Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 6
6 VtSIR Þriöjudagur 8. júli 1980. Körluknattleikur: Danny Sliouse leikur með Njarövíkingum Bandariska „skormaskinan” Danny Shouse sem lék körfu- knattleik meö Armanni hér s.l. vetur og kom félaginu upp i Úr- valsdeild hefur nú undirritað samning um að leika með liði Njarövikur næsta vetur. Roy Jones á æfingu hjá Val f gær. Visismynd Jens. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það að Danny sem er einn al- besti körfuknattleiksmaöur er leikið hefur hérlendis mun verða Njarðvikurliðinu geysilegur styrkur, og sennilega er þarna kominn maöurinn sem Njarðvik- urliðiö hefur vantað til þess að komast alla leið á toppinn. Tim Dwyer sem hefur leikið með Val undanfarin ár er nú staddurhérálandi ogerástæðan sú að hann er að kynna Vals- mönnum nýjan leikmann sem á aö taka viö af honum. Sá er svartur og heitir Roy Johns og er kappinn 2,04 metrar á hæð. Hann mætti á æfingu hjá Val i gær- kvöldi og var ekki annað að sjá en að Valsmenn kynnu vel að meta takta hans. Roy Jones mun enda ekki vera neinn nýgræðingur i iþróttinni. Hann hefur m.a. annars leikið með bandariska atvinnumanna- liöinu Golden State sem er eitt af þekktustu atvinnumannaliðum i Bandarikjunum og siðustu árin hefur kappinn verið i frönskum körfuknattleik. Hann kemur nú hingaö, en Tim Dwyer hefur gert samning viö franskt 3. deildarlið sem heitir Toulouse svo þessir kappar hafa „landaskipti”. gk—. PEYSUR BUXUR Merkjum félögum, fyrirtækjum, skólum og einstaklingum þessa búninga, að ósk hvers og eins. PÓSTSENDUM Sportvöruverslun Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 Sími 11783 Fjórða mark KR f uppsiglingu, Júifus markvörður er búinn að missa boltann frá sér og Sverrir Her- bertsson vippar yfir hann og f markið. Vfsismynd Friðþjófur. KR-ingar fyrstir til að sigra Fram „Þetta var góöur leikur, sá besti hjá okkur i sumar,við náö- um baráttunni upp eins og hún var best í fyrra, við sýndum hvað i okkur bjó en það hefur ekki komiö fram I sumar, við erum á góöri uppleið” sagði Ottó Guð- mundsson fyrirliði KR eftir að þeir höfðu sigrað Fram 4-1 I 1. deildinni I knattspyrnu, i gær- kvöldi. Þaö sást strax 1 byrjun að KR-ingar komu ákveðnir til leiks og ætluðu ekkert aö gefa eftir baráttugleði einkenndi leik þeirra allan timann og yfirspiluðu þeir Framara oft á tiðum. Litið markvert gerðist í upphafi leiksins, liöin þreifuðu fyrir sér en engin hættuleg tækifæri komu, mest um spil á miðjunni. Fyrsta tækifæriö kom á 27 min er Trausti Haraldsson átti skot frá vitateig en Stefán Jóhannsson varði vel, minútu siöar skoraöi Jón Oddsson mark fyrir KR-inga en þaö var dæmt af vegna rang- stöðu sem virkaði hálf vafasamt. A 31. mfn. kom fyrsta markið, Pétur Ormslev og Trausti Haraldsson léku þá skemmtilega saman i gagn og Pétur komst inn- fyrir og gaf út á Trausta á mark- teig sem skaut 1 KR-ing fékk bolt- ann aftur og skoraði. Aöeins minútu siðar átti Sigurður Pétursson skalla á þver- slá Frammarksins en hættunni var bægt frá. KR-ingar jöfnuðu siðan á siðustu min fyrri hálfleiks;Elias Guðmundsson lék upp vinstra megin, gaf boltann á Hálfdán örlygsson sem gaf hann fyrir markið og þar var Sæbjörn Guö- mundsson fyrir og skoraöi lag- lega, markið má hiklaust skrifa á Július markvörð, hann hefði átt auövelt með að taka fyrirgjöfina. Um miöjan siðari hálfleik tóku KR-ingar forystuna, tekin var hornspyrna gefin stutt sending á Elias sem lék á Trausta og gaf fyrir markið og þar var Jón Odds- son fyrir og skoraði af markteig. A 35. min. auka KR-ingar enn við forystuna og að því marki var sérlega vel staöiö, Agúst Jónsson lék upp hægri kantinn og gaf jarðarbolta fyrir markið rétt utan við vitateiginn Sverrir Herbertsson hoppaði yfir boltann og lét hann fara og Elias tók viö honum lék nokkra metra og skaut jarðarbolta hægra megin i mark- iö, sérlega vel að þessu marki staöiö, viö þetta mark var eins og Framarar gæfust upp og sættu sig viö tapið. Nokkrum minútum fyrir leiks- lok bættu KR-ingar siöan fjórða markinu viö, Július markvöröur Fram hafði boltann og ætlaði að sparka út, en á einhvern óskiljan- legan hátt missti hann boltann frá sér og Sverrir Herbertsson sem ætlaöi aö dekka hann við útspark- ið náði boltanum og vippaði hon- um yfir hann, klaufalegt hjá Júliusi. KR-ingar voru vel að þessum sigri komnir þeir spiluðu oft skemmtilega saman og gáfu Frömurum aldrei frið, baráttu gleöi einkenndi allan leik þeirra og erfitt er að taka einhvern fram yfir annan I þessum leik þeir stóðu allir fyrir sinu og vel þaö. Um Fram liöiö er lítiö aö segja þeir léku illa,aðall Framliðsins til þessa hefur verið vörnin en hún brást heldur betur i þessum leik, þá er það sem alltaf hefur vantað i liöiö en það er miðjuspiliö, þaö vantar alla vinnslu á miöjuna og þá er oft erfitt að byggja upp sókn. Leikinn dæmdi Arnþór óskars- son. röp—. STAÐAN Staðan 11. deild islandsmótsins er nú þessi: Fram — KR 1-4 Valur............8 6 0 2 21:9 12 Fram.............8 5 2 1 10:6 12 Akranes..........8 422 11:8 10 KR................8 4 1 3 9:8 9 ÍBV .............8 3 2 3 14:15 8 Vikingur..........8 2 4 2 8:8 8 tBK...............8 2 3 3 7:11 7 Breiöablik........8 3 0 5 13:13 6 Þróttur...........8 1 2 5 12:22 4 FH................8 1 2 5 12:24 4

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.