Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 23

Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 23
vtsm Þri&judagur 8. júli 1980. msjón: Kristln: Þorsteinsdóttir, S Ný framhaldssaga í dag kl. 17.20: útvarp I dag mun Leifur Hauksson lesa annan lestur sögunnar „Barna- eyjan” eftir J.P. Jersild. Þýöandi sögunnar er Guörún Bachmann. Þessi saga var m.a. tilnefnd til bókmenntaverölauna Noröur- landaráös áriö 1976. Sagan fjallar um ellefu ára dreng, sem á aö fara i sumarbúö- ir. Honum finnst aö hann sé kom- inn á þann aldur aö nú fari hann aö kynnast lífinu af alvöru, og ákveður aö fara ekki I sumarbúö- irnar. Sagan fjallar slöan um þaö hvaö gerðist þetta sumar, á með- an allir halda að hann sé I sumar- búöunum. -AB Leifur Hauksson heldur áfram lestri sögunnar „Barnaeyjan”. 14.20 Miödegissagan: „Ragn- hildur” eftir Petru Flage- stad Larsen.Benedikt Arn- kelsson þýddi. Helgi Ellas- son les (6). 15.00 Tónleikasyrpa. 17.20 Sagan „Barnaeyjan" eftir J.P. Jersild. Guðrún Bachmann þýddi. Leifur Hauksson les (2). 17.50 Tónleikar. Til- kynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Félagsmálavinna. Þáttur um málefni launa- fólks, réttindi þess og skyldur. Umsjónarmenn: Kristln H. Tryggvadóttir og Tryggvi Þór Aöalsteinsson. 20.00 Frá óperuhátlöinni i Savonlinna I fyrra. Jorma Hynninen, Ralf Gothoni, Tapio Lötjönen og Kari Lindstedt flytja lög eftir Tauno Marttinen, Vaughan Williams, Franz Schubert, Aulis Sallinen og Yrjö Kilpinen. 20.55 Frændur okkar Norö- menn og Jan Mayen. Dr. Gunnlaugur Þóröarson flytur erindi. 21.15 Einsöngur I útvarpssal. Siguröur Björnsson syngur lög eftir Gylfa Þ. Gíslason og Arna Björnsson. Agnes Löve leikur á pianó. 21.45 (Jtvarpssagan: „Fugia- fit” eftir Kurt Vonnegut. Hlynur Arnason þýddi. Anna Guömundsdóttir les (14). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 „Nú er hann enn á norö- an”. Umsjón: Kristinn G. Jóhannsson. 23.00 A hljóöbergi. Um- sjónarmaöur: Björn Th. Björnsson listfræöingur. „Beöiö eftir Godot”, sorg- legur gamanleikur eftir Samuel Beckett. Leikarar Independent Plays Limited flytja á ensku. Meö aöal- hlutverk fara Bert Lahr, E.G. Marshall og Kurt Kasznar. Leikstjóri: Her- bert Berghof. SÍöari hluti. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. „Nú er hann enn á noröan”, nefnist þáttur sem Kristinn G. Jó- hannsson skólastjóri á ólafsfiröi sér um, og er á dagskrá útvarps- ins I kvöld. Aðspurður sagöi Kristinn, aö uppistaðan i þættinum væri viö- töl við þrjá öðlinga, um llfiö og til- Útvarp kl. 19.35: Félagsmál og vinna Á dagskrá útvarpsins I kvöld er þátturinn „Félagsmál og vinna”, þáttur um málefni launafólks, réttindi þess og skyldur. Þessi þáttur mun veröa á dagskrá út- varpsins hálfsmáriaðarlega mán- uöina júli, ágúst og september. Umsjónarmenn þáttanna eru Kristín H. Tryggvadóttir fræöslu- fulltrúi BSRB og Tryggvi Þór Aöalsteinsson fræöslufulltrúi Menningar- og fræðslusambands alþýöu. Efni þáttanna veröur tviþætt: 1 fyrsta lagi ýmis mál ofarlega á baugi hjá launafólki og samtök- um þess, i ööru lagi munu stjórn- endur þáttarins leitast viö aö svara spurningum sem þættinum kunna aö berast. í fyrstu tveimur þáttunum veröur fjallaö um orlofsmál, t.d. rétt launafólks til orlofs, og einnig veröa orlofsbyggöirnar i Mun- aöarnesi og Svignaskaröi heim- sóttar. -Ab veruna. „Þessir öölingar eru Asgrimur Hartmannsson fyrr- verandi bæjarstjóri, Siguröur Jó- hannesson, skósmiöur, og Magnús Gamalielsson, útgerö- armaöur meö meiru.” I þættinum veröur einnig dálitiö af léttri tónlist, sem fléttuö verö- ur inn i viötölin. -AB Kristinn G. Jóhannsson, umsjónarmaöur þáttarins „Nú er hann enn á noröan.” ______Uivarp Ki. 22.35:_ Vlðlðl Vlð Urlá ððllnga „Barna- eyjan” FLOKKAR LIFA EKKI A MANNKOSTUM EINUM Forusta Sjálfstæöisflokksins viröist næsta óhress aö for- setakosningunum loknum. Leiöari Morgunblaösins á sunnudag ber þvi vitni, aö flokksforustan hafi fyrst og fremst áhyggjur af Albert Guömundssyni, sem vann þaö afrek sem sjálfstæöismaöur, þingmaöur og borgarráösmaö- ur i Reykjavik, aö fá þrettán þúsund atkvæöi á landsbyggö- inni. Voru þó i raun tveir fram- bjóöendur, settir fram af áskor- endum, á eftir sömu atkvæöum og hann. Þetta, ásamt óábyrg- um kjafthætti I Dagblaöinu, sem veit yfirleitt ekki hvaö snýr upp eöa niöur I pólitik á tslandi, veldur þvl aö Morgunblaöiö hefur séö sig knúiö til aö skrifa haröoröasta leiöara, sem þar hefur sést lengi. Núverandi formaöur Sjálf- stæöisflokksins er ágætur maö- ur, sem ekki má vamm sitt vita. Um þaö eru raunar ekki deildar meiningar. Aftur á móti eru for- ustumenn flokka gjarnan spuröir um árangur á stjórn- málasviöinu, en minna dvaliö viö mannkosti þeirra, sem oftast eru ótvlræöir. ólafur Jó- hannesson, utanrikisráöherra, hætti m.a. formennsku i Fram- sóknarflokknum, þegar svo var komiö aö flokkur hans haföi aö- eins fylgi sem svaraöi tólf þing- mönnum. Sjálfstæöisflokkurinn hefur tapaö meirihiuta I Reykjavik, hann hefur tapaö meirihluta I Reykjavlk, hann hefur tapaö tækifærum til aö koma I framkvæmd málum sem hann hefur boöaö fyrir kosningar, vegna þess aö annaö tveggja hefur honum veriö þvælt inn I vinstri stjórnir, eöa þá aö fámennur armur hans hefurmyndaö rikisstjórn fram- hjá formanninum. Engansmá- an þátt I þvf eiga forustumenn andstööuflokka, sem hafa kom- ist upp á lagiö meö aö sniöganga formanns Sjáifstæöisflokksins, vegna þess aö þeim er ljóst aö ákveöinn klofningsvaki er fyrir hendi I flokknum. í slikum til- felium lifa menn ekki á mann- kostum einum saman. Albert Guömundsson hefur mjög veriö orðaöur viö ófarir flokksforustunnar. Hann er þó varia annaö en sjálfstæöismaö- ur, eins og hann oröaöi þaö i for- setakosningunum. Hvort hann er einhvern veginn ööruvisi sjálfstæöismaöur en t.d. Geir Hallgrlmsson, skal ósagt látiö, en varla veröur gerö krafa til þess I nokkrum flokki, aö hver einasti meölimur sé nákvæm- lega steyptur I þaö póiitlska mót, sem flokksforustan hverju sinni vill hafa á slnu liði. Skæt- ingurinn út I Albert Guömunds- son er t.d. miklu öflugri og meira áberandi en stjórnarand- staöa Sjálfstæöisflokksins, og má þaö furöulegt telja. Nú ligg- ur fyrir yfirlýsing Alberts um aö hann sækist ekki eftir for- mannsstööu, svo ekki ætlar hann sér aö ráöast til atlögu viö forustuna. Hitt getur meira en veriö aö hann telji aö flokkurinn eigi aö sýna haröari pólitik og virkari stjórnarandstööu, og aö honum finnist forustan of dauf I aögcröum, nema þá innan flokksins. Sjálfstæöisflokkurinn geröi auövitaö best i þvi aö taka rögg á sig gagnvart þeim þremur mönnum, sem fyrst og fremst hafa gengiö til hliðar viö hann og sinnt stjórnarmyndunar- kvabbi andstæöinga. Þaö eru þeir Gunnar Thoroddsen, Pálmi Jónsson og Friöjón Þóröarson. En I þvi efni skortir tilfinnan- lega kjark og röggsemi. Og þaö er kannski heista meinsemd Sjálfstæöisflokksins, aö hann hefur skort kjark og röggsemi til aö stjórna málum. Vinstri menn ráöa Reykja- vlkurborg, en vegna samninga þcirra innbyröis lendir stjórnarandstaöan þar á Krist- jáni Benediktssyni, sem veröur forseti borgarstjórnar á kosningaári. Hún hefur engin veriö til þessa. Frá árinu 1971 hafa veriö vinstri stjórnir I landinu og kommúnistar ráöa nú þvl sem þeim sýnist I þjóö- félaginu, frá æösta embætti og niöur úr. Allt og sumt sem Sjálfstæöisflokkurinn hefur til andsvara I þeim efnum er, aö Albert Guömundsson sé ómögu- lcgur I flokknum. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.