Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 8. júll 1980. Hugleioingar aldraorar konu á andvökunóllum Andvökunæturnar eru margar hjá sumum og geta stafað af ýmsum ástæðum, til dæmis llkamlegri vanliðan, andlegri vanllðan, sorg, söknuöi og svo framvegis. Eöa blátt áfram af þvi að fólk vorkennir sjálfu sér. Og svo er það altltt, að sumir vaka' kannske einn, tvo, þrjá tima á nóttu og álita, að þeir hafi vakaö alla nóttina. En svona er lifið. Nú getið þið imyndaö ykkur að þegar maður vakir margar nætur, þá hugsar maður margt og það sækja að manniýmsar hugsanir. Ég fyrir mitt leyti segi það, aö mér leið- ist aldrei. Mér er alveg sama þó ég vaki. Ég sest fram á og það er stundum eins og sé dregið frá tjald og það rifjast upp atburöir frá æsku og yngri dögum. Og þetta verður ljóslifandi fyrir mér. Þó ég sjái ekki neitt, þá upplifi ég það allt I huganum og þetta getur verið alveg dásam- legt. Að visu er þetta misgott en er þaðekki svo með flest I heim- inum, að það er ýmist gott eða illt. Og nú náttúrulega hlýt ég að vikja úr einu I annað. Og þið verðið að afsaka þó þetta sé svo- lítið á ringulreið, því að hugs- anirnar sækja að manni úr öll- um áttum, likt og vindar blása úr öllum áttum, Ræður enginn við það. Mikið gert fyrir gamla fólkið Nú er ég aö hugsa fyrst og fremst að byrja á þvi, að ég hefi heyrt raddir um það, að litið og jafnvel ekkert sé gert fyrir gamla fólkiö. Ég er nú ein af þessu, ég vil nú kalla það aldraða fólkið frekar, og ég verð að viðurkenna, að ég veit ná- kvæmlega, hvað ég er að tala um. Og sannast að segja þá er svo mikið gert fyrir aldraða fólkið, aö þaö hefur vlst aldrei verið gert annað eins og alltaf meira og meira. Ég bý I einu af þess- um húsum, sem hafa verið reist fyrir aldraða sem hafa verið I vandræðum með húsnæði og ég hef þar smálbúð, mjög þægilega uppi á áttundu hæð, dásamlegt útsýni og mér llður hér I alla staöi mjög vel. Hér höfum viö öll þægindi og hér er ágætis fólk. Og sannast að segja, þá get ég ekki hugsað mér betri staö fyrir fólk, til dæmis einstæðinga eins og mig, þvi að ég er barnlaus og þar af leiðandi á ég ekki heldur bamabörn og ekki neitt, en þaö skiptir mig ekki máli, úr þvl sem komiö er, mér leiðist aldrei, sem betur fer. Nóg er að þó ég geti ekki starfað lengur, þá get ég lesið og má þakka Guði fyrir, að hafa góöa sjón og góða heyrn. Að vísu geng ég viö tvær hækjur, en ég þakka Hka Guði fyrir að þurfa ekki aö liggja lömuð I rúmi eöa jafnvel I hjólastól, bjargarlaus. Þannig aö mér finnst að hver einasta manneskja ætti að hugsa sem svo, að þó henni llði eitthvað misjafnlega, aö það eru svo margir I heiminum sem llður miklu verr, og mér finnst það vera hreinustu vandræði að hugsa eingöngu um sjálfan sig. Ég læt nú þetta duga að sinni. Við höfum hér I húsinu öll þægindi eins og ég sagöi. Hús- vörð og konu hans, prýöismann- eskjur, sem hugsa mjög vel um okkur og gera allt sitt besta til að láta okkur llöa vel og sjá um að okkur skorti ekkert. Og ég veit nú eiginlega ekki, hvað fólk er alltaf aö kvarta. íslendingar lifa góðu lífi Og ég furða mig á þvi með ellillfeyrinn, það eru sumir að tala um hvað hann sé lítill og svo framvegis. Ég segi fyrir mitt leyti að ég lifi fullkomlega vel á þvl sem ég hef I ellillfeyri og er þakklát fyrir. Og ég furða mig á því á þessum vandræöa- timum, hvernig I ósköpunum mennirnir geta borgað allt þetta til fólks, öryrkjum, gamal- mennum og svo framvegis. Að vlsu lifum við öll, við vitum það, á dýrtlðar- og verðbólgutlmum, en ég veit ekki betur en það sé svo um allan heim og I flestum ef ekki öllum löndum og sums staöar miklu verra heldur en hérna. Og ég sé ekki betur en lslend- ingar, yfirleitt, lifi góðu llfi. Flestir eiga hús eða Ibúöir, blla, öll þægindi og jafnvel fara til sólarlanda á hverju ári. Og mér er það óskiljanlegt vegna hvers fólk er síkvartandi. Þaö kann aö vera að það blasi við vondir timar núna, jafnvel atvinnu- leysi, sem er með þvi alversta. Og svo er annað sem mér hefur komið I hug. Að hugsa sér hvað þaö væri dýrölegt, ef einhvern timann að þjóðin I heild ynni með þeirri stjórn sem hún hefur kosið,hver sem svo sú stjórn ei; þjóðin hefur kosið hana og henni ber að vinna með henni og hjálpa henni eftir bestu getu, en ekki bara heimta alltaf meir og meir. Og þetta eru nú hugsanir sem sækja að mér I okkar dásamlega landi, Islandi, sem ég állt besta land I heimi, engar styrjaldir, engin vopn og svo framvegis. Þaö er kannske ýmislegt sem gæti verið betra, ég skal ekki segja það, en þaö er öruggt, að það er ekki heiglum hent að stjórna þessu landi, þvl mér finnst, meö allri virðingu fyrir Islendingum, að þeir séu mjög heimtufrekir. neöanmóls Þaö er fátítt að aldrað fólk láti til sín heyra í blöðum, og ennþá fá- tiðara er að greinar séu sendar með svo jákvæðu hugarfari sem grein Ast- hildar. Hún á erindi til okkar allra. Þeir vilja alltaf meir og meir og best gæti ég trúaö, aö þaö færi svo, að þeir heimtuðu rif- andi kaup fyrir að gera ekki neitt, og þetta eru nú minar hugsanir. Og siðan sný ég mér að öðru. Gamla fólkið ljómaði Ég á ekki mjög gott meö ferðalög vegna þess, að ég geng við tvær hækjur. Þaö kostar mig alltaf leigubil I hvert skipti og þið vitið nú það, aö við slfellt hækkandi bensln þá verða þeir nokkuð dýrir. En sama, ég eyði ekki neitt, ég fer ekki I bló og ég fer ekki I leikhús og ég fer ekki á skemmtanir og það eina sem ég eyöi 11 raun og veru eru leigu- bllar og án þeirra get ég ekki lifað og miöaö við annað þá finnst mér þeir ekkert dýrir. Auk þess eru bílstjórarnir ákaf- legaliðlegir og hjálplegir. Ég er nýbúin að koma þvl I fram- kvæmd að fara suöur I Hafnar- fjörð og heimsækja gamal- mennin á Hrafnistu og Sólvangi, en ég starfaöi I mörg ár sem hjúkrunarkona I Hafnarfirði og þekki þar af leiöandi marga þau sérstaklega gamla fólkiö. Aö vlsu er margt dáið, en þó margt sem lifir. Og ég ætla ekkert að lýsa því hvaö ég haföi mikla ánægju af þeirri ferð og flest þetta fólk og eiginlega allt mundi eftir mér og það fannst mér dásamlegt. Og svo er þar fólk sem situr I hjólastólum og viröist alveg vera komiö út úr þessum heimi. Ég segi fyrir mitt leyti að þar sá ég marga sem ég þekkti alls ekki og hef aldrei séð en ég gekk til þeirra og tók I hendina á þeim og sagði bara: Komdu blessaöur eða komdu blessuð og brosti til þeirra og gamla fólkið ljómaði. Hlýtt handtak og bros Það þarf ekki mikiö til að gleðja sllkt fólk. Að vlsu eru margir sem fá heimsóknir, en þaö eru aörir sem fá fáar heim- sóknir og sumir jafnvel engar. Og ef að fólk almennt gerði sér grein fyrir þvl, hvað það þarf litið til aö gleöja náungann, þá hugsa ég að það mundi gera meira af þvl heldur en þaö ger- ir. Hvað munar fólk um það sem á bíla og brunar framhjá rétt að llta inn og heilsa upp á fólkið. Það þarf ekkert að stoppa lengi. Mér svona rétt datt þetta I hug á mlnu ferðalagi og reyndar hefur mér oft dottiö þetta I hug áður, en ég sá þetta svo skýrt núna. Nú eiginlega veit ég ekki hvað á á að tala um næst. Það er svo ótal margt. En bara þetta, hlýtt handtak og bros. Þaö er ótrú- legt, hvað það getur margan glatt sem illa er staddur og þaö er ekki nóg með það aö fólk sem þetta gerir, þvl llður bara sjálfu helmingi betur á eftir aö hafa eytt fáeinum mínútum I að heilsa upp á þetta blessaða gamla fólk,þvi það virðist lifa og lifa þótt það sé eins og lifandi llk. Náttúrulega hlýt ég, sem eldgömul hjúkrunarkona að hugsa um þessi mál. Og að sönnu ætla ég að fara aftur suöurefíir og heilsa upp á þetta fólk, þvf aö það hressir mig á allan máta og gleður mitt hjarta og mér líður miklu betur á eftir. Að hugsa um náungann Það er svo margt sem ég get sagt, en þaö eru náttúrulega takmörk fyrir þvl, hvað þið nennið að lesa mikiö. Ég ætla þvl hérmeð að hætta þessum hugleiðingum I þetta sinn. En þaö getur vel veriö að ég skrifi eitthvað meira seinna, ég veit það ekki, þaö fer eftir þvl hvaö ég lifi lengi, þvl að ég er farin aö eldast og svo er undir ýmsu komiö. En ég mundi ráðleggja fólki að hugsa lltilsháttar meira um náungann og minna um sjálfansig. Aö vlsu eiga allir aö hugsa um sjálfan sig, þvl skrifað stendur: Elska skaltu náunga þinn eins og.. En ég er að hugsa um aö þessu sinni, að láta þessu máli mlnu lokiö og eins og ég segi þá kveð ég ykkur öllog eins og mln er venja, þá óska ég ykkur öll- um góörar heilsu. Asthildur Brlem frá Viöey, hjúkrunarkona.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.