandsamleg Sovétrikjun- um, er hyggist troða illsakir við sendiráð USSR I hinu islamska liðveldi Irans, og jafnvel hertaka það.” Tass segir, að tilkynningin veki athygliyfirvalda á „hættu” slikra aðgerða, og krefjist þess að þau gripi til allra tiltækra ráða til þess að hindra þær. Frá þvi, að Valdimir Golovanov, sendiráðsritara, var visað úr Iran 30. júni, sakaður um njósnir, hefur sambúð Sovétrikj- anna og trans farið ört hrakandi. —Sovétrikin hafa ekkert látið frá sér heyra um brottvisunar- málið, en hjá Sovétmönnum hefur vaknað kviði um, að þetta eigi eftir að bitna á sendiráðsfólki þeirra. Bandariska sendiráðið, sem hertekið var I nóvember siðasta, var af árásarmönnum kallað njósnamiðstöð og ýmsir gislanna 50, sem enn eru á veldi Irana, voru sakaðir um njósnir. transstjórn hefur reynt að full- vissa Moskvu , að allar öryggis- ráðstafanir verði gerðar til þess að vernda sendiráð Sovétrikj- anna. Moskva hótar gagnráðstöfun um. ef etdflaugum fjöigar Cr 27 manna hópi, sem smygl- arar laumuðu yfir landamæri Mexikó inn i Bandarikin, létu þrettán lifið i eyðimörkinni, þar sem þeir voru allir skildir eftir vatnslausir I steikjandi eyði- merkursólinni. Aður höfðú smyglararnir rænt verðmætum þeirra. Skrælnandi af þorsta reyndi fólkið að svala sér með rakspira, lykteyði og jafnvel þvagi sjálfs sin i 49 stiga hitanum. Leit hefur verið hætt I eyði- Landamæraverðirnir leita smyglaranna, sem i daglegu tali eru kallaðir „sléttuúlfarnir”, en liklegt þykir, að þeir hafi snúið til Mexikó. Smyglarar, sem lauma fólki yfir landamærin, taka gjarnan 300til l,200dollara i gjald á haus. Venjulega neitar fólk, sem komist hefur þann veg inn til Bandarikjanna að segja til smyglaranna — jafnvel þótt þeir hafi rænt fólkið. — Vel skipu- lagðir smyglarahringir lofa fólk- inu oftast, að smygla þvi aftur framhjá landamæravörðunum, ef Sovétstjórnin sagði i morgun, að fjölgi Bandarikin og NATO-bandamenn þeirra ameriskum kjarnorku-eldflaug- um iEvrópu, muni Moskva bæta sér upp muninn. Þetta birtist i málgagni stjórnarinnar og kommúnista- flokksins, dagblaðinu Pravda, eftir þvi sem segir I fréttaskeyti Tass-fréttastofunnar sovésku. „Sovétrikin munu ekki liða Bandarikjunum og NATO-rikjun- um að rjúfa jafnvægið. Ef Banda- rikin fjölga eidflaugum sinum i V-Evrópu, munu Sovétrikin og bandamenn þeirra gera allar ráð- stafanir til þess að koma á að nýju jafnvæginu, sem þannig yrði raskað,” segir i þessari frétt Pravda. I siðustu viku ræddi Helmut Schmidt við Leonid Brezhnev i Moskvu og bauðst þá Kremlleið- toginn til þess að falla frá tveim fyrri skilmálum Sovétmanna fyrir þvi að taka upp aö nýju við- ræður um takmarkanir kjarna- eldflauga i Evrópu. Upphaflega hafði Sovétstjórnin settþað skilyröiað beðið yrði fyrst þess, að Bandarikjaþing staðfesti áður Salt-II-samninginn, og að NATO tæki aftur sina fyrri ákvörðun frá þvi i desember um að byrja að setja upp nýja eld- flaugaskotpalla i Evrópu. Carter-stjórnin hefur lagt SALT-II-samningana á hilluna i bili, eftir innrás Sovétrikjanna i Afghanistan, og segja áhrifa- menn i Bandarikjaþingi, að engin von sé til þess, að þeir samningar verðistaðfestir af þinginu á þessu ári. Sökk eftir árekstur Japanskt flutningaskip með 75 smálestir af nitrous soda innan- borðs (nægilegt til þess að drepa 37 milljónir manna) sökk við Kobe i Japan eftir árekstur við annað japanskt skip i svartaþoku. Siglingamálastjórn Japans tel- ur þó, að efnið verði meinlaust, þegar það blandast sjónum. — Nitrous soda er hráefni notað til framleiðslu á ljósmyndafilmum. Tveggja manna áhöfn skipsins var bjargað um borð I hitt skipið. Andiitsslæðan aftur Iranskar konur, sem starfa hjá þvi opinbera, eiga nú tveggja kosta völ: Klæðast að sið islams eða missa kaupið. Við þvi er búist, að flestar velji að beygja sig undir klæðaregluna. Margar af þvi að þær eru sann- færðar um réttmæti hennar, en aðrar af þvi að þær telja sig til- neyddar. I dag rennur út frestur sá, sem Khomeini æðstiprestur setti fyrir tiu dögum til þess að útrýma öll- um verksummerkjum keisara- veldisins hjá þvi opinbera. Hefur nú lokst verið skipt um bréf- hausa. Andlitsslæðan og viðar flikur, sem hylja útlinur likamans, eiga sem sé að koma I stað hins vest- ræna klæönaöar kvenna, er tals- vert bar orðið á siöustu stjórnar- ár keisarans. Próf á Klarnorkuverum Stjórnendum 24 kjarnorkuvera I Bandarikjunum sem öll nota suöuvatnskjarnofna, hefur verið skipaö að reyna til þrautar lokun- arkerfi orkuveranna, eftir erfið- leika sem komu upp i kjarnorku- veri I Alabama i siðasta mánuði. Nokkur þessara orkuvera eru ekki I rekstri, en þau verða sömu- leiöis að prófa þennan öryggis- búnað sinn, áður en þau hefja rekstur að nýju. Anderson I israel John Anderson, hinn óháði frambjóðandi til forsetakosning- anna i Bandarikjunum, kemur i dag til Tel Aviv og mun þar hitta að máli leiðtoga ísraels. Segist hann vilja nota kosningaáhugann i tsrael til góða. Anderson keppir að þvi aö ná fylgi gyðinga i Bandarikjunum. Enn stelklandl hlll í Texas Nær 180 manns hafa dáið I hita- bylgjunni, sem steikir Texas og aðliggjandi fylki I Bandarikjun- um. Virðist ekkert lát ætla að verða á hitanum, sem verið hefur 42 gráður á Celsius að undan- förnu, fyrr en þá I júlilok eða byrjun ágúst, að þvi er veður- fræðingum sýnist. Brennandi hitinn og þurrkur- inn, sem fylgir, hefur valdið usla I landbúnaöinum — bæöi felli gripa og eins sviðið akra. John Anderson VIsismyndÞG.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.